Tíminn - 15.06.1991, Page 12
•20
.HELGtN
tadgarda^liri'5. júní >1991
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
ENGIN IÐRUN
Þcgar bílþjófur lendir í útistöðum við
kaldrifjaðan morðingja þarf ekki að
spyija að leikslokum. Morðinginn
skar í kúlumar í þeim tilgangi að
þær yllu meira tjóni.
Michael „Munkur" Chorak reyndi að bjarga sjálfum sér með samstarfi við
lögregluna en komst ekki upp með það.
Joseph Rodish var dæmdur morð-
ingi og hafði ekki í hyggju að biðjast
vægðar frammi fyrir dómaranum.
Þó svo að hinn 56 ára gamli Chig-
agobúi ætti dauðadóm yfir höfði sér
fyrir morð, stóð hann keikur í rétt-
inum og lét álit sitt í Ijós.
„Ég biðst ekki afsökunar. Ég iðrast
einskis. Ef sömu aðstæður væru fyr-
ir hendi myndi ég gera það sama aft-
ur.“
Dómarinn var furðu lostinn. Hann
var vanur því að sakborningar bæru
fram málsbætur og bæðust vægðar
og hann trúði varla eigin eyrum
þegar sakborningur lýsti því yfir
fullum hálsi að hann myndi hiklaust
fremja annað morð.
Dómarinn horfði á Joseph Rodish
og reyndi að gera sér í hugarlund
hvað færi fram í huga þessa marg-
dæmda glæpamanns. Það lék ekki
nokkur vafi á því að dómarinn hafði
forhertan glæpamann fyrir framan
sig. Glæpaferill Rodish hófst árið
1942, þegar hann var fimmtán ára
gamall, en þá var hann í 18 mánuði
á heimili fyrir vandræðaunglinga
áður en honum var gert að afplána
23 mánaða fangelsisdóm.
Tveimur árum síðar, þegar hann
var 17 ára, var hann dæmdur í eins
til þriggja ára fangelsi fyrir þjófnað
og 1947 í tveggja til þriggja ára
fangelsi fyrir sömu sök. Árið 1950
varð hann enn uppvís að þjófnaði og
1953 var hann dæmdur fyrir skjala-
fals.
Árið 1961 var hann kominn í inn-
brot og var enn dæmdur, nú í
þriggja til átta ára fangelsi. Hann var
náðaður í maí 1965.
Næsta afrek hans var morð.
Gráðug gömul kona
Þann 14. október 1966, rétt rúmu
ári eftir að hann var náðaður, framdi
Rodish alvarlegasta glæp sinn til
þessa.
Samkvæmt skýrslum lögreglunnar
í Chicago bjó Rodish þá í leiguhús-
næði og leigusali hans var Anna Di-
dyk, 77 ára að aldri. Hún hélt til her-
bergis hans snemma morguns til að
láta hann vita að hann ætti að rýma
húsnæðið þar sem hann hefði ekki
borgað húsaleigu.
Þegar gamla konan kom inn í her-
bergið sá hún að fengur úr banka-
ráni var undir rúminu. „Ég veit
hvað þú hefur gert. Ég vil fá hluta af
þýfinu eða ...," sagði sú gamla og
veifaði fingri framan í Rodish.
Gamla konan náði því aldrei að
klára setninguna. Rodish keflaði
hana til að koma í veg fyrir að hún
æpti og stakk hana síðan til bana.
Eiginmaður konunnar, Peter Di-
dyk, 84 ára, fann lík konu sinnar síð-
ar um daginn. Þegar hún sneri ekki
aftur fór hann að leita að henni, en
kom að herbergi Rodish læstu.
Hann náði í lykil og sneri aftur. Þeg-
ar inn var komið sá hann að föggur
Rodish voru tilbúnar til flutnings og
þar var einnig lík konu hans. Hún
hafði verið stungin í gagnaugað og í
annað augað.
Lögreglu var strax gert viðvart og
hófst þá viðamikil leit að Rodish,
sem að vísu var þá þegar eftirlýstur
fyrir að koma fölsuðum ávísunum í
umferð. Honum tókst að forðast
handtöku í rúma tvo mánuði og
framdi annað morð áður en hann
náðist.
Misheppnað rán endar
með morði
Sunnudagskvöldið 4. desember var
Rodish ásamt félaga sínum, James
Young, 39 ára, sem hann hafði
kynnst í fangelsi, á bar sem Rodish
heimsótti oft. Þá leyndist hann á
skuggalegu hóteli skammt frá barn-
um.
