Tíminn - 03.04.1991, Side 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 3. apríl 1991
Finnur Ingólfsson
Jeppi fuðraði upp á Kjalvegi aðfaranótt föstudagsins langa:
ÖKUMAÐUR HÆTT
KOMINN ALEINN
Á REGINFJÖLLUM
Framsóknarvist
á Hótel Sögu
Framsóknarvist verður spiluð á Hótel Sögu
sunnudaginn 7. apríl nk. kl. 14.00.
Glæsilegir vinningar, m.a. ferðir til London með
leiguflugi Sólarflugs sumarið 1991.
Finnur Ingólfsson, efsti maður B-listans í
Reykjavík, flytur stutt ávarp í kaffihléi.
Aðgangseyrir kr. 500,- (Kaffiveitingar innifaldar).
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Sjúkrahús Suðurlands Selfossi
auglýsir eftirtaldar stöður lausar til umsóknar.
50% staða sérfræðings í almennum
lyflækningum.
50% staða sérfræðings í svæfingum.
Upplýsingar um nám og störf sendist stjórn
Sjúkrahúss Suðurlands v/Árveg, 800 Selfossi,
fyrir 15. júní 1991.
Nánari upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og
yfirlæknar sjúkrahússins í síma 98-21300.
Sjúkrahússstjóm.
Aðalfundur
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Verslunarbank-
ans hf., Reykjavík, áríð 1991, verður haldinn í
Höfða, Hótel Loftleiðum, Reykjavík, fimmtudag-
inn 4. apríl nk. og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvœðum greinar 3.03
í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjómar félagsins til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1991.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslands-
banka, Krínglunni 7, dagana 3. og 4. apríl nk.
Ársreikningur félagsins fyrir áríð 1990, ásamt
tillögum þeittt setn fyrir fundinum liggja, verða
hluthöfum til sýnis á sama stað.
Reykjavík, 12. tnars 1991
Stjórn Eignarhaldsfelags
Verslunarbankans hf.
Suzuki Fox jeppi brann til kaldra
kola á Kjalvegi snemma að morgni
fostudagsins langa. Eldurinn
kviknaði þegar eigandinn, sem var
einn á ferð, hafði fest bílinn í snjós-
kafli og hugðist hita sér súpu á
prímusi inni í bílnum.
Ekki tókst þó betur til en svo að
þegar maðurinn klæddi sig úr úlp-
unni, rakst hún í logandi prímusinn
sem valt og eldur komst í úlpuna
sem fuðraði upp. Þaðan barst eldur-
inn í innréttingar og farangur og
varð bfllinn alelda á örskotsstund.
Aftan á bflnum voru aukabensín-
geymar með um 85 lítrum af bens-
íni. Eldurinn barst fljótlega í þessar
bensínbirgðir og sprungu geymarn-
ir í loft upp og bfllinn brann þarna
til kaldra kola í miklu eldhafi.
Manninum tókst að forða sér
ósködduðum úr bflnum í tæka tíð
eftir að eldurinn kviknaði. Eftir að
hafa séð jeppann sinn fuðra upp
gekk hann um þriggja kflómetra
leið að skálanum í Hvítárnesi í
þoku, dimmviðri og kulda, úlpulaus
og allslaus. í skálann komst hann
bæði kaldur og hrakinn.
En hvernig stóð á ferðum manns-
ins þarna? Einn ferðafélaga hans
segir frá:
„Við vorum átta saman á leið norð-
ur yfir Kjöl á fjórum bflum. Ferðin
hafði gengið hægt vegna þoku og
dimmviðris og það var orðið áliðið
þegar við komum í skálann í Hvítár-
nesi. Þegar við komum þangað, leist
þessum ferðafélaga okkar ekkert á
að sofa þar um nóttina og vildi ólm-
ur halda áfram. Það vildi hins vegar
enginn okkar hinna, ekki einu sinni
farþegi hans. Bflstjórinn tók sig því
sig upp einn og ætlaði að aka norð-
uryfir hálendið um nóttina. Það
gekk maður undir manns hönd að fá
hann ofan af þessu, en engu tauti
varð við hann komið. Hann sagðist
ætla að aka áfram eins langt og hann
kæmist og ef bfllinn yrði fastur, þá
sagðist hann ætla að láta fyrir berast
í honum þangað til við ækjum fram
á hann morguninn eftir.
Hann komst hins vegar ekki langt,
því skömmu eftir að hann var kom-
inn inn á Kjalveg af Hvítárnesaf-
leggjaranum festi hann bílinn í
skaflinum þar sem hann síðan
brann."
—sá
Páskahelgin var víðast hvar í rólegra lagi, að sögn lögreglumanna:
Bruni, nefbrot
og ölvunarakstur
Páskahelgin var að sögn lögreglu-
manna víðs vegar um land nokkuð
róleg. Að vísu brann íbúðarhús á
Svalbarðsströnd í Eyjafírði illa á
laugardaginn og allt innbú talið
ónýtt og húsið sjálft mjög mikið
skemmt ef ekki ónýtt. Engan sakaði
í brunanum. Tveir voru nefbrotnir
á dansleik á ísafirði og einn ók ölv-
aður í sjóinn í Grindavík.
