Tíminn - 04.06.1991, Síða 15
Þriðjudagur 4. júní 1991
Tíminn 15
i; ■ : ■ ÍÞRÓTTIR
Ísland-Tékkóslóvakía á miðvikudag:
Atli setur nýtt
landsleikjamet
kemur á ný inn í hópinn ásamt Amóri
Atli Eövaldsson, íyrirliói ís-
lenslca landsliösins í knatt-
spymu, er kominn í liðiö á ný,
en hann ták út leikbann í leikn-
um á móti Albönum á dögun-
um. Atii Ieikur sinn 68. lands-
leik gegn Tékkum á miðviku-
daginn í undankeppni Evrópu-
móts landsliða og slær þar með
landsleikjamet Marteins Geirs-
sonar. Amór Guðjónsen, sem
ekki gat leikið með gegn Albön-
um vegna meiðsla, er einnig
kominn í iiðið á ný.
Bo Johansson Íandsliðsþjáifari
hefur valið eftirtalda ieikmenn í
landsliðshópinn:
Markverðir
Bjami Sigurösson Val
ólafur Gottskáiksson KR
Aðrir ieikmenn
Atli Eðvaldsson
Guðni Bergsson
KR
Tottenham
Sævar Jónsson Val
Gunnar Gíslason Hacken
Ólafur Kristjánsson FH
Einar Páll Tómasson Val
Þorvaldur Örlygss. Nott.Forest
Rúnar Kristinsson KR
Ólafur Þórðarson Lyn
Sigurður Grétarss. Grasshoppers
Hiynur Stefánsson IBV
Amór Guöjónsen Bordeaux
Eyjólfur Sverrisson Stuttgart
Anthony Karl Gregory Val
Liðið æfði tvívegis á Valhjam-
arveili í gær, en þess á miiH
„skemmtu“ Íeikmenn sér við að
horfa á upptöku frá leiknum
gegn Albönum. f dag æflr liðið
á Laugardaisvelii seinni part-
inn, en notar kvðidið til þess að
fara í bíó. Á morgun verður æft
f hádcginu, en Icikurinn hefst
kl. 20.00.
BL
Knattspyma-U 21 árs landsliðið:
l
í kvöld mætast ísland og Tékkó-
slóvakía í landsleik í knattspymu,
liðin em skipuð leikmönnum 21
árs og yngri og er leikurinn liður í
undankeppni EM og forkeppni ÓL.
Leikurinn fer fram í Keflavík og
hefst kl. 20.00.
íslenska hópurinn er skipaður eft-
irtöldum Ieikmönnum:
Markverðir
Kristján Finnbogason ÍA
Ólafur Pétursson ÍBK
Aðrir leikmenn
Steinar Adolfsson Val
Ágúst Gylfason Val
Örn Torfason Val
Ríkharður Daðason Fram
Steinar Guðgeirsson Fram
Þormóður Egilsson KR
Valdimar Kristófersson Stjörnunni
Ingólfur Ingólfsson Stjörnunni
Haraldur Ingólfsson ÍA
Brandur Sigurjónsson ÍA
Finnur Kolbeinsson Fylki
Arnar Grétarsson BK
Kristján Halldórsson ÍR
Helgi Björgvinsson Víkingi
Þjálfari liðsins er Hólmbert Frið-
jónsson.
BL
Fyrsta rallkeppni sumarsins:
„Metroinn“ fyrstur
Asgeir Sigurðsson og Bragi Guð-
mundsson á Metro 6R4 bfl sigmðu í
Eikaborgararallinu, fyrstu rallkeppni
sumarsins, sem fram fór á Lyngdals-
heiði, Þingvöllum og Uxahíyggjum
umhelgina.
