Tíminn - 25.05.1991, Qupperneq 5

Tíminn - 25.05.1991, Qupperneq 5
Laugardagur 25. maí 1991 TÍminn'5 Um 28% nemenda með einkunn undir 5 á grunnskólaprófi: Hrikalegar niðurstöður samræmdu prófanna Um 28% nemenda, sem þreyttu samræmd próf nú í vor, fengu einkunn undir 45 stigum eða undir 5, sem er lág- markseinkunn. Alls þreyttu 3950 nemendur í 10. bekk grunnskóla prófin og voru þetta lokapróf í stærðfræði og íslensku. Af þessum 3950 nemendum voru 18% sem fengu einkunn undir 5 í íslensku. Landsmeðaltal einkunna var 60.64 stig í íslensku og 56.85 stig í stærðfræði. Þessar tölur eru tökupróf fyrir framhaldsskóla og allir, sem lokið hafa grunnskóla- prófi, eiga rétt á inngöngu í þá. Inntaka nemenda í framhalds- skóla er þó á ábyrgð skólameist- ara í hverjum skóla. Nemendur, sem búa í hverfi viðkomandi skóla, hafa forgang í þann fram- haldsskóla ef beita þarf fjöldatak- mörkunum. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu íslands eru 4180 ís- lendingar skráðir í þessum ár- gangi. Það eru því 230 nemendur sem ekki tóku prófin. Að minnsta kosti 60 þeirra hættu í skóla í haust og ekkert er vitað um þá. Menntamálaráðuneytið hyggst nú kanna sérstaklega ástæður þessa brotthvarfs. ^Vísindanefnd NATO fundaði á Islandi: Ahersla á stuðning við unga fræðimenn f gær lauk formlega árlegum aðal- sarm'innu og tengsl aðildarþjóðanna. fundi vísindancfndar Atlantshafs- Að sögn dr. Sturlu var á þessum bandalagsins, sem að þessu sinni var fundi einnig opnuð uniueða um það haldinn á ísIandL Að sögn dr. Sturiu með hvaða hætti vísindanefndin gæti Friðrikssonar, fulltrúa fslands { stuðlað að auknum samskiptum vís- nefndinni, var rætt um stefhumörk- indamanna úr NATO-ríkjum við koll- un varöandi stvrkveitingar úr undir- ega sína í Austur-Evröpu. Þá um- nefndum sjúðsins og voru menn ræóu segir dr. Sturia þó vera á byrj- sammála um að áherslu bæri að unarstigi og enn nokkuö langt í að Ieggja á að gera ungum vfebda- ákvarðanir vcrði teknar þar að lút- mönnum frá aðaildamTqum banda- andi. lagsins, sem væru uýkoranir heim Formaður vísindanefndarinnar er frá námi, kleift að halda tengslum Frakkidn JJ. Ducuing. Fulltrúamir við sinn gamla háslcóla, hugsanlega í nefndinni skoðuðu Þingvelli í gær, með einhverjum samstarfsverkefn- enínefndinnieigasætivfeindamenn um. Tilgangurinn væri sá að efla frá öllum aðilciarríkjuin NATtí. svipaðar og í fyrra, en þá var landsmeðaltalið 60 stig í íslensku og 57.6 stig í stærðfræði. Samræmdu prófin eru ekki inn- Krýsuvíkur- samtökunum gefin milljón Nýlega færði Þórður Ingvi Guð- mundsson, framkvæmdastjóri fjár- mögnunarfyrirtækisins Lindar hf., Krýsuvíkursamtökunum að gjöf eina milljón króna. Tilefnið var að Lind og Krýsuvíkursamtökin eru bæði fimm ára á þessu ári. Gjöf þessi kom á afar heppilegum tíma, því ljúka þarf byggingu íyrsta áfanga skólahússins í Krýsuvík sem fyrst. Það er nauðsynlegt, því nú hafa samtökin öðlast viðurkenn- ingu og stuðning landlæknisemb- ættisins og fleiri aðila. Krýsuvíkur- samtökin hafa að undanförnu haft hljótt um sig, en engu að síður hef- ur verið unnið mikið starf á þeirra vegum. Nú vantar herslumuninn svo taka megi fyrsta áfanga skóla- hússins í notkun og því vonast sam- tökin til að aðrir feti í fótspor Lind- ar og styrki málstaðinn, hver með sínum hætti Byrjað er að afhenda nýja símaskrá: Breytt númer taka gildi á fimmtudag Farið er að afhenda nýja símaskrá, símaskrá ‘91, á pósthúsum. Nýja símaskráin er töluvert frá- brugðin þeirri gömlu. Hún er mun aðgengilegri og auðveldari í notkun. Dálkum hefur verið fækkað úr fjór- um í þrjá og nú taka nöfnin aðeins eina línu. Einnig hefur letur síma- númera verið stækkað og svæðis- númerin hafa verið flutt efst á blað- síðuna, en voru áður neðst. Blaðafulltrúi Pósts og síma segir að þessar breytingar hafi átt sér stað vegna þess að fólk hafi kvartað mik- ið út af smáu letri og erfiðleikum við að lesa númerin. Þá eru ný sex stafa símanúmer, sem byrja á átta, í skránni. Þessi númer eru tengd Múlastöð og koma í stað númera sem í dag byrja á 82, 83 og 84. Tölustafurinn einn bætist inn í númerið á eftir tölunni átta. Þannig verður símanúmer, sem byrjar á 82, að 812. Símaskráin er 72 blaðsíðum þykkari en sú gamla og tekur hún gildi aðfaranótt 30. maí. mm SLYSQNIH! JÖTUNN hf. hefur nú á boðstólum öryggishlífar fyrir allar gerðir drifskafta á landbúnaðarvélum fyrir aðeins 1900 - 3900 krónur! Árlega verða fjölmörg alvarleg vinnuslys í landbúnaði. Á síðasta ári fékk Vinnueftirlit ríkisins tilkynningar um 34 slík slys. Slys af völdum óvarinna drifskafta voru þá önnur algengustu slysin í landbúnaði, samkvæmt slysaflokkun Vinnueftirlitsins. Aflúttak dráttarvélar skal alltaf hafa hlffar í lagi, hvar sem það er á vélinni. Hið sama glldirum reimdrif. Þessi slys kosta bændur og þjóðfélagið allt ómælda fjármuni, auk þeirra miklu mannlegu þjáninga, sem ekki verða metnar til fjár. JÖTUNN hf. hefur nú hafið herferð gegn vinnuslysum í landbúnaði í samráði við Slysavarnafélag íslands, Vinnueftirlit ríkisins, Bændasamtökin, Vátryggingafélag íslands og holienska fyrirtækið Agritrans, sem framleiðir hlífar fyrirailar gerðir drifskafta. í sumar verða hlífarnar seldar sérlega ódýrt, eða frá 1900 krónum til 3900 króna. Hluti söluverðsins rennur til Slysavarnafélags íslands. DRAGÐU ÚR LÍKUM Á ÞVÍ AÐ ÞÚ EÐA ÞÍNIR NÁNUSTU VERÐI FYRIR ALVARLEGU SLYSI. HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-67 00 00 SIMI VARAHLUTA 0G ÞJÓNUSTU : 68 65 00 í samráðl vlð: Slysavarnafélag íslands, Vlnnueftlrlit ríklslns, Bændasamtðkln , Vátrygglngafélag íslands og Agritrans. Þröstur til Jóns Baldvins Þröstur Ólafsson hagfræðingur hef- ur verið ráðinn aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra. Hann hefur unnið við sérstök verkefni í utanríkisráðu- neytinu síðan í desember 1990.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.