Tíminn - 20.09.1991, Blaðsíða 11
Föstudagur 20. september 1991
Tíminn 11
Atli Eövaldsson og félagar máttu þola tap í gærkvöldi fýrir ítalska liðinu Torino. Hér er Atli í baráttu viö
Roberto Mussi, en hann gerði fyrra mark ítalanna. Tímamynd Ami Bjama
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
KR-INGAR VORU
OFURLIÐIBORNIR
KR-ingar biðu í gærkvöidi iægrí hlut
fyrir ítalska liðinu Torino, 2-0, í frek-
ar daufum ieik á Laugardalsvelli.
ítalimir höfðu tögl og hagldir í nær
öllutn ieiknum, ef frá eru talin tvö
færi á sömu mínútunni í fyrri hálf-
leik.
KR-ingar hófu leikinn ágætlega og
spiluðu vel úti á vellinum, en gekk lít-
ið að komast í gegnum sterka vöm
Torinoliðsins, með fyrirliðann Bresci-
ani sem sinn besta mann. Ekkert var
um færi hjá hvorugu liðinu og það
var ekki fyrr en á 20. mínútu sem eitt-
hvað markvert gerðist Eftir vamar-
mistök í KR- vöminni barst boltinn
til Robertos Mussi, sem var staddur
utarlega í teignum. Hann var ekkert
að tvínóna við hlutina, heldur lét vaða
á markið og knötturinn hafhaði í net-
inu á bak við Ólaf Gottskálksson. Eft-
ir markið hresstust KR-ingar og á 23.
mínútu fengu þeir tvö dauðafæri. Það
fyrra var eftir aukaspymu Rúnars
Kristinssonar. Boltinn barst til Ragn-
ars Margeirssonar, sem var á mark-
teig, og renndi hann boltanum fyrir
markið, en þar vantaði mann til að ýta
knettinum yfir línuna. Hálfri mínútu
síðar gaf Gunnar Skúlason frábæra
sendingu innfyrir vöm Torino og þar
var Heimir Guðjónsson einn á móti
markverðinum, en á einhvem óskilj-
anlegan hátt tókst honum að klúðra
knettinum í hendumar á markverði
Torino. Eftir þennan einnar mínútu
hamagang, róaðist leikurinn á ný og
ítalimir fóru að fá meiri tök á leikn-
um. Það var síðan þremur mínútum
fyrir leikhlé sem að Atli Eðvaldsson
átti lúmskt skot, sem fór rétt framhjá.
0-1 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var algerlega eign
ítalanna og höfðu þeir öll völd á vell-
inum. Þó að þeir sæktu ekki mikið, þá
var leikurinn þeirra. Það duldist eng-
um. Á 55. mínútu fékk Casagrande
upplagt tækifæri til að auka muninn í
tvö mörk. Fékk knöttinn á markteig,
en tókst ekki ætlunarverk sitt. Átta
mínútum síðar kom annað mark Tor-
ino. Tekin var homspyma og barst
boltinn 10 metra út fyrir vítateig þar
sem Enrico Annoni stóð og þrumaði
knettinum í mitt KR-markið af 25
metra færi. Það var síðan á 85. mín-
útu sem síðast sást lífsmark með KR-
liðinu, en þá átti Rúnar Kristinsson
gott skot af löngu færi á ítalska mark-
ið og mátti ítalski markvörðurinn
hafa sig allan við til að verja, en það
tókst. Lokatölur því 0-2 Torino í hag.
KR-Iiðið var lakara liðið í gær. En þó
er aldrei að vita hvað gerst hefði ef
Heimir Guðjónsson hefði skorað úr
færi sínu í fyrri hálfleik. Fyrri hálf-
leikurinn var þó mun betri hjá liðinu
og er aldrei að vita nema að það hefði
hresst aðeins síðari hálfleikinn ef
skiptingar hefðu komið fyrr. Það var
ekki fyrr en þegar um 10 mínútur
vom eftir, sem Guðni Kjartansson sá
ástæðu til að setja þá Óskar Hrafn
Þorvaldsson og Bjarka Pétursson in-
ná fyrir þá Heimir Guðjónsson og
Gunnar Skúlason, sem í raun hafði
leikið vel og var furðulegt að Guðni
skyldi ekki taka Bjöm Rafnsson frek-
arútaf.