Lögreglan á Húsavík vinnur nú að
rannsókn brunans á Svalbarðs-
strönd. Að sögn lögreglumanna þar
er talið fullvíst að eldurinn hafi átt
upptök sín í þvottahúsi. Slökkviliðið
á Akureyri kom á staðinn á laugar-
daginn, en þá var húsið orðið alelda.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Á ísafirði var helgin róleg, einn var
tekinn ölvaður við akstur og tveir
voru nefbrotnir á dansleik. Helgin
var nokkuð annasöm hjá lögregl-
unni í Grindavík. Brotist var inn í
hraðfrystihúsið og Sjómannastof-
una Vör. Þjófarnir höfðu á brott með
sér eitthvað af bjór, en lögreglan í
Grindavík hefur nú upplýst bæði
innbrotin. Þá ók ungur maður bíl
sínum í sjóinn í höfninni í Grinda-
vík aðfaranótt laugardagsins. Lög-
reglan veitti bfl hans athygli og ætl-
aði að stoppa hann, en maðurinn ók
þá niður að höfn og beint í sjóinn.
Hann náði að synda í burtu og kom-
ast á land þar sem iögreglan náði til
hans.
Hann er grunaður um að hafa ver-
ið undir áhrifum áfengis.
—SE
Aldrei fleiri hross flutt út
Síðastliðið ár voru flutt út 1623
hross frá landinu. Þetta er mikil
fjölgun frá árinu á undan þegar
1019 hross voru flutt út. Af 1623
útfluttum hrossum í fyrra voru 62
stóðhestar (af þeim voru 18 sýnd-
ir), 724 merar og 837 geldingar.
Flest hrossanna komu af Suður- og
Vesturlandi. Þetta kemur fram í
nýjasta tölublaði búnaðarblaðsins
Freys.
Nýlega var stofnað hlutafélagið
Sölusamtök íslenskra hrossabænda,
spáð
Leiðindaveður gekk yfir Vestfírði og
Norðurland og Austfiröi í gærdag.
Vegir voru sumstaðar ófærir og eins
truflaðist innanlandsflug. Þar rætt-
ist þó úr.
í gær var fært víðast hvar, nema á
fjallvegum á Norður- og Austur-
landi. Vegaeftirlitið bjóst við að þeir
vegir yrðu ruddir í dag. í gær var
éljagangur með NA-átt í þessum
landshlutum. Veðurspár gerðu ráð
en félagið fyrirhugaði að flytja út
hross og selja þau í heildsölu í
Þýskalandi. Áhugi hrossabænda er
mikill á þessu fyrirtæki og er búið að
safna hlutafé fyrir 11,5 milljónir
króna. Undirbúningsnefnd stefndi
að því að safna 10 milljónum í hluta-
fé, þannig að söfnunin hefur farið
fram úr björtustu vonum.
Fyrirtækið ætlar að setja upp sölu-
miðstöð í Hamborg og er með auga-
stað á húsnæði í borginni. Ekki er
endanlega búið að fastsetja húsnæð-
ídag
fyrir að veðrið myndi ganga niður í
dag.
Flugleiðir áttu í erfiðleikum með
flug fram eftir degi og síðdegis hafði
tekist að fljúga til allra áætlunar-
staða nema Egilsstaða. Enn beið þó
fjöldi fólks, sem var að koma úr
páskaleyfum, flugs. Arnarflug/Flug-
tak náði aö fljúga til allra sinna áætl-
unarstaða.
-sbs.
ið. Óvíst er hvenær útflutningur á
vegum fyrirtækisins hefst. Hugsan-
legt er að það verði ekki fyrr en í
haust, vegna þess að hrossasala yfir
sumarið er oftast nær í daufara lagi.
________________________-EÓ
Sólarlanda-
ferðir vinsæl-
ar sem fyrr
Ófriðurinn við Persaflóa virðist
ekki ætla að draga úr útþrá ís-
lendinga. Flest bendir til að ferð-
ir til sólarlanda verði ekki færri
nú en fyrri ár.
Lítið var bókað á meðan stríðið
stóð yfir, en eftir að því lauk hef-
ur bókunum fjölgað verulega.
Virðast áframhaldandi væringar í
írak ekki ætla að hafa áhrif þar á.
Forsvarsmenn þeirra ferðaskrif-
stofa, sem Tíminn hafði samband
við, voru á einu máli um að ferð-
ir yrðu ekki færri í ár en áður.
Bókanir virðast aðeins hafa færst
til, en ferðalangar skila sér nú
þegar friður hefur komist á. -aá.
Batnandi veðri