Tíminn - 25.05.1991, Page 2

Tíminn - 25.05.1991, Page 2
» fV 2 Tímlnn Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, telur ólíklegt að álsamningar verði undirritaðir á þessu ári þrátt fyrir að vel hafi miðað á síðustu samningafundum: Samkomulag náðist um endurskoðunarákvæði Góður árangur náðist á fundum í Ziirích í Sviss og í Atlanta í Bandaríkjunum um samninga um byggingu álvers á Keilis- nesi. Jóhannes Nordal, stjómarformaður Landsvirkjunar, sagði að gengið hefði veríð frá mikilvægum atríðum sem hefðu margsinnis verði rædd á fyrrí fundum án þess að end- anleg niðurstaða fengist. Hann nefndi sérstaklega endurskoð- unarákvæði í þessu sambandi. Þrátt fyrír að vel hafi mjðað telur Jóhannes ólíklegt að álsamningamir verði undirrítaðir á þessu árí. „Þetta hafa verið mjög gagnlegir fundir. Við höfum leyst úr mörg- um málum sem við höfum verið að velta á milli okkur undanfarna mánuði," sagði Jóhannes. Hann sagði að enn væri eitt og annað eftir, en það væri að komast heildarmynd á samningana. Hann sagði að markmið samn- ingsaðilanna væri að ljúka samn- ingavinnunni fljótlega í næsta mánuði þannig að álfyrirtækin þrjú geti lagt samningstextann, áætlanir og útreikninga fyrir lánastofnanir sem koma til með að fjármagna álverið. Þessi gögn verða að liggja fyrir svo að lána- stofnanir geti gefið álfyrirtækjun- um endanleg svör um lánskjör. Jóhannes sagðist telja að álfyrir- tækin hefðu mikinn áhuga á að ná samningum og byggja hér ál- ver. „Hins vegar vitum við það að lokaákvörðun um þetta mál allt verður náttúrlega háð því mati sem þá liggur fyrir. Niðurstaðan úr viðræðunum við fjármögnun- arfyrirtækin, markaðshorfur og fjárhagsstaða fyrirtækjanna hefur þar sín áhrif. En það leikur eng- inn vafi á áhuga þeirra á bygg- ingu álvers hér ef þessir þættir sem ég nefndi ganga allir upp.“ Jóhannes sagði að þrátt fyrir að góður árangur hefði náðst á fund- unum og aukin bjartsýni ríkti um að af samningum við Atlantsál verði, yrði ekki hægt að hefja Virkjunarframkvæmdir á þessu ári. Samningar væru ennþá ófrá- gengnir og Landsvirkjun gæti ekki tekið þá áhættu að hefja framkvæmdir meðan samningar væru enn óundirritaðir. Jóhannes var spurður hvenær hann byggist við að álsamning- Málþing um slysatíðni barna: Slysatíðni barna er langhæst á íslandi Slysatíðni bama á íslandi er mjög há miðað við slysatíðni baraa í öðr- um löndum Vestur-Evrópu. Af Noröurlöndunum er ísland með langhæstu slysatíðni baraa upp að 14 ára aldri. Um það bil 40% þess- ara slysa gerast í heimahúsum. Til að vekja athygli á þessu efndu samtökin Barnaheill til máiþings í Gerðubergi í gær. Þar var rætt um ýmsar staðreyndir varðandi slysa- tíðni barna hér á landi. Herdís Storgaard, formaður slysanefndar Barnaheilla, sagði að um 11.000 börn hefðu komið á slysadeild Borg- arspítalans árið 1989. Vakti hún at- hygli á því að þessi tala væri í raun- inni mun hærri því ekki væru talin með þau slys sem eiga sér stað úti á landi og þau slys sem heilsugæslu- stöðvarnar taka við. Einnig sagði hún að börn upp að 5 ára aldri slas- ist oftast í heimahúsum en eldri börn í leik úti við. Algeng slys sem koma fýrir börn eru bruni og fall af háum hæðum. Herdís segir að oft megi rekja slys barna til fullorðinna. Það sé ekki fylgst nógu vel með börnunum, þau látin passa sig sjálf og ekki tekið nægt tillit til þroska- stigs þeirra. Páll Ásgeirsson, formaöur samtak- anna, tók undir með Herdísi og sagði að allt of mörg börn á íslandi gengu sjálfala og forsjárlaus. Þegar enginn er til þess að fylgjast með þeim aukist til muna hættan á slys- um heima fyrir. Hann sagði að ef til vill mætti koma í veg fyrir eitthvað af þessum slysum ef flestum börn- um væri séð fyrir dagvistun og með samfelldum