Tíminn - 20.09.1991, Blaðsíða 1
Borga okurvextir
eftirlaunin þín?
Fortíöarvandi almennu lífeyrissjóð-
anna skreppur saman og minnkar því
meir sem vextir eru hærri. Vandinn á
rætur sínar að rekja til óðaverðbólgu-
áranna 1970-1979, en þá rýrnuðu
eignir sjóðanna gífurlega vegna þess
að raunávöxtun útlána var stórlega
neikvæð. Það var ekki fyrr en árið
1984 sem sjóðirnir fengu jákvæða
raunávöxtun af heildareignum sínum,
en hafa síðan þá ávaxtað ríkulega sitt
pund, enda vextir háir. Árin 1985-1989
var t.d. meðalávöxtun umfram verð-
bólgu 6,65%. Ávöxtunin var sýnu best
hið síðasta þessara ára eða 7,9%, og í
fyrra var hún 7,3%. í nýútkominni hag-
skýrslu Sambands almennra lífeyris-
sjóða koma þessar upplýsingar fram.
í skýrslunni gætir bjartsýni um að
sjóðirnir muni geta staðið við skuld-
bindingar sínar gagnvart sjóðsfélög-
um og greitt þeim eftirlaun, en á því
virtust öll tormerki um tíma. Svonefnt
verðmætishlutfall er mælikvarði til að
meta stöðu sjóðanna. Þar er borið
saman reiknað verðmæti þeirra lífeyr-
isréttinda sem sjóðsfélagar hafa
áunnið sér við höfuðstól sjóðanna.
Þegar þetta hlutfall var hvað óhag-
stæðast, dugði höfuðstóllinn fyrir
tæpum helmingi áunninna lífeyrisrétt-
inda. Nú orðið stendur þetta nokkurn
veginn í járnum. • Blaðsíða 2
LAUN ALVEG UR TAKTI
VIÐ ÞJOÐARTEKJURNAR