Tíminn - 26.07.1991, Blaðsíða 3
Föstudagur 26. júlí 1991
Tlminn 3
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Dana, fundaði með kollega sínum á (slandi í gær:
Lýsti yfir stuöningi
viö kröfur íslendinga
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Dana, lýstí yfir fullum stuðn-
ingi við kröfur íslendinga um tollfijálsan aðgang fyrir físk að mörkuð-
um Evrópubandalagsins, á fundi með Jóni Baldvin Hannibalssyni utan-
ríkisráðherra í gær. Á blaðamannafundi, sem haldinn var í gær, kom
fram að danski utanríkisráöherrann hefur þegar sent aðalsamninga-
manni Dana í Brussel þessi skUaboð. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sagði á sama fundi að þessi yfirlýsing Danans vægi þungt í
þeirrí erfíðu lotu sem nú væri framundan.
Frá blaðamannafundi Jóns Baldvins og Uffe Ellemann-Jensen í Ráðherrabústaðnum í gær.
Timamynd: Pjetur
Jón Baldvin sagði, að á þessum
fundi með danska utanríkisráð-
herranum hefði komið í ljós að
upplýsingar, sem hann hefði feng-
ið í Brussel fyrr í vikunni um að
það væru aðallega nokkrar Norð-
ur- Evrópuþjóðir í EB sem stæðu
gegn þessum kröfum íslendinga,
væru beinlínis rangar. Samkvæmt
þeim upplýsingum voru það Danir,
Bretar, Frakkar og írar, en ekki
Spánverjar, sem harðast stóðu
gegn þessum kröfum íslendinga.
Uffe Ellemann-Jensen hefði tekið
það skýrt fram að Danir styddu
þessar kröfur íslendinga og skildu
sérstöðu þeirra, og það sem meira
væri, hann hefði sent aðalsamn-
ingamanni þeirra í Brussel þau
skilaboð.
Jón Baldvin sagði að þessar við-
ræður hefðu verið mjög gagnlegar.
Hann sagði að hann væri enn
þeirrar skoðunar eftir þennan fund
að ef samningar tækjust ekki fyrir
mánaðamótin, þá væru samningar
um EES úr sögunni. Hann sagði
að þrátt fyrir að tíminn væri
naumur þá væri tæknilega mögu-
legt að ljúka þessum samningum á
þessum tíma. Það væru nokkur
vandamál óleyst, en spurningin
væri hvort pólitískur vilji væri enn
fyrir hendi. Það kæmi í ljós á
mánudaginn, þegar ráðherrar EB
funduðu, og þá yrðu málin leyst á
pólitískum grundvelli.
Uffe Ellemann-Jensen sagði á
fundinum að Danir hefðu alltaf
verið á móti því að EB fengi að-
gang að fiskimiðum íslendinga í
staðinn fyrir tollfrjálsan aðgang ís-
lendinga að mörkuðum EB. Hann
sagði að íslendingar hefðu sér-
stöðu umfram aðrar EFTA-þjóðir
og staða íslendinga væri ekki sam-
bærileg við stöðu annarra EFTA-
þjóða.
Danski utanríkisráðherrann
sagði að hann teldi að það myndi
styrkja Evrópubandalagið ef öll
Norðurlöndin yrðu aðilar að því og
sagðist hann vonast til þess að ís-
lendingar yrðu einhvern tímann
aðilar. Jón Baldvin Hannibalsson
sagði þá að hann teldi að hvorki
núverandi ríkisstjórn á fslandi né
aðrar myndu sækja um aðild að
bandalaginu á þessari öld, meðan
stefna þess í fiskveiðimálum væri
óbreytt.
Ráðherrarnir ræddu fleira en
EES-samninga. M.a. ræddu þeir
um ástandið í Sovétríkjunum og
hvernig megi viðhalda þrýstingi á
stjórnvöld þar að því er varðar þró-
un í lýðræðisátt. Einnig bar vam-
arsamstarf innan NATO á góma,
svo og afnám viðskiptahafta á Suð-
ur- Afríku. Fram kom hjá Jóni
Baldvin að hann hyggst næsta
haust beita sér fyrir afnámi laga, er
kveða á um viðskiptahömlur á
Suður-Afríku.
Fundur Jóns Baldvins og Uffe
Ellemann-Jensen fór fram fyrir há-
degi í gær. Síðar um daginn hitti
Jón Baldvin að máli Cherard Coll-
ins, utanríkisráðherra írlands, og
eftir það funduðu utanríkisráð-
herrarnir með Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra. Umræðuefni fund-
anna var staðan og horfur í samn-
ingum um Evrópskt efhahags-
svæði.
—SE
Veðurstofan og bandarískir vísindamenn stunda:
Rannsóknir á mengun
við Vestmannaeyjar
Veðurstofan og bandarískir vísindamenn hófu nýlega mælingar á
brennisteinsmengun andrúmslofts á Stórhöfða í Vestmanneyjum.
Þetta er mengun sem m.a. hefur valdið svokölluðu súru regni.
