Tíminn - 30.07.1991, Qupperneq 5

Tíminn - 30.07.1991, Qupperneq 5
Þriðjudagur 30. júlf 1991 Tíminn 5 Sjávarútvegsráðherra kynnir tillögur sínar um aflakvóta á næsta kvótaári: Tillaga Þorsteins er 265 þús. t af þorski Á sérstökum aukafundi ríkisstjómarinnar í Ráðherrabú- staðnum í gærkvöldi kynnti Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra tillögur sínar um verulegan samdrátt í heildarafla- kvóta á næsta kvótaári í þorski og sfld en ákvörðun um kvóta þarf að liggja fyrir nú um mánaðamót. Samkvæmt tillögum Þorsteins, sem ekki veröa formlega tilkynntar fyrr en í dag, yrðu heimilaðar veiðar á 265 þúsund tonnum af þorski og 110 þús- und tonn af síld. Þessir heildarkvótar eru nokkru hærri en tillögur Haf- rannsóknastofnunar gera ráð fyrir en stofnunin mælti með í „svörtu skýrsl- unni“, sem svo hefur verið kölluð, að leyfðar yrðu veiðar á 250 þúsund tonnum af þorski og 80 þúsund tonn- um af síld. Sjávarútvegsráðherra er hins vegar mun sparari á kvótann en LÍÚ hafði gert tillögu um en útgerð- Steingrímur St. Th. Sigurðsson opnar sýningu í Eden: jr „ÞESSI SYNING ER PR0FSTEINN“ armenn vildu að heimilaðar yrðu veiðar á 280 þúsund torjnum af þorski og 150 þúsund lestum af sfld, og sögðu þeir að tillögur Hafrannsókna- stofnunar byggja á of mikilli svart- sýni. Þær tillögur sem sjávarútvegsráð- herra hefur nú kynnt fela í sér veru- legt tekjutap fyrir sjávarútveginn og þjóðarbúið í heild en áætlaður þorsk- afli í ár er nálægt 320 þúsund tonnum og síldaraflinn um 100 þúsund tonn. Deila stjórnarflokkanna um sjávarútvegsnefndina að leysast? Tveir menn hefji nefndarstarfið Samkvæmt heimildum Tímans í þingliði stjómarflokkanna eru þeir að komast að samkomulagi um að skipa tvo menn til þess að hefja út- tekt þá sem gera skai á stjóm físk- veiða við landið. Þeirra vinna skal standa fram til áramóta. Þá skal þess enn freistað að ná samkomulagi um skipan sjömannanefndarinnar sem Þorsteinn Pálsson, ásamt fleiri þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins, og Alþýðuflokkurinn hafa deilt um. Það var Davíð Oddsson forsætisráð- herra sem hjó á hnútinn. Hann ræddi málin við þá Þorstein og Jón Baldvin á sérstökum fundum í gær. Þeir stjómarliðar sem Tíminn ræddi við voru sammála um að máiið hafi verið orðið mjög óheppilegt fyrir stjómar- samstarfið, ekki síst vegna þess hvemig deilan var háð. Forsætisráð- herra hafi því verið knúinn til að taka á henni. Jón Baldvin Hannibalsson hafði þá enda leitað formlega eftir lið- sinni hans. Nefndin umdeilda er hluti af heið- ursmannasamkomulagi Davíðs Odds- sonar og Jóns Baldvins Hannibals- sonar frá því í vor. Henni er ætlað að endurskoða lög um stjóm fiskveiða. Þegar átti svo að koma nefndinni saman varð lítið úr samkomulagi. Hana skyldu þó sitja þrír fulltrúar frá hvomm flokki. En þegar Þorsteinn Pálsson hugðist gera Vilhjálm Egils- son, þingmann Sjálfstæðisflokksins, að formanni gripu alþýðuflokksmenn í taumana. Það gerðu þeir aftur þegar Þorsteinn vildi skipa ráðuneytisstióra sinn í sjávarútvegsráðuneytinu, Ama Kolbeinsson, formann. Nú virðist sem þriðja leiðin sé sem sagt fundin, tveir menn hefji úttekina. Ekki náðist í Davíð Oddsson í gær. En málið var rætt á aukafundi ríkis- stjómarinnar í gærkvöldi þar sem kvótamál vom annars til umræðu. í samtali við Útvarpið tók Davíð ekki illa í að þetta yrði einmitt lausnin í fiskveiðinefridarmálinu. Sömu heimildir Tímans og áður er til vitnað segja að Vilhjálmur Egilsson verði fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Össur Skarphéðinsson fulltrúi Al- þýðuflokksins. -SE/-aá. Allharöur árekstur varð laust eftir hádegi á laugardag á vega- mótum Suöurlandsvegar og Biskupstungnabrautar, skammt vest- an við Selfoss. Áreksturinn varð meö þeim hætti að bíll kom niður Biskupstungnabraut og beygði síðan út á Suðurlandsveg til vest- urs, án þess að virða stöðvunarskyldu. Ekki uröu alvarleg slys á fólki, en báðir bílarnir eru mikið skemmdir. - sbs, Selfossi „Þessi sýning er prófsteinn á það hvort ég er verðugur listmálari, sem mála verðugar myndir fyrir verðugt fólk,“ sagði Steingrímur St. Th. Sigurðsson, listmálari, í samtali við Tímann um 71. sýningu sína, sem verður opnuð í Eden í Hvera- gerði í kvöld kl. 21:00. Á sýningunni gefur að líta myndir sem ýmist eru málaðar