Tíminn - 25.05.1991, Blaðsíða 4
4 TírTH'nn
Laugardagur 25. maí 1991
Verðlaun
fyrir barnabók
Bókaútgáfan Björk er 50 ára á þessu ári. í tilefni afmælis-
ins hefur stjórn útgáfunnar ákveðið að efna til verðlauna-
samkeppni um:
MYNDSKREYTTA BARNASÖGU
handa yngrí lesendunum.
Verðlaun kr. 150.000,- (auk rítlauna).
Bókin verði 3-4 arkir, brot ca. 18,5 x 25 cm, innbundin.
Myndlistarmaður og sögumaður geta skilað handriti sam-
an. Til greina kemur að gefa út fleiri en eitt handrit.
Sérstök dómnefnd dæmir handrit. Skilafrestur handrita er
til 10. okt. 1991. Nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi,
en handritin merkt dulnefni.
Handritum sé skilað til formanns dómnefndar, Stefáns
Júlíussonar rithöfundar, Brekkugötu 22, 220 Hafnarfirði.
Bókaútgáfan Björk
Húsnæði
óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði
á ísafirði
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b.
150-200 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini stærð, byggingarár og -efni, fasteigna- og
brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhendingar-
tíma, óskast send eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnar-
hvoli, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní 1991.
Fjármáiaráðuneytið,
24. maí 1991
Borgames
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vesturlandi leitar eft-
ir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í Borgar-
nesi. Um erað ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat,
afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár-
málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir
10. júní 1991.
Fjármálaráðuneytið,
24. maí 1991
Útboð ^
Geiradalur 1991
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu 3,25 km kafla á Vestfjaröavegi um
Geiradal.
Helstu magntölur:
Fyllingar og fláafleygar 39.000 m3 og neðra
burðarlag 11.000 m3.
Verki skal lokið 1. nóvember 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rík-
isins á Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 27. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 10. júní 1991.
Vegamálastjóri.
Efast um að ég hafi nokkru sinni séð fyrir mér
Ijótara dæmi segir Björn Þórhallsson:
Óttast að margir
muni snýta rauðu
„Hvar þetta vaxtakapphlaup nemur staðar veit ég ekki. En hræddur
er ég um að margir eigi eftir að snýta rauðu. Menn hafa til þessa
verið að missa íbúðir vegna hárrar greiðslubyrði af lánum. Hvað nú,
þegar vextimir em hækkaðir enn meira? Þetta á eftir að valda sumu
fólki voðalegum glundroða og hörmungum. Ég efast um að ég hafi
nokkura tíma séð fyrir mér ljótara dæmi,“ sagði Bjöm Þórhallsson,
stjóraarmaður bæði í miðstjóra ASÍ og Húsnæðisstofnun og jafn-
framt viðskiptafræðingur.
Tíminn leitaði álits hans á þróun
húsnæðislánamarkaðarins, m.a.
þeirri grundvallarbreytingu að varpa
nú þessum stærsta þætti í afkomu
alls almennings út á dutlungafullan
verðbréfamarkað. Bjöm segir þetta
vitanlega óskaplega flókið og mikið
mál.
Óttast að margir
farist í því stríði
„Ég óttast að það farist margir í því
stríði, ef það á að sleppa fjármagns-
markaðnum lausum að öllum mönn-
um. Fólkið er enn ekki nógu vel upp
alið til að taka á móti slíku. Það þarf
hugarfarsbreytingu áður. Auðvitað
eru sumir farnir að hugsa áður en
þeir taka lán. En margir eru enn í allt
of ríkum mæli fastir í; „þetta hlýtur
að reddast" hugarfarinu. „Þetta eru
lán til 25 og jafnvel 40 ára — það
reddast margt á þeim tíma,“ segja
menn og taka lán hvað sem þau
kosta.“
Björn sagði þetta m.a. koma í ljós í
auknum fjölda íbúða sem Húsnæðis-
stofnun verður að leysa til sín. „Og
mér sýnist gefið mál að það á enn eft-
ir að stórvaxa."
Sagan að endurtaka sig
En af hverju eru þarna enn og æ og
alltaf einhver vandræði — ef ekki of
litlir peningar þá of háir vextir og of
mikil afföll?
Hefði sá maður t.d. ekki verið sagður
ruglaður sem fyrir hálfu öðru eða
einu ári hefði spáð yfir 20% afföllum
af húsbréfum?
,Jú, jú. Ég var að reyna að messa
þetta yfir mönnum árið 1988. Þá vildi
enginn trúa mér.
En sagan frá 1986 er að endurtaka
sig. Menn vanreiknuðu sig á lánaeft-
irspuminni þá. Og alveg það sama er
að gerast með húsbréfakerfið, eftir-
spurnin er miklu meiri en nokkur
reiknaði með. Menn virðast hungrað-
ir í húsnæði. Það er nú eitt, að íslend-
ingar eru hreinlega húsnæðissjúkir
og það virðist langvinnur sjúkdómur.
Ekki komist
hjá skömmtun
Gmndvallarvitleysan er sú, eins og
ég hef verið að reyna að segja mönn-
um, að það er ekki nema takmarkað
magn af peningum sem þjóðin getur
varið til húsbygginga og endurfjár-
mögnunar íbúða á hverjum tíma.
Málið er að finna leið tií að dreifa
þessum peningum á sem farsælastan
hátt.
Ég sé enga leið til þess nema
skömmtun, með einni eða annarri að-
ferðinni. Og ég er enn þeirrar skoðun-
ar að 86-kerfið, með ákveðnum lag-
færingum, hefði verið miklu farsælla
fyrir alla aðila. Það hefði auðvitað þýtt
tiltekna skömmtun og biðraðir.
