Tíminn - 20.09.1991, Page 6
6 Tíminn
Föstudagur 20. september 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FELAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin (Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Gislason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Asgrimsson
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason
Skrtfstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavik. Siml: 686300.
Auglýsingasimi: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð i lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Forystuskylda ríkisvaldsins
Hafrannsóknastofnun hefur sent frá sér upplýs-
ingar um niðurstöðu seiðarannsókna sem gerðar
hafa verið á stóru hafsvæði kringum ísland auk
þess sem rannsókn fór fram á Grænlandshafi og
undan ströndum Austur-Grænlands. Fram hefur
komið að þessar rannsóknir hafi náð til stærra
heildarsvæðis en venjulegt er.
Niðurstaða þessara rannsókna sýnir mjög alvar-
legt ástand um vaxtarmöguleika þorskstofnsins.
Samkvæmt þeim hefur þorskklakið við ísland í ár
brugðist með stórfelldari hætti en dæmi eru til
þau rúmu 20 ár sem seiðarannsóknir hafa verið
framkvæmdar á vegum Hafrannsóknastofnunar.
Ekki er einasta að þorskárgangurinn 1991 sé
svo veikburða sem þessar mælingar sýna, heldur
er hér um að ræða sjötta árganginn í röð sem sýn-
ir litla viðkomu þorsks á íslandsmiðum og nálæg-
um hafsvæðum. Hvað varðar ástand klaksins á
þessu ári er sýnt að hinum mögru árum þorskv-
iðkomunnar fækkar ekki, þau gætu þess vegna
orðið sjö, ef ekki verður breyting á. Framreikning-
ur á þjóðarhag hlýtur að leiða til þeirrar niður-
stöðu að þjóðin verður að búa sig undir að mæta
erfiðu efnahagsástandi á næstu árum.
íslendingar geta ekki hlaupið frá þeirri stað-
reynd, að sjávarafli er driffjöður þjóðarbúskapar-
ins. Þeirri staðreynd verður að mæta af fullu raun-
sæi, hvorki með vanmati né ofmati. Hún leggur
öllum ráðandi öflum þá skyldu á herðar að taka
þátt í þeim viðbúnaði sem nauðsynlegur er til þess
að standast óhjákvæmilegan samdrátt í fiskveið-
um með þeim áhrifum sem hann hefur á aðrar at-
vinnugreinar og hvers kyns umsvif þjóðarbúsins. í
því efni er enginn þáttur þjóðarbúsins undanskil-
inn, ekkert ráðandi afl í þjóðfélaginu ábyrgðar-
laust né nein efnahagsstærð fráskilin því að koma
þar við sögu. Þegar horfur í þjóðarbúskap eru með
þessum hætti geta ráðamenn og hagsmunahópar
ekki vísað hver á annan. Slíkum vanda verður að
mæta með þjóðarsamstöðu um heildstæða lausn.
í því efni hefur ríkisvaldið forystuskyldu, sem
því ber að rísa undir. Ríkisstjórnin verður að sam-
eina þjóðina um markmið og leiðir, byggja upp
trúnaðartraust gagnvart slfkum aðgerðum með
því að jafna áhrifum efnahagsvandans réttlátlega
niður.
Nú er tækifæri fyrir ríkisstjórnina að láta á
reyna um vilja sinn í þessu efni, þegar samningar
um kaup og kjör launþega standa sem hæst. Nú er
síst minni ástæða til að fá launþega til samstarfs
um viðráðanlega þróun efnahagsmála en var fyrir
einu og hálfu ári þegar þjóðarsáttin var gerð.
Hvað sem líður einstökum efnahagslegum
stjórntækjum, hvort heldur er í peningamálum
eða ríkisfjármálum, er aðeins eitt sem sker úr um
jafnvægi í efnahagsmálum: friður á vinnumark-
aði. Ríkisstjórninni ber að stuðla að slíkum friði
með samráðum við launþegastéttina um heildar-
markmið og leiðir til að ná því.
■1 VÍTT OG BREITT
Uppmögnun vandamála
Fræg er sagan um lærisvein galdra-
meistarans sem stalst til að virkja
sópinn til að bera vatn og margra
annarra verka sem strákur nennti
ekki að vinna. En lærisveinninn var
langt frá því að vera fullnema í fræð-
unum og hann réð ekki við að stöðva
sópinn þegar nóg var að gert. Gerð-
ist sópurinn ofvirki hinn mesti og
hamaðist svo við húsverk og vatns-
burðinn að allt varð undan að láta og
höll galdrameistarans (ylltist af
vatni. Lærisveinninn fylgdist með,
vanburðugur að stöðva ofvirknina
sem hann hafði sjálfur komið af stað
og kunni engin ráð til að stöðva.