skóladegi. Vinnuslys barna verða svo nokkuð áberandi milli 13 og 14 ára aldurs. Þau eru mun tíðari úti á landi held- ur en í Reykjavík og oft eru það mjög ung börn sem slasast. Vinnueftirlit ríkisins hefur látið þetta mál sig varða og sent bréf til öryggistrúnaðarmanna vinnustaða þar sem trúlegt þykir að böm séu í vinnu. Þar óskar Vinnueftirlitið eftir að lögum sem sett voru á Alþingi í fyrra um öryggi, aðbúnað og holl- ustuhætti barna og unglinga á vinnustöðum verði framfylgt. Börn innan við 14 ára aldur má ekki ráða til vinnu nema um létt og hættulítil störf sé að ræða. Ekki má heldur láta börn og unglinga yngri en 16 ára vinna við hættulegar vélar. Með bréfi Vinnueftirlitsins fylgir bæklingur þar sem nánar er skilgreint hvað teljast hættulítil störf, hættulegar vélar og hættulegar aðstæður. -UÝJ Á málþinginu var einnig kynnt veggspjald sem Bamaheill er að gefa út. Á myndinni er Herdís Storgaard með veggspjaldið en útgáfa þess nýtur styrks úr Bamavemdarsjóði Knuds Knud- sens. arnir yrðu undirritaðir, ef sú for- senda er gefin að mál þróist á besta veg og ekkert óvænt komi upp á. „Það er ekki víst hvenær það get- ur orðið. í fyrsta lagi yrði það í lok þessa árs, en líklegra er að það verði á fýrstu mánuðum næsta árs. Það er hins vegar of snemmt að slá neinu föstu um það,“ sagði Jóhannes. Bond Evans, aðstoðarforstjóri Alumax, var hér á ferð í síðustu viku og sagði þá að hann byggist við að um miðjan næsta mánuð lægi fyrir endanleg ákvörðun ál- fyrirtækjanna þriggja hvort þau stæðu að byggingu álvers á ís- landi. Hann sagði jafnframt að ekki yrði hægt að komast hjá því að flytja inn erlent vinnuafl til að annast suma verkþætti á bygg- ingartímanum. Evans sagði að ástæðan væri ekki sú að Islend- ingar hefðu ekki færni til að tak- ast á við þessa þætti heldur hefðu þeir einfaldlega ekki nægilega mikinn mannafla og tækjakost til að ljúka byggingu álvers á þeim hraða sem stefnt væri að. Evans sagði að Alumax legði mikla áherslu á að ljúka byggingu ál- vers á sem skemmstum tíma og nefndi 27 mánuði í því sambandi. Langur byggingartími gerir verk- ið dýrara, vaxtakostnað meiri og lengri tími líður þangað til fjár- festingin fer að skila tekjum. í gær voru undirritaðir í New York samningar um lántöku Landsvirkjunar í Bandarfkjunum að fjárhæð 130 milljónir Banda- ríkjadollara að jafnvirði um 7,8 milljörðum íslenskra króna á nú- verandi gengi. Lánstíminn er 10 ár og vextir 9,42% á ári út láns- tímann. Af hálfu Landsvirkjunar undirrituðu lánssamningana Jó- hannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Halldór Jón- atansson, framkvæmdastjóri Landsvirkjunar. Lánsféð verður notað til fjármögnunar fjárfest- inga Landsvirkjunar á árinu 1991 aðallega vegna Blönduvirkjunar og til endurfjármögnunar eldri lána fyrirtækisins. -EÓ Verið er að ganga frá samningi við Hólsfjallabændur um að hætta sauðfjárbúskap. Bragi Benediktsson, oddviti Fjallahrepps: Byggðin leggst af Þessa dagana er landbúnaðarráðu- neytið að ganga frá samningi við bændur á Hólsfjöllum um að hverfa frá lausagöngu búfjár. Með þessu leggst sauðfjárbúskapur á svæðinu að mestu af, enda fá bændur bætur eða aðrar ívilnanir í staðinn. Oddviti Fjallahreps segir þetta ganga af byggðinni feigri. „Umræðan í þjóðfélaginu er í þá átt að draga úr sauðfjárbúskap á þeim svæðum þar sem gróður á undir högg að sækja eins og hér. Einnig ýt- ir offramleiðslan undir þetta enda sér hver maður að það er tóm vit- leysa að framleiða kjöt sem síðan er hent,“ sagði Bragi Benediktsson bóndi á Grímsstöðum og oddviti Fjallahrepps í samtali við Tímann í gær. Samningurinn, sem verið er að gera við bændurna, felur í sér bann á lausagöngu sauðfjár en hins vegar er ekkert sem bannar bændum beit á