Tíminn - 27.04.1991, Blaðsíða 10

Tíminn - 27.04.1991, Blaðsíða 10
Laugardagur 27. apríl 1991 22 Tíminn ÁRNAÐ HEILLA Sjötugur: Sr. Guðmundur Sveinsson JEvitíminn eyðist; — unnið skyldi langtum meir,“ kvað skáldið, og mér finnst að þessi orð lýsi að nokkru lífsafstöðu hugsjónamanns- ins sr. Guðmundar Sveinssonar sem verður sjötugur 28. aprfl. Sr. Guðmundur er Austlendingur og Reykvíkingur. Hann lauk guð- fræðiprófi frá Háskóla íslands 1945, fil. kand.-prófi í Lundi í Svíþjóð 1951 og stundaði framhaldsnám og sérnám víða. Hann hefur ævinlega mótast af óslökkvanlegum fróð- leiksþorsta, og fyrir nokkrum árum hélt hann til austurheims í leit eftir nýrri reynslu og þekkingu. Sr. Guð- mundur tók vígsiu 24. júní 1945 og þjónaði Hestþingum í Borgarfirði í áratug. Á þeim tíma var hann einn- ig kennari við Bændaskólann á Hvanneyri og við Guðfræðideild Háskóla íslands. En fyrir honum átti ekki að liggja að gerast fræði- maður heldur frumkvöðull í ís- lenskum fræðslumálum. Árið 1955 tók sr. Guðmundur að sér að endurskapa Samvinnuskól- ann á nýjum slóðum, á Bifröst í Norðurárdal í Mýrasýslu. Hann ferðaðist um nágrannalöndin til að viða að sér hugmyndum og reynslu samvinnumanna og annarra í fræðslumálum. Hann tók við þess- ari gamalgrónu stofnun úr höndum Jónasar Jónssonar og mótaði hana upp á nýtt sem heimavistarskóla. Árangurinn er einstakur. Á Bifröst var sköpuð fræðslumiðstöð sem skaraði fram úr og skilaði af sér ótrúlega mörgum forystumönnum á mörgum sviðum þjóðlífsins. Sam- vinnuskóli sr. Guðmundar var við- skipta- og félagsmálaskóli og einnig skólaheimili í orðanna bestu merk- ingu. Nemendur fengu mjög mikla félagsmálaþjálfun og rækilega verslunarmenntun. Áhersla var lögð á hvers konar hagnýt sjónar- mið f kennslunni og margháttuð þjálfun var látin í té. Til dæmis lagði sr. Guðmundur mikla áherslu á að fá fyrirlesara og gestakennara til skólans og þannig var m.a. staðið að tungumálakennslu og verslunar- þjálfun. Sjálfur tók skólastjórinn virkan þátt í kennslunni og skóla- heimilinu, en þótt hann kenndi t.d. tungumál um langt skeið er hans aðallega minnst sem afburðakenn- ara í menningarsögu, hugmynda- sögu, trúarbragðasögu og bók- menntasögu. Kennsluhefti hans eru fyrir hendi, góðu heilli. Nemendur hans minnast þessarar kennslu sem sannkallaðs þroskavaka. En sr. Guðmundur hefur ekki stað- ið einn. Hann er mikill hamingju- maður og 15. aprfl 1944 gekk hann að eiga Guðlaugu Einarsdóttur sem m.a. starfaði sem skólahúsmóðir á Bifröst. Þau Guðlaug og sr. Guð- mundur eiga þrjár dætur og barna- börn. Þegar leið á 7. áratuginn varð það smám saman Ijóst hversu íslend- ingar höfðu dregist aftur úr öllum nágrönnum sínum í skólamálum. Sr. Guðmundur Sveinsson skipaði forystusveit þeirra íslendinga sem fylgdust best með á þessu mikil- væga sviði og bentu á leiðir til fram- þróunar og framfara. Bæði var að hann öðlaðist mikilvæga reynslu í störfum sínum, var í góðum tengsl- FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39-108 Reykjavík - Sími 678500 Fax 686270 Forstöðumaður Staða forstöðumanns við lítið heimili fyrir unglinga er laus til umsóknar. Starf forstöðumanns felst m.a. í umsjón með daglegum rekstri heimilisins ásamt ábyrgð á faglegum störfum þess. Forstöðumaður gegnir vaktavinnu. Reynsla og menntun sem félagsráðgjafi eða hliðstæð menntun á sviði sálar- eða uppeldisfræði áskilin. Starfið er laust 1. júlí nk. Umsóknarfrestur er til 14. maí nk. Upplýsingar gefur forstöðumaður Anna Jóhannsdótt- ir I síma 681836 og forstöðumaður unglingadeildar Snjólaug Stefánsdóttir í síma 625500. Sumarafleysingar Á sama heimili vantar starfsmann til sumarafleysinga í júlí og ágúst. Menntun og reynsla á sviði félags-, uppeldis- eða sálarfræði æskileg. Upplýsingar í síma 681836. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu- blöðum sem þar fást. Aðstoð við aldraða Langar þig að starfa með öldruðum? Okkur bráðvantar áhugasamt og gott fólk til starfa I heimilisþjónustu sem fólgin er í hverskonar aðstoð og félagslegri samveru á heimilum aldraðra. Vinnutími er sveigjanlegur frá kl. 09.00-17.00 og gæti meðal annars hentað húsmæðrum og námsfólki. Hafðu samband sem fyrst og kynntu þér starfið. Nánari upplýsingar veita forstöðumenn og verkstjórar heimaþjónustu kl. 10-12 á eftirtöldum stöðum: Aflagrandi 40 Bólstaðarhlíð 43 Hvassaleiti 56-58 Norðurbrún 1 Vesturgötu 7 sími622571 sími685052 sími679335 sími 686960 sími 627077 um við atvinnulífið í starfinu og einnig hitt að hann gaumgæfði vel framvindu mála í nágrannalöndun- um báðum megin hafsins. Sumarið 1963 fór hann t.d. kynnisferð um Bandaríkin og árið 1974 um Norð- urlönd og Evrópulönd til áréttingar fyrri athugunum, og er þá ekki talin með námsdvöl hans á Bretlandi 1959-60. Sr. Guðmundur gekkst 1973 fyrir stofnun Framhaldsdeild- ar Samvinnuskólans sem starfaði í Reykjavík og útskrifaði stúdenta. Hann var um árabil forstöðumaður Bréfaskólans og félagsmála- og starfsfræðslu þeirrar sem sam- vinnuhreyfingin bauð starfsmönn- um og félagsmönnum sínum. Frá því um 1970 má segja að störf sr. Guðmundar hafi í vaxandi mæli beinst að almennum framförum framhaldsskólastigsins yfirleitt. Hann var einn af höfundum fram- haldsskólabyltingarinnar sem stóð á íslandi allan 8. áratuginn og fram á 9. áratug aldarinnar og er einhver róttækasta menningarbylting og jafnaðarbylting sem hér á landi hef- ur orðið síðan land byggðist. Hann sat í flestum eða öllum nefndunum sem lögðu grunninn að þessari bylt- ingu, en hún opnaði öllum almenn- ingi leið til framhaldsmenntunar og var því í raun áframhald af viðleitni Jónasar Jónssonar til að gefa öllum alþýðubörnum færi á skólagöngu. En hugmyndir sr. Guðmundar um samræmdan alhliða framhaldsskóla gengu lengra og hærra en aðrir höfðu ætlað. í senn vildi hann gefa nemendum tækifæri á mjög víð- tæku valfrelsi ólíkustu námsbrauta, en tryggja um leið samferð í kjarna- greinum og þá einmitt í lokaáfanga námsins. I þessum anda var Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti reistur, en sr. Guðmundur var skipaður skólameistari hans 1974. Sr. Guðmundur og frú Guðlaug hafa orðið þeim sem þessi orð ritar til mikilla heilla á lífsleiðinni. Fyrir það skal þakkað, þótt aldrei verði fullþakkað. Þegar það kom til tals að ég yrði skólastjóri á Bifröst ýtti hann undir það og hvatti mig á all- ar lundir. Þegar hugmyndir kvikn- uðu um að breyta Samvinnuskólan- um í Samvinnuháskólann, sem nú er orðið, sneri ég mér strax til sr. Guðmundar og bar þetta einslega undir hann áður en rætt yrði við aðra. Hann svaraði þegar í stað með sterkum hvatningar- og örvunar- orðum. Hann sagði mér þá frá því að hann hefði þegar árið 1972 gert það að tillögu sinni að Samvinnu- skólinn yrði „hækkaður upp“ til að geta starfað á lokaárum framhalds- skólastigs með stúdentspróf sem lokapróf. „Þú átt hiklaust að gera Samvinnuskólann að „college“- skóla,“ sagði sr. Guðmundur og hafði hugsað alla þessa þróun út meira en heilum áratug áður. „Humani nil a me alienum puto“ = Ekkert mannlegt læt ég mér óvið- komandi, sagði leikskáldið Terenti- us og sr. Guðmundur er sama sinn- is. Hann er hafsjór fróðleiks og fylg- ist ákaflega vel með rannsóknum í félagsvísindum, heimspeki og hug- vísindum yfirleitt. Hann er skapað- ur og fæddur leiðbeinandi, ráðholl- ur, velviljaður og áhugasamur. Fyrir hönd samfélagsins á Bifröst færi ég sr. Guðmundi Sveinssyni innilegar þakkir og árnaðaróskir. Persónulega þakka ég honum og frú Guðlaugu handleiðslu þeirra, vin- semd og hlýhug. Megi þau eiga mörg ár gleði og farsældar fram- undan. Jón Sigurðsson, Bifröst VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat- kvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykja- víkur um kjör fulltrúa á 18. þing Landssambands íslenskra verslunarmanna. Kjörnir verða 74 full- trúar og jafnmargir til vara. Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Húsi versl- unarinnar, fyrir kl. 12:00, þriðjudaginn 30. apríl nk. Kjörstjómin Bændur 12 ára drengur óskar eftir að komast i sveit í sumar. Upplýsingar í síma 91-626145. Bændur 14 ára drengur, vanur í sveit, óskar eftir sveitaplássi í sumar. Upplýsingar í síma 91-653134. Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I Reykjavlk 26. apríl til 2. mai er I Háaleítisapóteki og Vesturhæjarapóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá Id. 22.00 aö kvöldl til kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upp- lýsingar um læknis- og lyfjaþjonustu eru gcfnar i slma 18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Slm- svari 681041. Hafnaríjöröun Hafnarfjarðar apótek og Norð- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búöa. Apó- tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýslngar eru gefnar I síma 22445. Apótek Keflavíkun Opið virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vostmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Setfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær. Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Læknavakt fyrir Reykjavik, Seitjamamos og Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla viriæ daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sólarhringinn. Á Selljamamesl er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá sunnudögum. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tlmapant- anirfsfma 21230. Borgarspítalinn vaktfrá kl. 08- 17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (slml 81200). Nánari upplýsingar um lyljabúðir og læknaþjónustu erugefnar 1 slm- svara 18888. Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram á Hcilsuvcmdarstöð Reykjavikur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskírteini. Sdtjamames: Opiö er hjá Tannlæknastofunni Eiðistorgi 15 viika daga kl. 08.00-17.00 og 20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi 612070. Garðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I slma 51100. Hafharflöröur Heilsugæsla Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt simi 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Simi 40400. Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræöistöðin: Ráðgjöf I sál- fræðilegum efnum. Slmi 687075. Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00 Kvennadeildln: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15- 16. Heimsóknartími fyrirfeður kl. 19.30-20.30. Bamaspitali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunariæknlngadeild Landspitalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa- kotsspítali: Allavirkakl. 15 til kl. 16ogkl. 18.30 til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartlmi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg- arspitalinn I Fossvogl: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30ogeftirsamkomulagi. Álaug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúöin Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 tilkl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa- vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspitali: Heimsóknar- tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St Jósepsspítall Hafnarflröl: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhliö hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim- sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikuriæknlshéraðs og heilsu- gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Sími 14000. Keflavik-sjúkrahúsið: Heim- sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgarog á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00- 19.30. Akureyri- sjúkrahúslö: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeiid og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkiahús Akraness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30. Slökkvilið - Lögregla Reykjavik: Seltjamames: Lögreglan simi 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Kópavogur. Lögreglan slmi 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Hafriarflöröur Lögreglan simi 51166, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 51100. Keflavík: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og sjúkrabíll sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjan Lögreglan, sími 11666, slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið sími 11955. Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 22222. Isaflörður: Lögreglan simi 4222, slökkvilið slmi 3300, brunasimi og sjúkrabifreið sími 3333.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.