Tíminn - 19.03.1991, Page 9
8 Tíminn
Þriðjudagur 19. mars 1991
Þriðjudagur 19. mars 1991
Tíminn 9
% í wk mm
s' vx <y . - í .. <
■ •
IX/liðstjórnarfunclLjr Framsóknarflokksins gefur tóninn
Varðveita verður
ríkisstjórnin náði
Miðstjórn Framsóknarflokksins kom sam-
an til fundar á laugardaginn og markaði
stefnuna í kosningabaráttunni. Steingrímur
Hermannsson forsaetisráðherra sagði að í
þeim ólgusjó sem framundan væri þyrfti
þjóðin á forystu Framsóknarflokksins að
halda. Nauðsynlegt væri að varðveita þann
árangur sem þessi ríkisstjórn hefur náð í
efnahagsmálum. Framsóknarflokknum sé
best treystandi til að fá hin ýmsu þjóðfélags-
öfl til að starfa saman þannig að hér verði
áfram lág verðbólga og traust atvinnulíf.
Ríkisstjórnin skapaði
grundvölí fyrir þjóðarsátt
Steingrímur sagði að þessari ríkisstjórn
hefði tekist það, sem öðrum ríkisstjórnum
sem setið hafa að völdum hér á landi á
seinni árum, hefði mistekist. Henni hefði
tekist að koma verðbólgunni niður í 5,3%.
f>að væri hennar mesta afrek. Steingrímur
sagði að þessi árangur hefði aldrei náðst
nema vegna þess góða samstarfs sem tókst á
milli samtaka launþega, atvinnurekenda og
bænda. Hann lagði jafnframt áherslu á að
engir þjóðarsáttarsamningar hefðu litið
dagsins Ijós nema vegna þess að ríkisstjórn-
in skapaði grundvöll fyrir þeim með efna-
hagsstjórn sinni á árinu 1989. Hann sagði
að þjóðarsáttarsamningar hefðu aldrei tek-
ist ef ástandið hefði verið eins og það var
þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
hrökklaðist frá völdum. Hann sagði að
Framsóknarflokkurinn vildi hafa stjórn á
efnahagsmálunum og hafnaði algerlega
frjálshyggjunni sem var reynd á árunum
1987-1988.
Steingrímur vék að skuldbreytingum sem
ráðist var í á árunum 1989-1990 og sagði að
þær hefðu verið nauðsynlegar. Hann sagði
að í langflestum tilfellum næðist sá árangur
sem að væri stefnt, en viðurkenndi að eitt-
hvað af fyrirtækjum tækist ekki að koma
undir sig fótunum, þrátt fyrir þá aðstoð sem
þau hafa fengið. Hann sagði að Atvinnu-
tryggingasjóður hefði verið búinn að lána
tæplega 8 milljarða um síðustu áramót og
Hlutafjársjóður tæpan milljarð.
Á síðustu tveimur árum hefur verið mikill
afgangur á vöruskiptum við útlönd og er
það mikil breyting frá því sem áður var. Mik-
ill halli var á vöruskiptum við útlönd 1987
og 1988. Steingrímur sagði nauðsynlegt að
halda áfram á þessari braut og greiða niður
erlendar skuldir.
Glundroöakenning Sjálf-
stæðisflokksins afsönnuð
Steingrímur sagði að samstarf ríkisstjórn-
arflokkanna hefði almennt gengið vel. Þessi
ríkisstjórn hefði afsannað glundroðakenn-
ingu Sjálfstæðisflokksins. Steingrímur
sagðist hafa lesið samþykktir landsfundar
Sjálfstæðisflokksins og undraðist hvað þær
væru fátæklegar. Hann sagði greinilegt að
sjálfstæðismenn teldu nægjanlegt að kjósa
nýjan formann. Stefnan væri aukaatriði.
Forsætisráðherra vék síðan að verkefnum
nýrrar stjórnar. Hann sagði að hagvöxtur
væri minni en í nágrannalöndum okkar.