21% TRYGGING-
ARAUKI TIL
LÍFEYRISÞEGA
Að sögn Flosa Sigurðssonar, yfir-
deildarstjóri hjá Veðurstofu íslands,
er aðallega verið að mæla brenni-
steinsmengun og hversu mikið af
henni kynni að vera komið frá Norð-
ur-Ameríku.
Hann segir að hluti mengunarinn-
ar berist frá Evrópu, en talsverður
hluti sé ættaður frá Bandaríkjun-
um.
Flosi segir að brennisteinsmeng-
unin sé af mannavöldum og valdi
svokölluðu súru regni og marghátt-
uðu mengunartjóni. Hann segir því
gildi rannsóknanna felast í því að
skoða hversu víðfeðm mengunin sé.
Flosi segir að rannsóknin fari
þannig fram að mikið loftmagn sé
dregið í gegnum síupappír, því hlut-
fallslega sé lítið af efnunum í and-
rúmsloftinu. Hann álítur að með því
sé einnig hægt að greina önnur
mengunarefni eins og þungmálma.
Flosi bætir við að ekkert sé komið í
ljós ennþá, þar sem rannsóknin sé
nýlega hafin. Hann getur og þess að
ótímasett sé hvenær henni ljúki og
geti hún þess vegna staðið yfir fram
á vetur. Hann segir að þá verði gögn
send til Bandaríkjanna til efnagrein-
ingar.
FIosi segir að svona mælingar hafi
verið gerðar áður hér á landi. Þá má
og geta þess að hér á landi er rekin
sérstök mengunarstöð á frafossi.
Þar hafa verið tekin sýni frá árinu
1980.
í máli Flosa kemur fram að von sé
á fleiri vísindamönnum næsta vetur.
Þar verða á ferðinni Evrópumenn
sem hafa áhuga á svipuðum rann-
sóknum, en þar inn í segir Flosi þá
ætla að mæla ósonlagið hér við land.
Flosi gat þess að lokum að ekkert
benti til að ósonlagið hér við land
væri að þynnast. -HÞ
Nú í ágúst, þegar bætur almanna-
trygginga verða greiddar út, munu
lífeyrisþegar með tekjutryggingu fá
uppbót. Þessi uppbót er í samræmi
við kjarasamninga á vinnumarkaði
um greiðslur orlofsuppbótar.
Fulla uppbót, kr. 7371, fá þeir sem
hafa óskerta tekjutryggingu, heimil-
isuppbót og sérstaka heimilisupp-
bót. Tekjutryggingaraukinn skerðist
svo í sama hlutfalli og þessir bóta-
flokkar hjá lífeyrisþega. Þeir, sem
njóta ekki tekjutryggingar, fá því
enga uppbót.
A greiðsluseðli mun þessi uppbót
ekki koma sérstaklega fram, heldur
verður hún lögð við upphæð hvers
þessara þriggja bótaflokka.
Hvað verður
um alþjóðlegu
kvennaráð-
stefnuna?
Er kvenfrelsiskonan Betty Friedan
kom tíl íslands á sínum tíma, var
ákveðið að stefna að því að halda al-
þjóðlega kvennaráðstefnu í Reykja-
vík árið 1991.
Guðrún Agnarsdóttir, fyrrverandi
alþingismaður, hefur starfað að und-
irbúningi ráðstefnunnar. Á dögun-
um var hún stödd í Bandaríkjunum
til þess að ræða málin. Heyrst hefur
að af ráðstefnunni geti ekki orðið,
sökum fjárskorts.
Guðrún segir í samtali við Tímann,
að endanleg ákvörðun um ráðstefn-
una verði tekin í næstu viku, en
samstarfskonur hennar hafa verið í
sumarfríi. -js
Verðkönnun Verðlagsstofnunar á ís:
200% verðmunur á dýrasta
og ódýrasta barnaisnum
Um miðjan júKmánuð gerði Verð- 150 kr. (200% verðmunur). að geta að nokkrar verslanir hafa
lagsstofnun verðkönnun á ís. Verð Minnsta box af fs kostar 100-175 lækkað verð á sinni vöru á þessu
var kannað þjá rúmlega 40 fsbúð- kr. (75% verðmunur). Mjólkur- tímabili. í verðkönnun Verðlags-
um og sjoppum á höfuðborgar- hristingur kostar 140-290 kt stofnunar á ís er Utið fram þjá
svæðlnu. (107% verðmunur). hugsanlegum gæðamun.
MikiII verðmunur er á fs á mllH Meðalverð á ís í brauðformi hefur íssel, Rangárseli 2, var oftast með
verslana. Sem dæmi má nefna að hækkað um 7%, bamaís um 2%, lægsta verð eða í fimm tílvikum af
ís í brauðformi án dýfu kostar 90- ís í litlu boxi um 9% og mjólkur- sjö, en Staldríð, Stekkjarbakka 2,
200 kr. (122% verðmunur). Sams hristingur um 7%, á tfmabilinu var oftast með hæsta verð eða í
konar bamaís án dýfu kostar 50- júlí 1989 til júlí 1991. Þess ber þó fjórum tihikum af sjö. -js