Tíminn - 25.05.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 25. maí 1991
Tíminn 25
Verðlaun
fýrir bamabók
Bókaútgáfan Björk er 50 ára á þessu ári. í tilefni afmælis-
ins hefur stjóm útgáfunnar ákveðið að efna til verðlauna-
samkeppni um:
MYNDSKREYTTA BARNASÖGU
handa yngrí lesendunum.
Verðlaun kr. 150.000.- (auk rítlauna).
Bókin verði 3-4 arkir, brot ca. 18,5 x 25 cm, innbundin.
Myndlistarmaður og sögumaður geta skilað handriti sam-
an. Til greina kemur að gefa út fleiri en eitt handrit.
Sérstök dómnefnd dæmir handrit. Skilafrestur handrita er
til 10. okt. 1991. Nafn höfundar fýlgi með í lokuðu umslagi,
en handritin merkt dulnefni.
Handritum sé skilað til formanns dómnefndar, Stefáns
Júlíussonar rithöfundar, Brekkugötu 22, 220 Hafnarfirði.
Bókaútgáfan Björk
Húsnæði
óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði
w
á Isafirði
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b.
150-200 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini stærð, byggingarár og -efni, fasteigna- og
brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhendingar-
tíma, óskast send eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnar-
hvoli, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní 1991.
Fjármáiaráðuneytið,
24. maí 1991
Borgames
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vesturlandi leitar eft-
ir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í Borgar-
nesi. Um erað ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat,
afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár-
málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir
10. júní 1991.
Fjármálaráðuneytið,
24. maí 1991
Útboð
Geiradalur 1991
Vegagerð ríkisins óskareftirtilboðum í lagn-
ingu 3,25 km kafla á Vestfjarðavegi um
Geiradal.
Helstu magntölur:
Fyllingar og fláafleygar 39.000 m3 og neðra
burðariag 11.000 m3.
Verki skal lokið 1. nóvember 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rík-
isins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 27. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 10. júní 1991.
Vegamálastjóri.
John F. Kennedy yngri
rétt slapp við slags-
mál við Sean Penn!
Sean Penn hefur löngum haft orð
á sér fyrir að vera bráður og ofsa-
fenginn slagsmálahundur og það
lítur ekki út fyrir að hann ætli að
venja sig af því. Hann fer ekki einu
sinni í manngreinarálit þegar
hann velur sér fórnarlömb. Hann
virðist reyndar sífellt vera í víga-
hug.
Það er ekki langt um liðið síðan
Sean Penn rakst á John F. Kennedy
yngri, með vinkonu sinni Toni
Kotite, á matsölustað í New York
og þá rak hann minni til að hann
hefði heyrt einhvern orðróm um
að John hefði verið að stíga í
vænginn við Madonnu meðan hún
var enn gift Sean. Slíkt upplagt
tækifæri til að koma á ærlegum
slagsmáium gat hann ekki látið
ónotað og ávarpaði eljara sinn
þessum kurteisisorðum: „Ég á inni
hjá þér afsökunarbeiðni.“ Síðan
setti hann sig í bardagastellingar.
Forsetasonurinn og núverandi
aðstoðarsaksóknari var ekki upp á
það kominn að lenda í slagsmálum
og bæta þannig einni hneykslis-
fjöðrinni enn í fjölskylduhattinn.
Hann var fljótur að stinga sér upp í
leigubíl, ásamt vinkonunni, en
skildi bardagafúsan leikarann og
kvikmyndaframleiðandann eftir á
gangstéttinni með sárt ennið.
En fyrst Sean Penn hefur nú einu
sinni fengið þá flugu í höfuðið að
hann eigi óuppgerða reikninga við
John F. Kennedy er ekki víst að
hann gleymi þessari ágætishug-
mynd fyrst um sinn.
Sean Penn er ekki beint blíður á svipinn þegar John F.
Kennedy stingur sér inn í leigubíl með Toni Kotite vinkonu
sinni og kemur sér þannig hjá því að slást við leikarann.
Edy Williams hverfur áreið-
anlega ekki í fjöldann, enda
er hún sögð sérvitur.
Ekki vitum við hvort það er
hitabylgja sem hefur fengið Edy
Williams til að ganga um á al-
mannafæri svona fáklædd. Við
vitum ekki heldur hvert tilefnið
er, en hún hefur a.m.k. séð
ástæðu til að setja á sig hatt og
háa hvíta hanska. Og til að kór-
óna allt saman skýlir hún sér að
hluta með loðinni og notalegri
kanínu!
Við vitum ekki heldur í raun-
inni hver Edy Williams er, en
hún er sögð sérvitur!
sig svona
til fara?
Hvar lætur
fólk sjá