Tíminn - 04.06.1991, Qupperneq 9
Þriðjudagur 4. júní 1991
Tíminn 9
Gísli Alfreðsson segir sitt álit:
Þjóðleikhúsráð er
vanhæft og óábyrgt
Eftir að þjóðleikhúsráð hefur lýst yfir fullum stuðningi við aðgerð-
ir og stefnu Stefáns Baidurssonar, þá er niðurstaða Gísla Alfreðs-
sonar, í greinargerð sem hann hefur ritað um máiið, að stefna Stef-
áns sé sú að það eigi að sparka út úr leikhúsinu fólki sem hefur
unnið þar gott starf áratugum saman. Einnig eigi með þessari
stefnu að leggja af atvinnuöryggi listamanna og ógnarstjórn eigi að
ríkja.
Gísli Alfreðsson skrifaði greinargerð
um uppsagnarmálið vegna þess að
hann var gagnrýndur í greinargerð
þjóðleikhúsráðs um málið. Gísli lýsir
ráðið vanhæft
og að það hafi brugðist skyldum sín-
um.
Einnig kemur fram í greinargerð
Gísla að þjóðleikhúsráð styðji ólög-
mætar aðgerðir, því samkvæmt úr-
skurði ríkislögmanns hafði Stefán
Baldursson ekki vald til að segja upp
fólki. Eftir að ríkislögmanni varð ljóst
að Stefán hafði staðið einn að upp-
sögnunum og undirritað bréfin einn,
hafi hann kallað Stefán á sinn fund.
Þar á ríkislögmaður að hafa gert hon-
um grein fyrir að bréfin væru ólögleg
og að honum bæri að draga þau til
baka. Gísli segir að Stefén hafi ekki
skýrt frá fundi sínum með ríkislög-
manni og því hafi bæði þjóðleikhús-
ráð og hann staðið í þeirri trú að allt
væri löglegt þar til Gísli hringdi sjálf-
ur í ríkislögmann og fékk úrskurð frá
honum. Hann segir formann ráðsins
einnig hafa haft samband við ríkislög-
mann og fengið sama úrskurð. Samt
sem áður lýsi ráðið yfir stuðningi við
Stefán, þó svo að leikhúsið standi
frammi fyrir málaferlum vegna ólög-
mætra uppsagna. -UÝJ
DAG 4. júní hefjast sýningar Brúðubílsins. Sú fyrsta verður kl.
14:00 í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11. Þar verður frumsýnt
brúðuleikritið „Skipt um höfuð“ eftir Helgu Steffensen. Vísurnar í
leikritinu eru eftir Óskar Ingimarsson og um tónlistina sér Magnús
Kjartansson. Tímamynd: Árni Bjarna
Útskrift
í Ármúla-
skólanum
Fjölbrautaskólinn í Ármúla braut-
skráði 61 stúdent frá skólanum
laugardaginn 25. maí. Alls stunduðu
750 nemendur nám við skólann nú
á vorönn.
Stúdentarnir, sem útskrifaðir voru,
komu af 5 námsbrautum. 23 af hag-
fræðibraut, 4 af bókhaldsbraut, 4 af
íþróttabraut, 7 af nýmálabraut og 8
af náttúrufræðibraut. Dúx var
Gunnlaugur A. Ragnarsson.
Nemendur og starfslið Fjölbrauta-
skólans við Ármúla búa við nokkuð
þröngan húsakost, enda var skólinn
byggður fyrir 500 nemendur og er
varla fullbyggður enn. Hefur skóla-
nefnd knúið á um fjármagn til
áframhaldandi framkvæmda, en
ekki haft árangur sem erfiði.
Föngulegur hópur nýstúdenta
frá Fjölbrautaskólanum í Ár-
múla, ásamt Hafsteini Þ. Stef-
ánssyni skólameistara
rt.. r fnt > * mm '
1 R J IH" f 1 ^ J
i W & t
Hreint haf er
hagur íslands
Rannsóknarstyrkjum úthlutað:
15 styrkir
Krabbameinsfélagið úthlutar á þessu árí á sjöttu milljón króna í fímm-
tán styrki til krabbameinsrannsókna. Annars vegar eru veittir sjö styrk-
ir að upphæð 1,9 milljón króna úr Rannsóknarsjóði Krabbameinsfé-
lagsins, og er það í þriðja sinn sem veitt er úr þeim sjóði. Hins vegar er
nú í fyrsta sinn úthlutað úr nýstofnuðum Rannsókna- og tækjasjóði
Krabbameinsfélagsins, alls átta styrkjum að fjárhæð 3,5 milljónir
króna. Tilgangurinn með þessum styrkveitingum er að efla rannsóknir
á krabbameini hér á landi.
t tengslum við sjómannadaginn hafa
að undanfomu veríð sett um skilti
við hafnir landsins með boðskap til
sjófarenda um umhverfísvemd. Nú
hafa veríð sett um skilti með slag-
orðinu „Hreint haf - Hagur ls-
lands“.
