Tíminn - 13.08.1991, Page 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 13. ágúst 1991
Vextir, matur og lyf hækka
framfærsluvísitöluna:
▼
a
að nýju
Kauplagsnefnd hefur reiknað út
vísitölu framfærslukostnaðar
samkvæmt verðlagi í ágústbyrj-
un 1991. Hún reynist vera
157,2 stig, miðað að við að hún
hafi verið 100 stig í maí 1988.
Hefur hún þá hækkað um 0,8%
frá því í júU 1991. Hækkunin
síðustu þrjá mánuði jafngildir
12% verðbóigu ó Óri. Þetta kem-
ur fram i fréttatiikynningu frá
Hagstofúnni.
Af þessari 0,8% hækkun vísi-
tölunnar stafa tæplega 0,3% af
vcrðhækkun matvöru. Tæplega
0,2% af auknum fjármagns-
kostnaði á íbúðarhúsnæði. Og
0,1% af hækkun Jyfjakostnaðar.
Er þá stuðst við bráðabirgðamat
út frá lyfsölu í júlí. Verðhækkun
ýmissa annarra vöru- og þjón-
ustuiiða hækkaði vísitölu fram-
færslukostnaðar um alls 0,2%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 7,1%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur hún hækkað
um 2,9%. Það jafngildir 12%
verðbólgu á ári. Þar munar
mikiu um júnímánuð. Þá var
verðbólgan umreiknuð til ársins
17,7%. í júlí var hún 8,9%. En í
ágúst er hún framreiknuð 9,6%.
Verðbólgan er því á uppleið, hvað
sem síðar verður. -aá.
AFS á von á 46 skiptinemum eftir u.þ.b. viku en ennþá vantar fjölskyldur fyrir 19 þeirra:
Neyðarbréf sent
til allra AFS-ara
Skiptinemasamtökin AFS eiga von á 46 skiptinemum nú f ágúst en
einungis hefur tekist að útvega 27 þeirra fjölskyldur til að búa hjá.
Það eru því alls 19 erlendir skiptinemar væntanlegir hingað til
lands sem ekki hefur tekist að útvega íslenskt heimili.
Sigfríður Gunnlaugsdóttir, fram-
kvæmdarstjóri AFS, sagði að skipti-
nemamir kæmu hingað til Iands 20.
til 23. ágúst. Hún sagði að samtökin
gerðu nú allt sem þau gætu til þess að
útvega skiptinemunum heimili. Með-
al annars voru fyrir síðustu helgi send
út neyðarbréf til allra félagsmanna
þar sem beðið var um aðstoð þeirra.
Sigfríður sagðist ekki vita af hverju
það gengi svona illa að fá fólk til að
taka skiptinema nú í ár en hópur er-
lendu skiptinemanna hefur aldrei
verið jafhstór og nú. Það væri þó ekki
ólíklegt að fjárdráttur fyrrverandi
framkvæmdastjóra félagsins frá því í
fyrra hefði skaðað félagið. Hún benti
þó á að ekki hefði alltaf gengið vel að
útvega fjölskyldur þar sem þetta væri
mjög stór ákvörðun fyrir fólk að taka.
Að sögn Sigfríðar hefur gengið best
að afla fjölskyldna sem standa utan
við félagið. Það væri eins og félags-
menn AFS hefðu bmgðist félaginu í
sambandi við að hýsa skiptinema en
þeir væm þó að taka við sér nú, eftir
að hafa fengið neyðarbréfið frá félag-
inu. Jafnframt sagði Sigfríður að aldr-
ei áður hefði gengið jafnilla og nú í ár
að fá fjölskyldur þeirra íslensku ung-
linga sem em að fara út, til þess að
hýsa erlendan nema. Mun minna
væri um það núna að fjölskyldur
þeirra tækju nema heldur en verið
hefúr undanferin ár. Yfirleitt hefðu
milli 20 og 30% fjölskyldna íslensku
nemanna hýst erlenda nema en nú
væri það hlutfall ekki til staðar. Þrátt
fyrir það sagðist hún vona að búið
yrði að útvega öllum skiptinemunum
fjölskyldur áður en þeir kæmu til
landsins.
