Tíminn - 20.09.1991, Side 4
4 Tíminn
Föstudagur 20. september 1991
UTLOND
Sovétríkin biðja þjóðir heims um aðstoð:
Þörf er á mun meiri
aðstoð en áætlað var
Sovétríkin þurfa nauðsynlega
14,7 milljarða dollara aðstoð í
formi matvæla og erlendra Iána.
Þetta kom fram á fundi sendi-
nefndar frá Sovétríkjunum og
fulltrúa Evrópubandalagsins
(EB). Þessi upphæð er tvöfalt
hærrí en búist var við. Þegar
ljóst var að upphæðin er mun
hærri er reiknað var með, sett-
ust fulltrúar EB aftur að samn-
ingaborðinu til að ákveða hvern-
ig bregðast skal við þessum
nýju tölum.
Júrí Lúzhkov, staðgengill forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, sagði fúll-
trúum EB á fundi í gær að Sovétrík-
in þyrftu á 14,7 milljarða dollara að-
stoð að halda. Þessi upphæð sam-
svarar 880 milljörðum íslenskra
króna. Einnig sagði Lúzhkov að sú
upphæð sem áður var búið að nefna,
7 milljarðar dollara, hefði einungis
verið hugsuð sem lán EB til Sovét-
ríkjanna án þátttöku annarra landa.
Evrópubandalagið gerði hins vegar
ráð fyrir að þar væri átt við alþjóð-
lega aðstoð þar sem lönd eins og
Japan og Bandaríkin væru með í
spilinu.
Jacques Delors, framkvæmdastjóri
EB, segist ekki hafa reiknað með að
Sovétríkin þyrftu meira en 2,4 millj-
arða aðstoð frá Evrópubandalaginu.
Hann sagði að þegar talað hefði ver-
ið um 7 milljarða hefði það komið
sér gjörsamlega í opna skjöldu.
Tálsmaður EB segir að sendinefnd
Skyldu þessar konur hafa nóg að
verði send sem fyrst til Moskvu til að
kanna nánar gögn sem varða beiðn-
ina um aðstoð.
Frans Andriessen, sem sér um ut-
anríkismál EB, fór til Moskvu fyrr í
þessum mánuði. Hann hefur sagt að
hann geti ekki séð sig sem yfirum-
sjónarmann aðstoðar við Sovétríkin.
Hann varaði jafnframt við þeirri
hættu sem fælist í því ef EB tæki á
sig ábyrgð sem það gæti ekki staðið
bíta og brenna í vetur?
undir. Andriessen vísaði til vanda-
mála við skipulagningu úthlutunar
mun minni upphæðar (300.000
dollarar) sem samþykkt var að veita
til matvælaaðstoðar í Sovétríkjun-
um á Rómarfundinum í desember
sl. Hann sagði að sú upphæð væri
enn ekki öll komin í gagnið.
Lúzhkov sagði að í kjölfar lélegrar
uppskeru í Sovétríkjunum yrði að
flytja inn meira magn af matvælum
Hersveitir sambandshersins lagðar af stað til Króatíu:
20 km röð af hermönnum
og skriðdrekum streymdi
í átt til Króatíu í gær
en venjulega. Hann sagði á fundin-
um með EB að Moskvu vantaði 2,2
milljarða dollara lán í formi mat-
væla. Þá sagði hann að eftirstöðv-
arnar (5,2 milljarðar) væri æskilegt
að fá í formi tveggja lána. Þau ættu
að vera jafnhá, annað greitt innan
þriggja ára en hitt til 5-10 ára.
Lúzhkov fór til Lundúna seinni-
partinn í gær. Þar hittir hann John
Major, sem er í forsvari fyrir sjö
helstu iðnríki heims (G7). Þeir
munu ræða þarfir Sovétríkjanna.
Talsmaður Evrópubandalagsins
sagði f gær að samkomulag væri í
nánd, en væri ekki tilbúið.
Reuter-SIS
Búið er að reikna út hversu
miklar líkur eru á að smitast af
alnæmissýktum lækni:
Líkur eru
mjög litlar
Hættan á að smitast af alnæmi
í skurðaðgerð er 1 á móti 21
milljón á hveija klukkustund
sem þú eyðir á skurðarborðinu.
