Tíminn - 19.03.1991, Síða 13
Þriðjudagur 19. mars 1991
Tíminn 13
Píanótónleikar
Tónlistarskóli Kópavogs heldur tónleika í sal
skólans, Hamraborg 11, miðvikudag 20. mars,
kl. 20.00. Nemendur í píanóleik koma fram.
Skólastjóri.
Jörð til sölu
Jörðin Tungufell í Lundarreykjadal er til sölu.
Jörðin getur verið laus til ábúðar nú þegar.
Henni getur fylgt 118 ærgilda fullvirðisréttur.
Upplýsingar gefur Jón Böðvarsson í síma
93-51379.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Laus staða
Við Framhaldsskólann á Laugum er laus staða skólameist-
ara. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, eigi síðar en 15. apríl nk.
Menntamálaráðuneytíð
Rafstöövar
OG
dælur
FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Slmi 91-674000
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Traustir hlckkir
í sveiganlegri keðju
hringinn í kringum landið
Bflaleiga með útibú
allt í kringum landið,
gera þér mögulegt að leigja bíl
á cinum stað
og skila honum á öðrum.
Nýjustu
MITSUBISHI
bílarnir alltal' til taks
Reykjavík: 91-686915
Akureyri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísafjörður: 94-3574
Blönduós: 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egilsstaðir: 97-11623
Vopnafjörður: 97-31145
Höfn í Hornaf.: 97-81303
ÓDÝRIR
HELGARPAKKAR
f--------------------------------------------
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Gunnar Guðbjartsson
bóndi, Hjarðarfelli
f.v. formaður Stéttarsambands bænda
lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 17. mars.
Ásthiidur Teitsdóttir,
böm, tengdaböm og bamaböm
Þessar 40 stórstjömur MGM fytT og síðar þekktust boð nýja eigandans Giancarlo Parretti og sátu veislu
á leiksviði myndarinnar Singin' in the Rain:
1. Don Johnson, 2. Melanie Grif-
fith, 3. Daniel J. Travanti, 4.
Chelsea Field, 5. William Win-
dom, 6. John Schuck, 7. Michael
Winslow, 8. Rennee Orin, 9.
James Komack, 10. Connie Ste-
vens, 11. Stanley Kramer, 12.
Dick Van Patten, 13. James Brol-
in, 14. Chariton Heston, 15.
Marcus Allen, 16. Margaret O’Bri-
en, 17. Peter Falk, 18. Karl Mal-
den, 19. Anne Miller, 20. O.J.
Simpson, 21. Jean Claude Van
Damme, 22. Kathryn Grayson,
23. Timothy Busfield, 24. Betty
Garrett, 25. Jennifer O'Neill, 26.
Cesar Romero, 27. Bany Bostw-
ick, 28. Elliott Gould, 29. Albert
Hague, 30. Martin Landau, 31.
Giancario Parretti, eigandi MGM,
32. Morey Amsterdam, 33. Anne
Jeffrey, 34. Chad Everett, 35.
Frankie Avalon, 36. Turhan Bey,
37. Britt Ekland, 38. Scott Baio,
39. Marrietta Hartley, 40. Donald
O’Connor, 41. Phyllis Diller.
Gene Kelly mætti ekki.
Þjónninn sem
eignaðist MGM-
kvikmyndaveldið
FVrir nokkrum árum dró siki-
leyska herlögreglan hann út úr
rúmi framreiðslustúlku og færði
hann fyrir rétt þar sem hann var
dæmdur í þriggja ára fangelsi
vegna fjársvika. En þessi fyrrver-
andi þjónn, Giancarlo Parretti frá
Orvieto, sem nú er fimmtugur,
sat aldrei af sér allan dóminn.
„Góðir vinir“ sáu um að hann
slyppi úr fangelsinu fyrr en ætlað
var og þeir tryggðu honum líka
góða framtíð.
Á níunda áratugnum byggði Gi-
ancarlo Parretti utan um virðu-
lega franska kvikmyndafélagið
Pathé mikið veldi banka og fjár-
málafyrirtækja í Lúxemborg og
París. Sumir álitu að allt þetta
veldi annaðist peningaþvott fyrir
mafíuna. Sannanir fyrir því hafa
þó aldrei fundist.
Með Pathé, sem hann hafði keypt
fyrir 150 milljónir dollara, að bak-
hjarli, skaut Parretti upp kollin-
um í Hollywood 1987, keypti sér
draumahús og fór að sýna áhuga á
Metro-Goldwyn-Mayer, sem í eina
tíð var stærsta og voldugasta
kvikmyndafélag heimsins.
Á árunum rétt fyrir 1970 hafði
MGM komist í hendur Wall Street
braskara, fyrst Edgars Bronfman,
þá Kirks Kerkorian, Armena sem
hafði höfuðstöðvar í Las Vegas.
Hann tók til við að búta stórfyrir-
tækið niður í smáeiningar, sem
hann fór að selja hverja í sínu lagi
fyrir gífurlegan gróða. Þar má
nefna upptökuverið í Culver City,
alþjóðlega útleigu kvikmynda,
MGM-sjónvarpsframleiðslu, tón-
listarforlag fyrir innlendan mark-
að annars vegar og alþjóðlegan
hins vegar, en á því sviði á fyrir-
tækið rétt á ómetanlegum fjár-
sióðum, risastóru leikhúsin í
Ástralíu, Indlandi og Englandi og
að lokum Grand-hótelkeðjuna.
En það sem mógúllinn Kerkori-
an hélt eftir var hin hreina gull-
náma MGM-safnsins, meira en
2000 sígildar kvikmyndir, allt frá
Á hverfanda hveli til stórra söng-
leikja s.s. Ameríkumaður í París
— sem til allrar eilífðar er alltaf
hægt að selja aftur til skamms
tíma til sjónvarpsins eða sýna aft-
ur í bíó.
1989 kom Giancarlo Parretti
kvikmyndaheiminum í opna
skjöldu þegar hann tilkynnti að
hann hefði keypt leifamar af
MGM (auk safnsins) fyrir 1,36
milljarða dollara. Hollywood fór á
hvolf. Hver yar Parretti? Hvaðan
komu peningamir? Enginn trúði
að hann gæti í alvöru staðið skil á
afborgununum sem í hvert sinn
námu mörg hundmð þúsundum
dollara.
En viti menn, í lok febrúar á
þessu ári var reyndar greidd síð-
asta afborgunin og Giancarlo
Parretti hélt rosafína veislu í Cul-
ver City, sem hann bauð til 40 nýj-
um og gömlum stjörnum MGM í
kvikmyndum og sjónvarpi, en sú
framleiðsla er nú ekki nema svip-
ur hjá sjón. Tækifærið var notað
og tekin mynd af mannskapnum á
leiksviði myndarinnar „Singin’ in
the Rain“. Sjálfur Gene Kelly
mætti þó ekki.