Tíminn - 13.09.1991, Page 4

Tíminn - 13.09.1991, Page 4
4 Tíminn Föstudagur 13. september 1991 Lausn á gfslamálinu er loks í sjónmáli: TVEIMUR VESTRÆNUM SLEPPT INNAN VIKU Líbanskur ráðherra, sem er Shítamúslími, sagði í gær að Iíkur væru á að tveimur vestrænum gíslum yrði sleppt innan viku. Ef það verð- ur gert kemst skriður á lausn gísladeilunnar. „Það er áreiðanlegt að innan einnar viku verður einum Bandaríkjamanni og öðrum Evrópumanni, sem gæti verið Terry Waite, sleppt úr haldi,“ sagði ráðherrann, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Hann sagði að jafnvel væru líkur til að þremur gíslurn yrði sleppt úr haldi. Þá fullyrðir hann að Israels- menn taki næsta skref og þá verði gísladeilan leyst. Terry Waite var rænt í janúar árið 1987 þegar hann var staddur í Beirút til að ræða við mannræningja um lausn vestrænna gísla. Ekki fór betur en svo að honum var sjálfum rænt. Hann er í haldi Islamska Jíhad (Sam- tökin heilagt stríð). Að minnsta kosti fimm Bandaríkjamenn, annar Breti og tveir Þjóðverjar eru í gíslingu í Beirút. Islamska Jíhad og Byltingarsamtök réttlætis hafa fagnað íausn þeirra 51 fanga sem ísraelar létu lausa á mið- vikudag, svo og afhendingu jarð- neskra leifa hinna níu skæruliða sem ísraelar drápu. Þá hefur Islamska Jí- had hvatt Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, til að halda áfram viðræðum í Teheran um lausn gíslamálsins. „Við erum tilbúnir að veita Perez de Cuellar allan þann stuðning sem nauðsynlegur þykir til þess að gfsla- málið leysist fyrir fullt og allt,“ segir í yfirlýsingu Islamska Jíhad, sem send var út ásamt mynd af bandaríska blaðamanninum Terry Anderson. Anderson hefur verið í haldi mann- ræningja síðan 16. mars 1985. Hann hefur verið allra gísla lengst í haldi. Þá stendur í yfirlýsingunni að músl- ímska þjóðin og baráttumenn séu hvött til að vinna áfram að lausn allra fanga, sama hversu mikla fórn verði að færa þess vegna. Islamska Jíhad er með Bandaríkja- manninn Thomas Sutherland í haldi hjá sér. Samtökin tóku fyrsta skrefið út úr þeirri sjálfheldu, sem gíslamál- ið var komið í, með því að láta breska blaðamanninn John McCarthy laus- an í byrjun ágúst. Þá um leið sendu samtökin bréf til framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, þar sem hann var hvattur til að ýta á eftir allsherjar samningi um lausn gísla og fanga. Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri S.Þ., sagði í gær að hann vonaðist til að fá fréttir af þeim sjö ísraelsmönnum sem ekkert er vitað um. Þeir, sem standa í samningaviðræð- um í Teheran, sögðu að gíslamálið virtist vera að leysast stig af stigi og vonuðust til að allsherjarlausn yrði fengin innan fárra vikna. Samtökin Byltingarsamtök réttlæt- is tilkynntu í gær að Jack Mann, 77 ára gísl sem þeir hafa í haldi og er frá Bretlandi, væri hress og heill heilsu. Þau sendu út mynd af honum þar sem hann þykir líta mjög þreytulega út Eiginkona hans segir að hann líti hræðilega illa út og ætlar að fara til Beirút í dag. Samtökin hafa fagnað viðbrögðum ísraela síðustu daga, en 325 Arabar eru enn eftir í haldi þeirra eða stuðn- ingsmanna þeirra. Talsmaður Bylt- ingarsamtaka