Á meðan þeir félagarnir sátu að
sumbli ráðgerðu þeir að ræna bar-
inn, þrátt fyrir að þeir væru vel
kunnugir eiganda hans og hefðu
verið fastagestir hans lengi.
Þeir yfirgáfu barinn en sneru aftur
klukkan tvö um nóttina þegar verið
var að loka. Rodish miðaði byssu á
eigandann og tilkynnti að þeir ætl-
uðu að ræna barinn.
„Hættu þessari vitleysu. Ég læt ykk-
ur kumpánana ekki hafa neitt,"
sagöi eigandinn reiður, hélt kannski
að þetta væri aðeins drykkjuraus.
En hann hafði varla sleppt orðinu
þegar tvö byssuskot hæfðu hann í
bringuna. Eigandinn skjögraði út á
gangstéttina framan við barinn og
stundi upp „Joe skaut mig,“ og féll
síðan örendur til jarðar.
Rodish og Young flúðu á hlaupum
en Young náðist nokkrum mínútum
síðar. Byssa í eigu Young fannst
skammt frá inni í runnum. Þegar
Young var yfirheyrður eftir handtök-
una skýrði hann frá því að Rodish
hefði verið félagi hans í þessu mis-
heppnaða ráni.
Lögreglan setti nú allt í gang til að
reyna að hafa upp á Rodish. Tveimur
kvöldum síðar, 7. desember, fannst
hann þar sem hann var við drykkju á
bar í hinum enda borgarinnar. Lög-
reglan hélt þegar á staðinn og hand-
tók hann.
Rodish var með leikfangabyssu í
fórum sínum þegar hann var hand-
tekinn. Hann neitaði í fyrstu stað-
fastlega að gera grein fyrir sér en ját-
aði síðar að hann væri maðurinn
sem leitað hefði verið að.
Við yfirheyrslur játaði Rodish á sig
bæði morðin, að hafa myrt bæði
gömlu konuna sem leigði honum og
kráareigandann. Hann sagði lög-
reglunni að ástæða þess að hann
ákvað að reyna að ræna barinn væri
sú að kráareigandinn rak veðbanka á
staðnum og hann hefði verið viss
um að þar væri mikið fé að hafa.
„Ég þurfti á peningunum að halda
til þess að komast úr borginni,"
sagði hann.
Þegar Rodish var færður fyrir dóm-
ara neitaði hann að leita sér lög-
fræðiaðstoðar. „Ég vil engan lög-
fræðing. Ég vil bara ljúka þessu af
sem fyrst. Lögfræðingur kemur mér
að engu gagni úr því sem komið er.“
Hann kom síðan fyrir rétt þar sem
hann játaði sig sekan um bæði
morðin. Thomas McMillan dómari
dæmdi hann í 35 til 60 ára fangelsi
og Rodish var enn og aftur settur á
bak við lás og slá.
Eftir að hafa varið 14 árum innan
fangelsisveggjanna var hann látinn
laus til reynslu þann 23. maí 1980.
Hann flutti þá í úthverfin í suður-
hluta Chicago og hóf störf sem vakt-
maður og bílaþjófur hjá Michael
„Munki“ Chorak sem rak partasölu
þar um slóðir. Hann hélt því starfi
þó ekki lengi. Hann var gripinn á
einum af stolnu bfiunum og var
sendur aftur í fangelsi fyrir bflþjófn-
að, mútur og skilorðsbrot.
Vafasamar partasölur
Það var óhjákvæmilegt að Rodish
næðist þar sem bæði lögreglan í
Chicago og alríkislögreglan höfðu
haft partasöluna undir eftirliti. Að
áliti lögreglunnar var Chorak ein-
hver ósvífnasti bílaþjófur í borginni
og rak starfsemi sína í samstarfi við
Joseph Lombardo sem var atkvæða-
mikill í undirheimum Chicago.
Þann 30. nóvember 1981 réðust
lögreglan í Chicago og alríkislög-
reglan í sameiningu til atlögu gegn
partasölu Choraks. Þetta var liður í
alríkisrannsókn á ólöglegum parta-
sölum í Chicago.
Það er svo mikið um slíkar parta-
sölur í Bandaríkjunum, þar sem bfl-
um er stolið til þess að rífa þá niður
og selja í varahluti, að talið er að það
kosti bandaríska neytendur yfir fjóra
milljarða Bandaríkjadala á ári.
íbúar Chicago neyðast til að borga
ferföld tryggingaiðgjöld á bflum sín-
um vegna þessarar starfsemi þar
sem bflþjófnaðir eru þar blómleg at-
vinnugrein.
