Tíminn - 27.07.1991, Page 12

Tíminn - 27.07.1991, Page 12
HELGIN Laugardagur 27. júlí 1991 20 Hornstr$ndir, Jökulfirð- irnir og Isafjarðardjúp Vestfírðimir hafa nokkra sérstöðu hérlendis sem ferðamannastaður, því að ekki eru nema nokkur ár síð- an fólk uppgötvaði að þar er margt áhugavert að skoða og nóg hægt að gera sér til ánægju og yndisauka. Sverrir Hestnes hjá Djúpbátnum á ísafirði sagði í samtali við Tímann að ferðamenn legðu í sívaxandi mæli leið sína til Vestfjarða og loks væru Vestfirðingar að komast inn á kortið. Sverrir segir möguleikana til úti- veru og náttúruskoðunar vera óþrjótandi. Margt er að skoða á Vest- fjörðum og fólk þarf ekki að leita langt yfir skammt til að sjá áhuga- verða hluti. Á Vestfjörðum er náttúran víða hrikaleg, há fjöll, langir firðir og djúpir dalir. Hornstrandimar eru óvefengjan- lega ein af náttúruperlum íslands og er náttúrufegurðin þar ógleymanleg hverjum sem þangað kemur. Ferðaskrifstofa Vestfjarða, Ferðafé- Iag íslands og Útivist em einu aðil- amir sem em með skipulagðar ferð- CLAAS RÚLLUBINDIVÉLAEIGENDUR Eigum til á lager flestar gerðir af rúlluvölsum í CLAAS rúllubindivélar. Vélsmiðja Jóns Bergssonar s.f. Borgartúni 27. Sími 91-22120 — Eftir kl. 17 91- 42781 og 91-44813. Úr Hornvík á Hornströndum. Feguröin á Hornströndum er rómuð og hefur lengi laðað til sín ferðamenn. Vestfirðir ir til Homstranda, og þá er farið í fylgd með leiðsögumanni. Ef farið er á eigin vegum er hægt að fara með Fagranesinu alla leið í Hom. Fagra- nesið siglir þangað tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum. Sverrir Hestnes sagði að hægt væri að fara af bátnum í Aðalvík á fjómm stöðum: Sæbóli eða Látmm, í Fljóta- vík, Hlöðuvík og loks í Homvík. Hann sagði að mjög vinsælt væri að fara á fimmtudegi og koma til baka á mánudegi. Betra er að panta með fyrirvara og láta vita um ferðir sínar. Sverrir hafði orð á því að ef farið væri í ferðalag til Homstranda, væri nauðsynlegt að hafa góðan viðlegu- búnað, góð föt og nesti, því að þjón- usta er engin. Gott væri að hafa t.d. JKtgHih-s <$> NORSKA LINAN hnjcljlml Skútuvogi 104 Reykjavík, sími 91-689(0), Jón Kggertsson símar 985-2:5885 92-12775 bækistöð í Homvík og fara í dags gönguferðir út frá bækistöð sinni. Á föstudögum er hægt að komast í Gmnnuvík eða Hesteyri með Fagra- nesinu. Þó er betra að láta vita með fyrirvara. Annars fer ferjan alltaf í Aðalvík á föstudögum. Þessar ferðir hefjast alltaf kl. 14:00 og er farið frá ísafjarðarhöfn. Að sögn Sverris er farið nokkuð víða um ísafjarðardjúpið á þriðjudögum. Það er adltaf komið við í Vigur, Æðey, Bæjum og Melgraseyri og stundum í Reykjanesi. í þessum ferðum er hægt að hafa bfla, með því að Fagra- nesið getur tekið allt að 5 bfla í ferð. Aðrar ferðir em með Eyjalín. Það er nýr bátur og tekur 22 farþega. Fimm daga vikunnar er farið í skoðunar- ferðir um ísafjarðardjúp. Komið er við í Vigur, farið í land og skoðað. Loks er boðið upp á veitingar heima í Vigurbæ. Svo fer Eyjalín 4 sinnum í viku í Jökulfirðina. Komið er í land á Hest- eyri og víðar. Ef fólk vill er hægt að fara í Hrafnsfjörð og Veiðileysufjörð. Þaðan er hægt að ganga yfir í Áðal- vík. Með því móti fæst bæði hluti af Ströndum og Jökulfjörðum í sama túr. Þetta er það sem snýr að sjónum. Ferðaskrifstofa Vestfjarða er með daglegar skoðunarferðir með bfl. Farþegamir eru sóttir út á flugvöll, keyrt er um ísafjörð og bærinn skoð- aður. Þar em m.a. elstu hús á íslandi og er sjóminjasafnið í einu þeirra. Það er nýlega endurbyggt og hefur heppnast skínandi vel. Siðan er farið til Bolungarvíkur. í Ósvörinni er ver- búð eins og þær vom fyrir 70-80 ár- um og er hún skoðuð. Hægt er að keyra upp á Bolafjall og ef veður er gott er frábært útsýni þaðan yfir Jök- ulfirðina og allt Djúpið. Með Flugfélaginu Emir er mögu- leiki á að fara í póstferðir. Það er fremur ódýrt útsýnisflug um Vest- fjarðakjálkann. Lent er í Holti í ön- undarfirði, Þingeyri og Bfldudal. „Útlendingamir em eiginlega uppi í skýjunum þegar þeir em lentir, sama þó að veður sé fúlt og það sé skýjað,“ segir Sverrir. Á ísafirði er gott hótel, með af- bragðsgóðum mat og fyrsta flokks þjónustu. í menntaskólanum er starfrækt Edduhótel yfir sumartím- ann, en við hlið menntaskólans em tjaldstæði. Inni í TUngudal em einnig tjald- stæði, svo og inni í Skógi. Vestfjarðaleið er með reglubundn- ar ferðir á Látrabjarg á sunnudögum og þriðjudögum og em ferir til baka daginn eftir. Á laugardögum er farið frá ísafirði til Hólmavíkur og em þær ferðir allt- af í tengslum við Breiðafjarðarferj- una. Vestfjarðaleið býður að auki upp á helgarferðir um Vestfirði. Ekið er í Bjarkarlund og gist þar og kom- ið til baka á laugardegi til ísafjarðar. Á ísafirði og í Bolungarvík em sund- laugar. Inni í Djúpi, á Melgraseyri er hestaleiga og í Tungudal er golfvöll- ur. Það er því af nógu að taka ef fólk hyggur á ferð til Vestfjarða. -sis VÖRUHÚS KÁ Selfossi ALLAR VÖRUR Á EINUM STAÐ Opið: Mánudaga-fímmtudaga kl. 9-18.00. Föstudaga kl. 9-19.00. Laugardaga kl. 10-13.00. STÓRMARKAÐUR Á RÉTTUM STAÐ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.