Hann sagði að nú, þegar búið er að skapa
traustan grundvöll í efnahagsmálum þjóð-
arinnar, væri nauðsynlegt að hefja nýja
framfarasókn með það að markmiði að auka
hagvöxt. Mikilvægast væri þó að varðveita
þann árangur sem náðst hefði í efnahags-
málunum.
Iðnaðarráðherra lék
einleik í álmálinu
Forsætisráðherra sagði að íslendingar
yrðu að nýta orkulindir sínar ef þeir vildu
auka hagvöxt í iandinu. Þess vegna sagðist
hann vonast eftir að af byggingu álvers yrði,
þó að nokkur óvissa væri nú í því máli.
Steingrímur sagði nauðsynlegt að skapa
eins konar þjóðarsátt um álver. Margir aðil-
ar í þjóðfélaginu yrðu að koma þar við sögu.
Steingrímur sagðist telja að iðnaðarráð-
herra hefði ekki gætt þess nægilega vel að
láta alla þá aðila sem málið varðar taka þátt
í undirbúningi þess. Iðnaðarráðherra hefði
kosið að halda málinu út af fyrir sig og
leggja áherslu á undirskriftir undir minnis-
blöð sem enga merkingu hefðu. Hann sagði
að iðnaðarráðherra væri duglegur maður,
en í svona stóru máli yrði að sýna lipurð.
Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðuflokkur gæla
við aðild að EB
Forsætisráðherra sagði Framsóknarflokk-
inn algerlega hafna aðild íslands að Evrópu-
bandalaginu. Hann sagði að í þessari af-
stöðu fælist hins vegar alls ekki nein ein-
angrunarstefna. Flokkurinn gerði sér grein
fyrir mikilvægi þess að hafa mikil og góð
samskipti við önnur lönd. Hann sagði óvíst
hvað kæmi út úr samningum um evrópskt
efnahagssvæði (EES). Hann sagðist gera sér
grein fyrir að margir flokksmenn óttuðust
að gengið yrði of langt í EES-viðræðunum.
Nauðsynlegt væri hins vegar að taka þátt í
viðræðunum með opnum huga. Forsætis-
ráðherra minntist á frumvarp sem varð að
lögum fyrir helgi um fjárfestingu erlendra
aðila í atvinnurekstri. Þar væri dregin
ákveðin varnarlína og það sama þyrfti að
gera varðandi jarðhitaréttindi og frelsi út-
lendinga til að kaupa land hér á landi.
Steingrímur gagnrýndi Sjálfstæðisflokk-
inn og Alþýðuflokkinn fyrir að vera að gæla
við aðild að EB. Hann sagði að mikils mis-
skilnings gætti í samþykktum Alþýðuflokks-
ins þegar flokkurinn segði að aðild að EB
kæmi því aðeins til greina að íslendingar
hefðu áfram forræði yfir sínum fiskimiðum.
Steingrímur sagði ekki vera hægt að tryggja
full yfirráð yfir fiskimiðunum með aðild að
EB. Ekki væri hægt að fá undanþágu frá
Rómarsáttmálanum, stjórnarskrá EB, en
hins vegar væri hægt að fá einhvern aðlög-
unartíma. Steingrímur sagðist líta á það
sem uppgjöf þegar menn segðu að við ætt-
um ekki annars úrkosta en að gerast aðilar
að EB. Hann sagði þetta minna sig á um-
ræður eftir stríð um að ísland ætti ekki ann-
ars úrkosta en að gerast eitt af fylkjum
Bandaríkjanna.
Þýðingarlaust að byggja múr
í kringum landbúnaðinn
Forsætisráðherra sagði að byggðamálin
yrðu eitt af þeim málum sem kosið yrði um
í kosningunum. Hann minntist á lög um
Byggðastofnun, en gerð var breyting á þeim
fyrir helgi. Þar er gert ráð fyrir að Alþingi
samþykki byggðaáætlanir til fjögurra ára í
senn. Hann sagði nauðsynlegt að stíga
stærri skref í átt til jafnara orkuverðs en
gert hefur verið og sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði verið mótfallinn þeim leið-
um sem stjórnarflokkarnir hefðu viljað fara
í því máli.