Chorak var handtekinn eftir leitina
í partasölunni því þá fundust nægi-
leg sönnunargögn gegn honum. Þar
á meðal var framhluti og hurðir af
18 þúsund dollara Lincoln bifreið
sem stolið hafði verið fyrir utan veit-
ingahús í Lansing í Ilíinois nokkru
áður.
Chorak hóf samstarf við alríkislög-
regluna og veitti henni upplýsingar í
þeirri von að fá bjargað eigin skinni.
En þar brást honum bogalistin.
Fimmtudaginn 3. mars 1983 fannst
hann skotinn til bana á bak við af-
greiðsluborðið í verslun sinni. Hinn
35 ára gamli bflaþjófur hafði verið
skotinn nokkrum skotum í höfuðið,
einu í magann og einu í annan
handlegginn.
Það var Michael Lesko, 37 ára gam-
all vinur Chorak fjölskyldunnar,
sem fann líkið. Hann hafði verið
sendur af eiginkonu Choraks til að
athuga með hann þar sem hann
hafði ekki komið frá vinnu og hún
hafði áhyggjur af manni sínum.
Lesko sagði lögreglunni að hann
hefði haldið til partasölunnar um
ellefuleytið umræddan morgun.
Hann sagðist hafa komið að öllu
læstu og lokuðu og hliðin á girðing-
unni í kring hefðu verið læst með
keðju. Hann kvaðst hafa klifrað yfir
girðinguna og farið að skrifstofunni
en hurðin að henni var lokuð en
ekki læst. Hann fór inn og svipaðist
um þar til hann fann manninn lát-
inn á bak við afgreiðsluborðið.
Lesko reyndi að hringja á lögregl-
una en einhverra hluta vegna fékk
hann ekki línu út úr húsinu. Þá
hringdi síminn og hann bað þann
sem hringdi að kalla til lögreglu því
morð hefði verið framið í verslun-
inni.
Lögreglan fékk tilkynninguna kl.
11:32 og leynilögreglumennirnir
Michael Bosco og Harry Huffman
voru komnir á vettvang eftir
skamma stund.
Eins og Lesko urðu lögreglumenn-
irnir að klifra yfir girðinguna til að
komast inn á athafnasvæði partasöl-
unnar. Eftir að hafa fullvissað sig
um að „Munkurinn" væri látinn var
kallað til aðstoðarlið sem kom með
vírklippur og klippti í sundur girð-
ingarvírinn til að auðvelda lögreglu
aðgang að morðstaðnum.
Chorak var klæddur í langerma
gráan háskólabol, hvítan nærbol,
bláar gallabuxur, brún stígvél og var
með svart belti. Lögreglan sá að á
bolnum voru samsvarandi göt að
framan og aftan þar sem kúlan hafði
farið í gegnum manninn.
Það voru púðurleifar framan á
bolnum sem bentu til þess að Cho-
rak hefði verið skotinn af mjög
stuttu færi. Morðið hafði greinilega
ekki verið framið í auðgunarskyni
þar sem seðlaveski Choraks, með 20
dollurum, var óhreyft í vasa hans.
Tæknimenn lögreglunnar hófu nú
leit að fingraförum og öðrum sönn-
unargögnum. Þeir fundu tvö kúlu-
göt í vegg og tóm skothylki úr
skammbyssu.
Á meðan lögreglan var að rannsaka
vettvang bar þar að tvo menn. Þeir
versluðu báðir með hjólbarða og
sögðust hafa átt viðskipti við Cho-
rak. Annar mannanna skýrði frá því
að hann hefði komið til partasöl-
unnar um eittleytið daginn áður en
þá hefði allt verið lokað. Hann
kvaðst hafa hitt einn starfsmann
Choraks, sem hafði setið í bfl sem
lagt var við götuna, og hefði sá sagt
að Chorak væri ekki enn búinn að
opna.
Ástæðan fyrir því var vitanlega að
hann var þá þegar látinn. Ástand
líksins leiddi í ljós að hann hefði lát-
ist um níuleytið á miðvikudags-
morguninn.
Þegar vettvangur hafði verið fullk-
annaður var lík Chorak flutt á
sjúkrahús í grenndinni þar sem
hann var opinberlega úrskurðaður
Iátinn og þaðan í líkhúsið til krufn-
ingar.
Um leið og fregnir bárust af morð-
inu hófu alríkislögreglumenn, sem
starfað höfðu að rannsókninni á
partasölunum, að kynna sér málið.
Einn möguleiki, sem ekki var hægt
að líta framhjá, var sá að Michael
„Munkur" Chorak hefði verið sleg-
inn af þar sem hann var að aðstoða
alríkislögregluna við rannsóknina á
ólöglegu partasölunum. John