Tíminn - 30.07.1991, Blaðsíða 4
4Tíminn
Þriðjudagur 30. júlí 1991
Friðarráðstefna um deilur ísraelsmanna og araba:
Shamir gefur ekkert eftir
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, sagðist í gær vonast til að
hægt væri að ryðja öllum hindrunum friðarráðstefnu araba og ísra-
elsmanna úr vegi, í kjölfar væntanlegrar heimsóknar James Bakers,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til ísraels nú síðar í vikunni. En
hann útilokaði enn samningaviðræður við Palestínumenn frá Aust-
ur-Jerúsalem og fulltrúa Frelsissamtaka Palestínu (PLO). Mikill
ágreiningur er um það hveijir eigi að vera málsvarar Palestínu-
manna á fríðarráðstefnunni og lausn hans skiptir sköpum um hvort
af ráðstefnunni verður eða ekki. ísraelsmenn vilja að Palestínu-
menn verði hluti af jórdönsku sendinefndinni.
„Við getum engan veginn veitt til- í gær. En forsætisráðherrann, sem
slakanir í þessu máli,“ sagði Shamir vill fyrir alla muni gera araba að
Moskva:
Leiðtogafundur*
inn hefst í dag
Leiðtogafundur þeirra Mikhails
Gorbatsjovs Sovétforseta og George
Bush Bandaríkjaforseta hefst í
Moskvu í dag og stendur í tvo daga.
Þetta verður sjötti fundur þeirra
Bush og Gorbatsjovs og sá fyrsti
eftir að kalda stríðinu lauk.
Tilefni fundarins er undirritun af-
vopnunarsamnings um fækkun
langdrægra kjarnorkuvopna um
30% (START) en viöræður um hann
hafa staðið í tæpan áratug og er
þetta fyrsti samningur þessarar teg-
undar sem risaveldin gera með sér.
Forsetarnir leystu síðasta ágrein-
ingsatriðið um samninginn þegar
þeir hittust í Lundúnum fyrr í þess-
um mánuði og síðan hafa embættis-
menn risaveldanna unnið hörðum
höndum við að ganga frá samningn-
um og luku því verki ekki fyrr en í
gær.
En efnahagsástandið í Sovétríkjun-
um og áætlun Gorbatsjovs um
breytingar á efnahagskerfmu munu
eflaust verða aðalumræðuefni fund-
arins. Bandaríkjamenn hafa ákveðið
að aflétta viðskiptaþvingunum sem
verið hafa á Sovétríkjunum og gera
við þau svokallaðan bestukjara-
samning sem veitir Sovétmönnum
betri aðgang að bandarískum mörk-
uðum fyrir iðnaðarvörur sínar. Sov-
étmenn hafa nýlega slakað á reglun-
um um flóttamenn sem var aðalfor-
senda viðskiptaþvingana Banda-
ríkjamanna á Sovétríkin.
Embættismenn í Bandaríkjunum
hafa sagt að Bush vilji gera bestu-
kjarasamning milli landanna nú
m.a. til að kveða niður þær raddir í
Sovétríkjunum sem segja að ferð
Gorbatsjovs til Lundúna hafi borið
lítinn árangur.
James Baker og Alexander Bessm-
ertnykh, utanríkisráðherrar land-
anna, ræddust við í gær til að undir-
búa fund leiðtoganna. Reuter-SÞJ
blórabögglum ef ekki tekst að halda
friðarráðstefnuna, gaf enn í skyn að
ísraelsmenn vildu ganga til við-
ræðna við araba. „Ef Baker kemur
til ísraels getum við eytt þeim
ágreiningi sem kemur í veg fyrir
ráðstefnuna," sagði Shamir. Hann
sagði að ísraelsmenn vildu heyra
skoðanir Bakers á því hverjir ættu
að vera málsvarar Palestínumanna
og ef þeir gætu fallist á þær væri
hægt að halda friðarráðstefnu fljót-
lega.
