Tíminn - 15.06.1991, Qupperneq 9

Tíminn - 15.06.1991, Qupperneq 9
Laugardagur 15. júní 1991 1 FERÐAMÁL Tíminn 17 Mið-Evrópa nteð sinn gamal- gróna menningararf nær sífellt meiri vinsældum ferðamanna. Ekki dregur úr áhuganum að búið er að opna þau lönd sem áður töld- ust til Austur- Evrópu og þar er allt að færast í frjálslegra horf og auðveldara er að heimsækja þau lönd og ferðast um en áður var. Austurríki hefur samt ávallt veríð í hinum frjálsari hluta Evrópu og þar mætast nútíminn og gamli tíminn og er landið og borgir þar einkar áhugavert fyrir ferðamenn. Flugleiðir hafa séð um leiguflug frá Graz í Austurríki og næsta ár er ávkveðið að auka leiguflug þangað og bæta við flugi til fleiri borga í Austurrfld. Austurríki er nokkuð minna en ís- land að flatarmáli og er þannig í sveit sett í Evrópu að landamærin liggja að sjö rfkjum öðrum, sem eru Þýskaland, Tékkóslavakía, Ung- verjaland, Júgóslavía, Ítalía, Sviss og Liechtenstein. Því má segja að vegir frá Austurríki liggi til allra átta og þaðan er stutt til margra landa. Ferðamenn skulu minntir á að gleyma ekki vegabréfum sínum þegar þeir bregða sér yfir landa- mæri, þótt ekki sé nema í skottúr- um. Alls skiptist Austurríki í níu fylki og á hvert þeirra sína höfuðborg. En Vín er höfuðborg sambandslýð- veldisins og er jafnframt sérstakt fylki út af fyrir sig. Umhverfisvemd Sem víðar er gert mikið átak í umhverfisverndarmálum í Austur- ríki um þessar mundir. Til dæmis hóf ferðamálaráðið í Salzburgfylki, sem dregur nafn af höfuðborginni, í fyrra mikla herferð sem enn stendur yfir og mun gera framveg- is. Reynt er að draga úr bflaumferð með því að bjóða alls konar afslátt- arfargjöld með járnbrautarlestum og langferðabflum. Það er sjálfsagt fyrir erlenda ferða- menn að kynna sér þau kjör sem þannig er boðið upp á. Einnig er verið að gera tilraun með að dreifa umferðinni þannig, að álagið sé ekki eingöngu um og fyrir og eftir helgar, heldur verði jafnt alla vik- una. Viðbrögð hótela hafa verið einkar góð og hægt er að fá ódýrari gistingu ef þetta er haft í huga. Að rata um vegi Flestir íslendingar sem ferðast um Austurríki að sumarlagi bóka bílaleigubfl. Yfirleitt láta bflaleig- urnar kort fýlgja með en þau eru ónákvæm. Því er mælt með því að ferðamenn kaupi svokallaðan Auto-Atlas eða Auto-Reisefiihrer og fást þeir leið- arvísar í bókaverslunum og stærri bensínstöðvum. Þessar leiðbein- Skíðalyftumar er upplagt að nota á sumrín til að komast upp á hæstu fiöll. ingar hafa þann kost að ekki eru að- eins prentuð í þau kort með vega- kerfinu heldur eru einnig gefnar leiðarlýsingar og ábendingar um það sem áhugavert er að skoða. Flestar slíkar bækur eru á þýsku, en í stærri bókabúðum er hægt að fínna bækur sem einnig hafa ensk- an texta. Frægar borgir, söfn, hljómleika- salir, krár og veitingahús og hver veit hvað eru sjálfsagðir hlutir í Safnahúsið í Vín er meðal flöl- margra glæsibygginga sem bera austumskrí sögu og menningu fagurtvitni. Austurríki. En þar er líka náttúru- fegurð og verðurblíða eins og á suðurslóðum. Minna má þá á sem gista í Salzburg eða nágrenni að láta ekki hjá líða að skoða vatna- svæðið austur af borginni og jafn- vel fara í bað. Vötnin verða allt að 28 stiga heit á sumrin og bjóða aðr- ar sólarstrendur ekki betur, enda eru þarna víða baðstaðir. Svo má ekki gleyma að austur- rísku alparnir eru draumaland skíðamanna og eru vetrarferðir þangað ekki síður vinsælar en ferðalög þeirra sem njóta sumars- ins í borgum og skógum Mið-Evr- ópu. BENSÍN EÐA DIESEL Mjög gott verð Rafst.: 600-5000 w Dælur: 130-1800 l/mín Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Simi 91-674000 Rafstöðvar OG dælur FRÁ SUBARU »t Það er örugglega til Ambassadeur veiðihjól sem hentar þér við að ná þeim stóra «Vbu Garcia Sértu að gera klárt fyrir veiðiferðina skaltu kynna þér hið góða úrval Ambassadeur veiðihjóla frá Abu Garcia. Abu Garcia hefur í áratugi verið leiðandi í tækniþróun veiðibúnaðar. Það kemur meðal annars fram í aukinni notkun á fisléttum en sérlega sterkum efnum ásamt nýjung sem stóreykur langdrægni hjólanna (ULTRA CAST). Þetta er meðal annars ástæðan til þess að æ fleiri veiðimenn treysta á Ambassadeur veiðihjólin frá Abu Garcia. Lítið inn og kynnið ykkur úrvalið. Verslunin er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 9 - 19, á fóstudögum til kl. 20 og frá 10 til 16 á laugardögum og sunnudögum. Hafnarstræti 5 • Símar 1 67 60 og 1 48 00 Heimsmeistarinn í kastkeppni, Neil McKellow, verður í heimsókn hér á landi dagana 14.- ló.júní. Hann mun halda kastsvningu Laugardaginn 15. júní kl.ll fyrir neðan Sæmundargötu (við Háskólann ). Hann notar Ambassadeur frá Abu Garcia. .7*»ATAU,A’A,ATA’A’ÁTATA’A,A’A’A'A,A'A’A'i,A'A,A'A'<4'A'i'i

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.