Tíminn - 07.06.1991, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v Tryggvagotu.
S 28822
POSTFAX
91-68-76-91
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
HOGG-
jy - DEYFAR
faemönnum
varahluti
Hamarsböfða I - s. 67-6744
Ií miim
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ1991
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins harður gegn verðbólgustefnu ríkisstjórnarinnar. Hrafnkell A. Jónsson:
Kemur illa við efnahag
umbjóðenda minna
- Ég gæti hagsmuna minna umbjóðenda eins og mér ber skylda til
sem formannni verkalýðsfélags og forystumanni í verkalýðshreyf-
ingunni. Aðgerðir stjórnarinnar rekast á við hagsmuni launþega og
þess vegna leggst ég gegn þeim, sagði Hrafnkell A. Jónsson, for-
maður verkalýðsfélagsins Arvakurs á Eskifírði efnislega við Tím-
ann í gær.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
verkalýðsfélagsins sendu í gær frá
sér ályktun vegna vaxtahækkan-
anna að undanfömu og aðgerða
stjómvalda í húsnæðislánamálum.
Þar segir m.a. að leggja beri
áherslu á að verðlagi og vöxtum
verði haldið í skefjum. Þess er kraf-
ist að nú þegar geri ríkisstjómin
ráðstafanir til þess að vextir lækki.
Þá sé það skylda lífeyrissjóða að
hækka ekki vexti. Jafnframt skuli
sjóðirnir hefja kaup á húsbréfum
með það að markmiði að afföll
bréfanna lækki.
Fundurinn telur boðaðar hækk-
anir á opinberri þjónustu ganga
þvert á markmið þjóðarsáttar. Þá
krefst fundurinn að gengið verði
frá nýjum sérkjarasamningum áð-
ur en gengið verður til almennra
kjarasamninga.
Fundurinn leggur áherslu á að
kaupmáttur launa verði hækkaður
vemlega með lækkun eða niður-
fellingu virðisaukaskatts af brýn-
ustu nauðsynjum. Haldið verði
áfram að jafna og lækka húshitun-
arkostnað og skattleysismörk verði
hækkuð. Fundurinn leggur til að
mæta þessum útgjöldum með m.a.
að skattleggja fjármagnstekjur og
afnema skattaívilnanir vegna hús-
bréfakaupa.
Hrafnkell A. Jónsson sagði við
Tímann að aðgerðir ríkisstjómar-
innar stefndu markmiðum þjóðar-
sáttar í hættu. Verkalýðshreyfingin
heföi tekið á sig byrðar í tengslum
við febrúarsamningana til þess að
takast mætti að koma á efnahags-
legum stöðugleika og forðast at-
vinnuleysi. Þess hefði verið vænst
að launþegar myndu síðan njóta
góðs af batnandi efnahagsástandi.
Efnahagsaðgerðir síðustu daga
hlytu að draga úr líkum á því að
markmið þjóðarsáttarinnar næð-
ust og að erfiðara yrði að semja
næst á svipuðum nótum og tókst
síðast. Rfkisstjómin yrði að skilja
það að hún verður að fara gætilega
ef takast á að gera kjarasamninga
sem tryggt geta henni starfsfrið.
Hrafnkell sagði það sína skoðun
að vaxtabreytingarnar orkuðu
mjög tvímælis, en því væri haldið
fram að þær væm skárri kostur en
taka erlend lán. Hann teldi hins
vegar að fyrst ríkisvaldið ákveður
ekki vexti einhliða, hlyti að þurfa
að opna íslenskan fjármagnsmark-
að í þeim tilgangi að rjúfa einokun
íslenskra banka og fjármálastofn-
ana. Bankarnir teldu sig þurfa nú
aukinn vaxtamun til að draga úr
staðhæfðu tapi þeirra, en það
gengi hins vegar ekki til lengdar að
þeir ákvæðu sjálfir vextina —
bankarnir hefðu ekki tekið virkan
þátt í þjóðarsáttinni og hefðu ekki
dregið úr umsvifum sínum eins og
t.d. launþegar hefðu orðið að gera.
Hrafnkell A. Jónsson.
