Tíminn - 02.03.1991, Page 7

Tíminn - 02.03.1991, Page 7
in af hvoru tveggja." í hans huga er enginn efi um það að ís- land sé kostaríkt og byggilegt land, en geri kröfu til þjóðarinn- ar um að þekkja landið og kunna að nýta það. Hann segir svo: „Landið býður þjóðinni að vísu ákveðna kosti, en hvað hún velur af þeim og hvernig hún færir sér gæði landsins í nyt, það er að miklu leyti undir henni sjálfri komið. Þetta á jafnt við, hvort sem litið er á afstöðu landsins til annarra landa, efni þess og öfl, loftslag eða landslag. Þjóðin get- ur ekki flutt land sitt úr stað, en hve fljótt má komast þaðan til annarra landa, fer eftir sam- göngutækjum, en þau fara eftir dugnaði þjóðarinnar. Hér á íandi t.d. verður mikill hluti þjóðarinnar að lifa á kvik- fjárrækt og fiskveiðum, en á hvorn þessara atvinnuvega menn leggja meiri stund, hvern- ig þeir fara með skepnurnar, hvaða veiðarfæri þeir nota o.s.frv., því ráða þeir sjálfir. Loftslagið neyðir til að gera hús til varnar gegn kulda, stormi og úrkomu, en hvort þau eru aðal- lega gerð úr torfi og grjóti, stein- steypu eða tré og í hvaða stíl þau eru, því ráða menn sjálfir. Menn verða að komast um land- ið, en hvort menn fara um veg- leysur á hestum eða gera sér vegi, hvort þeir sundríða vötnin eða gera sér ferjur eða kláfa, hvort þeir gera sér akvegi eða járnbrautir eða fljúga, því ráða þeir nú sjálfir. Árstíðirnar ráða því að miklu leyti, hvað vinna má á hverjum tíma, en vinnubrögð- unum ráða menn sjálfir. Hvert veður hefur sín áhrif á ástand manna, andlegt og líkam- legt, ef þeir gefa sig þeim á vald, kuldinn hefur sín áhrif, hitinn sín, stormurinn sín, súldviðrin sín o.s.frv., en hvort mönnum verður of kalt í kulda, of heitt í hita, hvort stormurinn eða súld- in fær vald yfir skapinu, það fer að miklu leyti eftir því hvernig menn klæðast, hvað þeir hafast að og hvað þeir hugsa. Líkt er með landslagsáhrifin. Hvort menn njóta þess náttúru- unaðar, er landið býður, fer eftir fegurðarskyni þeirra og athygli á slíkum hlutum. í stuttu máli, landið neyðir til sumra hluta og gefur tækifæri til annarra, en hve langt nauðungin nær og hve vel tækifærin eru notuð, það fer eftir því, hvernig þjóðin er á hverjum tíma. Þess vegna farn- ast sömu þjóð misvel í sama landi á ýmsum tímum eftir því á hvaða menningarstigi hún stendur, þó kjörin, sem landið býður, séu svipuð fyrr og síðar.“ Háskólarektorar tala Hugleiðing dr. Guðmundar Finnbogasonar um „viðskipti þjóðar við land sitt“, eins og hann orðar það, er bæði lengri og ítarlegri en hægt sé að vitna til í blaðagrein. Hann sýnir fram á að íslendingar eiga ekki verra land en aðrir, en segir jafnframt að þau „gæði, sem landið geymir, eru sem þau væru ekki til, meðan þjóðin kemur ekki auga á þau, og þekkingin er leið allra fram- kvæmda.“ í því sambandi vfkur hann að því að farsæld þjóðar- innar sé undir því komin „að þekkja náttúru lands vors og sjávarins kringum það“. Þegar Guðmundur Finnboga- son, háskólarektor þess tíma, samdi ritgerð sína fyrir 70 árum fannst honum ýmislegt skorta á slíka þekkingu, en þá má líka spyrja hvort enn sé ekki svo, að menn ráðist í framkvæmdir án þess að hafa náttúruþekkingu að grundvelli athafna sinna. Á nýafstaðinni brautskráningar- hátíð í Háskóla íslands vék nú- verandi háskólarektor, dr. Sig- mundur Guðbjarnason, að sama hugleiðingarefni í ávarpsorðum sínum til þeirra sem nú voru að ljúka háskólaprófi. Ræða rektors birtist í Tímanum sl. þriðjudag. Þótt hann vekti einkum athygli á að enn væri þörf á að auka þekk- ingu á lífríki hafsins umhverfis landið, mætti allt eins nota þá at- hugasemd um þekkingu manna á náttúru og lífríki landsins sjálfs. Ekki verður séð að það sé nátt- úruþekking sem alltaf er látin ráða verklegum framkvæmdum og ráðagerðum um þær á land- inu sjálfu. Það er a.m.k. ekki náttúruþekking og nærfærni við náttúruna sem sýnist ráða ferð- inni hjá þeim sem ætla að gera hálendi íslands að vettvangi stór- framkvæmda langt fram yfir það sem nauðsyn krefur. Slíkt fram- ferði er reist á þeirri villukenn- ingu að maðurinn eigi að leggja náttúruna undir sig í stað þess að virða þá lífsspeki að maðurinn vinni með náttúrunni og fyrir hana. En víkjum að öðru efni. Danski flotinn kveður Nýlega kom danska