Tíminn - 16.03.1991, Page 11

Tíminn - 16.03.1991, Page 11
Laugardagur 16. mars 1991 HELGIN 19 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Leroy Bullock leiddur til yfirheyrslu af lögreglu. Hann bar það fyrir sig að hann hefði verið viti sínu fjær af neyslu áfengis og fíkniefna. Vinir, ættingjar og nágrannar fóm- arlambanna slógu nú saman og buðu 17 þúsund dollara verðlaun hverjum þeim sem gefið gæti upp- lýsingar sem leiddu til handtöku morðingjans. Upp úr því bárust margar símhringingar, fáar vísbend- ingar en engin handtaka. Þegar hér var komið sögu voru yfir 20 lögreglumenn starfandi við rann- sókn morðanna. Allir voru þeir sam- mála um að öll morðin fjögur væru framin af einum og sama mannin- um. En þrautþjálfaður morðinginn skildi ekki eftir sig eitt einasta sönn- unargagn. Ekkert vopn fannst og engin fingraför voru skilin eftir í stolnu bílunum eða á morðstöðun- um. Þrátt fyrir nákvæma og fag- mannlega rannsókn var ekkert sem leiddi lögregluna á slóð morðingj- ans. Morðin höfðu nú vakið athygli um þver og endilöng Bandaríkin. Fyrir- spurnir bárust frá Missouri, Alab- ama, Oklahoma, Florida, Texas og Virginiu en lögreglan á öllum þess- um stöðum var að kljást við óupplýst morð sem framin höfðu verið með svipuðum hætti. Allar fáanlegar upp- Iýsingar voru bomar saman og safn- að í eitt mikið skjalasafn. í heilt ár voru morðin fjögur í Arkansas í skránni um óupplýst mál. Loks eru kennsl borín á morðingjann Þann 19. desember 1989, einu ári og fimm dögum eftir að Jones-hjónin voru myrt, voru tvær rosknar konur myrtar í Falmouth í Virginiu. Eldri maður var skotinn og særður hættu- lega og annar meðlimur fjölskyld- unnar slapp naumlega, en það var kona. Karlmaðurinn, sem lifði árásina af, skýrði lögreglunni frá því að maður- inn hefði komist inn á heimilið með því að nota nöfn ættingja þeirra. Hann sagði að sér hefði þótt hann grunsamlegur frá fyrstu stundu. Þegar hann var kominn inn í húsið dró morðinginn upp skammbyssu og skaut 72 ára gamla eiginkonu mannsins sem lifði af, Veronicu Pe- titt, og einnig bókhaldara þeirra hjóna, Velmu Rexrode, sem einnig var 72 ára. Eiginmaðurinn var skotinn tvisvar í hálsinn en skotin geiguðu þegar þau lentu á málmhlutum stuðnings- kraga sem maðurinn bar um háls- inn. Meðan á skothríðinni stóð flúði ung frænka þeirra hjóna yfir í næsta hús. Morðinginn elti hana á flóttanum en doberman hundur hjónanna stöðv- aði hann og hann flúði. Lögreglan var mætt á staðinn innan fárra mín- útna. Samstundis voru settir upp vega- tálmar og leitað í öllum bifreiðum en án árangurs. Enn einu sinni hafði morðinginn sloppið frá ódæðisverk- um sínum. En áður en hann flúði hafði hann dregið hring af fingri líks Veronicu Petitt sem metinn var á 150 þúsund dollara. Þau sem Iifðu af þetta tilræði gáfu góða lýsingu af morðingjanum. Bowler lögreglumaður, sem yfirleitt starfaði í eiturlyfja- og siðgæðisdeild lögreglunnar en aðstoðaði nú morð- deild um tíma, fékk skyndilega hug- dettu. Hann leitaði í fjölskyldual- búmum hjónanna og fann þar mynd sem gat átt við lýsinguna sem gefin hafði verið á morðingjanum. Myndin var nú stækkuð og Iögregl- an sýndi hana vitnunum ásamt myndum af öðrum glæpamönnum. Petitt og frænka hans báru kennsl á manninn sem hinn 46 ára gamla Leroy Bullock sem hafði verið giftur fjarskyldri frænku þeirra um tíma fýrir um það bil fimm árum. Nú hafði lögreglan bæði mynd af morð- ingjanum og nafn hans. Nú hafði blóðug slóð morðingjans legið í hring og var nú komin aftur á nær sama stað og hún hafði staðið, en á þeirri leið lágu að minnsta kosti sex lík. Þann 9. febrúar 1990 komu tveir menn inn í skartgripaverslun í Par- agould og báðu afgreiðslumanninn að meta fyrir sig mjög óvenjulegan hring sem þeir höfðu meðferðis og kváðust hafa keypt hjá veðlánara. Af- greiðslumaðurinn