afgirtum svæðum. En girðingar eru ákaflega dýrar og því segir Bragi að áframhaldandi sauðfjárbúskapur sé ógerlegur. I Fjallahreppi eru 12 íbúar og fjórir bæir í byggð; Hólsel, Nýhóll og Grímsstaðir þar sem er tvíbýli. Hafa í vetur verið um 1500 fjár á fóðrum á þessum bæjum og í sumar verða um 2500 fjár á fjalli. Það er í síðasta sinn sem sauðfé Hólsfjallabænda er rekið á afrétt. Bragi sagði búskapinn toga í menn og þeim væri óljúft að hætta. Þannig vildi bóndinn í Hólseli, en það er ríkisjörð, halda áfram og hyggst ríkið útvega honum aðra jörð í staðinn, þar sem hann gæti haldið áfram. Sjálfur sagðist Bragi ætla að starfa hjá Landgræðslunni til að byrja með og sjá hvernig það kæmi. út. „Þetta er afdrifaríkur samningur sem setur hreppinn að mestu í eyði. Ég er búinn að vera bóndi hér á Grímsstöðum í 15 ár og þá var ég hvattur til að byggja og búa stórt sem ég og gerði. Þetta er mikið áfall, sérstaklega þegar allar byggingar eru nýjar.Ætli ég fái ekki bótafé sem samsvarar blokkaríbúð í Reykjavík," sagði Bragi Benidektsson, bóndi og oddviti á Grímsstöðum á Fjöllum. -sbs. Ur .»•»./. 1 Laugardagur 25. maí 1991 Danski tenórsaxófónleikarinn Bent Jæger er einn sá besti á Norðurlöndum. Meöal fleiri út- lendra djassleikara og hljóm- sveita sem leika á hátfðinni má nefha trompetieikarann Ulf Adaker, New Jungle Trio, Kamívala, hina þekktu söng- konu Karen Krog og hinn noreka Per Husby, er mun m.a. stjóma 12 manna sveit á loka- tónleikunum. Þá mun einnig samnorræn hljómsveit undlr stjóm Pierre Dörge leíka. Djassinn dunar Stómisla fslenskra djassáhuga- manna, Rurek, djasshátfð Rflds- útvarpsíns og Reykjavíkurborgar, hefst á morgun og mun svelflan rílqa í cina viku, til sunnudagsins 2. júní. Fyrirhugaðir eru um 40 tónleikar utan dyra sem innan. Þorri djasstónlistarmanna fs- lenskra, sem tónl geta valdiö sómasamlega eða betur, er tU kall- aður og auk þess munu fjölmarg- ir mjög svo frambærilcgir djass- menn frændþjóðanna fulinægja tónlistarþörf hátfðargesta. Opn- unarhátíðin fer fram í Útvarps- húsinu við Efstaleiti Id.l7:00 - 18KK) á morgun. Um kvöldið verður síöan leildnn lifandi djass á veitingahúsum. Þórir Baldurs- son og Rúnar Georgsson munu sjá um kvöldveröarsveiflu á Hótel Botg og síðar um kvöldið mun EI- len Kristjánsdóttir og Flokkur mannsins hennar taka við tónlist- arflutningi á Borginni. Milli kl. 22:00-00:30 mun Sextett Viðars Alfreðssonar leika í Djúpinu, fær- eyska bræðingshjjómsveitin Plúmm og Tónskrattar í Duus húsi, á Kringlukránni verður Möller-Eydal kvintettinn með Andreu Gylfadóttur sem sérstak- an gest, á Púlsinum leikur kvar- tett Guðmundar Ingólfssonar og á Tveim vinum kemur fram bræð- Ingssveitin Grumbl, er leikur frumsamda tónlist og Hólm 4, sem gerir það einnig og er ma. skipuð þeim Jóni Olafssynl og Stefáni Hjörieifssyni, sem eru löngu þekktir fýrir innlegg sitt f íslenska popptónlist. Á mánudaginn verður haldið áfram þar sem frá var horfið. Á útitaílinu v. Lækjargötu mun tríó Björns Thoroddsens leika milli kU16:30 og 17:30. TVÍÓ Reytús Sigurðssonar sér um kvöldverð- arsveiflu á Borginni og kvartett Kristjáns Magnússonar ásamt sextett Viðars Albertssonar tekur síðan við á þeim bæ. Þá verður boðið upp á lifandi djass á velt- ingahúsum fram eftir kvöldL Mun þá sextett Tómasar R. Einarsson- ar, skipaður valinkunnum mönn- um, kynna, á Púlsinum, lög af væntanlegri plötu Tómasar. í Ðu- ui húsi gefur að heyra sérstakt samvinnuverkefni fslenska og finnska útvarpsins, Scheving - Lasanen sextettinn. í Djúpinu leíkur Eðvarð Lárusson ásamt hljómsvett, Gammarair verða á tveim vinum og Sveiflusextettinn gleður gesti Kringlukrárinnar undir formerkjum sveifluham- ingjunnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.