réttlætis segir að fyrsta skrefið hafi verið tekið með því að leysa þennan fyrsta hóp fanga. „Við vonumst til að þetta mál fái friðsam- legan endi,“ segir talsmaðurinn. Byltingarsamtök réttlætis leystu Ed- ward Tracy, frá Bandaríkjunum, úr gíslingu þremur dögum eftir að McCarthy var látinn laus. Þá eru þeir með Bandaríkjamanninn Joseph Cicippio í gíslingu ennþá. Hussein Musawi, meðlimur í strangtrúarsamtökunum Hizbollah, sagði blaðamönnum í Austur-Líban- on að hann byggist við að gíslar yrðu látnir lausir innan viku, því að ísrael- ar væru undir þrýstingi frá Washing- ton. Reuter-SIS Javier Perez de Cuellar. Þriggja ára stúlka notuð sem sendiboði í fíkniefnakaupum: Víetnömskum stjórnvöldum tekst ekki að koma í veg fyrir giftingar unglinga: Notuð til að selja krakk Móðir og amma þríggja ára stúlku voru handteknar í Houston í gær eftir að hafa notað stúlkuna til að afhenda krakk til óeinkennis- klædds lögreglumanns. Talsmaður lögreglunnar í Hou- ston segir að stúlkan hafi látið tvo lögreglumenn fá krakk á þriðju- dagskvöldið, eftir að annar þeirra hafði sagt henni að hann vantaði 4 grömm af krakki. Móðir stúlkunnar, sem var í ná- grenninu, lét stúlkuna fá krakkið Fréttayfirlit sem svo kom til lögreglumann- anna með dópið. Þeir létu hana hafa 20 dollara, sem hún fór með til baka og lét mömmu sína fá. Talsmaöurinn sagði að þessi stúlka og þrjú önnur börn, senni- lega systkini hennar, heföu verið látin í umsjá barnaverndaryfir- valda. Móðirin og amman voru hand- teknar og ákærðar fýrir eiturlyfja- sölu, og settar í fangelsi. Reuter-SIS tnja bandalagsins, sýni að sumar hersveitir, sem berjast, séu gjör- samlega stjómlausar. EYSTRASALTSRÍKIN - Ör- yggisráð Sameinuöu þjóðanna samþykkti I gær án atkvæða- greiðslu inngöngu Eystrasaltsrfkj- anna í S.Þ. Innganga landanna verður fonnlega samþykkt á árs- fúndi stofnunarinnar, sem hefist í næstu viku. MOSKVA - Hinn nýi vamarmála- ráðherra Sovétríkjanna seglr að yfimienn i hemum, nánir sam- starfemenn Gorbatsjovs, hafi raett um að sprengja upp Kreml eða ráðast á það með hersveitum, til að hindra valdaránið i síðasta mánuði. OISJEK, Júgóslavíu - Sert> neskir skæruliðar og hersveitir sambandshersins héldu uppi stööugum sprengjuárásum á bæi í Króatiu (gær. í Haag sitja leiötog- ar lýðveidanna sex f Júgóslaviu og utanríkisráðherra Júgóslaviu á friðarráðstefnu sem Evrópu- bandalagiö stendurfýrir. Talsmenn EB segja að skothríð á þyrtu sam- bandshersins, sem bar sendHúll- TÓKÍÓ - Forseti rússneska þingsíns hvatti ráðamerm ( Tókíó til að auka efriislega aðstoð sina við Sovétrildn, einkum til að binda endi á langvarandi stirða sambúð landanna. Hann sagðist vera að tala um milljarða, ekki mlljónir i þessu sambandi. I Moskvu hefur Ivan Silajev forsætisráðherra beð- ið um neyöaraöstoö ffá Evrópu- bandalaginu. Unglingarnir giftast eins fljótt og hægt er „Unglingar í Víetnam virða hvatn- ingu stjómvalda að vettugi og giftast eins fljótt og þeir geta. Helst er um að ræöa unglinga úti á landsbyggð- inni, sem eru orðnir þreyttir á til- breytingarleysinu." Þetta er haft eft- ir víetnamska dagblaðinu Sunday Nhan Dan, sem kom út í gær. Þar segir ennfremur