bað þá um að skilja hringinn eftir til þess að eig- andi verslunarinnar gæti metið hann. Þeir fóru að þeim tilmælum hans, en tregir þó. Eigandinn þekkti hringinn sam- stundis sem þann sem Jonnie Jones hafði átt. Hann hafði sjálfur smíðað hann og síðar sett á hann klemm- urnar svo hún gæti notað hann þrátt fyrir liðagigtina. Eigandinn hafði strax samband við lögregluna. Lögreglumenn biðu í versluninni eftir því að mennimir kæmu aftur til að sækja hringinn og handtóku þá. Mennimir sögðust hafa keypt hringinn af manni í Flórída. Þeir gáfu upp nafn hans. Þeir sögðust ekki vita hvar hann væri nú niður- kominn en hann byggi í hjólhýsi og væri mikið á ferðinni. Eiturlyíjahringur upprættur Lögreglan þefaði nú manninn uppi og hann var handtekinn í Malvem í Arkansas. Við leit í húsvagninum fannst sjálfvirk byssa og þó nokkrar skammbyssur. Einnig vom þar skartgripir að andvirði um það bil 250 þúsund dollara. Lögreglan fann líka 27 þúsund dollara í reiðufé, fjór- ar únsur af kókaíni og töluvert magn af marihuana. Annar maður var handtekinn um leið og í Ijós kom að hann var eftir- lýstur fyrir eiturlyfjasölu í Kaliforn- íu. Hann hafði verið eftirlýstur í 10 ár. Hann var framseldur til Kalifom- íu. Þessar handtökur bundu enda á starfsemi umfangsmikils fíkniefna- hrings sem starfað hafði um öll Bandaríkin. Skartgripimir þekktust sem þeir sem stolið hafði verið á heimili Jo- nes-hjónanna, Ruth Nisenbaum og Syble Cooksey. Sá gmnaði játaði að skartgripirnir væm fengnir hjá manni að nafni Leroy Bullock. Fíkni- efnasalinn neitaði öllum tengslum við morðin. Hann sagði lögreglunni samstundis hvar hann teldi að Leroy Bullock væri að finna. Að því er virtist hafði hinn gmnaði lifibrauð sitt af því að ferðast um Bandaríkin í hjólhýsinu sínu og fara á flóamarkaði og til veðlánara og kaupa og selja skartgripi. En við nánari athugun kom í ljós að hann rak stórfellda verslun með eiturlyf. Loks sást til Leroy Bullock á hliðar- vegi í TUcson Arizona. Þetta var klukkan 11.35 að morgni hins 13. febrúar 1990. Hann var samstundis umkringdur lögreglu og gafst upp baráttulaust. Sama dag var hann ákærður fyrir morðin f Virginiu. Hann var fram- seldur þangað samstundis. Þau fórn- arlömb sem hans, sem lifað höfðu af, bám samstundis kennsl á hann. í margar vikur reyndu Bullock og löfræðingur hans að semja við emb- ætti saksóknara í því skyni að forða honum frá rafmagnsstólnum. Hluti af þeim samningum var tilboð Bullocks um að gefa fullkomna játn- ingu á öllum morðunum ef hann í staðinn fengi aðeins lífstíðardóm. Stórfelldar játningar 28. júlí afhendi Leroy Bullock lög- reglunni í Jonesboro skriflega játn- ingu upp á nítján síður. Hann viðurkenndi að hafa myrt Jo- nes-hjónin og tilefnið var rán. Hann kvaðst hafa séð frú Jones með skart- gripina sína svo hann elti hana og komst að því hvar hún bjó. Hann varð sér síðan úti um blóma- körfu og hélt aftur til hússins eftir myrkur. Þegar hann kom þangað var dr. Jones að koma út um bakdymar. „Ég sagðist vera að afhenda blóma- sendingu og hann sagði mér að koma inn,“ sagði Bullock. Bullock dró upp byssu sína og neyddi dr. Jones til að opna peninga- skápinn. Þjófurinn setti feng sinn í koddaver. Síðan batt hann dr. Jones og skildi hann eftir niðri. Þegar hann var á leiðinni út kom frú Jones inn. Bullock kvaðst hafa óttast að hún gæti borið kennsl á hann síðar og því farið með hana upp í svefnherbergið, lagt hana á rúmið og skotið hana í hnakkann. Þá fór hann aftur niður og sótti dr. Jones, fór með hann inn f annað svefnherbergi og tók hann af lífi á sama hátt og konu hans — með hnakkaskoti. Bullock tók síðan blómakörfuna sína og ránsfenginn og ók burt á bflnum sínum. Vopnið var .38 kali- bera hlaupstutt skammbyssa sem hann hafði átt í tvö eða þrjú ár. Fjöldamorðinginn átti í erfiðleikum með að muna einstök atriði glæp- anna sem hann hafði framið. Hann kvaðst hafa verið drukkinn og undir áhrifum fíkniefna þegar hann framdi morðin, hann hefði verið að reykja marihuana blandað með kókaíni. „Ég var í verra ástandi í Paragould eni ég var f í Jonesboro," sagði hann. í Jonesboro sagðist hann einfald- lega hafa gengið upp áð húsi fyrra fómarlambsins. „Ég held að það haf- ir verið frú Cooksey. Ég barði að dyr- um og sagðist vera veikur og þarín- ast hjálpar. Hún hleypti mér inn í eldhúsið, ég dró upp byssuna en hún sýndi mér mótspymu.