Tíminn - 02.03.1991, Page 13

Tíminn - 02.03.1991, Page 13
Lindu Kozlowski fínnst ekkert sjálfsagöara en að stjana viö manninn sinn, segir hann! Linda þarf nú að stjana við Krókódíla-Dundee Ástralski leikarinn Paul Hogan stökk upp á alþjóðlegan stjörnu- himin þegar hann lék Krókódfla- Dundee í samnefndri kvikmynd. Þar var hann í hlutverki ástralsks náttúrubarns sem bjargaði bandarískri blaðakonu úr ýmsum hættum í óbyggðum Ástralíu. Með hlutverk blaðakonunnar fór Linda Kozlowski. Framhald var gert af myndinni og gerðist það í New York. Enn fóru sömu leikarar með hlutverk og þessi nána og langa samvinna leiddi til þess að Paul sagði skilið við sína ektakvinnu, Noelene, sem hann hafði verið giftur í 30 ár, og giftist Lindu. Sennilega hefur Linda ekki alveg séð fyrir út í hvað hún var að fara, en eftir 10 mánaða hjónaband liggur alveg ljóst fyrir hvert hlut- verk hennar í því sambandi er. Hún á bara að stjana við mann sinn og þjóna honum til munns og handa. Paul hefur nefnilega al- veg ákveðnar skoðanir á hlut- verkum kynjanna. „Konur eiga að leggja sig fram um að þjóna mönnum sínum og stjana við þá. Þá getur verið að þeir geri eitthvað fyrir þær í stað- inn,“ segir hann. Paul segir að bandarískir karlmenn séu mestu dulur sem láti það viðgangast að vera teymdir um af kvenfrelsis- konum sem brenni brjóstahald- arana. „Þetta byrjaði fyrir meira en 20 árum í Ameríku, þegar konur fóru að berjast fyrir kven- frelsi. Ég segi bara til fjandans með kvenfrelsi!" Reyndar segir Paul að konur hafi enga hugmynd um hvað þær vilji. Þær segist vilja karlmenn sem séu „mjúkir" og gráti, en þegar til kastanna komi verði þær fokillar ef þeir rjúka ekki til og skipti um dekk fyrir þær. Hann segist sko vita hvað konur vilji, enda hafi hann verið giftur í 30 ár og eigi fimm börn og eitt barnabarn. Linda, sem segist eiga skraut- lega fortíð í götugenginu „Fam- ily“, virðist vera hin ánægðasta með að vera bara kona Pauls Hogan, auðmjúk og undirgefin, enda veit hún sem er að fjölmarg- ar konur vildu vera í hennar spor- um, þrátt fýrir allt. GGr eiBtÆUflar^aötœ^jfSriars 1991 .„I,rjDÍM§n 25 Krókódíla-Dundee, réttu nafni Paul Hogan, segist alveg vita hvemig karla konur vilja, enda hafí hann verið giftur Noelene í 30 ár og eignast með henni fimm böm. KRAFT VERKRÆRI ^ - ÞESSI STERKU HLEDSLUVÉLAR 20-900 SKRÚFJÁRN Gerð 221OH - 3,6 volta mótor - hraöi 180 sn./mín. - báðar snúningsáttir - þyngd 500 grömm IÐNAÐARBORVÉL Gerð 2735H - 12 volta mótor - 10mmpatróna - 2ja gíra drif - 5 þrepa átakskúplinci - stiglaus hraöarofi fra 0 - 500/1650 sn./mín. - báöar snúningsáttir - hleðslutími rafhlööu 1 klst. EIGUM ÁVALLT FJÖLBREYTT ÚRVAL SKIL RAFMAGNS- HANDVERKFÆRAOG FYLGIHLUTA JAFNT TIL IÐNAÐAR- SEM HEIMILISNOTA ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA Þekking Reynsla Þjónusta FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ Styrkir til háskólanáms á Ítalíu og í Kína ftölsk stjómvöld bjóða fram styrki handa (slendingum til náms á Ítalíu á háskólaárinu 1991-92. Styrkirnir eru einkum aetlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listahá- skóla. Styrkfjárhæðin nemur 800.000 lírum á mánuði. Stjómvöld Alþýöuiýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Kína skólaárið 1991-92. Jafnframt hafa kínversk stjómvöld tilkynnt að íslenskum námsmönnum verði gefinn kostur á náms- dvöl þar í landi án styrks. Umsóknum um ofangreinda styrki, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skal skilað til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir27. mars nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið, 28. febrúar 1991. MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ Fjárveiting úr íþróttasjóði Samkvæmt lögum um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga nr. 87/1989 veitir Alþingi áriega fé í íþróttasjóð. Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga eða íþróttasamtaka í því skyni að bæta aðstöðu til íþróttaiökana, sbr. Reglugerð um íþróttasjóð nr. 609/1989. Tekið skal fram að ekkert liggur fyrir um fjárveitingar til sjóðsins 1992, en þær eru ákveðnar í fjárlögum hverju sinni til eins árs í senn. Felur árleg fjárveiting þannig ekki í sér skuldbindingar um frekari styrkveitingar. Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna fjárveitinga ársins 1992 þurfa að berast fyrir 1. maí nk. íþrótta- nefnd ríkisins, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Með umsóknum þarf að fylgja greinargerð um fyrir- hugað verkefni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.