Steingrímur sagðist gera sér grein fyrir að
nýr búvörusamningur væri erfitt skref fyrir
marga bændur. Hann sagðist hins vegar
vera sannfærður um að samningurinn yrði
íslenskum landbúnaði til góðs. Ekki væri
hægt að komast hjá því að aðlaga landbún-
aðinn breyttum aðstæðum. Hann sagði að
það yrði bændum ekki til góðs að byggja
upp múr í kringum landbúnaðinn, því hann
yrði brotinn niður fyrr eða seinna.
Steingrímur sagði að Framsóknarflokkur-
inn vildi standa vörð um velferðarkerfið, en
hins vegar væri nauðsynlegt að gera breyt-
ingar á því, eins og Guðmundur Bjarnason
heilbrigðisráðherra hefði verið að vinna að.
Forsætisráðherra sagði að mjög oft lægi
lítil meining á bak við samþykktir Sjálf-
stæðisflokksins um skattalækkanir. Hann
minnti á að þegar ríkisstjórnin gerði tillögu
um að feila niður aðstöðugjaldið hefði borg-
arstjórinn í Reykjavík staðið fast gegn því.
Talsmaður Sjálfstæðisflokksins í ríkisfjár-
málum hefði viðurkennt að ekki væri hægt
að lækka skatta fyrirvaralaust.
Sjálfstæðisflokkurínn hefur
enga sjávarútvegsstefnu, en
vill fá sjávarútvegsráðuneytið
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
rifjaði upp í ræðu sinni þegar hann varð
ráðherra fyrir átta árum. Hann sagði að þá
hefði Sjálfstæðisflokkurinn hafnað að taka
að sér sjávarútvegsráðuneytið, enda hefðu
þá miklir erfiðleikar steðjað að sjávarútveg-
inum og verkefnin illleysanleg. Halldór
sagði að á þessum átta árum sem liðin eru
hefði tekist að leysa mörg erfið vandamál,
fiskiskipaflotinn væri hættur að stækka,
rekstrarskilyrðin batnað og tekist hefði að
skapa sæmilega sátt um stjórn fiskveiða.
Halldór sagði að það væri þess vegna skilj-
anlegt að í dag vildi Sjálfstæðisflokkurinn
ólmur fá sjávarútvegsráðuneytið. Hann
sagði hins vegar furðulegt að flokkur, sem
stefndi að því að láta til sín taka í þessum
málaflokki, leyfði sér að ganga til kosninga
án þess að hafa þar neina stefnu. Halldór
sagði að Sjálfstæðisflokkurinn segði við
kjósendur: „Við viljum fá lyklana, en ykkur
kemur ekki við hvað við ætlum að gera við
þá.“
Halldór sagðist viðurkenna að núverandi
aðferð við stjórn fiskveiða væri ekki galla-
laus, en þetta væri sú aðferð sem líklegust
væri til að skapa sátt um. Þessi aðferð hefði
skilað þeim árangri sem að var stefnt. Fiski-
skipaflotinn væri hættur að stækka, tekist
hefði að koma í veg fyrir hrun fiskistofn-
anna og átt hefði sér stað nauðsynleg hag-
ræðing og betri nýting afla. Halldór fullyrti
að aldrei tækist sátt í þjóðfélaginu um að
stjórna fiskveiðunum með veiðileyfasölu
eða að leyfa lítt takmarkaðar veiðar úr
heildarkvóta. Markmið um hámarksarð-
semi fiskistofnanna yrði ekki náð með þess-
um aðferðum.
1,5 milljarður
í Verðjöfnunarsjóð
Halldór sagðist búast við að sjávarútveg-
urinn muni greiða um 1,5 milljarð í Verð-
jöfnunarsjóð sjávarútvegsins á þessu ári.
