Tíminn - 27.04.1991, Side 5
Laugardagur 27. apríl 1991
Tíminn 5
20 ár frá heim-
komu handritanna
Síðastliðinn sunnudag voru liðin
rétt 20 ár frá því fyrstu íslensku
handritin komu til landsins eftir
langa útivist í Danmörku. „Eftir
þessi 20 ár er mér efst í huga þakk-
íæti til Dana að þeir skyldu, á sín-
um tíma, afhenda okkur handrit-
in,“ sagði Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður Ámastofnunar, í sam-
tali við Tímann í gær.
Það var 21. apríl 1971 sem danska
varðskipið Vædderen kom hingað til
lands með Flateyjarbók og Kon-
ungsbók Eddukvæða. Síðan þá hafa
önnur handrit verið að berast hing-
að jafnt og þétt og nú er meginþorr-
inn kominn. Samkvæmt sáttmála
við Dani frá 1971 á skilum á hand-
ritunum að vera lokið árið 1996 eða
25 árum frá fullgildingu sáttmálans.
íslendingar fá nærri 2000 handrit,
ýmist heil eða í brotum og eru 4/5
hlutar þess komnir. Nokkuð verður
þó eftir af handritum í Árnasafni í
Kaupmannahöfn en bróðurpartur-
inn kemur hingað heim.
Barátta íslendinga fyrir að fá hand-
ritin heim var löng og ströng. Upp-
haflega voru þau í eigu Árna Magn-
ússonar handritasafnara en á bana-
beði ánafnaði hann Hafnarháskóla
handritunum en þá var skólinn alls
Danaveldis, þar á meðal íslands. Um
miðja þessa öld hófst barátta íslend-
inga fyrir að fá handritin aftur heim.
Danska þjóðþingið samþykkti hand-
ritalögin árið 1961 og staðfesti þau
1965. Síðan tóku við sex ára mála-
ferli innan ríkis í Danmörku um af-
hendingu handritanna. Þeim lauk
vorið 1971 og þá var fullgildur sátt-
máli milli Danmerkur og íslands
um flutning á hluta hinna íslensku
handrita frá Kaupmannahöfn í
vörslu og umsjón Háskóla íslands.
Árnastofnun er sérstök stofnun
innan Háskóla íslands. Þar eru
handritin varðveitt og þar fara fram
margvíslegar rannsóknir á þeim.
Fræðimenn Árnastofnunar vinna
einnig að fornum íslenskum bók-
menntum og þjóðfræðum margs
konar.
Jónas Kristjánsson, forstöðumaður
Árnastofnunar, sagðist vera þokka-
lega ánægður með hvernig tekist
hefði til á þessum 20 árum. Hann
sagðist þó hafa kosið að staðið hefði
verið við að meira hefði verið gefið
út af ritum á vegum stofunarinnar
og betri tengsl hefðu náðst við þjóð-
ina. Þar átti hann við að bæði skólar
og almenningur allur sækti hand-
ritasýningar stofnunarinnar.
En nú gefst þjóðinni tækifæri. í til-
efni þessara 20 ára verður efnt til
sýningar í Árnastofnun á handritun-
um. Þar má nefna; Konungsbók
Eddukvæða, Flateyjarbók, Skarðs-
bók Jónsbókar, Skarðsbók postula-
sagna, Möðruvallabók, Stjórn og
fleiri kjörgripi. Sýningin verður op-
in 2 til 4 síðdegis í dag, laugardag, á
morgun sunnudag og miðvikudag-
inn 1. maí.
Jónas Kristjánsson handfjatlar Gráskinnu. Tímamynd: Ámi Bjarna.
Hveradalir:
Fimm bílar í árekstri
Fimm bílar lentu í tveimur árekstr-
um í Hveradalabrekku á Hellisheiði
í gærdag. Flúgandi hálka var á veg-
inum.
í fyrra skiptið lentu tveir bílar sam-
an, en þrír í það seinna. Þá slasaðist
, einn maður á höfði. Bílarnir
skemmdust nokkuð. Að sögn varð-
stjóra hjá lögreglunni á Selfossi
gerði mikla hálku á veginum upp úr
hádegi. Einnig var bylur á heiðinni
og lélegt skyggni. -sbs.
Landsvirkjun:
Dollarinn óhagstæður
Landsvirkjun skilaði hagnaði upp á
1 milljarð króna á síðasta ári. En
fyrstu þrjá mánuði þessa árs var
hallinn 300 milljónir. Þetta kom
fram á aðalfundi Landvirkjunar í
gær. ^
Hækkun dollarans að undanförnu
er óhagstæð fyrir Landsvirkjun.
Lægri dollar þýðir minni skuldir og
lægri vexti. Þessi óhagstæða þróun
erlendis frá þýðir þess vegna að á
næstunni má búast við beiðni um
hækkun gjaldskrár.
-sbs.
