Tíminn - 26.09.1991, Page 6

Tíminn - 26.09.1991, Page 6
6 Tíminn Fimmtudagur 26. septenber 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin f Reykjavfk Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gislason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrfmsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gfslason Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavfk. Sfmi: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð f lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Náttúra og umhverfi Ekki er langt síðan að fram kom í skoðanakönnun, að íslenskir kjósendur teldu umhverfismál eitt hinna brýnustu þjóðmála. Fleiri þjóðir munu líta eins á. Ef einhver alvara er á bak við slíkt almenningsálit ætti almenningur víða um heim að gera sér grein fyrir því að beint samband er milli lifnaðarhátta manna og eyðingarafla í náttúrunni. Með lifnaðar- háttum er ekki eingöngu átt við daglegt líf á heimil- um, heldur atvinnu- og framleiðsluhætti, allt sem maðurinn tekur sér fyrir hendur, lifir á og lifir fyrir. Þótt rétt sé að vara við öfgum órökstuddra örvænt- ingarkenninga um framtíð mannsins, er rangt að skella skollaeyrunum við ályktunum sem náttúru- fræðingar, líffræðingar, félagsvísindamenn og heim- spekingar draga af ástandi jarðargróðans og nátt- úrugæðanna sem mannkynið á allt undir um líf sitt og tilveru. Þess vegna er það sannmæli, sem áhrifamönnum og stjórnendum ríkja og þjóða ber að virða, að um- hverfísmál eru ekki síður nauðsynlegur þáttur stjórnmála en önnur þau þjóðfélagsleg málefni, sem lengi hafa verið talin sérstök viðfangsefni stjórn- málamanna, atvinnurekenda og félagsmálafrömuða. Vegna þess hversu marggreind þessi mál eru er erf- itt að bera neins staðar niður í umræðum um um- hverfísmál án þess að hver einstakur þáttur þeirra — hvort sem það er mengun, gróðureyðing, ofveiði eða hvað annað sem ógnar lífríki jarðarinnar — veki spurningar um lífshætti mannsins og framtíð heil- brigðrar náttúru og óspillts umhverfis. Ekki er efí á því að íslendinga varðar miklu að ná tökum á umhverfismálum og náttúruvernd engu síður en aðrar þjóðir. Atvinnu- og lifnaðarhættir Is- lendinga eru þess eðlis að þjóðin stendur frammi fyrir stórfelldri mengunarhættu, ofveiði og gróður- eyðingu og verður að kosta miklu til að koma í veg fyrir allt þetta. Stjórnvöld hljóta að hafa forgöngu í þessum efnum, en nauðsynlegt er að vekja forystu- menn atvinnulífsins til vitundar um ábyrgð sína í þessu efni. Ein er sú auðlind sem íslendingar eiga í ríkari mæli en aðrar þjóðir: Vatnið. Margir gera sér auðvitað grein fyrír þessu. íslensk fyrirtæki freista þess að gera vatn að útflutningsvöru. Ekkert er nema gott um það að segja, enda fyrirliggjandi að vatn er þegar söluvarningur í alþjóðaviðskiptum og á eftir að verða það miklu meira en er. Á hinn bóginn er ástæða til að harma það ástand í vatnsbúskap og vatnsöflun sem ríkir víða í löndum heims og á m.a. sinn þátt í því að íslendingar sjá lífs- björg í því að selja vatn til annarra landa. Eitt af því sem náttúrufræðingar benda á er það að vatnsból jarðarinnar séu á þrotum vegna foreyðslu á vatni. Því er spáð að að því kunni að koma, að vatn verði ekki síður orsök styrjalda en olía. Hér verður að vísu ekki sérstaklega tekið undir slíka spá, en hún gefur eigi að síður vísbendingu um ástand lífsskil- yrða sem nauðsynlegt er að bregðast við í tíma. GARRI Allt vélvæðist nú á dögum. Efcki er nema ein og hálf öld síðan rif- ist var um það á íslandi hvar halda bæri þingfunái. Var þá að- eins ljallað um hvar menn gætu talað fyrir málum, sem vörðuðu þjóðína, svona nokfcum veginn hjálpariaust. Hestafcerran hafði efcki cinu sinni verið flutt tll landsins hvað þá flófcnari búnað- ur, svo menn voru ekfei að velja stað með tilliti til vélvæðingar. Bjami Thorarensen og Júnas Hallgrímsson viidu veija endur- vöfctu Alþingi stað á