Tíminn - 07.06.1991, Qupperneq 3
Föstudagur 7. júní 1991
Tírrilnn 3
Síberíumenn vilja rækta upp íslenskan prstofn. íslenskur land-
búnaður fyrirmynd að einkavæðingu landbúnaðar í Madagan:
Mikill áhugi
Síberinga
á íslenskum
landbúnaði
Hér á landi eru nú staddir tveir fuutrúar frá Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins í Magadan í Sovétríkjunum. Það eru þau Nicolay
Mihailov, forstjóri stofnunarinnar, og Natalie Zagorodneva, sér-
fræðingur frá stofnuninni. Þau eru hér í boði Rannsóknarstofnun-
ar landbúnaðarins og eru að kynna sér íslenskan Iandbúnað.
Fyrirhugað er að einkavæða land-
búnað í Magadan að fyrirmynd land-
búnaðar á Islandi, en flest sveitabýli
þar eru samyrkjubú.
Þorsteinn Tómasson, forstjóri RALA,
sagði á blaðamannafundi, sem hald-
inn var í gær, að aðdragandann að
þessari heimsókn mætti rekja allt aft-
ur til ársins 1988 á ráðstefnu sem
haldin var í Leningrad. Þar hefði ver-
ið rætt um samskipti á sviði vísinda
og tækni milli landa á norðurhjara.
Þar hefði verið gerður samningur um
samskipti á milli ýmissa stofnana á ís-
Iandi og í Magadan.
Gróðurfar og náttúra hér á landi er
mjög s\’ipuð og í Magadan, þó svo að
framleiðslukerfið þar sé ólíkt. Því
fannst fulltrúunum upplagt að koma
til íslands og kynnast landbúnaðin-
um hér og skoða íslenska félagskerfið
í landbúnaðinum með íjölskyldubýli
sem megingrundvöll, þar sem áætlað
er að breyta samyrkjubúunum í fjöl-
skyldubýli. Þau Nicolay og Natalie
hafa þegar kynnt sér hvemig rann-
sóknar-, félags- og leiðbeiningarstarf-
semi er skipulögð í landbúnaðinum
hér á Iandi og hvemig henni er
stjómað.
Nicolay Mihailov sagði að í Magadan
væri meðal annarra greina stunduð
svínarækt, loðdýrarækt og nautgripa-
rækL Einnig væm um 60.000 hrein-
dýr á svæðinu og mikið unnið úr
þeim. Hann sagði að engin kvikfjár-
rækt væri í Magadan, en áætlað væri
að flytja inn lömb frá íslandi og gera
Fulltrúar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins á fslandi og sérfræðingunum ftá Magadan ásamt íslenskum
túlki á blaðamannafundi í gær. Frá vinstri Eyvindur Eriendsson túlkur, Þorsteinn Tómasson forstjóri RALA,
Nathalie Zagorodneva, Nicolai Mihailov, Jónas Jónsson og Gunnlaugur Júlíusson. Timamynd: Ámi Bjama
með þeim tilraun til kvikfjárræktar.
Nicolay og Natalie hafa dvalist á 15
íslenskum sveitabýlum og kynnst
daglegum sveitastörfum. Þeim líst
mjög vel á aðstæður hér á landi og
vonast til að bændur í Magadan geti
komið til íslands og Iært af bændun-
um hér, þar sem í framtíðinni þurfa
bændumir í Magadan að gera allt
sjálfir, ólíkt því sem nú tíðkast á sa-
myrkjubúunum. Þar eru sérfræðing-
ar á hverju sviði og því þarf að auka
Ieiðbeiningarþjónustu við bændur,
samfara breytingum á rekstri í land-
búnaði.
Mihailov vonast til aðstoðar frá ís-
lendingum og íslenskum bændum
við þetta starf, þegar til breytinganna
kemur, en hann segir að þær gangi
mjög hægt fyrir sig.
-UÝJ
Færri varpfuglar
við Myvatn
Árlegri talningu á varpfuglum í
Mývatnssveit er nýlokið. Talning-
ar á vatnafuglum hafa verið gerð-
ar tvisvar til þrisvar á ári í 17 ár.
Helstu niðurstöður talningarinn-
ar nú voru þessar: Stofnar skúf-
anda, rauðhöfða og húsanda
standa í stað miðað við fyrravor.