Shamir gat ekki staðfest hvort
Baker kæmi til ísraels eða ekki en
utanríkisráðherra ísraels, David
Levy, sagði að svo væri áður en
hann flaug til Egyptalands í gær til
viðræðna við Hosni Mubarak, for-
seta landsins. Baker myndi þá fara
beint af leiðtogafúndi Gorbatsjovs
Sovétforseta og Bush Bandaríkja-
forseta í Moskvu en þar ræða þeir
m.a. um friðarráðstefnuna. Bush
hafði vonast eftir svari frá ísraels-
mönnum um friðartillögur Banda-
ríkjamanna fyrir fundinn í Moskvu
en það vilja þeir ekki gefa fyrr en
ljóst er hverjir eigi að vera fulltrúar
Palestínumanna.
Leiðtogar Palestínumanna saka
ísraelsmenn um að koma í veg fyrir
ráðstefnuna. Hanan Ashrawi, sem
var í hópi þeirra Palestínumanna frá
Austur-Jerúsalem sem hitti Baker í
síðustu viku, hvatti Baker til að
þrýsta á ísraelsmenn og sagðist vera
orðin þreytt á árangurslausum
fundum með honum. Reuter-SÞJ
A.m.k. 45 menn létust í átökunum í Króatíu um helgina.
Eldur í Maxím Gorkí:
Eftirlitsmönnum Evrópubandalagsins í Júgóslavíu fjölgað í 150:
3 DEYJA UR
REYKEITRUN
Þrír áhafnarmeðlimir sovéska
farþegaskipsins Maxím Gorkís
létust úr reykeitrun eftir að eld-
ur kom upp í einum klefa skíps-
ins síðasta fostudag. Að sögn
umboðsmanns skipsins í Noregi
eru skemmdir mjög litlar og
heldur skipiö áætlun. Atvildð
átti sér stað skammt frá Sval-
barða en á svipuðum slóðum
fyrír um tveimur árum rakst
skipið á ísjaka og skemmdist
mihdð. Þá var allrí áhöfn og far-
þegum bjargað en faríð var með
skipið til Þýskalands þar sem
gert var við skemmdimar. Skip-
ið er tæplega 25 þúsund tonn að
stærð og eru nú um eitt þúsund
manns um borð, þar af um sex
hundruð farþegar.
Maxím Gorkí hefur oft komið til
íslands á undanförnum árum og
nokkrum sinnum í sumar. Sam-
kvæmt áætlun mun það koma til
Vestmannaeyja 7. ágúst en þann
8. til Reykjavíkur. Margir íslend-
ingar hafa siglt með skipinu en
að sögn formælanda Atlantik-
ferðaskrifstofunnar, sem er um-
boðsaðili fyrir skipið hér á landi,
eru engir íslendingar með skip-
inu núna. Reuter-SÞJ
Þrír ráðherrar
EB til landsins
Utanríkisráðherrar EB samþykktu í
gær í samráði við leiðtoga Júgóslav-
íu að senda þrjá utanríkisráðherra
og einn fulltrúa úr framkvæmda-
stjóm bandalagsins til Júgóslavíu
til að reyna að stilla til friðar og
einnig að fjölga friðareftiriitsmönn-
um bandalagsins í landinu úr 50 í
150. Tugir manna féUu í átökum
sambandshersins, króatískra varð-
liða og serbneska minnihlutans í
Króatíu um helgina og virðast átök-
in fara stöðugt harðnandi.
„Það sem skiptir mestu máli er að
stöðva átökin," sagði Hans van den
Broek, utanríkisráðherra Hollands,
að loknum fundi utanríkisráðherr-
anna með Ieiðtogum Júgóslavíu.
Hann sagði að samþykkt hefði verið
að víkka út hlutverk eftirlitsmanna
bandalagsins í Júgóslavíu þannig að
þeir munu láta sig átökin í Króatíu
skipta en ekki eingöngu fylgjast með
að vopnahléið í Slóveníu sé haldið.