Þingvöllum, þar sem það hafði verið"háð frá öndverðu. Jón Sigurðsson kaus hins vegar Reyfcjavífc. Það sjónar- mið varð ofan á. Síðan hafa verið uppi raddir um að fara að vilja stórskáldanna tveggja, Bjama og Jónasar, og flytja Alþingi til Þing- vaila. Hér á árum áður var Císii Cuðmundsson alþingismaður einn heisti talsmaður þess. Þeir, sem þetta viidu, bentu einmitt á, að tækni væri orðin það mifcd í fjarskiptum og ferðalögum, að engir erfiðieikar ættu að vera því fylgjandi að efna tíl þinghalds á Þingvöllum. Munn jafnvei sumir hafa haft sumarþing í huga. En það var fyrir daga laxveiðinnar. f stað þess að nota tæknina tif að flytja þinghaldið til Þingvalia hef- ur veríð brugðiö á það ráð að tæknivæða þinghúsið við Austur- völl, svo að í staðinn fyrir þá eðli- iegu áreynsiu sem fylgir þvf að skrifa já eða nei á miða eða rétta upp hönd, geta þingmenn nú fitl- að við tafcfca á borði sínu og þann- ig kveðið á um örlög þjóðarinnar. Með því móti er þinghúsíð orðið ígildi sæmilegs fisfciðjuvers. Spilað á græjurnar Miðað við þann gust, sem er á ríkisstjóm Davíðs Oddssonar, mætti ætla að ekki þyrfti miidð til þingtakkanna að grípa nú í byrjun næsta mánaðar. Eins og kunnugt er hefur hráðamein grípið flesta opinbcra sjóði landsins. Niðursfcurður vegna fjáriagagerðar hefur verið með þeim hætti, að efcfci er vitað hvort heiiir og áríðandi þættir þjóðfélagsins iifa stundinni íengur eða sfcemur. Skoðana- kannanir sýna að sjálfstæðis- menn og kratar hafa efcfci lengur þann meirihiuta á þingi, sem þeir státuðn af þegar stjómin var mynduð. Nú liggur fyrir þessari ríkisstjóm að fljóta næsta fcastið á töfcfcunum á Al- þingi. Þar situr hún í meiri- hluta, þótt fylgið sé farið, og getur spiiað af fingmm fram þá samdráttarsinfóníu á græjumar sem henni er hugleiknust. Eftir því sem melra syrtir í álinn í þjóðmálunum fjölgar græjunum á Alþingl, þánnig að hver meðal popphljómsveit mætti fcallast fullsæmd af. Mætti vel álíta eft- Ir öllum horfum um innihalds- leysi og ráðviliu ríkisstjómar- innar í vetur, að ríkisstjórain yrði með vorínu valin hesta popphljómsveit ársins. En þaö fer að sjálfsögöu eftir því hvera* ig henni tefcst að spila á hljóð* færin á Alþingi, sem nú hefur verið búið töfckum upp á eitt eða tvö Steinway. Matthías Bjarna- son verður svo látinn sjá um trommusóióaraar. Poppstjömur á þing Miðað viö tilhneigingar í þing- mannavaii og hið nýja hlutverk takka-þingsins, er ekki úr vegi að láta sér detta í hug, að næstir á þing verði þeir Megas og Bubbi. Fyrst að útséð er með það, að þjóðarhagur bjarglst e« þingið hefur í staðinn veríð búið undir popp og tafcfcavætt í hólf og góif, er efcki úr vegi að ætla heistu snillingum og gáfualjósum poppsins stað á Aiþingi. Þá geta þingvinir og aðdáéndur mætt vælandi á Austurvelli, berir að ofan, eins og venjan er við uppá- komur á Læfcjartorgi og tekið undir við guði sína. Það hvarílar náttúrlega efcki að neinum, að Alþingi Islendinga er elsta þing í heimi. Sem móðir alhra annarra þinga hefur það siðvenjur að verja, sem felast m.a. ekki í tæýabrasi japanskra smárafram- ieiðenda. En það er ekfci von aö þingmenn almennt átti sig á þessu, eða hafi tillfinningu fyrir því stóra söguiega hlutverfci, sem þeir gegna með setu sinni á þingi. Þeir koma úr sauðfjárfcjör- dæmum og sjávarþorpum, eða frá lögfræðiprófum hjá hásfcóla, sem heidur að Snorri Sturluson sé númer tvö af íslenskum höf- undum. Þegár Bjarhi og Jónas töluðu um haukþing á bergi vom þeir ekki að tala um tölvuvætt hljóðvér við Austurvöll. Rödd sfcynsamra manna heyrist alls staðar, jafnvel þótt þelr bvfsJl. En f stað þess að treysta á þessar raddir eða þetta hvísl þarf að nota tafcfca. VÍTT OG BREITT Fúskarar í stórbyggingum Vel má taka undir það að ekki sé of í lagt að ráðhús í höfuðborg kosti þrjá milljarða króna. Auk heldur þegar húsin eru tvö og samtengd með tveggja kjallara bílageymslu. Ráðhús eiga