Akureyri:
Ekið á pilt á hjóli
Ungur drengur á reiðhjóli varð fyr- hús en betur fór en á horfðist í
ir bíl á Hörgárbraut á Akureyri í fyrstu og fékk pilturinn að fara heim
gær. Pilturinn var fluttur á sjúkra- að lokinni skoðun. —SE
AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar hf. verður haldinn 7.
maí 1991 kl. 16.00 í Safnahúsinu í Sauðárkróki.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, en skv. 16. gr.
samþykkta félagsins, skal taka fyrir eftirtalin mál;
1. Skýrslu stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfsár.
2. Efnahags- og rekstrarreikningar fyrir liðið reikningsár
ásamt skýrslu endurskoðenda verður lagður fram til stað-
festingar.
3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
eða tap félagsins á reikningsárinu.
4. Tekin skal ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og
endurskoðenda.
5. Kjósa skal stjórn og varastjórn og tilnefna fulltrúa ríkis-
ins.
6. Kjósa skal endurskoðanda.
7. Önnur mál, sem löglega eru uppborin.
Dagskrá fundarins, ársreikningur og skýrsla endurskoð-
enda liggur frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund
skv. 14. gr. samþykktar þess.
Steinullarverksmiðjan hf.
Landskjörstjórn vísar kæru Heimastjórnarsamtakanna frá:
Engin rök fyrir ógildingu
Landskjörstjóm hefur vísað frá kröfu
Heimastjómarsamtakanna um að úr-
slit alþingiskosninganna verði ómerkt
og þær endurteknar. Landskjörstjóm
vísar í 46. grein stjómarskrárinnar.
Þar segir að Alþingi skeri úr um hvort
þingmenn séu löglega kosnir.
Heimastjómarsamtökin í Reykjavík
kærðu til landskjörstjómar undir-
búning alþingiskosninganna. Þau
telja að haldið hafi verið uppi stór-
felldum ólöglegum kosningaáróðri og
unnin kosningaspjöll, sem breytt hafi
niðurstöðum kosninganna. Þau
kröfðust þess enda að landskjörstjóm
ógilti kosningamar og legði til við
stjómvöld að kosið yröi að nýju.
í úrskurði landskjörstjómar segir
m.a.: „Heimastjómarsamtökin telja
að brotin hafi verið útvarpslög 3. tl. 3.
gr., 15. og 20. gr„ brotin hafi verið
ákvæði laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 38, 1954 og
„sum“ ákvæði almennra hegningar-
laga, svo sem í XII og XIV kafla lag-
anna. Þá vísa þau til 78. gr. stjómar-
skrárinnar og 4. tl. 125. gr. kosninga-
laga.
Hvorki lagaákvæði né efnisrök liggja
til þess að landskjörstjóm taki til úr-
skurðar gildi eða ógildi kosninga af
þeim orsökum, sem framan eru rakt-
ar, hvað þá heldur fyrirskipi að kjósa
verði að nýju. Um tilvik þau sem hér
eru til umfjöllunar eru skýr ákvæði í
stjómarskrá og kosningalögum.
Samkvæmt 46. gr. stjómarskrárinnar
sker Alþingi sjálft úr því, hvort þing-
menn þess séu löglega kosnir. Þetta
ákvæði hefúr ætíð verið skilið svo, að
Alþingi ætti úrskurð um kjörgengi
nýkjörinna þingmanna og lögmæti
kosninganna. Þessi skilningur er líka
staðfestur í 31. gr. kosningalaga nr.
80, 16. október 1987, sbr. lög nr. 10,
19. mars 1991.
Með tilvísun til 46. gr. stjómarskrár-
innar sbr. lög um kosningar til Al-
þingis sérstaklega 31., 126, 127, og
128. gr. lítur landskjörstjóm svo á, að
Alþingi skuli skera úr um það hvort
þingmenn séu löglega kosnir, enda at-
hugar það og úrskurðar um kosningu
allra nýkjörinna þingmanna, hvort
sem nokkur kæra liggur fyrir eða
ekki. Af þessu leiðir að landskjörstjóm
tekur ekki til greina og vísar frá kröfu
Heimastjómarsamtakanna um ógild-
ingu kosninga til Alþingis er fram
fóm 20. apríl 1991.“
Smiðsbúð, byggingavöruverslun, hefur nú til sölu mótatimbur og sperruvið
á ótrúlega hagstæðu verði.
SPARIÐ ALLT AÐ 40%
Ath. nú tekurþað þvíað gera VERÐSAMANBURÐ
Pantið með Vl2 til 2ja
mánaða fyrirvara,
sperrur og piankavið, svo
tryggt sé að fá
réttar stærðir og lengdir
þegar bygging hefst og þar
að auki með
3% lægra verði
Seljum ennfremur:
Spónaplötur, eldvarnarplötur,
eldvarnarmálningu, panel, plastlagðar
plötur í hillur o.fl. málaðar loftaplötur,
tjörutex 12 mm krossvið, steinull
o.m.m.fl.
Semjiö um heiidarpakka
SMIÐSBÚÐ
Smiðsbúð 8 ■ Garðabæ • Sími 91-656300 ■ Fax 656306