Hrafnkell gagnrýndi einnig harð-
lega lokun gamla húsnæðiskerfis-
ins sem samið hefði verið við verk-
lýðsfélögin og lífeyrissjóði þeirra
um árið 1986. í þeim samningum
hefði falist að lífeyrissjóðimir Ián-
uðu Byggingasjóði ríkisins. Þrátt
fyrir að nú væri verið að loka þessu
umsamda kerfi ætlaðist ríkisvaldið
til þess að lífeyrissjóðimir stæðu
áfram að fjármögnun, en nú til allt
annars kerfis en samið var um.
Hrafnkell sagði ennfremur að það
væri skoðun sín að þrátt fyrir að
lífeyrissjóðunum bæri skylda til að
ávaxta fé félagsmanna sinna á sem
hagkvæmastan hátt, þá væru á því
siðferðileg takmörk. Þótt sjóðimir
gætu ávaxtað fé allbærilega með
því að kaupa húsbréf með miklum
afföllum, þá yrði jafnframt að gæta
hagsmuna þeirra sem selja þessi
bréf — kaupenda íbúðahúsnæðis
sem jafnframt væru félagar laun-
þegahreyfingarinnar. Hann kvaðst
álíta að nú væm afföll af húsbréf-
um slík að varla væri verjandi að
lífeyrissjóðimir keyptu þau.
—sá
Josy Kraft setur upp sýningu Christos á Kjarvalsstöðum. Fyrir aft-
an hann má sjá uppkast að því hvernig gulu sólhlífarnar eiga að
vera staðsettar.
Listamaðurinn Christo sýnir á Kjarvalsstöðum:
Pakkar inn byggingum
Verið er að setja upp sýningu á
Kjarvalsstöðum á verkum nú-
tímalistamannsins Christo.
Hann er hvað þekktastur fyrir
að vefja inn ýmsum hlutum, þar
á meðal skýjakljúfum og stærð-
arinnar bryggjum.
Sagt er að Christo falli ekki inn í
hefðbundið hlutverk listamannsins
því hann vill ná til hins almenna
rýmis og notfæra sér kraft þess í
verkum sínum. Hann segir sjálfur
að líta beri á verk hans sem tíma-
bundin listaverk vegna viðkvæmra
efniseiginleika þeirra sem mjög auð-
velt sé að spilla.
Christo er búlgarskur aö uppruna
en er nú orðin bandarískur ríkis-
borgari. Hann verður ekki sjálfur
viðstaddur sýninguna þar sem hann
er að setja upp sýningar í Bandaríkj-
unum og í Japan. Þar ætlar hann að
setja upp gular og bláar 6 metra há-
ar sólhlífar á 18 til 25 km svæði. Þá
sýningu á að opna þann 8. október.
Kostnaðurinn við hana er um 30
milljónir og stendur hann undir öll-
um kostnaði sjálfur því hann telur
utanaðkomandi stuðning hefta
frelsi sitt við sköpun verkanna.
Sýningin á Kjarvalsstöðum verður
opnuð laugardaginn 8. júní og er
hún sögð vera listsköpun Christos
frá árinu 1958 til ársins 1989. Flest
verkin eru í eigu sænska milljóna- hann er sagður eiga um 150 verk
mæringsins Thorsteins Lilja en eftir Christo. - UÝJ
Mikil leynd hvílir yfir niðurstöð-
um rannsókna á lífríki Mývatns:
ER VATNIÐ
AÐ DEYJA9
Sérfræðinganefnd um Mý-
vatnsrannsóknir vinnur nú að
skýrslu um niðurstöður rann-
sókna á áhrifum kísilnáms á
lífríki vatnsins. Búist er við
að hún verði tilbúin eftir einn
mánuð.
Sérfræðinganefndin var sett
á laggirnar með námuleyfi
Kísiliðjunnar sem gefið var út
1986. Það gildir til ársins
2001.
í námaleyfinu eru Kísiliðj-
unni settar ákveðnar marka-
línur og gert að dæla hráefni
úr vatninu innan ákveðinna
marka í ytri flóa fyrstu fímm
árin.
Þessi takmörkun rennur út
nú í árslok og þá eru Kísiliðj-
unni engin takmörk sett hvar
dæit er úr Mývatni.
Enginn af þeim sérfræðing-
um sem í nefndinni eru vildu
segja nokkuð um innihald
skýrslunnar en forráðamenn
fyrirtækisins sögðu að þegar
hún kæmi út yrði þetta mái
alit endurskoðað.
-SIS