Eftir
Egil
Ólafsson
Stjórnmálaályktun miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins 16. mars 1991
Öflug þjóð í eigin landi
Foiysta með reynslu
í alþingiskosningum í vor ræðst hvort Framsóknarflokkurinn
fer með forystu í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. Þá verður valið
á milli samstarfs í ríkisstjórn undir markvissri forystu eins og
verið hefúr undanfarin tæp þrjú ár eða forystuleysis eins og var í
upphafi kjörtímabilsins.
Þegar Framsóknarflokkurinn tók við forystu í september 1988
lá við hrun atvinnuveganna og óðaverðbólga geisaði. Árangur
sterkrar forystu Framsóknarflokksins blasir nú við. Verðbólga er
orðin aðeins rúmlega 5 af hundraði og matvæli hafa þó hækkað
mun minna ailt síðasta ár. Vöruútflutningur landsmanna stefnir
í að verða 8-9 milljörðum króna meiri en vöruinnflutningur á
þessu ári og verulega hefur dregið úr viðskiptahalla. Kaupmátt
tímakaups og ráðstöfunartekjur tókst að verja í samræmi við
kjarasamninga. Afkoma fyrirtækjanna hefur batnað og atvinnu-
líf hefur eflst um land allL Vextir hafa lækkað. Lánskjaravísitöl-
unni hefur verið breytt og notkun hennar takmörkuð.
Framtíð með framsókn
í kosningunum í apríl verður kosið um fjölmörg mál sem skipta
sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar. Kosið verður um viðunandi
rekstrargrundvöll atvinnuveganna, fulla atvinnu og bætt lífskjör
á nýjum og traustum grunni, skynsamlega sjávarútvegs- og
landbúnaðarstefnu, nýjan búvörusamning, nýja byggðastefnu
sem byggir á valddreifingu og forræði byggðanna, samskipti ís-
lands við Evrópubandalagið og síðast en ekki síst verðbólgulaust
þjóðfélag og jafnvægi í efnahagsmálum.
Árangur ríkisstjómar Steingríms Hermannssonar í efnahags-
málum á árinu 1989 skapaði gmndvöll fyrir kjarasamninga og
traust og samstöðu á milli stjómvalda, launþega, vinnuveitenda
og bænda sem leiddi til þjóðarsáttar. Framsóknarmenn vilja
halda áfram á þeirri braut, sem þjóðarsáttin hefur markað.
Mikilvægast er að treysta og varðveita þann stöðugleika sem
náðst hefur í efnahagsmálum með lágri verðbólgu, fullri atvinnu
og lækkandi vöxtum. Stöðugleiki er forsenda batnandi lífskjara.
Stöðugleika verður hvorki náð með því að gefa frjálshyggjunni
lausan tauminn né með miðstýringu stjórnvalda. Stöðugleikinn
verður best tryggður með fyrirhyggju og samstarfi við launþega,
atvinnurekendur og bændur.
Framsóknarflokkurinn vill ekki hækka skatta, en vill beita sér
fyrir margvíslegum umbótum á sviði skattamála. Samfélagslega
þjónustu ber að efla með bættri nýtingu fjármuna og aðhaldi í
ríkisrekstrinum.
Með stöðugleika í efnahagsmálum verður unnt að hefja nýja
framfarasókn undir forystu Framsóknarflokksins. Möguleikar til
nýsköpunar í atvinnulífi og hagvaxtar eru fjölmargir. íslending-
ar, ekki síst unga kynslóðin, hafa aflað sér mikillar þekkingar.
