Tíminn - 09.08.1991, Blaðsíða 11
Föstudagur 9. ágúst 1991
Tfminn 11
— ÍÞRÓTTIR CT———
Mjólkurbikarkeppni KSl:
Víðir 1 mínútu frá
bikarúrslitaleiknum
— FH mætir Val, sem lagði Þór í vítaspyrnukeppni á Akureyri
Víðismenn úr Garði voru einni mín-
útu frá því aö komast í úrslitaleik
Mjólkurfoikarkeppninnar í knatt-
spyrnu, en í gærkvöld mættu þeir
FH-ingum í undanúrslitum keppn-
innar í Garði. í fjörugum og við-
burðaríkum leik tryggðu FH-ingar
sér sigur 1-3 í framlengdum leik.
Það var Hörður Magnússon, marka-
kóngur þeirra, sem átti heiðurinn af
sigri FH, en hann skoraði öll þtjú
mörkin.
Fyrri hálfleikur var fjörugur framan
af. Víðismenn voru mun hættulegri
og í fjórgang skall hurð nærri hælum
við mark FH. Mest hætta var á ferðum
þegar Vilberg Þorvaldsson fékk bolt-
ann á markteig, en skaut yfir. Þá varði
Stefán Amarson vel, þegar Sigurður
Magnússon fékk boltann upp við
markið eftir aukaspymu.
í síðari hálfleik jafnaðist leikurinn
mikið og FH-ingar fóru að sýna
Knattspyrna — 1. deild
kvenna:
Jafntefli í
toppleiknum
ÍA og KR gerðu 1-1 jafntefli í
leik efstu Iiða 1. deildar kvenna í
knattspymu á Akranesi í fyrra-
kvöld.
Á Akureyri vann Breiðablik 2-6
sigur á Þór.
Fyrir helgi vann Breiðablik 0-2
sigur á KA nyrðra og Valur vann
Tý í Vestmannaeyjum með sömu
markatölu.
Staðan í 1. deild kvenna:
Akranes 10 7 2 1 38-6 23
Valur 10 7 2 1 32-6 23
KR 9 7 1 1 29-9 22
Breiðablik 9 6 12 19-11 19
ÞórAk. 7 2 1 4 13-23 7
KA 10 1 2 7 10-30 5
Þróttur N. 8 1 0 7 7-24 3
Týr 9 0 1 8 4-44 1
Frjálsar íþróttir:
Einar þriðji
Einar Vilhjálmsson varð í þriðja
sæti í spjótkasti á Grand Prix
mótinu í Ziirich í fyrrakvöld,
rétt eins og Pétur Guðmunds-
son í kúluvarpinu.
Einar kastaði 82,50m. Jan Zel-
ezny frá Tékkóslóvakíu sigraði,
kastaði 88,78m.
Einar keppti á öðru Grand Prix
móti í Malmö í Svíþjóð á mánu-
dagskvöld og varð þá einnig í
þriðja sæti með 81,60m.
Gott kast Vésteins
Vésteinn Hafsteinsson HSK,
kastaöi 63,90m á kastmóti ÍR í
fyrrakvöld. Hér er um að ræða
besta árangur íslendings á ár-
inu.
Á sama móti kastaði Helgi Þór
Helgason USAH kringlu 56,25m.
Andrés Guðmundsson kastaði
kúlu 17,37m á mótinu. BL
Knattspyrna:
Firmakeppni ÍK
ÍK heldur firmakeppni í knatt-
spyrnu á grasvellinum í Smára-
hvammi í Kópavogi, sunnudag-
inn 18. ágúst.
Sjö leikmenn eru í hverju liði.
Þátttaka og nánari upplýsingar
er að fá hjá Jóni í símum 40097
og 40903.
klæmar. Jón Örvar Arason, markvörð-
ur Víðis, sem átti stórleik í gær, var
jafnan á réttum stað og varði skot FH-
inga. Víðismenn svöruðu þessum
ágangi með skyndisóknum og Steinar
Ingimundarson átti eina slíka á 62.
mín., en Stefán markvörður FH stöðv-
aði hana. Steinar var aftur á ferðinni á
67. mín., brunaði upp hægri kantinn,
gaf fýrir á Hlyn Jóhannsson sem skall-
aði knöttinn í vamarmann FH. Þaðan
fór boltinn í þverslá og inn.
Aðeins mínútu eftir markið var Sig-
urður Magnússon rekinn út af fyrir
brot á Dervic, en Sigurður hafði áður
litið gula spjaldið. Ur aukaspymunni,
sem fylgdi á eftir, skaut Andri Mar-
teinsson framhjá. Víðismenn fengu
gott færi stuttu síðar er Karl Finn-
bogason skaut rétt yfir mark FH.
Þegar hér var komið við sögu var far-
ið að hitna allvel í kolunum, þó ekkert
væri grillið. Bjöm Vilhelmsson fékk
mikið olnbogaskot frá Ólafi Kristjáns-
syni á 77. mín., en Eyjólfur Ólafsson
dómari sá ekkert athugavert. Bjöm
hefndi sín á Ólafi og það sá línuvörður,
sem gerði Eyjólfi viðvart. Fékk Bjöm
að launum rautt spjald og Víðismenn
þvf tveimur leikmönnum færri.
Nú fór sóknir FH heldur betur að
þyngjast og Jón Örvar stóð í ströngu í
vítateig sínum. Um einni mínútu áður
en Eyjólfur flautaði til leiksloka jafn-
aði Hörður Magnússon leikinn. Hann
fékk boltann óvaldaður utan vítateigs
og þmmaði honum umsvifalaust upp
j markhomið fjær, óverjandi fyrir Jón
Örvar, 1-1.
