Tíminn - 20.07.1991, Blaðsíða 1
„Brúnsvíkingar blessað-
ir, berjið þið á Dönum!“
Árið 1848 tók tvítugur, ís-
lenskur stúdent að rita dag-
bók um það er á daga hans
dreif í dönsku höfuðborg-
inni. Dagbókina færði hann
ekki nema þetta eina ár, en
hún er eigi að síður mjög
merkileg, vegna þess að hún
varpar ljósi á viðhorf og
hugsanir tilfínningamanns,
er síðar varð þekkt skáld, á
tíma sem reyndist mikið
mótunarskeið í lífi hans —
en ungi maðurinn var Gísli
skáld Biynjúlfsson. En atvik-
in höguðu því einnig svo að
árið 1848 var mikið umróts-
og byltingarár. Uppþot urðu
og ríldsstjórnir féllu um koll
hér og þar í Evrópu og í Dan-
mörku upphófst stríð vegna
hertogadæmanna Slésvíkur
og Holstein, sem verður að
nokkru að bakgrunni daglegs
lífs Gísla á þessum tíma.
Frá orrustunni við Dybböl 5. júní.
Hér er nú til gamans birt slitur
úr dagbókinni, en hún kom út ár-
ið 1952 og bjó Eiríkur Hreinn
Finnbogason hana til prentunar.
Gísli er upptendraður af frelsis-
hugsjón og hatri á afturhaldi og
kúgunaröflum, sem blandast
ákafri fyrirlitningu á landinu er
hann gistir og þjóð þess, sem
hann af alhug óskar ófarnaðar og
ósigurs í átökunum við hertoga-
dæmin og Prússa. Margt kemur
þó furðulega og ögn broslega fyrir
sjónir, t.d. það að einn æðsti her-
foringi Dana, Christian Julius de
Meza, hefur um þessar mundir
verið daglegur nemandi hjá Gísla í
fslensku og stautað sig fram úr
Hárbarðsljóðum og Eddunum
undir hans leiðsögn. Meza átti eft-
ir að verða yfirmaður alls danska
heraflans í stríðinu 1864. Eins og
séð verður af fyrstu færslunum
hér á eftir á Gísli í nokkru sálrænu
stríði er rekast á Danahatur hans
og óttinn um örlög þessa ágæta ís-
lenskunemanda, sem var eini
Daninn er hann umgekkst að
nokkru ráði.
28. mars
Á fætur kl. 10. Til flokksforingja
míns Kriegers, en hann var ei
heima. Skrifað undir prentun
nokkuð af Faraldi etc. Sleppt
Gram — hann las ei. Kom M.
Meza að kveðja mig, hann á nú að
fara til hertogadæmanna í hernað
og bið ég guð að hlífa honum, þó
þau losni, sem ég vil, en hann skal
ei falla, því mér er vel við hann og
vildi sjá honum aftur endurkomu
auðið, en guð má ráða. Út með
honum. Heim aftur að skrifa.
Bensi* kom með útleggingu úr
Washington Irving í Norðurfara.
Borðað kl. 3. Til flokksforingjans
og réð hann mér að vera í stúd-
entasveit og sjá hvað setur, „brava-
mente“.
Til Repps, hann var ei heima. Hitt
Hjaltalín. ** Bágt er með Dani og
nú aumka ég þá. Pólen er i upp-
reisn og mun nú sigra. Með Bensa
til Mjóna. Þar hittum við Grím.
Hann hélt um of með Dönum.
Ofaná Tollbúð. Til Meza, vel lá á
þeim. Til Jóns Sigurðssonar kl. 8.
Þar kom Brynjólfur Pétursson.
Heim kl. 12 og góðar nætur kl. 12
1/2.
* Benedikt Gröndal
** Jón Hjaltalín, síðar landlaeknir.
29. mars
Á fætur kl. 10. Sleppt Gram. Set-
ið við útleggingu eftir Bensa úr
Alhambra, eg varð að gjöra hana
alla upp aftur. Borðað kl. 3. Til
Meza, en æ! hann var farinn og
hafði farið í morgun, mér þótti
verst að geta ei kvatt hann al-
mennilega, en ég vona að honum
gangi allt vel. Það er ónotalegt, ég
vil endilega að Þjóðverjar vinni og
losni við þessa vesælu Danmörk,
en ég vil líka að Meza takist allt
vel, en það má reyndar vel fara
samari.