varðskipið Vædderen (Hrúturinn) í eins konar kurteisisheimsókn til Reykjavíkur sem jafnframt var kveðjuheimsókn, því að þetta var síðasta ferð skipsins um norður- höfin þar sem það hafði gegnt landhelgisvörslu og björgunar- störfum um langt skeið við Fær- eyjar. Skipið er orðið gamalt og þykir ekki lengur fært um að sinna hlutverki sínu. Vædderen hefur ekki einasta tengst íslensku landhelgisgæsl- unni með góðu samstarfi og oft komið við sögu íslenskra sjófar- enda í sjávarháska, heldur á hann virðulegan sess í íslandssögunni, því að á því skipi komu Danir færandi hendi þegar dýrmætustu íslensku handritin voru færð ís- lendingum til varðveislu vorið 1961 og flutt með viðhöfn á þessu danska herskipi eftir að hafa prýtt dönsk bóka- og skjala- söfn öldum saman. Kveðjuheimsókn Hrútsins er því tilefni til þess að rifja upp hin aldalöngu tengsl íslands og Dan- merkur, ekki síst sjálfstæðisbar- áttuna, sem íslendingar háðu við Dani á 19. og 20. öld, sem endaði með stofnun lýðveldis 17. júní 1944. Áður höfðu Danir viður- kennt ísland sem fullvalda og sjálfstætt ríki í konungssam- bandi við Danmörku 1. desember 1918. í sambandslögunum var eigi að síður gert ráð fyrir að Danir færu með utanríkismál ís- lands samkvæmt sérstöku um- boði og önnuðust landhelgis- gæslu. Heimsstyrjöldin 1939- 1945 breytti þó þeirri skipan, því að utanríkismálin tók íslenska ríkisstjórnin í sínar hendur við þær aðstæður sem skapast höfðu við hernám Danmerkur 1940 og að sjálfsögðu batt það endahnút- inn á landhelgisgæslu Dana við ísland, sem reyndar var orðin hverfandi og aðeins nafnið tómt, því að íslendingar höfðu þegar upp úr 1920 og alla götu síðan lagt metnað sinn í að efla svo innlenda landhelgisgæslu að þeir væru einfærir um þann þátt landvarna sinna. Efling landhelgisgæslunnar er eitt af afrekum „fullveldistíma- bilsins" 1918-1944. Með henni vildu íslendingar sýna í verki að þeir stefndu að því að treysta full- veldi sitt og gera ákvæði sam- bandslaganna um danska land- helgisgæslu við ísland að dauð- um bókstaf. Það tókst með þeim ágætum sem sagan er til vitnis um, ekki síst þegar mest á reyndi í 30 ára landhelgisdeilu við Breta og ýmsar Evrópuþjóðir, sem ekki lauk fyrr en 1976 og ætti því að vera þjóðinni í fersku minni. ... til þess er sagan ... Eins og fjallað hefur verið hér á undan um þann auð sem ísland á í náttúru landsins og hversu brýnt er að þjóðin þekki náttúru- farið og landsgæðin, eins og heimspekingurinn dr. Guðmund- ur Finnbogason lagði svo ríka áherslu á fyrir 70 árum þegar hann var háskólarektor og nú- verandi rektor Háskóla íslands brýnir fyrir nemendum sínum og þjóðinni allri á líðandi stund, er ekki síður nauðsynlegt að þekkja sögu þjóðarinnar og láta þá þekk- ingu nýtast í þágu farsæls þjóð- lífs, menningar og stjórnmála. Nú er það að vísu ekki sambæri- legt að ætla sér að öðlast sögu- þekkingu til þess að beita henni við hagnýt viðfangsefni eins og þekking á náttúru- og raunvis- indum er undirstaða verklegra framkvæmda. En hvað sem segja má um tak- markanir sagnfræðinnar sem hagnýtrar vísindagreinar, felst sannleikurinn um „söguna" í spaklegum orðum Kristjáns Eld- járns, forseta íslands, á 50 ára af- mæli fullveldisins 1. desember 1968, að „til þess er sagan að vér megum skilja hvar vér stöndum. Sú gata, sem er gengin, skal vera til leiðsögu á þeirri braut, sem fram undan er.“ Söguþekking nýtist því til þess að auka mönnum dómgreind um málefni sinnar eigin samtíðar, „efla yfirlitsgáfuna" eins og góðir uppfræðarar hafa löngum sagt að væri inntak sannrar menntunar. Söguþekking auðveldar mönn- um að setja hvert mál í rétt sam- hengi í tímans rás, ekki síst þeg- ar um er að ræða nýliðinn tíma eins og fyrri hluti þessarar aldar er okkur núlifandi fólki. Það er ekki annað en tilbúning- ur, að skil hafi orðið í sögu ís- lensku þjóðarinnar á síðustu ár- um. Saga 20. aldar er órofin heild að því leyti að öll megingildi ís- lenskra stjórnmála eru hin sömu 1991 sem þau voru 1918 og 1944, þau, að þjóðin þarf að vera vökul í sjálfstæðismálum, gæta tungu sinnar og menningar, varðveita pólitískt frelsi sitt og fullveldi ís- lenska ríkisins. Þjóðinni stafar hætta af söguheimskum mönn- um.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.