Þetta eru sömu líkur og þær að
þú lendir í alvarlegu umferðar-
slysi á leiðinni á sjúkrahúsið.
Þetta eru niðurstöður tveggja
lækna í Boston, sem hafa rann-
sakað þetta mál.
Þessi útreikningur er byggður á að
það séu 0,8% líkur á að maður skað-
ist á skurðarborðinu og að 0,4% lík-
ur séu á að skurðlæknirinn eða að-
stoðarmaður hans séu smitaðir af al-
næmisveirunni. Þá er reiknað með
að 0,15% líkur séu á að blóð úr þeim
smitaða komist á einhvern hátt inn í
blóðrás sjúklings.
í grein, sem birtist í New England
Journal of Medicine, eða Læknablaði
Nýja Englands, segja læknarnir tveir,
þeir AJbert B. Lowenfels og Gary
Wormser að jafnvel þótt þeir hefðu
vanmetið þær tölur, sem þeir nota til
útreikninga, sé ekki möguleiki á að
líkurnar verði meiri en 1 á móti 4
milljónum, hverja klukkustund á
skurðarborðinu.
Þeir segja ennfremur að líkurnar
geti verið allt að 1 á móti 333 millj-
ónum. )rlafnvel þótt vitað væri að
skurðlæknirinn væri smitaður af al-
næmisveirunni, eru líkurnar á að
sjúklingur smitist við uppskurð
mjög litlar,“ segja þeir. „Besta áætlað
mat kemst nærri 1 á móti 83.000
klukkustundum á skurðarborðinu."
Lowenfels og Wormser byggja út-
reikninga sína á áður gerðum rann-
sóknum.
Þessir útreikningar eru gerðir á
sama tíma og mikill órói hefur grip-
ið um sig meðal Bandaríkjamanna
um að sjúklingar smitist auðveldlega
af læknum sem eru alnæmissmitað-
ir. Þessi órói kemur í kjölfar máls þar
sem tannlæknir, sem smitaður var af
alnæmi, smitaði stúlku sem var
sjúklingur hans. Hún liggur nú fyrir
dauðanum af völdum alnæmisveir-
unnar. Reuter-SIS
Löng fylking skriódreka og
hersveita hélt frá Belgrad í
gær, í áttina til Króatíu. Vitni
segja að a.m.k. 70 skriðdrekar
og mikill fjöldi hervagna ásamt
fjölda hermanna hafi haldið til
Króatíu í gær og fylkingin hafí
veríð meira en 20 km löng.
Líklegast er að verið sé að styrkja
sambandsherinn á átakasvæðum í
Króatíu.
Leiðtogar Evrópubandalagsins
ræddu í gær hvort senda ætti frið-
arsveitir til Króatíu, til að halda
vopnahléð sem samið var um fyrr í
vikunni. Átökum hefur ekki linnt
þrátt fyrir umsamið vopnahlé. f
gær var tilkynnt um harða bardaga
við strönd Eyjahafs. Flugvélar
sambandshersins tóku þátt í bar-
dögum, en einnig var barist víða
inni í landi.
Fréttamenn, sem staddir eru í
Króatíu, tilkynntu í gær að átök
ættu sé stað í landinu, en ekki eins
harkaleg og undanfarna daga. Þó
er barist á götum úti í bænum
Fréttayfirlit
WASHINGTON - Bandaríska
utanríkisráðuneytið hvatti alia
Bandaríkjamenn, sem staddir eru
I Króatfu, Bosníu-Herzegovinu og
í Kosovo, að yfirgefa þessa staði
nú þegar. Þá voru bandarfskir rík-
isborgarar hvattir til að fara ffá
Júgóslavíu eins fljótt og kostur er,
hvar sem þeir eru þar.
BAGDAD - Irakar saka Banda-
ríkjamenn um að betja hertrumb-
umar. Áður höfðu Bandaríkja-
menn sagt að þeir ætli að koma
upp herpölium í Saudi- Arabíu,
þvi að enn ættu Irakar fjölda
Scud-fiauga og gætu tekið upp á
að nota þær.