En menn lenda bara líka í biðröðum
í húsbréfakerfinu. Lánin skammtast
hreinlega af því að fólk hættir að
leggja í að taka lán á þeim ofurkjörum
sem þar gilda.“ Komi þær þúsundir
fólks sem beðið hafa þolinmóðir í
gömlu biðröðinni nú inn í húsbréfa-
kerfið sér Bjöm fyrir enn hækkandi
afföll á húsbréfunum. „Eigi þetta ekki
allt að fara til andsk. þá þyrfti að
skammta útgáfu húsbréfanna með
einhverjum hætti. Verði „vaxtahækk-
unarskömmtunarstýringin" látin
ráða sé ég ekki annað en að það leiði
áfram til víxlhækkandi vaxta. Þangað
til? Það verður einhver sprenging."
Alltaf slegist um
takmörkuð gæði
Björn segir klárt mál að alltaf sé sleg-
ist um takmörkuð gæði, peninga eins
Björn Þórhallsson
og hverja aðra vöru sem skortur er á.
Þegar miklu minni peningar eru til
ráðstöfunar en upphæðirnar sem
standa á öllum bréfunum á markaðn-
um, þá lækki þessi bréfsnifsi í verði.
„Svo horfir maður upp á það sorg-
lega sem er að gerast með vaxtastigið
þessa dagana. Húsbréfin, sem nánast
eru ríkisskuldabréf — þau keppa við
spariskírteinin og til þess að þau selj-
ist eru vextir þeirra hækkaðir — sem
aftur þýðir að bankarnir, sem vilja
halda sínu, elta með vextina hjá sér
— og þá aukast enn afföllin á húsbréf-
unum. Verði þessi dans stiginn áfram
hvar kemur hann þá til með að enda?
Hvað finnst Bimi þá um nýjustu
lausnina, að selja húsbréfin til útíanda?
,J4ér finnst það alveg voðalegt mál
að fara að bjóða þessi bréf á erlendum
mörkuðum. Ætli menn á annað borð
að fá erlent fé hér inn á húsnæðis-
markaðinn, þá sýndist mér eðlilegra
að Landsbréf taki í staðinn erlend lán
meö normal vaxakjörum sem þeir
mundu síðan nota til að kaupa hús-
bréf og vera sá viðskiptavaki sem þeir
eiga að vera. Það ætti að virka á móti
hækkun á afföllum eða jafnvel snúa
dæminu við. Annað verða menn svo
líka að hafa í huga, að veruleg hætta
er á aukinni spennu hér innanlands
með því að hleypa hér inn miklu er-
lendu fjármagni,“ sagði Bjöm Þór-
hallsson. - HEI
ERLENT FRÉTTAYFIRLIT
Nýja Delhí, Indlandi - Fjöldi
þjóöhöfðingja var viðstaddur
báiför Rajívs Gandhi, fyrrver-
andi forsætisráðherra Indlands
og formanns Kongressflokks-
ins, sem fram fór í gær. Talið er
líklegt að Frelsishreyfing ta-
mílsku tígranna á Srí Lanka
hafi staðið á bak við morðið.
Búist er við miklum ofbeldis-
verkum þegar kosningabarátt-
an hefst á ný eftir bálförína.
Jóhannesarborg, Suöur-
Afríku - Forseti Suður-Afríku,
F.W. de Klerk, náðaði í gær sjö
pólitíska fanga sem höfðu verið
í hungurverkfallí og hvattl
blökkumenn til að hætta inn-
byrðis átökum.
Kartúm, Súdan - Eþíópiskur
herflugmaður lenti MIG-23 orr-
ustuflugvéi sinni i Kartúm í Súd-
an og baö um pólitfskt hæli sem
hann og fékk, að sögn ríkisrek-
innar sjónvarpsstöðvar í Súdan.
Daka, Bangladesh - Miklar
náttúruhamfarír hafa átt sér
stað í Bangladesh undanfamar
vikur og að sögn flármálaráð-
herra landslns mun ríkisstjóm-
in lelta eftlr 2,4 milljarða dollara
aðstoð eríendis frá á næsta fjár-
lagaári (1991-1992).
París, Frakklandi - Talsmenn
fransks vatnsfyrirtækis sögðu i
gær að vatnsfyrírtæki um allan
heim ættu að bindast samtök-
um sem hefðu það að markmiði
að útvega bágstöddum hreint
drykkjarvatn.
Tehran, íran - Sovésk flutn-
ingavél, sem var að flytja hjálp-
argögn fyrír iraska flóttamenn,
brotlentf f Vestur-íran í gær
vegna eldsneytisskorts. Fjórir
menn létust og sex slösuðust
Bonn, Þýskalandi - Búist er
við að varabankastjóri þýska
seðlabankans, Helmut Schles-
inger, taki víð bankastjórastöð-
unni af Karl Otto Poehl sem
sagði af sér 16. maí. Að sögn
þýskra embættismanna mun
Hans Tietmeyer verða vara-
bankastjóri og taka við af
Schlesinger eftir tvö ár.
RÓm, Ítalíu - itölsk stjómvöld
sögðu i gær að hluti þeirra 24
þúsund albanskra flóttamanna
sem urðu eftir á (talíu yrðu aö
snúa aftur til Albaniu. Á fundi
sem ríkisstjómin hélt í gær var
samþykkt að þeir Albanir sem
ekki væru pólitiskir flóttamenn
og ekki hefðu fengið vinnu fyrir
15. júni yröu að snúa aftur.
Tokyo, Japan - Eldfjall á jap-
önsku eyjunni Kyushu byrjaði
að gjósa i gær f annað sinn á sjö
mánuðum. Eldfjalliö hafði áður
ekki gosið í 200 ár.
Reuter-SÞJ