að 9% þeirra unglinga, sem gifta sig, hafi ekki náð tilskildum aldri, sem eru 18 ár. Þessi tala er enn hærri á ákveðnum svæð- um, eða rúmlega 20%. Sumir ung- linganna hafa ekki náð hærri aldri en 13 árum þegar þeir gifta sig. í blaðinu segir einnig að giftingar svo ungs fólks hafi vafasamar afleið- PARÍS - Grikkir og Tyrkir sögðu í gær að ekki hefði tekist að ná samkomulagi á fundi, sem Sam- einuðu þjóðimar komu á um mál- efrii Kýpur. Þeir segjast samt ætla að halda áfram viðræöum og helst ná samkomuiagi áður en mánuð- urinn er á enda. PARÍS - John Major, fbrsætisráð- herra Breta, sagði við Frakka i gær að tilgangslaust væri að veita Austur- Evrópuþjóðum einhverja hjálp, ef þeim væri svo meinaður aðgangur að mörkuðum landa innan Evrópubandalagsins. TBILISI, Sovétríkjunum - Sovétlýðveldið Georgia kallaði saman þing landsins til fundar í næstu viku, til að ræða vaxandi andstöðu þjóöarinnar við forseta landsins, Zviad Gamsakhurdia. ingar fyrír félagslíf fólks, svo og sálar- líf, og eru þar að auki slæmt fordæmi fyrir komandi kynslóðir. Aðalástæðan fyrir hinum ótíma- bæru giftingum er talin vera ótíma- bær þungun fjölda kvenna, sem blað- ið kallar ákafa ungs fólks í að verða fullorðið sem fyrst. „Þau halda að ást- in þýði að fara alla leið,“ stendur þar. Fjárhagur kemur einnig inn í dæm- ið. En ríkið gefur nýju heimilisfólki lítinn landskika til aö byggja á hús og nota til landbúnaðar. Þýska auglýsingaeftirlitið hefur bannað tískufatafyrírtækinu Benetton að nota auglýsingu sem sýnir nýfætt barn, blóðugt og slímugt og ekki búið aö klippa á naflastrenginn. „Myndir af þessu tagi, sem sýna manneskjuna óvarða í allri sinni nekt, á ekki að nota í auglýsinga- skyni eða í opinberri þágu,“ segir í yfirlýsingu auglýsingaeftirlitsins. ítölsk auglýsingayfirvöld bönn- uðu þessa sömu auglýsingu á mánudag. Benettonfyrirtækið bað Breta afsökunar á auglýsingunni, eftir að búið var að kvarta undan auglýsingunni í Bretlandi og fyrir- tækið beðið um að hætta að nota hana. Víetnam, sem er fátækt land þar sem býr 67 milljón manna þjóð, reynir að fræða fólk um fjölskyldu- áætlun, þ.e. m.a. það að gera áætlun um fjölskyldustærð. Undir slagorðinu að besta valið sé eitt eða tvö börn, eru ráðamenn að reyna að hvetja bændur til að eiga litlar fjölskyldur. En í stað þess að það hafi áhrif Qölgar í fjölskyldum smá- bænda, sem eignast fjölda bama og nota þau til að hjálpa til á ökrunum. Reuter-SIS Þýska auglýsingaeftirlitið, sem stjórnað er af þýskum útgefendum og auglýsingafýrirtækjum, segir að Benetton hafi ekki lofað að aftur- kalla auglýsinguna. Þó eru litlar Iíkur á að hún sjáist þar oftar, því auglýsingaeftirlitið fylgir slíkum bönnum strangt eftir. Þá hefur Evrópska auglýsinga- sambandið gagnrýnt auglýsinguna. Áður hafa verið gerðar athuga- semdir við auglýsingar fyrirtækis- ins. Jóhannes Páll páfi II kvartaði undan auglýsingu þar sem nunna og prestur kyssast. Þá bönnuðu ísraelar auglýsingu sem sýndi Gyð- ingastrák og arabískan dreng faðmast. Reuter-SIS Benetton-auglýsingin veldur víða fjaðrafoki: Auglýsingin fer fyrir brjóstið á Þjóðverjum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.