í framlengingunni bætti Hörður við
tveimur mörkum, bæði skomð með
viðstöðulausum þmmuskotum.
Víðismenn féllu með sæmd út úr
keppninni og FH-ingar geta þakkað
Herði að bikardraumurinn rættist.
Valsmenn sterkari í vítaspymukeppni
Á Akureyri var fátt um fína drætti í
leik Þórs og Vals. Þórsarar vom ná-
lægt því að skora í tvígang, en Júlíus
TVyggvason skaut í þverslá og Halldóri
Áskelssyni mistókst einnig að skora úr
dauðafæri.
í vítaspymukeppni misnotuðu Þórs-
arar sína fýrstu spymu, er Júlíus skaut
yfir, Sveinn Pálsson og Þórir Áskels-
son skomðu síðan fyrir Þór og Steinar
Adolfsson, Einar Páll Tómasson og
Jón Grétar Jónsson fyrir Val. Bjami
Sigurðsson varði þá frá Þorsteini
Jónssyni og Friðrik Friðriksson frá
Sævari Jónssyni. Úr síðustu spyrnu
keppninnar tryggði Gunnar Már Más-
son Val sæti í úrslitaleik Mjólkurbikar-
keppninnar.
BL
Hörður Magnússon skoraði þrennu fyrir FH gegn Vfði í gærkvöld
og tryggði liðinu sæti í úrslitaleik Mjólkurbikarkeppninnar, sem
leikinn verður 25. ágúst nk. Tfmamynd Ámi Bjama
Knattspyrna — Körfuknattleikur:
Sigur og tap strákanna
ísland vann Danmörku 1-0 á Norðurlandamóti drengjalandsliða í
knattepymu í Vestmannaeyjum í gærkvöld. Þá unnu Finnar Norð-
menn 3- 2 og Engiendingar unnu Svía 2-0.
í Portúga! tapaði íslenska ungiingalandsiiðið í körfuknattleik fyrir
Hoilendingum 60-77, eftir að hafa haft yfir í leikhléi 32-31. Sigfús
Gizurarson skoraði 16 stig fyrir ísiand í ieiknum og Pétur Vopni Sig-
urðsson 13. BL
Hfei==T=TÍI||
Egilsstaöir
Fundarferðir
formanns
Framsóknarflokksins
Stelngrimur Halldór
Steingrimur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins og Halldór Ásgrlmsson
halda fund með trúnaðarmönnum flokksins á Egilsstöðum föstudaginn 9. ágúst kl.
17. 00.
Höfn
Steingrímur Hermannsson formaöur Framsóknarflokksins og Halldór Ásgrímsson
varaformaður halda fund meö trúnaöarmönnum I Framsóknarhúsinu Höfn,
Homafiröi mánudaginn 12. ágúst kl. 21.
Framsóknarflokkurinn
5. landsþing
L.F.K.
Unnur Sigrun
5. landsþing Landssambands framsóknarkvenna veröur haldið I Borgartúni 6,
Reykjavfk dagana 4. og 5. október 1991.
Þingið hefst með setningarræðu formanns L.F.K. og slöan skýrslu stjómar.
A) formanns: Unnur Stefánssdóttir.
B) gjaldkera Sigrún Sturludóttir.
Dagskrá nánar auglýst slðar.
Framkvæmdastjóm L.F.K.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1991
Dregið var í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 12. júll 1991.
Vinningsnúmer eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 39967
2. vinningurnr. 23913
3. vinningur nr. 38808
4. vinningur nr. 115
5. vinningur nr. 38648
6. vinningurnr. 14889
7. vinningur nr. 22161
8. vinningur nr. 28488
9. vinningur nr. 20036
10. vinningur nr. 36044
11. vinningur nr. 15202
12. vinningurnr. 11886
13. vinningurnr. 14713
14. vinningur nr. 15661
15. vinningur nr. 36440
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs ffá út-
drætti. Frekari upplýsingar eru veittar i síma 91-624480.
Framsóknarflokkurinn.
MUNIÐ
að skila tilkynningum í flokksstarfið
tímanlega - þ.e. fyrir kl. 4 daginn
fyrir útkomudag.
Félagsmót framsóknarmanna
í Skagafirði
verður haldið í Miðgarði laugardaginn 31. ágúst.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar fer á kostum og leikur fyrir dansi.
Jóhannes Kristjánsson verður meðal skemmtiatriða. Nánar auglýst slöar.
Nefndin.
Stefna ’91 — Sauðárkróki
Fræðsluráðstefna SUF verður haldin helgina 30. ágúst-1. sept-
ember n.k. Ráðstefnan er opin öllum ungum framsóknarmönnum
alls staðar af landinu og verður ráðstefnugjaldi stillt í hóf. Gist
verður í heimavist Fjölbrautaskólans á Sauöárkróki og fyririestrar
munu fara fram í sal skólans. Eftir ráðstefnuna verður fjölmennt á
héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði, sem haldið verður að
Miðgarði og mun hinn þjóðfrægi Geirmundur Valtýsson leika fýrir
dansi.
Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar. SUF-arar eru hvatt-
ir til að skrá sig sem fyrst á skrifstofíi Framsóknarflokksins, Hafn-
arstræti 20, eða (síma 624480.
Framkvæmdastjórn SUF