SAMEINUÐU ÞJÓOIRNAR -
Javier Perez de Cuellar fram-
kvæmdastjóri er bjartsýnn á að
senn fáist lausn á gíslamálinu. Á
miðvikudag tilkynntu mannræn-
ingjar ( Beirút að sleppa ætti ein-
um vestrænum glsl úr haldi innan
skamms, en ekki hefur enn bólað
á þeim gísl. Spámenn telja að það
verði Jack Mann sem verði látinn
laus.
Vukovar.
í gær hittust utanríkisráðherrar
Evrópubandalagsins og varnar-
málaráðherrar Vestur-Evrópu-
bandalagsins til að hafa samráð um
hvort senda á friðargæslusveitir
inn í Króatíu.
Þjóðverjar og ítalir hvöttu EB til
að fá formleg fyrirmæli frá Sam-
einuðu þjóðunum. Þeir sendu frá
sér tilkynningu, sem í stendur:
„Við verðum að gera allt, sem hægt
er, til að tryggja að vopnahléð verði
haldið."
Rúmlega 500 manns hafa týnt lífi
í átökum á milli Serba og Króata,
síðan Króatía lýsti yfir sjálfstæði
hinn 25. júní.
Carrington lávarður, sáttasemjari
EB, stóð að samningi um síðasta
vopnahlé, en svo virðist sem það
ætli að mistakast, rétt eins og þau
vopnahlé sem komið hefur verið á
áður.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti er fylgjandi því að friðar-
sveitir verði sendar til Króatíu.
„Formleg tilskipun frá Sameinuðu
þjóðunum er nauðsynleg, og ef
hún fæst verða þjóðir Evrópu-
bandalagsins að bregðast við
henni," segir Mitterrand.
Reuter-SIS
Erfðavísir sykur-
sýki er fundinn
Franskir vísindamenn tilkynntu í
gær að þeir væru búnir að finna
erfðavísi sem orsakar sykursýki.
Þessi uppgötvun gæti hjálpað til
við meðhöndlun á sjúkdómnum.
Jean-Francois Bach, prófessor við
Nechersjúkrahúsið í París, sagði að
með þessu ættu læknar að geta
greint sjúkdóminn mun fyrr í fólki.
„Þetta opnar nýja leið í meðferð
sjúkdómsins. Okkur verður einnig
gert kleift að greina mjög snemma
hverjir eru líklegri til að fá sykur-
sýki. Við verðum fær um að segja
til um hvort systkin þess, sem hef-
ur sykursýki, sé í áhættuhóp.
Vegna þessa ætti að vera hægt að
þróa læknismeðferð sem myndi
hægja á sjúkdómnum eða jafhvel
koma í veg fyrir hann," sagði Bach
í viðtali við frönsku útvarpsstöðina
Info í gær.
Hann sagði síðar í viðtali við
franska sjónvarpið að innan
tveggja ára yrði líklega hægt að
finna út hvaða fólk væri líklegt til
að fá sykursýki, með þar til gerðum
prófum.
„Við vonumst til að það taki ekki
lengri tíma en þrjú, fjögur ár að
finna fyrirbyggjandi meðferð. Það
gæti tekið styttri tíma, og það gæti
tekið lengri tíma,“ sagði Bach að
lokum. Reuter-SIS
Italskri flugvél rænt
Allir farþegar og áhöfn ítölsku þot-
unnar, sem rænt var í gær, komust
heilir á húfi til síns heima eftir að
búið var að yfirbuga flugræningj-
ann.
I tilkynningu frá yfirvöldum á flug-
vellinum í Túnis kemur fram að all-
ir séu heilir á húfi og flugvélin hafi
verið tæmd af fólki.
Flugvélinni var rænt í gær á leið-
inni frá Róm til Túnis. Hún er af
gerðinni DC-9 og er í eigu ítalska
flugfélagsins Alitalia. Um borð í
flugvélinni voru 130 farþegar ásamt
áhöfn. Flugræninginn fyrirskipaði
að flugvélinni yrði flogði til Alsír, en
flugyfirvöld þarlendis heimiluðu
ekki lendingu þar. Þotan lenti í Tún-
is.
Talsmaður flugfélagsins, Marisa Ri-
olo, segir að búið sé að handtaka
flugræningjann. Reuter-SIS