Bestir í KR-liðinu vom þeir Sigurð-
ur Ómarsson og Þorsteinn Halldórs-
son, sem börðust vel allan leikinn. Þá
átti Rúnar Kristinsson ágætar rispur,
en sást ekki þess á milli, enda lék
hann stöðu framherja. Þá var Sigurð-
ur Björgvinsson traustur. ítalska liðið
var traust. Liðið er jafnt þegar á heild-
ina er litið, en þó vom bestir þeir
Walter Casagrande, Enrico Annoni og
Giorgio Bresciani fyrirliði. ítalska lið-
ið er ömgglega sterkara á sínum
heimavelli og því má búast við að róð-
urinn verði þungur í síðari viðureign
liðanna í Torino.
Leikinn dæmdi Fred McKnight og
gerði ágætlega. -PS
Evrópukeppni landsliða U18:
ísland lagði
Belga að velli
íslensku strákamir, sem skipa
landslið 18 ára og yngri, lögðu í
gær jafnaldra sína frá Belgíu að
velli með tveimur mörkum gegn
einu á Varmárvelli í gærdag. Staðan
í hálfleik var eitt núll Belgum í hag.
ísland átti í vök að verjast allan fyrri
hálfleikinn, endu léku þeir gegn
sterkum vindi. Þá virtist fslenska
vörnin ekki alveg viss hvað hún væri
að gera. Belgar náðu að skora eitt
mark fyrir leikhlé.
En íslensku drengirnir komu
ákveðnir til síðari hálfleiks. Þegar
rúmar 20 mínútur vom liðnar af
hálfleiknum skoraði Kristinn Lá-
russon, einn besti maður íslenska
liðsins, gott mark. Aðeins fimm
mínútum síðar komst Helgi Sig-
urðsson einn í gegnum vöm Belg-
anna og skoraði sigurmarkið. fs-
lendingar fengu færi til að auka
muninn enn frekar, en tókst ekki.
Engu að síður var þetta góður sigur
hjá íslenska Iiðinu, með þá Helga
Sigurðsson og Kristin Lámsson sem
sína bestu menn.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Þœr þurfa að vera vélritaðar.
Eiginmaður minn
Páll Pálsson
fyrmm bóndl
Efri-Vík
verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju á Slðu laugardaginn 21. sept-
ember kl. 14.
Fyrir hönd vandamanna
V.
r
Magnea Guðrún Magnúsdóttlr
Ástkær móðir okkar
Halldóra Örnólfsdóttir
Sjónarhæð, ísaflrðl
verður jarðsungin frá isafjarðarkapellu laugardaginn 21. september
kl.14.
Böm, tengdabörn og bamaböm
-\
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir
Jón Hreiðar Kristófersson
Vesturbrún 9, Flúðum
verður jarðsunginn frá Hmnakirkju laugardaginn 21. september kl. 14.
Þeir sem vildu minnast hans láti Hjartavemd eða aörar liknarstofnanir
njóta þess.
V.
Jóhanna Sigrföur Danlelsdóttlr
Blrgir Þór Jónsson
Krlstln Ásta Jónsdóttlr
Krlstln Jónsdóttir
og systkinl hlns látna
'N
Þökkum inniiega auösýnda samúð við andlát og útför
Ingólfs Eide Eyjólfssonar
Garöbraut 74, Garöi
Eria Magnúsdóttir
Hafsteinn Eide Ingólfsson Aldfs Jónsdóttir
Þór Ingólfsson Hallfríöur Þorstelnsdóttlr
Kristín Ingólfsdóttir Ingólfur Þór Ágústsson
Ástgeir A Ingólfsson Kristín Andrésdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi
Þórður Guðnason
Sunnutúni, Stokkseyrl
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 21. september kl.
13.30.
Valgerður Sigurðardóttir
Elfar Þórðarson Helga Jónasdóttlr
Gerður Þórðardóttir BJarni Hallfreðsson
barnabörn og barnabarnabarn