Duggönd hefur fækkað um fjórð-
ung. Toppönd hefur fækkað um
28% og hrafnsönd um 29%. Há-
vellur voru 6% fleiri nú en í fyrra
og straumendur um 9% fleiri. Alls
sáust um 8500 andarsteggir af 17
tegundum.
Á vorin ræðst fuglafjöldinn að
mestu leyti af fæðuskilyrðum í
Mývatni og Laxá.
Þegar talningar hófust, árið
1975, voru andastofnar flestir í
lágmarki eftir átubresti árin 1970
og 1974. Allt til 1983 fjölgaði í
stofnunum, en 1983 brást áta á ný.
Eftir það hafa andastofnarnir á
Mývatni ekki náð sér vel á strik.
Fuglatalningar eru gerðar á veg-
um Náttúrurannsóknastöðvarinn-
ar við Mývatn og annast dr. Ámi
Einarsson þær.
-SIS
Fulltrúar Brunabótafélags íslands ásamt heiðursverðlaunahöfunum. Fremri röð f.v.: Bjami Bogason, Lúðvík
Eiðsson, Jóna Kristinsdóttir sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Gunnar Guðbjömssonar, Margrét Guð-
mundsdóttir, Guðfriður Lilja Grétarsdóttir og Þórður Skúlason. Aftari röð f.v: Hilmar Pálsson, Andrés Valdi-
marsson, Guðmundur Oddsson, Ingi R. Helgason, Jónas Hallgrímsson og Friðjón Þórðarson.
Tímamynd: Aml Bjama
Sex einstaklingar hlutu heiðurslaun Brunabótafélags íslands:
Heiðurslaunin miðuð
við laun komektors
Heiðurslaun Brunabótafélags íslands voru veitt í gær og hlutu alls
6 einstaklingar heiðurslaunin. Heiðursverðlaunin eru laun, sem
Brunabótafélagið greiðir þeim einstaklingum sem launin hljóta, í
ákveðinn tíma. Launin samsvara launum konrektors í menntaskóla
með hvað lengstan starfsaldur. Ingi R. Helgason hjá Brunabótafé-
laginu sagði að markmiðið með heiðurslaununum væri að gefa ein-
staklingum kost á að sinna sérstökum verkefnum, sem til hags og
heilla horfa fyrir íslenskt samfélag, hvort sem það væri á sviði lista,
vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs.
Þau verkefni, sem kostuð eru af
einstaklingnum sjálfum, kæmu að-
eins til með að hljóta launin. Jafn-
framt skuldbindur sig sá, sem heið-
urslaunin hlýtur, að greina stjóm BÍ
frá starfi sínu á meðan launanna
nýtur við. Hann sagði að í ár hefðu
borist mjög margar umsóknir um
heiðurslaunin og erfitt hefði verið
að velja úr öllum umsóknunum.
Tveir einstaklingar úr atvinnulíf-
inu hlutu verðlaun nú í ár og voru
það rannsóknariögreglumennirnir
Bjarni Bogason og Lúðvík Eiðsson.
Þeir hafa unnið mikið að bruna-
rannsóknum og fá þeir heiðurslaun
í 3 mánuði. Gunnar Guðbjörnsson
óperusöngvari hlaut einnig laun í 3
mánuði, en hann er nú erlendis að
undirbúa sig undir verkefni fyrir
óperuna í Wiesbaden. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, alþjóðlegur
skákmeistari, og Margrét Guð-
mundsdóttir, sagnfræðingur sem
vinnur að því að gefa út dagbækur
Eklu Björnsdóttur, hlutu báðar
heiðurslaun í 2 mánuði. Ragna Sig-
urlaug Ragnarsdóttir þroskaþjálfi
var einnig stödd erlendis, en hún
hlaut heiðurslaun til að auðvelda sér
nám í sambandi við aðstoðarstörf
við þroskahefta sem eiga við tilfinn-
ingavandamál að stríða.
- UÝJ
SKfL
TOPP ▼ GÆÐI
SLÁTTUORF
Garösnyrtitæki frá Skil eru byggð samkvæmt
ströngustu öryggis- og neytendakröfum,
viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins.
SPÁÐU í VERÐIÐ!
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT8, SlMI84670 0r
ÞARABAKKI 3, SÍMI670100
Vy