Hann sagði að eftirlitsmönnunum
yrði líklega fjölgað úr 50 í 150. Utan-
ríkisráðherrarnir verða frá Lúxem-
borg, Portúgal og Hollandi og munu
þeir fara til Júgóslavíu áður en vikan
er liðin og reyna að sætta stríðandi
öfl í landinu. Þá var einnig ákveðið
að ef og þá þegar stríðandi fylkingar
hafa sest að samningaborðinu að
endurskoða þá ákvörðun bandalags-
ins að hætta allri efnahagsaðstoð við
Júgóslavíu.
Átökin í Króatíu fara sífellt harðn-
andi og um síðustu helgi féllu a.m.k.
45 menn. Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
Jóhannesarborg - F.W. de
Klerk, forseti Suður-Afrfku, raaddi
( gær við öryggisráðgjafa sfna
um hvemíg hann ætti að bregð-
ast við hneykslismálinu varðandi
grelöslur rfklssfjómarlnnar til
Inkata- frelslsflokksina, en mállð
ógnar nú samningaviðræðum
rfkisstjómarínnar vlð Wökku-
menn um framtiö landsins. De
KJerk hefur sagt að hann munl
gefa út yfirfýslngu um máilð I
dag.
Kolómbó ~ Forniadandi stjómar-
horsins á Sri Lanka sagði (gaer að
60 aösfdnaðareinnar tamða hafl
falliö og 30 hemrtenn særet á
sunnudag I hörðustu bardögum
þessara aðila frá upphafi tfu ára
átaka. Hann sagði að 150 aðskiirv
aöarsinnar og 7 hermenn hafi fallið
á laugardag, og alls hafa þá 1.170
aðskllnaðarelnnar og 143hermerui
falliö frá því bardagamlr hófusi
Bardagamir hófust 10. júlf pogar
aðskilnaðareínnar umkríngdu ein-
ar af búðtmt stjómarhereins á eyj-
unni. Um átta hundruð hermenn
voru I búðunum og hafa stjómvöld
sent aöstoðariið tB búðanna.
Búkarest - Að minnsta kostí
65 menn drukknuðu ( miklum
rfgnfngafióðum f sautján þorp-
um f suðausturhluta Rúmenfu
selnt á sunnudagskvöld. Tuga
manna er saknað. Rúmlega
fimm hundnið hús skofuðust
burt og fimmtán hundruð
skemmdust Að sögn Petre
Romas, foreætisráðherra lands-
Ins, I gær hafa hermenn veríö
sendir á vettvang tll að koma f
veg fyrir frekari slys og bjarga
þvi sem bjargað verður.
Peking - Flóðin í Kfna, sem hafa
orðið tæplega tvö þúsund manns
að bana og valdið hátt f fimm
hundruð mflijaröa króna tjóni,
eru nú óðum að sjatna. Að sögn
fréttastofnunar Nýja Kfna f gær
eru flóðin komin undir hættu-
mörfc f Jiangsu-héraðinu, sem er f
austurhluta iandsins en þaö hér-
að varð einna veret úti f flóðunum
ásamt Anhui-héraðinu, sem ligg-
ur að Jiangsu. bá sagði kfn-
verska blaðið Peopies’s Daily frá
þvf að vatnsmagnið f Jangtze-
ánnl færl ört mlnnkandi og væri
komiö niöur fyrir hættumörk á
nokkrum stöðum.
Kúveitborg - Ein nefnd kú-
veiska þingsins hefur lagt til við
þlnglð að það taki tU athugunar
hvort ekki sé rétt að veita kon-
um f iandinu kosningarétt Þing-
ið, sem valið var á síðasta árí og
er eingöngu skipað körfum, get-
ur aöeins lagt fram tillögur fyrir
rfkisstjórnina en hefur ekkert
löggjafarvald. Emlrinn f Kúveit,
Shelkh Jaber al-Ahmed al-
Sabah, hefur lofaö hlutverk
kvenna ( andspymunni gegn
fraska hemámsliðinu og hefur
gefiö f skyn að hann muni veita
þeim kosningarétt fyrir kosning-
arnar f október á næsta ári.
Reuter-SÞJ
É . € O