Tíminn - 15.06.1991, Side 10
HELGIN
Laugardagur 15. júní 1991
■I TÍMANS RÁS
Hli ' Hjjf§|§
ATLI MAGNÚSSON:
Rauða torg hið nýja
Hér fyrr á árum var það einn af
hinum þægilegu og öruggu
punktum í tilverunni að fyrri part-
inn í nóvember vottfestist það
með frásögnum og myndum að
hersýningin hefði farið fram að
vanda á Rauða torginu þann 7.
nóvember. Þarna stóð aðalritarinn
í frakkanum með trefilinn og hatt-
inn, generalissimó Rauða hersins
með kaskeiti á stærð við tólgar-
skjöld og til beggja handa við þá
aðrir mildingar ríkisins eftir „af-
líðandi" mannvirðingum. Svo
brunaði herneskjan hjá, gfnandi
eldflaugar á dráttarvögnum og ví-
greifir herflokkar, en loftið dundi
af flugi orrustuþota. Þá bjó Gauk-
ur enn í sinni Stöng, öldin var
önnur og allt með góðum skikk.
Nú er bragurinn á Rauða torginu
víst orðinn með öðru sniði. Her-
sýningin er varla orðin svipur hjá
sjón og óvaldar persónur með
kröfuspjöld æpa að kúríunni uppi
á grafhýsinu og biðja hana aldrei
þrífast. Tólfunum kastaði þó í
fyrra þegar maður með hlaup-
sagaða haglabyssu bjóst til að hlunka á
sjálfan postula „perestrojkunnar“ upp á
ameríska móðinn. Þá mátti það fyrst
vera hverjum ljóst að Sovétríkin voru
tekin að stefna í lýðræðisátt. Auðvitað
þoldu eldflaugar og hergöngur engan
samburð við þessar uppákomur og þeim
voru líka lítil skil gerð af tíðindamönn-
um. Þar með hefði mátt ætla að vinum
hernaðardýrðar víða um heim hafi þótt
þeir hafa misst spón úr aski sínum og
þeir ekki vitað hvað þeir ættu að gleðja
hin gömlu augu sín við.
En ótti sá hefur reynst ástæðulaus.
Þegar Sovétmenn nú hafa gjörst lúnir á
marséringum, þá verður það skyndilega
að Bandaríkjamenn fyllast ómótstæði-
legri hvöt til að taka upp þessa ágætu
íþrótt og það af tvíelleftum móði. Raun-
ar ber að muna að Bandaríkjamenn hafa
lengi verið mikið skrúðgöngufólk og
skemmta sér vel yfir umstanginu sem
skrúðgöngum fylgir, flöggum, blöðrum,
poppkorni og léttklæddum „tambúrmaj-
órum.“ En nú hafa augu þeirra
lokist upp fyrir því hve hergöngur
eru miklu tilkomumeiri en svodd-
an allt. Patriot-eldflaug sómir sér
enda miklu betur uppi á vagni en
fímm metra há líkneskja af Mikka
mús og gustmeira er göngulagið
hjá landgönguliðum flotans en
skátapíum og „graduates" í galla-
buxum. Því eru nú farnar her-
göngur um Bandaríkin þver og
endilöng og var sú ferlíkislegasta í
Washington á dögunum. Þar var
kominn forsetinn og hans frú og
var mest heillandi sú stund er
Schwarzkopf hershöfðingi skaust
út úr fylkingunni og tók sér stöðu
næstur forsetanum. Þar með
nálgaðist myndin mjög það er
menn áttu að venjast frá Rauða
torginu, þótt söknuður væri að
hatti og trefli á forsetanum, en til
slíks má ekki ætlast af manni með
hjartsláttartruflanir í amerískum
sumarhita. Nú er aðeins að vona
að hergöngumóðurinn renni ekki
af þeim vestra á næstunni. Ef ekki
kemur til nýrra styrjalda, þá getur
Persaflóastríðið treinst eitthvað um sinn
sem tilefni. Annars er ekki um annað að
gera en fara að svipast um eftir nýjum
sigrum. Vopnasmiðirnir munu svo halda
vöku sinni og sjá til þess að alltaf gefist
almenningi færi að sjá eitthvað nýtt og
spennandi uppi á vögunum í hverri
göngu, rétt eins og þeir höfðu til siðs á
Rauða torginu. Er mönnum léttir að sjá
að góðar venjur leggjast þannig aldrei
alveg af og eru aðeins teknar upp á nýj-
um stað er einn þrýtur örendið.
Gettu nú
Já, það var Reynisfjall,
sem sást á myndinni í síð-
ustu getraun okkar hér.
Við erum stödd norðan-
lands á einu sérkennileg-
asta hverasvæði landsins
og gjama stöðva þar rútur
með ferðamenn. Hvert er
þetta svæði?
KROSSGÁTA