Þeir félagar höfðu þegar upp var stað-
ið 1:37 mín. í forskot á þá Steingrím
Ingason og Guðmund Bjöm á Nissan
RS 240, sem urðu í öðru sæti. í þriðja
sæti urðu Sigurður B. Guðmundsson
Knattspyrnuúrslit:
2. deild:
Tindastóll-Selfoss
3. deilá
Skallagrímur-Þróttur Neskst »0-1
Vöisungur-Dalvik .................. 1-1
fif of
irv-ui ......................................x-i
4. deild:
Austri-Höttur 0-4
Haihir-Léttir
Leiknir R.-Reynir Sandgerði „.4- 3
Sindri-Einheiji ...2 -2
UMSE b-Nelst! »•.«•••.■»■«*.»■»■.•«••• 1—2
Ægir-Njarðvík............—..........4-3
Stokkseyri-Ármann »■«■.»« »■»■»..»« »2 "2
Þrymur-Hvöt •••*««•*••••*«••*••••••«••• 1-6
SM-HSÞ b ••*••••*•*•*•••«•««•••*••••• J2-1
Bolungarvík-TBR................—4-0
Afturekling-Víkingur Ólafsvflc .3-1
Geislinn-Vflcveiji *«••»■»••*«••*■.*«*«0*' 2
Árvakur-Fjölnir .......................1-2
Leiknir F.-Hughm.........—......—2-2
KSH-Valur Rf. ____________________.4-1
1. deild kveruia
KR-KA ............................ 3-2
UBK-KA ••••*••••••••«••••••••«••••••*••• 4-0
Sam Perkins gerði gæfumuninn fyrir Lakers, sem hafa tekið 1-0
forystu á Chicago Bulls í úrslitum NBA- deildarinnar.
N BA-de i I d i n:
Lakers sterkari
á endasprettinum
og Rögnvaldur Pálmason á Escort
2000.
Úrslit urðu þessi: mín.
1. Ágeir Sigurðsson og Bragi Guð-
mundsson á Metro 6R4 58,30
2. Steingrímur Ingason og Guðmund-
ur Bjöm á Nissan RS 240 60,07
3. Sigurður B.Guðmunds.og Rögn-
valdur Pálmason á Escort 2000 66,00
4. Sigurður Ólafsson og Guðný Úlfars-
dóttiráEscort 2000 72,13
5. Óskar Ólafsson og Jóhannes Jó-
hannesson á Lada Samara 1300 73,13
6. Þröstur Reynisson og Viktor Sigur-
geirsson á Escort 2000 74,09
7. TVyggvi M. Þórðarson og Jóhannes
Egilsson á Citroen Axel 1300 75,31
8. Úlfar Eysteinsson og GuðmundurT.
Gíslason áToyota 1600 75,31
9. Jóhann Kristjánsson og Bjarki Guð-
mundsson á Opel Manta 2000 77,44
10. Hermann Þorláksson og Þorsteinn
Jóhannsson á Toyota 1600 78,16
11. Pétur Guðjónsson og Magnús
TVyggvason á Escort 2000 79,58
Fimm áhafnir luku ekki keppni. Rún-
ar Jónsson og Jón Ragnarsson yom
dæmdir úr leik fyrir reglubroL Öxull
brotnaði hjá Páli Harðarsyni og Witek
Bogdanski. Jón E. Halídórsson og
Birgir M. Guðnason, sem og þeir Stef-
án Ásgeirsson og Benedikt Ólafsson
fóm yfir hámarkstíma. Óskar Sól-
mundarson og Jón Ó. Sigurðsson féllu
úr keppni með ónýtt dekk.
Þeir Haraldur Ásgeirsson og Ámi
Kópsson hófú ekki keppni, þar sem
þeir sváfú yfir sig. BL
- unnu Chicago 93-91
og hafa tekið forystu í
Sam Perkins var hetja Los Angeles
Lakers, sem sigruðu Chicago Bulls
93-91 í fyrsta úrslitaleik liðanna un
sigur í NBA-deildinni. Perkins skor-
aði þriggja stiga körfu þegar 14 sek.
voru eftir af leiknum og kom Lakers
þar með yfir. Chicago fékk í tvígang
tækifæri á að jafna, en allt kom fyrir
ekki.
Leikurinn var mjög skemmtilegur á
að horfa og mjótt var á munum allan
leiktímann. Michale Jordan fór á
kostum í fyrsta leikhluta, skoraði 15
stig og tróð þrívegis knettinum í La-
kers körfuna. Chicago hafði 30-29 yf-
ir þegar annar leikhluti hófst. Minna
fór fyrir Jordan í öðmm leikhluta, þá
skoraði hann aðeins 3 stig, en Perk-
ins fór þá á kostum og gerði 12 stig.