Ástæða þess að nú er tekið á móti
svona mörgum skiptinemum er sú að
AFS á íslandi sendir mjög marga ís-
lenska skiptinema utan. Sigfríður
sagði að mikill áhugi væri hjá íslensk-
um unglingum á að fara utan sem
skiptinemi og einnig væm fjölskyldur
þeirra áhugasamar um að senda ung-
lingana. Það væri þó ekki síður
skemmtilegt að taka erlendan skipti-
nema inn á heimilið en að senda
skiptinema út. Einnig sagði hún að ef
félagið sendi eins marga íslenska
skiptinema utan og raun ber vitni þá
yrði það jafnframt að taka á móti viss-
um fjölda erlendra skiptinema. Þó
væm mun fleiri íslenskir skiptinemar
sem fæm utan á hverju ári en félagið
tæki við. „í ár fara alls um 124 íslensk-
ir unglingar utan með samtökunum
meðan tekið er á móti 46 skiptinem-
um erlendis frá,“ sagði Sigfríður. Auk
þess sagði hún að félagið vildi ekki
fara út í það að fjölskylda þess sem
færi út yrði að taka erlendan nema í
staðinn. Með því væri verið að mis-
muna þeim unglingum þar sem að-
stæður foreldra byðu ekki upp á slíkt.
Þeir skiptinemar sem ekki hafa feng-
ið íslenskar fjölskyldur eru frá Ghana,
Hondúras, Bandaríkjunum, Frakk-
landi, Ástralíu, Belgíu, Kanada, Júgó-
slavíu, Venesúela og Portúgal.
-UÝJ
Búist við að gróður falli snemma á afréttum uppsveita Arnessýslu:
RÉTTUM FLÝTT
Ákveðið hefur verið að flýta rétt-
um í uppsveitum Ámessýslu og
Reykjaréttum á Skeiðum um eina
viku í haust frá því sem áætlað var.
Þetta er gert vegna þess að búist
er við að gróður á afréttum falli
óvenju snemma í haust og eins
hefðu réttimar orðið of seint að
LETT OG LAGG0TT?
Iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni
Eftir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
Utanríkisráöuneytiö hefur legið undir ámæli fyrir að hafa leynt og
sagt ósatt um framgang samningaviöræðna EES um landbúnaðar-
mál og iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni.
1. Var cinhveiju
leynt?
Drög að lista yfir iðnaðarvörur
unnar úr landbúnaðarhráefni sem
leggja átti til grundvallar í viðræð-
um EB voru rædd á sérfræðinga-
fundi EFTA 17. janúar 1991. List-
anum var dreift 25. janúar 1991. Á
lista EFTA-sérfræðinganna voru
vörur er falla undir tollflokk 21.05
og 21.06 sem m.a. eru rjómi og
mjólkurís, Smjörvi og Létt og lag-
gott. Listi þessi var sendur í fyrstu
útgáfu til landbúnaðarráðuneytis-
ins 1. febrúar, önnur útgáfa 22.
febrúar, þriðja var lögð fram á
fundi í landbúnaðarráðuneytinu
21. maí, fjórða útgáfan var send 20.
júní, sjötta 11. júlí og sjöunda 23.
júlí 1991. Landbúnaðarráðuneyt-
inu bárust því drög að þeim lista
sem hér um ræðir í hvert skipti
sem ný útgáfa var gefin út, eða í allt
7 sinnum. Hið umdeilda viðbit og
rjómaísinn voru frá upphafi á list-
anum. Það hefur því engu verið
leynt.
2. Var sagt ósatt?
Viðræður um landbúnaðarafurðir
hafa verið ræddar á þremur víg-
stöðvum í samningaviðræðunum. í
fyrsta lagi varðandi samræmingu
reglugerða um heilbrigðiseftirlit
með dýrum og jurtum og afnám
viðskiptahindrana á heilbrigðisfor-
sendum. í öðru lagi um gagn-
kvæmar tilslakanir í viðskiptum
með hefðbundnar landbúnaðaraf-
urðir. ísland hefur algjörlega staðið
utan við þá samningsgerð.
í þriðja lagi sótti EB um einhliða
tollaívilnanir fyrir 72 tilteknar suð-
ur-evrópskar landbúnaðarafurðir.
ísland gaf til kynna að fengist frjáls
aðgangur að EB mörkuðum fyrir
fiskinn, yrði gjöldum aflétt af 65 af-
urðum á listanum (hrísgrjón, van-
illa, ávextir o.fl.) en árstíðabundinn
innflutningur yrði heimilaður á sjö
vöruflokkum (agúrkum, tómötum
o.fl.) líkt og verið hefur til þessa.
Að sjálfsögðu er þetta í fullu sam-
ræmi við áður gefnar upplýsingar.
Það hefur því engu verið logið.
3. Var óheimilt að
flytja inn viðbit og ís?
