Tíminn - 03.04.1991, Qupperneq 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnarhusmu v Tryggvogotu.
® 28822
Ókeypis auglýsingar
fyri^rinstaklinga^
POSTFAX
91-68-76-91
m m J Caábríel HÖGG- DEYFAR Versltó hjá fagmönnum
G: i varahlutir
Hamarsböfða 1 - s. 67-6744
Tj niiiin
MIÐVIKUDAGUR 3. APRlL 1991
" Deila sjómanna og Útgerðarfélags Akureyringa. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar:
J 1 i i\ 1 A
A F < > V Ul íl l/l
heimalöndunarálagiö úr 30% í
40% 1. mars sl. og útilokað sé að
frekari hækkun á því geti átt sér
stað.
„Þetta snýst um fiskvinnsluna í
landinu, hvort að á gjörsamlega að
brjóta hana niður og ganga af
henni dauðri. Því þetta snertir
ekki bara okkur hérna, þetta
snertir allt landið, þannig að það
er svo mikið í húfi. Með allri virð-
ingu fyrir sjómönnum, sem eiga
allt gott skilið, þá eru bara fleiri
sem hafa hagsmuna að gæta í allri
þessari rás frá veiðum og vinnslu,
til markaða og sölu. Spurningin er
hvort að þetta sé virkilega þannig
að við eigum að fara að senda allt
okkar hráefni óunnið úr landinu,"
sagði Gunnar i samtali við Tímann
í gær.
—GEÓ
Deila sjómanna og Útgerðarfélags Akureyringa helst enn óbreytt
og stöðvuðust öll skip félagsins yfir páskana af völdum deilunn-
ar, nema Kaldbakur sem kemur til hafnar á morgun. Mikil sam-
staða ríkir meðal sjómanna hjá ÚA, en flestir þeirra hafa sagt
upp störfum til að undirstríka kröfur sínar um hækkun heima-
löndunarálags. ÚA hefur auglýst stöður þeirra lausar til um-
sóknar.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, segir að
hækkun til sjómanna muni þýða
að fiskverkunarfólk krefjist einnig
launahækkana og segist undrandi
á sjómönnum að ætla að fiskverðs-
hækkun skili sér til þeirra en ekki
fiskverkunarfólks. Gunnar Ragn-
ars, framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Akureyringa, segir að úti-
lokað sé að þeir geti boðið meiri
hækkun heimalöndunarálags en
úr 30% í 40%, sem varð 1. mars.
Konráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, segir að
ekki hafi verið haft samráð við þá
vegna hækkunarinnar 1. mars,
auk þess sem þeim tilboðum sem
þeir hafi lagt fram hafi ekki verið
svarað.
„Ég get nú ekki séð að þetta geti
haldið svona áfram í vaxandi mæli,
þó að sjómenn séu alls góðs mak-
legir, að öll fiskverðshækkun fari
fram hjá fiskverkunarfólki og er
undrandi á að sjómenn skuli vera
að lýsa furðu sinni á því að fisk-
verkunarfólk vilji fá einhverja
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ
hækkun líka,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson í samtali við
Tímann í gær.
Guðmundur sagðist telja að
hækkun myndi ekki leysa vand-
ann, það myndi einungis fram-
kalla uppsagnir í frystihúsunum,
a.m.k. á Akureyri, og sagði að t.d.
lægi fýrir yfirlýsing frá verkalýðs-
félaginu Eining á Akureyri þess
efnis. „Hins vegar ríkir ófremdar-
ástand í fiskverðsmálum í land-
inu, því verðið er misjafnt eftir
byggðarlögum og slíkt skapar
deilur sem þessar," sagði Guð-
mundur einnig.
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA, segir að flestir þessara
sjómanna hafi sagt upp störfum
hjá þeim, stöðurnar hafa verið
auglýstar lausar til umsóknar.
Gunnar sagði að ÚA hefði hækkað
Voru flugmenn
meö flugveiki?
Um páskahelgina var nokkuð um ina að leigja flugvél ásamt flug-
veikindi hjá flugmönnum Fiug- mönnum frá Hollandi og flaug
ieiða og féllu niður ferðir vegna hún héðan til Basel í Sviss og
þess að flugmenn höfðu tilkynnt heim aftur.
veíkindaforfiill og engir aðrir Einar Sigurðsson, fjölmiðlafull-
fengust til þess að hlaupa í skarð- trúi Flugleiða, sagði að mál sem
ið fyrir þá sjúku. þessi væru venjulega leyst innan-
Kjarasamningar flugmanna eru húss, en vegna kjaradeilunnar
nú lauslr og samskipti þeirra viö væru samskiptin heldur erfíðari.
Flugleiðir heldur stirð. Því gripu
Flugleiðir til þess ráðs um helg- —GEÓ
Kosningaskrifstofur B-, G- og A- lista í Hveragerði undir sama þaki:
Skýr skilaboð til
stjórnarflokkanna
Þrír flokkar, Framsóknarflokkur-
inn, Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið í Hveragerði hafa allir
opnað sínar kosningaskrifstofur
vegna komandi kosninga, en það
sem vekur athygli er að þær eru all-
ar í sama húsi. Skilrúm eru þó not-
uö til að stúka skrifstofumar af, en
fundarsalur og kaffístofa eru sam-
eiginleg og að sögn kunnugra eru
umræður í kaffitímum þar með
allra líflegasta móti.
