Tíminn - 27.07.1991, Blaðsíða 10

Tíminn - 27.07.1991, Blaðsíða 10
HELGIN Laugardagur 27. júlí 1991 18 TIMANS ATLI MAGNÚSSON: „System til að seðja Það er ekki oft sem almennileg ritdeila eftir „gamla stfl“ sést á síðum dagblaða núorðið, en þó hafa menn að undanförnu orðið vitni að einni slíkri, þar sem Bjöm Bjamason alþingismaður sækir að Áran ritstjóra Berg- mann og hermir upp á hann að því fari fjarri að hann hafi svarið af sér kommúnismann, svo gagn sé að. Björn greiðir þung högg er riðið hefðu mörgum ófimari að fullu, en Árni víkst kænlega undan, smýgur veggi og jarðholur og birtist á æ nýj- um stað, ýmist fyrir framan eða aftan ofsóknarmann sinn og hefur upp æ ný gagnrök, sem spretta fram með sama hraða og undursamlegheitum og popp- korn í potti. Er nú eftir að sjá hve lengi deiluaðilum endist ör- endið. Björn virðist ekki ætla að láta sér minna nægja en að Árni springi á hlaupunum með hug- sjónina, eins og Sörli undan Skúla gamla. En óvíst er að það muni verða. Annars er mergurinn málsins líklega sá að líkt og margur gamall sósíalisti áskilur Ámi sér að halda kommóðu sinni og rúmfötunum eftir, er þeir nú hafa séð á eftir svo mörgu í gjaldþrotshítina. Það er eigin- lega ekki svo ósanngjörn krafa. Menn standa sem sé á því fastar en fótunum að nokkuð hafi nú verið til í þessu öllu saman, a.m.k. í grunninum og ekki var Karl Marx neinn meðaljón. Ekki er fram á mikið farið þótt menn séu látnir í friði með þetta, enda í sjálfu sér allt satt. Spurningin er bara sú hvort sósíaldemó- kratar hafi ekki fyrir löngu verið búnir að matreiða það úr fræð- unum sem nýtilegt var og al- þýða manna vildi sporðrenna? Ólöngun hafði hún að eta skammtinn allan, varla þýðir að deila um það lengur. Og það er satt að snjöll hugsun hefur það verið er bar uppi kerfi Marx, þótt sá kolakrani sem menn reistu í anda þess í Sovétríkjun- um vildi ómögulega haggast og gera tilætlað gagn. Annars má vel vera að eitthvað ámóta syst- em og kommúnisminn hefði hlaupið af stokkunum upp úr iðnbyltingunni, þótt enginn Marx hefði komið til og mann- kynið ratað sína slysaslóð án hans. Tolstoj hafði þá skoðun að hvorki stórmenni né teóríur skiptu neinu meginmáli í sög- unni, heldur grúi af einstakling- um sem höfðu ekki minnstu hugmynd um hvað þeir voru að gera. Líti menn á málin eins og Tolstoj þýðir ekkert að vera að agnúast út í þá Marx og Áma. Allir menn fálma þá eiginlega í myrkri og þetta er íhugunarvert sjónarmið, þótt einhverjum þyki það máske ekki aðlaðandi. Nú er boðuð trú á markaði og frelsi markaðsaflanna. Það er líka system, þótt það sé ólíkt kommúnismanum. Sumir segja að það sé ekki system heldur bara óskorað „frelsi", en því ætti nú að taka með hæfilegum fyr- irvara. í því felst fyrirheit um einhverskonar framtíðarríki og enn býr það að tiltölulegu „syndleysi". Eitthvað er þetta nú ónotalega kunnuglegt. í nýja ríkinu á „átómatískt" að verða til hin mesta mögulega ham- ingja fyrir alla. Hún átti líka að koma „átómatískt“ hjá komm- únistum. Ekki er ósanngjarnt þótt spurt sé hvern fj... maður vilji þá? Það verður fátt um svör. Á Þjóðvilj- anum gáfu þeir þó óbeina bend- ingu fyrir nokkrum árum er blaðið tók að helga sig kirkju- legum málefnum af slíkum þrótti að sérstök viðurkenning- arorð voru látin falla um það uppi á Biskupsstofu. Það fer fleirum svo en séra Sigvalda að um síðir er best að biðja Guð að hjálpa sér. V A. \ Gettu nú Dynkur heitir hann, fossinn í Þjórsá meö „hávaðasama" nafninu, sem við leituðum eftir hér síðast hvort menn þekktu. Við erum stödd í Strandasýslu. Þar er byggð óvíða fjölmenn, en margir fagrir staðir og stöku byggðakjarn- ar. Hér er einn þeirrra. Hver er hann? 1 c: r 15 2 iT) o- X ■ oV O' 0 :*r z. 0 Tn rai m KROSSGATA rznvA- gíLL HlJoP Ettíhl SKT?ir- WVRI QHnúB •JHMÚ ve;na LflNPI KfíT skinN 0>?) £ KKI R£ií>f!7 T?OÐ 50 KoNA S£LU KLflMPfl HfiMN FLUfí/j LI íV 'RoÐ ÓVTRT KídML) UÚLL 'T”VflPK- <A Í1AT —T-- KD£> yn* - GOÐJV WJW 1 i 7 ~5 flTT klstt K/ILT Hftii rtsri BÚJJ - BLOM- sms 7 FíSKUR -r/w/?- Kin- io OHOTíID 'fTíTÁL Bimb £ K KI VIUJ - AUPI LVFTfl S ToSÚ MUR- BRDT S£X ÖNN LLlWLfl u 30R FI5K UOTA J-ASGIR TÓNN Kowr/ísr MYKJfl ’DY'R STflF- UH rœm i5:r \o LfiUU VTFUlTB VfiKfl 1Z SflU \! LÆ MúL nKflPr mm SKYl® VfNJU KW mjuk 11 ST/inJR FRI-D SEM MILD 3R mw L£ST /3 e STUls D - 0RI HH iH foRS, TUdT H 15 M/ILGfl VfiuG- URlblhl KUGL m 15 WWWSWSWSSSS A.( A A.< < <<<<X <X << < < <X < t< « «’t <

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.