Það voru íslandsnefnd Norræna
umhverfisársins og Landvernd sem
áttu frumkvæði að gerð skiltanna, í
samvinnu við ýmsa aðila. í sam-
keppni um hönnun þeirra sigraði
Garðar Pálsson teiknari og við flestar
hafnir landsins hafa nú verið sett upp
skilti með merki Garðars. Slagorðið
sjálft, „Hreint haf - Hagur íslands“, á
hins vegar frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands.
Tilgangur þessa framtaks er að skilt-
ið megi vera jákvæð áminning öllum
landsmönnum sem sjá það. I frétta-
tilkynningu segir að íslendingum sé
ekki annað sæmandi en að standa
vörð um hreint haf. Einnig verði er-
lendum aðilum, sem sjá skiltið, ljóst
að okkur er annt um hafið.
Styrki úr Rannsóknarsjóði
Krabbameinsfélagsins hlutu:
Gauti Arnþórsson og Hrafn Tulini-
us: Magaspeglanir 1971-1990 til
leitar að magakrabbameini á lækn-
anlegu stigi. Gísli Jónsson o.fl.:
Mælingar á Ijósmagni litrófs sólar-
ljóss á íslandi og samsvörun þess
við nýgengi krabbameins á húð.
Guðmundur K. Jónmundsson o.fl.:
Krabbamein meðal barna og ung-
linga á Norðurlöndum. Hrund
Sch. Thorsteinsson o.fl.: Meðferð
verkja af völdum krabbameins.
Könnun á þekkingu, viðhorfum og
reynslu íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. Jón Gunnlaugur Jónasson og
Jón Hrafnkelsson: Mælingar á
kjarnaefnisinnihaldi (DNA) í frum-
um í illkynja skaldkirtilsæxlum á
ísl. 1985-1989. Jónas Hallgríms-
son og Vigdís Pétursdóttir: Athug-
un á vefjagerð og faraldsfræði ill-
kynja æxla í vélinda og görnum á
íslandi 1955-1984. Þórarinn
Sveinsson o.fl.: Krabbamein í
barkakýli. Meðferð og árangur
1970-1990.
Styrki úr Rannsókna- og tækja-
sjóði leitarsviðs Krabbameinsfé-
lagsins hlutu: Helgi Sigurðsson og
Guðjón Baldursson: Litamagn í
æxlisfrumum. Aukin nákvæmni
við mat á horfum sjúklinga með
brjóstakrabbamein. Helgi Sigurðs-
son o.fl.: Barnsburður og frumu-
sérhæfing í brjóstvef. Jórunn Erla
Eyfjörð o.fl.: Rannsóknir á onkóg-
enum og bæligenum i brjóst-
krabbameinsæxlum. Laufey
Tryggvadóttir o.fl.: Breytingar á
aldri við upphaf blæðinga. Laufey
Tryggvadóttir o.fl.: Tengsl brjóst-
krabbameins og heildarfjölda tíða-
hringja. Marta Kristín Lárusdóttir
o.fl.: Tölvuvæðing heilsusögu-
banka leitarstöðvar Krabbameins-
félagsins. Sigurður M. Magnússon
o.fl.: Geislaálag við töku röntgen-
mynda af brjóstum. Valgarður Eg-
ilsson og Hrafn Tulinius: Tölfræði-
leg fylgni illkynja sjúkdóma í æxl-
unarfærum.
-SIS
Friðrik Sophusson segir við-
skiptabankana rekna með tapi:
AUKINN
„Ég tel að ekkl hafi veríft
ástæða til aft auka muninn á inn-
láns- og útiánsvöxtunum eins
og viöskiptabankamir hafa gert
Það sem er aivarlegra er að
vaxtamunurinn verftur meiri en
áftur og slík aftgerft getur ekki
komift vaxtabreytingunni vift.
Hún hlýtur að eiga sér rætur f
því aft bankarnir hafi veríft rekn-
ir mfcft tapi aft undanfömu,
vegna fyrri ákvarftana bank-
anna,“ sagfti Friftrik Sophusson.
Hann sagfti að þaft, sem honum
þætti alvarlegra, sé að um lcift
og ákvöröun er tekin um aft
breyta vöxtunum núna, þá eru
bankamir aft búa tíl meiri vaxta-
raun og hann notaöur í rekstur
bankanna.
„Engar nýjar forsendur ero fyr-
ir því að þessar vaxtabreytingar
séu notaftar tii þess, heldur
byggist þetta á því aft bankamir
telja sig þurfa meira rekstrarfé
fyrir sig, en þaö ervegna þess að
þeir fylgdu vitlausum ráftum
fyrri ríkisstjórnar og hafa verift
reknir meft builandi tapi síftustu
mánuöina," sagfti Friftrik. -SIS