Chicago hafði þó yfir í leikhléi, 53-51.
Þriðja leikhluti var mjög jafn og
fjórum sinnum var staðan jöfn. En á
síðustu 29 sek. hitti Magic Johnson
úr tveimur þriggja stiga skotum og
Lakers hafði yfir 75-68 í lok leikhlut-
ans. Á fyrstu þremur mín. í fjórða
leikhluta fór forskot Lakers fyrir lítið
er Chicago gerði 10 fyrstu stigin og
komst yfir á ný, 78-75. Lokamínútur
leiksins vom æsispennandi. Vlade
Divac skoraði úr tveimur vítaskotum
og kom Lakers einu stigi yfir, en tvö
vítaskot frá Jordan og ein karfa frá
Scottie Pippen komu Chicago yfir
89-86 þegar 2:36 mín. voru eftir.
Perkins skoraði þá körfu og úr einu
víta og jafnaði Ieikinn 89-89 og 1:22
mín. eftir. Pippen hitti úr tveimur
vítum þegar 1 mín. var eftir, 91-89.
Þegar tveir Chicago leikmenn fóru í
Magic, gaf hann á Perkins sem skor-
aði þriggja stiga körfuna sem áður er
nefnd. Hann kom Lakers yfir 92-91
og 14 sek. eftir af leiknum. Jordan
tók skotið fyrir Chicago í næstu
sókn, en hitti ekki af 5 metra færi, þá
voru 3 sek. eftir. Byron Scott tók frá-
kastið og strax var brotið á honum.
Hann hitti úr öðru vítaskotinu. Pip-
pen reyndi skot frá miðju á síðustu
sekúndunni, var nálægt því að hitta,
en Lakers fagnaði sigri 93-91.
Perkins skoraði 22 stig í leiknum,
þar af þrjár þriggja stiga körfur úr
í æsispennandi leik
baráttunni um titilinn
fjórum tilraunum. James Worthy
skoraði einnig 22 stig. Magic John-
son var með þrefalda tvennu í leikn-
um, skoraði 19 stig, hirti 10 fráköst
og átti 11 stoðsendingar. Júgóslav-
neski miðherjinn í liði Lakers, Vlade
Divac, átti mjög góðan leik, skoraði
16 stig og hirti 14 fráköst. Fyrir Chic-
ago skoraði Michael Jordan 36 stig og
átti að auki 12 stoðsendingar. Scottie
Pippen gerði 19 stig, en aðrir leik-
menn liðsins náðu ekki tveggja stafa
tölu í skori.
„Ég vissi að þeir mundu koma tveir
í mig, vegna þess að ég hefði annars
farið inn í vítateiginn. Þá hlyti einn
leikmaður að verða frír og Sam getur
hitt úr þriggja stiga skotum,“ sagði
Magic um síðustu körfuna í leiknum.
„Þegar ég tók skotið vissi ég að það
yrði að vera hærra en vanalega. Þeg-
ar ég sleppti boltanum var ég hrædd-
ur um að þeir næðu að verja skotið.
Þetta er skot sem ég gleymi aldrei,"
sagði Sam Perkins eftir leikinn.
„Þetta var meiriháttar þriggja stiga
karfa hjá Perkins. Ég fékk líka tæki-
færi á að vinna leikinn, en boltinn
rúllaði upp úr köríúnni. Liðið sem
hittir þegar máli skiptir mun að lok-
um standa uppi sem sigurvegari,"
sagði Michael Jordan.
„Þetta var frábær leikur, jafn frá
upphafi til enda. Sumir minna
manna voru taugaspenntir í leikn-
um, en það verða þeir ekki á mið-
vikudaginn," sagði Phil Jackson,
þjálfari Chicago Bulls, en lið hans
leikur nú í fyrsta sinn til úrslita.
Lakers hefur því komist 1-0 yfir og
þar með er hagnaður Chicago varð-
andi fleiri heimaleiki úr sögunni.