Ofan á Löngulínu með Jónasi og
Stefáni, hittum Hjaltalín og sýndi
hann oss greinilega fallbyssurnar
og holhnettina. Til Mjóna. Kom
Bensi. Fórum upp til Möllers,
hann var ei búinn. Heim og skrif-
aði Bensa upp, útlegginguna úr
Alhambra, en eg lagði út The
Whistle. Góðar nætur kl. 11 1/2.
30. mars
Á fætur kl. 9. Uppá háskóla, en
Krieger las ei. Til Konráðs, en
hann var ei heima. Skrifaði at-
hugagreinar um útlegginguna úr
Alhambra; fært Möller handrit. Til
Mjóna. Til Hösts. Tekið próförk
hjá Möller. Leiðrétt hana. Borðað
kl. 3. Til Konráðs.* Verið þar til kl.
Brynjúlfs-
son og
stríðið
vegna her-
toga-
dæmanna
1848
7 1/2. Heim og verið að leiðrétta
próförkina til kl. 12 1/2. Nú er
Lombardi f uppreisn, vel fer það.
Góðar nætur.
*Konráð Gíslason.
31. mars
Á fætur kl. 8. Fært Möller próf-
örkina. Uppá háskóla en Krieger
er farinn burt leyniferð. Til Mjóna,
hitt Konráð þar og gengum oná
Tollbúð. Eg sá dátahóp ganga og
datt mér í hug Napóleon, hann
vantar illa nú; með gömlu dátun-
um sínum hefði hann getað tvístr-
að öllu. Heim. Slæpst útí garði að
hlýða á flugufregnir. Eg er hrædd-
ur um uppreistarmennina, en
aldrei skal eg kalla prinsinn af
Nör* fant eða þræl, eins og Danir,
eg sá í dag mynd hans, hún er
þrekleg og kænleg. Heyrt Gram
frá 1-2.
Nú ætla Sæmundur og Jón Þórð-
arson til Slésvíkur að berjast, guð
fylgi þeim, en eg hef annað að
gjöra. Hreinskrifað ögn af Aftan-
inn á íslandi. Borðað kl. 3. Heim;
útá Löngulínu og Kastalavegg
með Bensa. Sáum herbáta legja af
stað. Þeir eru góð skip. Til Mjóna.
Hitt Brynjólf Pétursson. Feneyjar
eru fríríki, nú ætti Byron að lifa:
„Oh! Venice! Venice! The name of
commonwealth" etc., en hann dó
of snemma.
Það fallegasta sem ég hef nýlega
lesið var þó bréf Abd-el-Kaders til
frakknesku stjórnarinnar í Journ-
al des débats. Aumingja Abd-el-
Kader, eilíf skömm sé Frökkum ef
þeir ei láta hann lausan. Ráfað;
farið til Möllers að skoða korrek-
túru. Heim kl. 9. Hreinskrifað og
ort ögn af Aftaninn á íslandi. Góð-
ar nætur kl. 11 1/2.
•Leiötogi bráðabirgðastjómar
hertogadæmanna.
1. apríl
Á fætur kl. rúmlega 11. Til Möll-
ers og sótt próförkina. Heyrt
Gram frá 12-1. Látið raka mig. Til
Mjóna. Þar sá eg í Modenzeitung
að út kæmu bráðum dagbækur
Byrons í Ravenna og mörg bréf
eftir hann. Það þykir mér gaman
að sjá. Borðað kl. 3. Með mömmu
heim á Garð. í búð; fylgt henni
heim. Með Eiríki til Mjóna; hann
sagði að eitthvað væri „viðunan-
lega“ skrifað, það orð er ágætt og á
öldungis við ensk rit, t.a.m. sögur
Valtara, menn geta alltaf unað við
þær, svo eru þær fullnægjandi.
Inní Englahöll að leita Repps og
heim til hans, en fundum ei. Heim
kl. 9. Blaðað í tilraunum Frank-
líns. Góðar nætur kl. 10.
2. apríl sunnudag
Á fætur kl. 10, því eg var að blaða
í Sunnanpóstinum heitnum og
eins í morgun; aldrei hef eg séð
vitlausari bók, hann talar rétt eins
og Rússakeisari nú. Til Repps og
með þeim í enska kirkju eða kap-
ellu; mjög var þar hátignarlegt og
öðruvísi en hér er í dönskum
kirkjum; þeir þuldu bænir eins og
skriftaganginn á íslandi etc.; það
er illt að ísland skuli líka vera far-
ið að danskast í trú. Með Repp til