“ Gamla kon- an hafði verið svo ákveðin í að streit- ast á móti að henni tókst að klóra árásarmann sinn í andlitið. Bullock batt gömlu konuna og lagði hana á rúmið. Hann leitaði síðan í húsinu og stal því sem hugurinn girntist, þar á meðal lítilli skamm- byssu. Á meðan Cooksey var enn á lífi kvaðst Bullock hafa þvegið henni um hendumar með þvottapoka og skafið undan nöglum hennar til þess að ekki fyndust þar skinntætlur úr and- liti hans. Síðan skaut hann hana með hennar eigin byssu. „Ég skaut hana tvisvar eða þrisvar. Ég man ekki hvort ég leysti af henni böndin eða ekki.“ Bullock stal síðan bfl Syble Cooksey og ók honum á bflastæði í grennd- inni og skildi hann þar eftir. En þá mundi hann að hann hafði verið hanskalaus þegar hann opnaði úti- dyrnar á húsi hennar svo hann sneri aftur til að þurrka fingraför sín af hurðarhúninum. Bullock skýrði síðan frá því að hann hefði áður fengið augastað á húsi Ni- senbaum hjónanna skammt frá. Nú var aðeins einn bfll í innkeyrslunni, svo hann gerði ráð fyrir að fómar- lamb hans væri eitt heima, því það höfðu verið tveir bílar við húsið skömmu áður. Bullock barði þar að dyrum og þeg- ar Ruth Nisenbaum kom til dyra ýtti hann upp hurðinni og miðaði á hana byssu. Hann þvingaði hana til að fara um allt húsið með sér á meðan hann rændi það. Hann tók af henni 150 þúsund dollara hring og alla þá pen- inga sem hún hafði handbæra. Enn var hann stjarfur af neyslu áfengis og fíkniefna og var ekki viss um hversu mörgum skotum hann hefði skotið gömlu konuna. En hann mundi eftir að hafa skotið hana með .38 byssunni sem hann átti sjálfur og einnig annarri byssu sem hann hafði stolið. Hann stal síðan Cadillac bifreið frú Nisenbaum og ók henni á bifreiða- stæðið við verslunarmiðstöð skammt frá. Þar skildi hann bflinn eftir. Hann faldi sig síðan á bak við ruslagám og fór þar úr peysunni og vafði þýfið inn í hana. Að því loknu gekk hann yfir götuna og ók burt á sínum eigin bfl. Bullock játaði einnig að hafa ráðið bana 72 ára gamalli konu, Dixie Drago Johnson, í Memphis, Tenn- essee. Það morð var framið þann 3. mars 1989, milli morðanna sem fjallað er um hér að framan. Aðferðin sem Bullock notaði þar var sú sama og við hin morðin. Hann barði að dyrum og þegar Johnson opnaði dró hann upp byssu, ruddist inn, rændi öllu sem hann fann bita- stætt og stal bflnum hennar. Hann fann byssu í húsinu sem hann notaði síðan til að drepa konuna. Rannsókn á byssukúlum sem fund- ust í líkum Dixie Johnson og Ruth Nisenbaum leiddi í ljós að þær voru höfðu verið drepnar með sömu byss- unni. Byssunni kvaðst hann síðan hafa kastað í gruggugt Mississippi fljótið á einni af mörgum ferðum sínum á milli Arkansas og Tennessee. Óværan loks upprætt í ágúst 1990 var Bullock dæmdur sjö sinnum í lífstíðarfangelsi og hlaut að auki einn 16 ára fangelsis- dóm. Lögreglan í Memphis á eftir að yfir- heyra hann vegna fjögurra óupp- lýstra morða, en aðferðir sem þar voru notaðar benda sterklega til að Bullock hafi verið þar að verki. Yfirvöld í Flórída, Missouri og Col- orado bíða þess þolinmóð að röðin komi að þeim að fá Bullock til yfir- heyrslu. Aðeins tíminn mun leiða í ljós hversu mörg lík liggja í slóð þessa klóka og kaldlynda morðingja.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.