Reglugerð um innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi nr. 132/1988 kveður
á um þær vörutegundir sem eru
háðar innflutningsleyfi viðskipta-
ráðuneytisins. Innflutningur ann-
arra vara en þeirra sem tilgreindar
eru í reglugerðinni er frjáls nema
önnur lög banni eða takmarki inn-
flutninginn. Meðal þeirra vöruteg-
unda sem taldar eru upp í reglu-
gerðinni er að finna smjörlíki og
rjómaís og er innflutningur þeirra
því háður leyfum. Vörutegundir á
borð við Smjörva og Létt og laggott
eru hins vegar ekki taldar upp í
reglugerðinni. í lögunum um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á
búvörum nr. 46/1985 er fram-
leiðsluráði veittur réttur til að leyfa
innflutning þeirra landbúnaðar-
vara sem bannað er að flytja inn
samkvæmt öðrum lögum, ef stað-
fest er að innlend framleiðsla full-
nægi ekki neysluþörfinni. Smjörvi
og Létt og laggott eru ekki háð inn-
flutningsleyfi og þurfa því ekki leyfi
framleiðsluráðs. ís er hins vegar á
listanum og þarf því leyfi viðskipta-
ráðuneytisins til innflutnings á
honum. Leyfi framleiðsluráðs þarf
hins vegar ef ís telst landbúnaðar-
vara. Benda má á að smjörlíki telst
ekki landbúnaðarvara og er á for-
ræði viðskiptaráðuneytis, sbr. úr-
skurð ríkislögmanns um það efni
dags. 27. aprfl 1989.
í fríverslunarsamningi íslands við
EB er ís með kakó á þeim lista sem
einungis má leggja á verðjöfnunar-
gjald. Þaö væri því samningsbrot ef
viðskiptaráðuneytið neitaði inn-
flutningi á súkkulaðiís frá EB ríkj-
unum.
4. Hefur ísland sam-
þykkt fríverslunarlista
yfir iðnaðarvörur unnar
úr landbúnaðarhráefni?
Þegar samræmdur listi EFTA ríkj-
anna yfir iðnaðarvörur unnar úr Iand-
búnaðarhráefni var afhentur EB var
skýrt tekið fram að Finnland, Noreg-
ur, Svíþjóð, Sviss og Liechtenstein
stæðu á bak við hann, en ísland og
Austurríki væru ekki tilbúin til við-
ræðna um þennan lista. ísland hefur
því aldrei samþykkt neinn lista.
Af því sem hér hefur verið sagt má
Ijóst vera að svikabrigsl og áburður
um leynd og ósannindi er tilefhislaus
með öllu. Ekki sakaði að þeir sem
staðið hafa fyrir þessum tilefnislausa
óhróðri bæðust afsökunar.
mati bænda.
Þetta er gert að undirlagi Hruna-
manna. Loftur Þorsteinsson í
Haukholtum, oddviti þeirra, sagði í
samtali við Tímann, að gróður á af-
réttum hefði tekið vel við sér í vor.
Hann sagði afréttinn með falleg-
asta móti en hins vegar væri það
gefið mál að gróðurinn myndi falla
snemma í haust.
Upphaflega var áætlað að réttað
yrði í þriðju viku september en því
hefur nú verið flýtt um eina viku,
eins og áður sagði. Loftur sagði að
þegar réttað væri þetta seint væri
féð gengið fram og það biði við af-
réttargirðinguna. Þess vegna þyrfti
jafnvel að fara nokkru fyrr og sækja
féð og það að rétta þá fáeinum dög-
um síðar væri tvíverknaður. Þess
má geta að sláturhúsum á þessu
svæði hefur fækkað og þar er ekki
hægt að byrja að slátra fyrr en að
réttum afstöðnum og þeirra vegna
er því betra að réttir séu fyrr en síð-
ar.
Hrunaréttir og Skaftholtsréttir í
Gnúpverjahreppi verða nú fimmtu-
daginn 12. september í stað 19.
sept. Tungnaréttir í Biskupstung-
um verða miðvikudaginn 11. sept í
stað 18. sept. og Reykjaréttir á
Skeiðum, réttir Flóa- og Skeiða-
manna, verða föstudaginn 15. sept
í stað 20. sept.
Göngur á afréttum þessara sveita
verða að fylgjast að enda liggja þeir
saman. Ekki er gert ráð fyrir að
flýta eftirsafni og skilaréttir í þess-
um sveitum verða haldnar sam-
kvæmt ákvæðum fjallskilareglu-
gerðar. -sbs, Selfossi
Spítalar í Reykjavík:
Haraldur hagráði
Heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra hefur óskað eftir, og ætlar sér
að eiga, mjög nána samvinnu við
samstarfsráð sjúkrahúsanna
Reykjavík um hvernig stuðla meg
að sem mestri hagkvæmni í rekstr
sjúkrastofnana í höfuðborginni. Þar
er fyrst á dagskrá hugsanleg samein-
ing Borgarspítalans og Landakots-
spítala og flutningur á verkefnum
þeirra í millum.
í þessu augnamiði hefur ráðherra
fengið Harald Ólafsson dósent, for-
mann yfirstjórnar St. Jósefsspítala,
Landakoti, til að sinna þessu í hluta-
starfi tímabundið.