Þetta gamla ævintýri er sígilt dæmi
um alla þá angurgapa sem eru lagn-
ir að koma atburðarás af stað og ráða
svo engu um framvinduna þegar allt
er farið úr böndunum.
Ráðherragengi Davíðs Oddssonar
stendur nú í ströngu að reyna að
stöðva sópinn sem það hefur magn-
að upp og fer nú oífari um flesta
kima þjóðfélagsins og rótar upp
moldviðri sem byrgir flestum eðli-
lega sýn.
Fremstur meðal
jafningja
Ráðherramir eru óðum að reyna
að stöðva orðróm um hinar og þess-
ar meintar aðgerðir sem þeim er
ætlað aö fara að taka til höndum að
framkvæma. Enginn veit lengur
hvað em hugmyndir, sem aldrei
stóð tii að hrinda í framkvæmd, og
hvað em ráðagerðir sem búið er að
samþykkja í ríkisstjóminni.
Fremstur meðal jafningja í upp-
mögnun vandræða í tilraunum til
að stöðva ofvirknina er Sighvatur
Björgvinsson heilbrigðisráðherra.
Hann kemur fram í fjölmiðlum
dögum oftar og stritar við að leið-
rétta orðróm, sem orðinn er að
staðreyndum, um að ekki standi til
að leggja á sjúklingaskatt eða
minnka heilbrigðisþjónustu við
auralítið fólk, og reyndar ekki við þá
ríku heldur. En neitar ekki að slíkt
hafi kannski komið til tals á ein-
hverjum stigum fjárlagagerðarinn-
ar.
Samtök lækna og félagsmálaverur
af mörgu tagi mótmæla oft á dag að
fara eigi að leggja heilbrigðisþjón-
ustu á íslandi í rúst þótt sú aðgerð
sé hafin, því læknar staðfesta að fólk
sé farið að deyja úr sjúkdómum.
Þá er verklag á skurðstofum og
lyfjasortir á fleygiferð í umræðunni
með spakviturlegum hugleiðingum
um hvað séu skólagjöld og hvað
námskostnaður, hve margir nem-
endur eru skráðir í Reykjanesskóla
með frjóum athugasemdum um að
eftirleiðis eigi aðeins þeir ríku að fá
að vera heilbrigðir og menntaðir.
Þar með fylgir að þeir, sem mennta
og lækna, eiga líka að vera ríkir.
Vanhugsun
Auðvitað voru það engir aðrir en
ráðherramir sjálfir og nánustu sam-
starfsmenn þeirra sem komið hafa
allri umræðunni af stað með van-
hugsuðum og ótímabærum yfirlýs-
ingum um sukk og svínarí fyrri
ráðamanna og að þeir séu útvaldir
til að taka til höndum að koma lagi
á hlutina.
En allt snýst þetta í höndum
þeirra, vegna þess að ráðherramir
vom svo uppteknir að koma höggi á
forvera sína og þær stofnanir, sem
undir þá heyra, að þeir varast ekki
að það er ætlast til að mark sé tak-
andi á orðum og tillögum ráðherra.
Haldnir hafa verið blaðamanna-
fundir, m.a. af fjármálaráðherra, til
að reyna að leiðrétta þann misskiln-
ing að ráðherramir hafi meint eitt-
hvað með því sem þeir hafa látið
hafa eftir sér um fjárlagagerðina,
niðurskurð, spamað, útgjöld, skatt-
leysi þeirra efnuðu og fleira og
fleira.
En yfirlýsingagleðin hjaðnar ekki
og áfram er haldið að útmála hve
einstaklega erfið fjárlagagerðin sé.
Síðasta útspilið er atvinnutrygg-
ingadeild Byggðastofnunar, sem er
eins og allir vita undir háyfirstjóm
Matthíasar Bjamasonar alþingis-
manns, og á nú deildin sú að koma
illilega aftan að fjárlagagerð niður-
skurðarmeistaranna. Eru skuldir
deildarinnar framreiknaðar til
margra ára, einsog skuldir lífeyris-
sjóðs ríkisstarfsmanna í fýrri viku,
og fengnar út svakalegar taptölur
með aðferðinni og svosem 50 fyrir-
tæki umsvifalaust gerð gjaldþrota.
Hvemig þetta svartagallsraus
magnast upp í meðferðinni veit
enginn, enda spyrja vankunnandi
lærisveinar ekki að leikslokum.
En einsog allir muna endaði sagan
um lærisvein galdrameistarans
ágætlega, því þegar seiðkarlinri kom
heim kunni hann ráð að stöðva of-
virkni kústskammarinnar.
Svo var búin til yndisleg músík um
allt saman, en það er önnur saga.
OÓ