Tíminn - 15.06.1991, Side 4

Tíminn - 15.06.1991, Side 4
\2 W HELGIN é’er .nui .cr iupsb">CD'JsJ Laugardagur 15. júní 1991 Hugleiðingar vestfirsks bónda af aldamóta- kynslóðinni í tilefni af 17. júní 1944: mun J L/ EFTIR JÓN GUÐMUND ÓLAFSSON AÐ GEMLUFALLI Gt’A-Jc ég *Mjpp <f hamarinn, sam haest af&tínm ber, hamingtfttna haföi égr £ henefi mér, bjiirt var hún sam týsigait ogr brathœtt ains ogr grler ---égr henti hanni fram af, þar sam hangiftngiö er. Vföa fittgru brotin en tríöar hugrttr fer. JLeitaö hefégr £ ötal dr dttavilltnr ogr fótasdr, dlftast ofan £ fen ogr fldr, fariö grfir hdlar grijdr, út ttm drangra og egjar bldr, apalhrattn og svartar gjdr. JtSte/ci var sú ferö til fjár, fœrötist slkttggar yfir brdr. JOapttr er oft ttm daga hellir, dyrttm mfnttm hrföin s/celtir, en nóttin aldrei httgann hrellir, httröir allar byrgi ég þd, opnast viÖ mér björgin bld. Sólin, þegar hún flngiÖ fellir, fœr mér vœngi sfna, ftýg ég út d furötestfga mína. Á sfjörntthafsins botni stendttr teóralhöll, gólfhetlttrnar lýsa eins og teiftur d n%jötl - aÖ gutli eru orÖin sporin ntfn, sem glötuÖ hélt ég ött. JÞar tafca hörpur meÖ hryrgandi brag undir viÖ sólnanna samróma lag. JÞar sé ég meinin jafht og meinanna bcetur blitca eins og sfjömur í blácfjúpi ncetur. JÞar rétta mér dfsir yfir brimhvftum boröum perlubitcar hamingjunnar - heilan eins og foröum. (Sig.Nordal) Jón Guðmundur Ólafsson (1891-1963). Um höfund greinarinnar - Aldarminnning í þessu þulubroti sem ég hefi farið með finnst mér að speglist saga okk- ar frá 1262-1944 eða hátt í 7 aldir. Vissulega höfðum við fram að þeim tíma hamingju frelsisins í hendi okkar. Sannarlega var hún björt eins og lýsigull en brothætt eins og gler. Svo hentum við henni fram af þar sem hengiflugið er. Það varð ekki fundinn hærri hamar eða ógurlegra hengiflug en að afsala sér frelsinu í hendur útlendum þjóðhöfðingja. Svo liðii árin og aldirnar og við fór- um að finna til þess sem við höfðum gerL Við fórum að leita að því sem við höfðum fleygt. Við leituðum í ótal ár áttavillt og fótasár. Álpuð- umst ofan í fen og flár, fórum yfir hálar gljár út um dranga og eyjar blár, apalhraun og svartar gjár. Á þessari leið höfum við séð meinin og meinanna bætur. Og á þessu ári hafa dísimar rétt okkur yfir brimhvítum borðum perlubikar hamingjunnar heilan eins og forðum. 17. júní 1944 verður mér ógleym- anlegur. Þegar ég að morgni hans hafði dregið fánann okkar að húni á bænum mínum fylltist hugur minn lotningu og tiibeiðslu til Guðs vors lands og þakklæti til þeirra manna allra sem unnið höfðu með hinum góðu dísum sem réttu okkar þennan dag perlubikar hamingjunnar heil- an eins og forðum. í dag mundi ég verða frjáls maður í frjálsu landi; og löngun mín til að velta fleiri þúfum og rífa upp meira grjót fékk nýjan mátt. En það sem mér kom oftast í hug þennan hátíðisdag var Árni Oddsson lögmaður. Hann neitaði eindregið að skrifa undir hollustu- eiöinn. En loksins þegar komið var kvöld bugaðist hann fyrir ógnunum harðstjórans. En ekki var það sárs- aukalaust því að hann grét meðan hann skrifaði undir. Um þann at- burð hefur þetta verið kveðið: Og lögmarmsins ekki, sem eiöirm varm fyrir ógrxunum harðstjórans aldrei til eilífðar getum vérgleymt þeim grátstaf vors besta manns. (Guðm. Guðmundsson) Doktor H. Péturs segir: „Saga er til- raun mannkyns til að átta sig á sjálfu sér.“ Þegar svo haft er í huga styrjaldarógnir síðustu ára og líð- andi stundar munu margir spyrja: „Hvað hefur mannkynið lært á allri sinni sagnaritun?" Fjöldinn mundi segja að það hefði ekkert lært en aðrir að þeir þurfi að hugsa sig um svarið. Allir hugsandi menn vita að til gerbreytingar þarf mikið átak. Nýlega sá ég í blaðagrein þetta átak sem gera þarf borið saman við það þegar dýr sjávarins skriðu á land og fóru að anda að sér lofti. Og í öðru lagi þegar manndýrið hætti að ganga á fjórum fótum, rétti úr sér og gerðist maður. Ef sagnaritun mannkynsins er tilraun þess til að átta sig á sjálfu sér ætti sagnaritun hverrar einstakrar þjóðar að vera tilraun hennar í sömu átt. Líklega hafa fáar þjóðir eða engar átt sögu sína skráða frá upphafi af jafnmik- illi snilld og nákvæmni og við