Vísindi og þekking eru grundvöllur nútíma þjóðfélags. Fagurt
land, hreint umhverfi og góð aðstaða til útivistar og heilsurækt-
ar veita fjölmörg tækifæri til nánast ótakmarkaðra umsvifa á
sviði ferðaþjónustu. Náttúru landsins ber að umgangast af nær-
gætni. Öll framleiðsla og þjónusta á að vera undir merkjum
mestu gæða, hreinleika og hollustu. Ef þannig er unnið af þekk-
ingu og fyrirhyggju er full ástæða til bjartsýni um framtíð hinn-
ar íslensku þjóðar.
Öflug þjóð í eigin landi
Framsóknarflokkurinn vill hafa nána samvinnu við aðrar Evr-
ópuþjóðir, en er andvígur aðild íslands að Evrópubandalaginu.
Ástæðurnar eru margar, Evrópubandalagið viðurkennir hvorki
forræði einstakra þjóða yfir landinu né auðlindum sjávar. Fram-
sóknarflokkurinn telur að hugmyndir um aðild að Evrópu-
bandalaginu séu hættulegar og lýsi uppgjöf við stjórn eigin mála.
Fullveldið, sjálfstæðið og landhelgin unnust með órofa sam-
stöðu þjóðarinnar. Framsóknarflokkurinn mun standa vörð um
þessa sigra og hugsjónir undir kjörorðinu „Öflug þjóð í eigin
landi“.
Hann sagði að þetta þýði að sjóðurinn verði
það sterkur að hann geti mætt erfiðleikum
í framtíðinni. Hann myndi t.d. geta mætt
áföllum eins og urðu árið 1988. Halldór
sagði að ef sjávarútvegurinn borgaði ekki í
Verðjöfnunarsjóðinn hefði orðið að skrá
gengið hærra eða launahækkanir hefðu
orðið meiri. Halldór sagði það misskilning
að halda því fram að sjávarútvegurinn
hefði fengið að halda þessum peningum
sem nú fara í Verðjöfnunarsjóðinn. Þeir
hefðu farið í að greiða hærra fiskverð og
hærri laun.
Halldór sagði að með núverandi sjávarút-
vegsstefnu hefði tekist að byggja upp
grunn til nýrrar sóknar. Stærstu verkefnin
framundan væru að auka nýtingu aflans og
bæta gæðin. Halidór minntist á átak sem er
í gangi í þremur útgerðarfyrirtækjum til
að bæta gæði og nýtingu aflans. Hann
nefndi sem dæmi um árangur af verkefn-
inu að í einu fyrirtæki hefðu 60% karfa-
flaka verið skemmd í vinnslu,_en tekist
hefði að lækka þetta hlutfall niður í !5%.
Starfsfólk fyrirtækisins hefði sest niður og
fundið ut hvað var að og fundið ieið til að
laga það.
Sjálfstæðisflokkurinn
vill ekki báknið burt
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráð-
herra fjallaði um velferðarmál í sinni
ræðu. Hann sagði ljóst að takmörk væru
fyrir því hvað hægt væri að auka mikið út-
gjöld til velferðarmála hér á landi. Al-
menningur í landinu væri ekki tilbúinn til
að hækka skattana og þess vegna yrði að
raða verkefnum í velferðarmálum í for-
gangsröð.
Guðmundur gagnrýndi þingmenn fyrir að
láta þau frumvörp, sem hann hefur lagt
fram og lúta að því að hagræða, spara og
færa til fjármuni, verða eftir á síðustu dög-
um þingsins. Hann nefndi í þessu sam-
bandi frumvörp um lyfjadreifingu og al-
mar.natryggingar. Hann benti á að á sama
tíma rynnu í gegnum þingið ýmis frum-
vörp sem krefðust aukinna fjármuna úr
ríkissjóði.
Guðmundur gagnrýndi harðlega Sjálfstæð-
isflokkinn fyrir að hafa með einum eða öðr-
um hætti barist gegn því að tillögur sínar
um sparnað og hagræðingu í heilbrigðis-
þjónustunni næðu fram að ganga. Hann
sagði þetta sýna vel hversu innantómt slag-
orð Sjálfstæðisflokksins, „Báknið burt“,
væri.
/