Leikur 3, 4 og 5 ef með þarf verða í
Los Angeles. Komi til 6. og 7. leiks
verða þeir í Chicago.
Leikur 2 verður á miðvikudags-
kvöld að staðartíma, sem er kl.
01.00 aðfaranótt fimmtudags að ís-
lenskum tíma. Þess má geta, fyrir
þá sem hafa gervihnattamóttöku-
disk, að leikirnir verða allir sýndir í
beinni útsendingu á Screensport
sjóvarpsstöðinni.
BL
Knattspyrna:
Naumt hjá Englandi
Englendingar unnu nauma
sigra í knattspyrnulandsleikjum
í Eyjaálfu um helgina. Á laugar-
dag unnu þeir Ástrall 1-0 og var
sigurmarldð sjálfsmark Ástrala.
1 gær unnu þeir síðan Nýsjá-
lendinga með sömu markatölu.
Gary Lineker skoraði sigur-
markið á síðustu sekúndum
leiksins.
Bandaríkjamenn gerðu jafnt-
efli við íra í vináttulandsleik í
Bandaríkjunum um helgina, 1-
1. Leikurinn fór fram að við-
stöddu miklu flölmenni. Tony
Cascarino gerði mark íra, en
Wynalda jafnaði fyrir Kanana.
Amerískur fótbolti:
London mætir Barcelona
íúrslitaleik WLAF
London Monarchs unnu New
York-New Jersey Knights 42-26
og komust þar með í úrslitaleik
heimsdeildarinnar í amerískum
fúömlta (WLAF).
Þar mætir London liðið Barc-
elona Dragons, sem unnu
Birmingham Firc 10-3 á laug-
ardag. UrsHtaleikurinn, „World
Bowl“, fer fram á Wembley leik-
vanginum í London á sunnu-
daginn kemur.
Frjálsar íþróttir:
Sotomayor stökk
2,36 metra
Kúbúmaðurinn Javier Sot-
omayor stökk 2,36m á móti í
Þýskalandi um helgina, en það
er bestl árangur ársins utan-
húss.
Sotomayor felldi þrívegis
2,40m á mótinu, en hehnsmct
hans er 2,44m.
Tugþraut
Bresld tugþrautarmaðurinn
Daley Thompson, sem er
heimsmethafl í greininni, hætti
keppni eftir 7 greinar í lands-
keppni Breta og Spánverja um
helglna.
Sígurvegari varð Spánverjinn
Antonio Penalver með 8.306
stig, sem er spánskt met. Annar
varð landi hans Francisco Javiet
Benet með 7.574 stig og þriðji
varð Mark Bishop frá Bretlandi
með 7.443 stig.
Vetrarólympíuleikamir 1998:
Fimm borgir vilja leikana
Fimm borgir hafa áhuga á því
að halda vetrarólympíuleikana
1998. Þær eru Östersund í Sví-
þjóð, Nagano í Japan, Salt Lake
Cify í Bandaríkjunum, Aosta á
Ítalíu og Jaca á Spáni.
Þann 15. júnf nk. verður tekin
ákvörðun um hvar leikarnir
verða haldnir.
Knattspyrna:
Tapie vill ekki missa
Jean-Pierre Papin
Bernard Tápie, eigandi franska
knattspyrnuliðsins Marseille,
sem tapaði fyrír Rauðu Sljörn-
unni í úrslitaleik Evrópukeppni
meistaraliöa í síðustu viku, seg-
ir að láti hann Jean-Pierre Pap-
in fara til AC Mflan án þess að fá
Marco Van Basten í staöinn,
þurfl hann að leita til geðlækn-
is.
Orðrómur er á kreiki um að
Papin sé á förum til AC Mflan,
en Tapie vísar því að bug. Papin
segist hins vegar hafa áhuga á
því að leika á Ítalíu.
Kappakstur:
Óvæntur sigur Piquet
Nelson Piquct vann óvæntan
sigur f kanadíska Grand Prix
kappakstrinum um helglna,
þegar Williams bfll Nigels
Mannseli bilaöi í síðasta hring
keppninnar. Þetta var 23. sigur
Piquet í Grand Prix kappakstri.
BL