ís- lendingar. Við ættum því að þekkja sjálfa okkur. En þegar um það er að ræða að byggja upp framtíð okkar á sögulegri reynslu er líklegt að enn fari fyrir okkur eins og ávallt áður að framtíðin ráðist ekki nema að litlu leyti eftir skrifuðu Iögmáli heldur því sem óskrifað er í okkur sjálfum á hverjum tíma. Þó að við íslendingar hefðum átt að geta lært meira af okkar sagnaritun en við höfum gert hefir hún samt verið okkur ákaflega dýrmæt. Það má segja um söguna að hún hafi verið þjóðinni: „langra kvelda jólaeldur". Á öllum tímum hafa hetjusögur okkar verið í miklu afhaldi. Þjóðin hefur úr þeim drukkið í sig þol og þrótt, endurnært seiglu sína og baráttuþrek. í höndum forvígismanna okkar í frelsisbaráttunni hefur sagan verið hið öflugasta sóknar- og sönnunar- gagn. Það er fullyrt að Jón Sigurðs- son hafi verið svo fróður í sögu landsins að þar hafi enginn komist til jafns við hann hvorki fyrr né síð- ar. Hann var Iíka einstakur snill- ingur í því að draga af henni álykt- anir til stuðnings sínum málstað og beita þeim. Seinnipart vetrarins og fram á vor áður en þjóðarat- kvæðagreiðslan fór fram var því mjög á lofti haldi í útvarpinu sem þjóðlegt er og rammíslenskt. Var það vafalaust gert til að undirbúa hugi landsmanna fyrir úrslita- stundina. Ég man sérstaklega eftir einni vísu: Standi fyrr í einum eldi allur barmur þessa lands en það lúti annars veldi eða harðstjóm kúgarans; fyrr skal hyrr um rjáfrin rjúka og rofin hrynja í tóptimar brennd til ösku fjöllin fjúka og flæða yfir rústimar. (Jón Forni) Framhald á bls. 14 Höfundur meðfylgjandi greinar, Jón Guðmundur Ólafsson, bóndi að Gemlufalli í Dýrafirði, fæddist að Hólum f Dýrafirði þann 29. mars 1891. Foreldrar hans voru Ólafur Guðmundsson bóndi þar og kona hans Sigríður Kristín Jónsdóttir ljós- móðir. Hann ólst upp f foreldrahús- um. Hann stundaði nám í Núpsskóla vetuma 1910-1912. Þá lærði hann kjötiðnað hjá Sláturfélagi Suðurlands 1914, einnig stundaði hann sjó og þá allajafnan sem matsveinn. Hann var við bamakennslu sem heimiliskenn- ari nokkra vetur áður en hann hóf bú- skap. Á seinni árum kenndi hann einnig við bamaskólann að Lamba- hlaði, sem Iausráðinn í forföllum ann- arra. 29. desember 1916 kvæntist hann Ágústu Guðmundsdóttur að Brekku f Brekkudal í Dýrafirði. Þau hófu það sama ár búskap að Minna-Garði í Mýrahreppi, en fluttust að Gemlufalli í sömu sveit 1920 og bjuggu þar með- an bæði Iifðu. Hann andaðist f Reykjavík 25. febrúar 1963. Á Gemlufalli sinnti Jón mörgum trúnaðarstörfum. Þar var ferjuskylda yfir Dýrafjörð, en að honum gengn- um lagðist hún af og varð á vegum hreppsins eftir það. Þá var landsíma- stöð og bréfhirðing í hans höndum. Hann var kjöt- og ullarmatsmaður hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga um langt ára- bil, sá um söltun á kjöti meðan það var venja. Hann var einnig sláturhús- stjóri fyrstu árin og það hús var rekið af Kaupfélaginu. Þá var hann safnað- arfulltrúi, prófdómari og endurskoð- andi þegar svo bar undir. Hann rak um tíma bensín- og veitingasölu að Gemlufalli. Þeim Gemufallshjónum varð sex bama auðið, eitt þeirra lést í frum- bemsku. Þá ólu þau upp tvö fóstur- böm og tvö önnur um árabil og enn voru foreldrar hans hjá þeim til dauðadags. Allar ættir Jóns em vestfirskar, langt aftur í aldir og auðrekjanlegar gegn um Reykhóla-, Holts f Önundarfirði og Ögurs kempur. Ekki verður hér nánar farið í hvorki ættir ná amstur daganna hjá honum að þessu sinni. Hugleiðingar hans sem fylgja hér með hefur hann sett á blað sér til hugarhægðar. Þær vom fólgnar í litlum kistli sem allajafnan stóð við rúmið hans á Gemlufalli. Nú, nær hálfri öld sfðar, hefur honum ver- ið lokið upp af afkomendum hans. Hann var yndislegur faðir, sem hvatti böm sín tíl að reynast mann- vinir og vera trú f verkum sínum. Það er gæfa hvers og eins að leggja út f líf- ið með veganesti, það á sér marga mælikvarða, þegar til kastanna kem- ur. 100 ára minning hans er vafin þeim ljóma og þeirri gleði sem um- vafði fjölskylduna á Gemlufalli þegar hún stóð á hlaðinu og sá hann draga fána hins frjálsa íslands að húni 17. júrú 1944. J.J.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.