Gísli Garðarsson, formaður Fram-
sóknarfélagsins í Hveragerði og bæj-
arfulltrúi þar, sagði að það væri
vissulega óvenjulegt að þrír flokkar
væru með kosningaskrifstofur í einu
og sama húsinu og sagðist hann
jafnvel telja að það væri einsdæmi á
íslandi. Gísli sagði að þessir flokkar
hefðu verið í samstarfi í bæjarmál-
um á þessu kjörtímabili og því síð-
asta og það samstarf gengi mjög vel,
en sameiginlegur listi þessara
flokka, H-listi, sigraði í síðustu bæj-
arstjórnarkosningum í Hveragerði. í
framhaldi af því hefði H-lista fólk
keypt húsnæði að Reykjamörk I þar
sem kosningaskrifstofurnar þrjár
eru nú til húsa. „Okkur fannst alveg
tilvalið að vera öll í þessu húsnæði;
stúkuðum af þrjár litlar skrifstofur,
en höfum sameiginlega fundar- og
kaffistofu," sagði Gísli. Hann sagði
að líta mætti á þetta sem skýr skila-
boð til ríkisstjórnarinnar um að þeir
vildu áfram sama stjórnarmynstur,
enda væri reynsla þeirra í Hvera-
gerði af samstarfi þessara flokka
mjög góð. —SE
Bandaríkjamenn sem fyrr á móti hvalveiðum Islendinga:
Fer ísland út úr
Hvalveiðiráðinu?
Bandaríkjamenn eru sem fyrr mót-
fallnir því að íslendingar hefji hval-
veiðar á ný nú í sumar. Þetta kom
fram á fundum Halldórs Ásgríms-
sonar sjávarútvegsráðherra og Jó-
hanns Siguijónssonar sjávarlíf-
fræðings með bandarískum emb-
ættismönnum.
Bandaríkjamenn telja fullvíst að
veiðar verði ekki leyfðar fyrr en
sumarið 1992, og hugsanlega ekki
fyrr en 1993. Fyrir því nefna þeir
tvær ástæður. í fyrsta lagi skorti enn
á að íslendingar hafi fært fullnægj-
andi vísindaleg rök fyrir máli sínu. í
öðru lagi sé ekki hægt að úthluta
veiðikvótum fyrr en Alþjóða hval-
veiðiráðið hafi gengið frá nýju veiði-
stjórnunarkerfi, sem nú er unnið að.
„Við vildum skýra Bandarfkja-
mönnum frá fyrirætlunum okkar á
fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins í
Reykjavík og reyna þannig að bæta
andrúmsloftið milli sendinefnda
þjóðanna.
Við leggjum til að í framtíðinni
verði farnar aðrar leiðir í ákvörðun-
um um veiðar en nú er. Þar yrði
byggt á enn meiri varúð en áður hef-
ur þekkst í nýtingu þessara stofna.
Við mættum mikium skilningi
þeirra ráðherra sem við töluðum
við. Það kom þó fram að stefna
Bandaríkjamanna hefur enn ekki
breyst. Þeir gera sér þó grein fyrir að
nauðsynlegt er að ná málamiðlun
sem íslendingar geta sætt sig við. Ég
Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráöherra
tel að nú séu meiri líkur en áður á að
það takist á fundi Hvalveiðiráðsins í
vor. Bandaríkjamenn ætla að sækja
um kvóta fýrir Inúíta í Alaska. Þeir
byggja beiðni sína á stjórnunarað-
ferðum, sem á síðasta ári var ekki
talið rétt að nota við ákvarðanir um
veiðar úr hrefnustofni okkar. Við
gerðum þeim grein fyrir að beita
verði sömu aðferðum í öllum tilfell-
um. Við teljum að sú staðreynd geti
öðru fremur orðið til þess að ná sátt-
um í málinu," segir Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra.
„Það er ekki hægt að tala um breyt-
ingu á stefnu Bandaríkjamanna. Við
fengum hins vegar tækifæri til að
skýra þær tillögur sem við hyggj-
umst leggja fyrir Hvalveiðiráðið í
vor, og vísindalegan grunn þeirra.
Ég held að Bandaríkjamenn skilji
okkar mál. En það er óvíst hvort sá
skilningurbreytirstefnu þeirra. Þeir
eru undir þrýstingi frá umhverfis-
verndarsamtökum. Hann mótar í
einhverju afstöðu þeirra,“ segir Jó-
hann Sigurjónsson sjávarlíffræðing-
ur. -aá.
Notaó og
nýtt stækk*
ar ört
Smáauglýsingablaðið Notað og
nýtt, sem gefið er út sem fylgirit
Tímans, hefur hlotið mun betri
viðtökur en búist var við. Áskrif-
endur Tímans fá blaðið ókeypis
með aðalblaðinu, en auk þess er
Notað og nýtt selt sérstaklega.
Að sögn Kristins Finnbogason-
ar, framkvæmdastjóra Tímans,
hefur aukningin í sölu á Notuðu
og nýju verið jöfn og þétt og nú
stefnir f að upplagið verði
20.000 blöð.