í vinnustofu hans í Þing- holtunum ellegar í París, þar sem hann dvaldist um skeið. „Þessar myndir eru ýmist sjávarmyndir, fantasíur eða götumyndir frá París." Myndirnar eru af ýmsum stærðum, málaðar með olíulitum eða vatnslit- um. Steingrímur segir þessa sýningu vera hápunkt ferils síns enn sem komið er. Og í myndunum, segir hann, kveður við nýjan tón. „Eg málaði þær undir sterkum áhrifum frá andlegum átökum á miðjum vetri," segir Steingrímur. „Ég náði að sprengja af mér vissa hlekki." Steingrímur segist hafa verið á tímamótum í vetur. Hann verður hugsi og segir svo: „Listamenn eiga að vera í samkeppni við sjálfa sig en ekki aðra, til að ná einhverju marki í sinni grein." Sjálfur segist Stein- grímur vera stéttlaus listamaður. „Ég sýni innan um þjóðarsálina. Alls konar fólk, úr öllum stéttum og af öllum landshlutum. og ennfrem- ur útlendingar, koma til Hveragerð- is, í Eden." Sýningunni lýkur sunnudaginn 11. ágúst kl.23:30. GS. Næturfundir í Brussel þar sem samningamenn EB og EFTA sátu: ENN ÓSAMID UM EES Þegar Tíminn fór í prentun í gær sátu embættismenn EB og EFTA enn á fundum og reyndu að semja um ágreiningsmálin sem standa í vegi fyrir því að upp verði dregið Evrópskt efnahags- svæði. Enn ber mikið í milli og margir eru orðnir svartsýnir á að saman náist fyrir mánaðamótin. Utanríkismálanefnd Alþingis er við öllu búin ef til þarf að taka. Sem fyrr er það fiskurinn sem stendur fastast í mönnum. Samn- ingamenn EB fóru fram á að EFTA félli frá kröfu sinni um al- gera fríverslun með fisk, og að EB ríkjum yrðu jafnframt veittar auknar veiðiheimildir í lögsögu EFTA ríkja, einkum og sér í lagi Noregs. Án þess yrði ekkert af samningum. Norömenn gerðu EB þá sérstakt tilboð. Það virðist ekki hafa farið of vel í menn því utanríkisráð- herra Dana, Uffe Elleman-Jensen, segir Dana eina EB þjóða geta fellt sig við það. Þótt EB ríkin féllust á tilboð Norömanna væri þó einn Þrándur enn í götu. Þau hafa ekki komið sér saman um skiptingu hugsanlegs kvóta sín í millum. Mikið er því órætt í fiskinum. En það er fleira en fiskur á Evr- ópsku efnahagssvæöi. EB krafðist þess í gær að EFTA hækkaði boö sitt um fjárframlög í þróunarsjóð til eflingar fátækari héruðum ÉB. Andriessen, utanríkismálaráð- herra EB, sagði það reyndar skil- yrði þess að samningar næðust. Þriðja deilumálið, um ferðir vöruflutningabifreiða gegnum Alpana, hefur ekki verið rætt í þetta sinn. Menn virðast sammála um að fresta því til betri tíma. Samningamenn EB og EFTA leggja alla áherslu á að ná sam- komulagi fyrir mánaðamótin þeg- ar starfslið EB fer í sumarleyfi. Ef það tekst ekki gætu samningarnir dregist mjög á langinn. Jafnvel eitthvað fram á næsta ár. Utanrík- isráðherra Frakka hvatti reyndar til þess í gær að samningum yrði frestað. Utanríkisráðherra Hol- lendinga sagði hins vegar að ef ekki næðust samningar nú næð- ust þeir aldrei. Hvað sem því líður þykir víst mörgum sem biðin sé nú þegar orðin nógu löng. Ekki náðist í Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra. Hann sat við símann allan daginn ef vera kynni að til tíðinda drægi. -aá. Spennan vex út af EES: Utanríkismálanefnd í viöbragösstöðu í gærmorgun sat utanríkismála- nefnd Alþingis á fundi. Heyrst hefur að þar hafi einkum verið rætt um EES- málið og heræfingar NATO hér á landi. Til marks um þá spennu sem nú ríkir í málum EES var ut- anríkismálanefnd beðin aö vera í viðbragðsstöðu og mæta til fundar með litlum fyrirvara ef til tíðinda drægi. Þá hefur Tíminn frétt að ut- anríkisráöherra sæti viö símann og biði eftir því að vera boðaður á ein- hvers konar símafund. í morgun kl. 8 átti utanríkismála- nefnd að mæta til fundar í síðasta lagi til að ræða tíðindi í EES-við- ræðunum. Þá hefur frést að einnig hafi far- ið fram umræður um heræfingar varnarliösins þessa dagana. Ólaf- ur Ragnar Grímsson hefur krafist fundar í utanríkismálanefnd til að ræða sérstaklega liðsflutninga um landið. Það sem einkum fer fyrir brjóstið á honum eru fyrir- hugaðir liðsflutningar til fjögurra ratsjárstöðva í landsfjórðungun- um og æfing björgunarsveitar í uppsveitum Árnessýslu. Þá finnst honum sérstaklega ámælisvert að ekki hafi veriö leitað eftir sam- þykki við sveitarstjórnir þessara svæða. -HÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.