Tíminn - 30.07.1991, Side 13

Tíminn - 30.07.1991, Side 13
Þriðjudagur 30. júlí 1991 Tíminn 13 10 ára afmælisþing L.F.K. Landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið í Reykjavík dagana 4. og 5. október nk. að Borgartúni 6. (tilefni af 10 ára afmæli Landssambands framsóknarkvenna býð- ur Félag framsóknarkvenna I Reykjavík til skoðunarferðar föstu- daginn 4. október. Við heimsækjum fyrirtæki og stofnanir borgar- innar, sem ekki eru alltaf til sýnis almenningi, undir leiðsögn Sig- rtinar Magnúsdóttur og Sigríðar Hjartar. Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður ( boði FFK. Laugardagskvöldið 5. október er lokahóf Landsþingsins aö Borg- artúni 6, sem jafnffamt verður afmælishóf með skemmtidagskrá. Við hvetjum framsóknarkonur um land allt til að taka frá dagana 4. og 5. okt. og tjölmenna á afmælisfagnaðinn. Undirbúningsnefndin Stefna ’91 — Sauðárkróki Fræðsluráðstefna SUF verður haldin helgina 30. ágúst-1. sept- ember n.k. Ráðstefnan er opin öllum ungum framsóknarmönnum alls staðar af landinu og verður ráðstefnugjaldi stillt í hóf. Gist verður I heimavist Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og fyririestrar munu fara fram í sal skólans. Eftir ráðstefnuna verður tjölmennt á héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði, sem haldið verður að Miðgarði og mun hinn þjóðfrægi Geirmundur Valtýsson leika fýrir dansi. Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar. SUF-arar eru hvatt- irtil að skrá sig sem fyrst á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafn- arstræti 20, eða I síma 624480. Framkvæmdastjórn SUF Sumarhappdrætti Framsókn- arflokksins 1991 Dregið var í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 12. júll sl., en númerin eru í innsigli hjá Borgarfógeta til 5. ágúst 1991. Vel- unnarar flokksins, sem ekki hafa greitt heimsendan gíróseðil, eru hvattir til að gera skil eigi síðar en 5. ágúst. Það er enn tækifæri til að vera með. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokks- ins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða í síma 91-624480. Framsóknarflokkurinn. GARÐSLATTUR Tökum að okkur að slá garða. Kantklippum og fjariægjum heyið. Komum, skoðum' og gerum verðtilboð. Upplýsingar í síma 41224, eftir kl. 18.00. SEKTIR fyrir nokkur umferðarlagabrot: Umferöarráð vekur athygli á nokkrum neöangreindum sektarfjárhæöum, sem eru samkvæmt leiöbeiningum ríkissak- sóknara til lögreglustjóra frá 22. febrúar 1991. Akstur gegn rauðu Ijósi - allt að Biðskylda ekki virt Ekið gegn einstefnu Ekið hraðar en leyfilegt er Framúrakstur við gangbraut Framúrakstur þar sem bannað er „Hægri reglan" ekki virt Lögboðin ökuljós ekki kveikt Stöðvunarskyldubrot - allt að Vanrækt að fara með ökutæki til skoðunar Öryggisbelti ekki notuð 7000 kr. 7000 kr. 7000 kr. 9000 kr. 5000 kr. 7000 kr. 7000 kr. 1500 kr. 7000 kr. 4500 kr. 3000 kr. MJÖG ALVARLEG OG ÍTREKUÐ BROT SÆTA DÓMSMEÐFERÐ. FYLGJUM REGLUM - FORÐUMST SLYS! yUMFERÐAR RÁÐ Stephanie eyðir nú meiri tíma heima í Mónakó en hún var vön að gera. Héma slappar hún af í stofunni í íbúð sinni. STEPHANIE MÓNAKÓ PRINSESSA Eftir að hafa eytt rúmlega fjór- um árum á milíi Monakó og Los Angeles hefur Stephanie Mó- nakóprinsessa ákveðið að setj- ast að á heimaslóðunum. Hún keypti sér íbúð í gömlu húsi við Larvottoströndina fyrir nokkrum árum en hefur ekki eytt þar miklum tíma vegna vinnu sinnar í Los Angeles. Það var dauði mágs hennar, Stefano Casiraghi, sem fékk hana til að setjast að í Mónakó. Hún segist hafa tekið fyrstu flugvél heim þegar hún frétti af slysinu því hún hefði viljað vera með fjöl- skyldunni á þessari stundu. Hún segir að í þrjá mánuði hafi hún aðstoðað Carolinu við að líta eftir börnunum og að það hafi verið í fyrsta skipti í fjögur ár sem hún hafi verið svona lengi heima. Stephanie og Albert bróðir hennar reyna að vera eins mikið og þau geta með Carolinu og börnum hennar. Þau vilja hjálpa þeim eins og hægt er að komast fljótt yfir missinn. Arið 1982 lést Grace Kelly í bíl- slysi og þá ríkti einnig mikil sorg í fjölskyldunni. Stephanie saknar móður sinnar enn sárt og segist vera að tjá tilfinningar sínar til hennar í söngnum „Words Upon The Wind.“ Hún segist hafa litið mjög upp til móður sinnar. Með þessum söng sé hún að sýna þakklæti sitt og segja henni að hún þurfi ekki að hafa áhyggjur af fjöl- skyldunni. Svefnherbergi Stephanie. Á veggnum fyrir ofan rúmið hangir mynd af Grace og heldur hún á Stephanie. Afll*9ít Ll.lJ.f ; L)! L.r;8

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.