að vera vegleg og þaö á að vera metnaðar- mál íbúa höfuðborgar að ekkert sé til sparað að gera svona sam- eign hvað glæsilegasta og gæti fimm eða tíu milljarða kostnaður þess vegna verið vel við hæfi. En þá þyrftu líka væntanlegir eig- endur ráðhússins að vera búnir að samþykkja að leggja svo háar upphæðir til framkvæmdanna. Þegar bygging ráðhúss Reykja- víkur við Tjörnina hófst 1987 eft- ir samkeppni og dómnefndarúr- skurð, var áætlað að verkið kost- aði svo sem hálfan milljarð króna. En þá var verðbólga og kauphækkanir hjá bygginga- verkamönnum, svo að engum þótti mikið þegar ný kostnaðar- áætlun, sem gerð var 1989, hljóð- aði upp á hálfan annan milljarð. Síðan hefur verðbólgu verið haldið niðri og sáralítil hækkun orðið á Dagsbrúnartexta, en samt sýnir splunkuný kostnaðaráætl- un að ráðhúsin eigi að kosta nær þrjá milljarða króna. Og enn er mikið eftir að fram- kvæma og má Davíð einn í stjórn- arráðinu vita hver endaníegur kostnaður verður. Klaufar að reikna Enn skal endurtekið að ráðhús má vel vera dýrt og glæsilegt. En það er eitthvað meira en lítið að, þegar reikningarnir verða helm- ingi hærri en lofað var að selja það á í upphafi. Hönnuðir og verktakar hafa séð um framkvæmdina samkvæmt pöntunum borgarstjórnar. Skatt- greiðendur í Reykjavík borga. Að húsin skuli kosta helmingi meira nú, en lofað var fyrir tæp- um tveimur árum, eru svik. Þetta tímabil hefur ríkt þjóðarsátt og verðbólga verið sáralítil miðað við fyrri tíð, og hafa engin hald- bær rök verið færð fyrir því að hækka verkpöntunina um helm- ing. Aðstoðarmaður aðstoðarmanns í borgarkerfinu er látinn gefa loðn- ar upplýsingar og lélegar afsakan- ir fyrir kostnaðaraukanum og eru böndin látin berast að verktökum og hönnuðum. En manni er spurn: Er þetta ekki allt unnið samkvæmt útboð- um og eiga ekki hönnuðir að undirbúa verk og verktakar að vita í hvað þeir eru að bjóða? Eða kann þetta fólk alls ekki að reikna? Hefur það ekki hugmynd um hvað það er að taka að sér og hvað kostar að vinna verkin, sem það þykist hafa sérhæft sig í að framkvæma? Þarf það ekki að standa við neina skilmála, sem verktaki hlýtur að samþykkja þegar hann tekur verk að sér? Er verkkaupanda fjandans sama þótt allar kostnaðaráætlanir fari úr böndum og verktakar og hönnuð- ir hrifsi helmingi hærri upphæð- ir til sín en um var samið? Hvaða apa- og slönguspil eru það eiginlega sem verktakar, hönnuðir og opinberir verkbeið- endur eru að leika sín á milli á kostnað skattborgaranna? Svara við spurningunum er ekki vænst, því þau munu sem endra- nær ofbjóða dómgreind þeirra sem óska skiljanlegra skýringa. Vel má byggja fínt og dýrt Það er orðin regla að opinberar stórframkvæmdir á sviði bygginga- listar kosti heimingi meira en reiknað er með í upphafi. Nægir að benda á Flugstöð og Perlu. Hönnun bygginganna og verklýs- ingum virðist mjög áfátt og verk- takar hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru að taka að sér, og sýnast svo aldrei þurfa að standa við tilboð sín. Svona vinnubrögð eru fúsk og aft- ur fúsk og bera því vitni að þeir, sem verkin vinna, séu miklu flínk- ari að skrifa út reikninga og fá þá borgaða en að meta hvað verkin leggja sig á í upphafi. En það er ein- mitt það sem verktakastarfsemin byggist á. En á meðan stjómmálamenn og aðrir vörslumenn opinberra fjár- muna átta sig ekki á leikreglunum munu hönnuðir og verktakar fara sínu fram og blóðmjólka skatt- greiðendur og kjömir leiðtogar hrósa sér af athafnaseminni. Opinberar byggingar eiga að hafa reisn, vera „monumental". Þær mega vera dýrar, en umfram allt vandaðar og smekklegar. íbúarnir eiga að líta til þeirra með stolti og li'ta á þær sem sameiginlega eign sína og eiga enda einhvern aðgang að þeim. En það þýðir ekki, að hönnuðir og verktakar slíkra bygginga líti á skattgjöld sem einhverja gullgæs sem verpir þeim til dýrðar og arð- semi. Ef reist er bygging fyrir þrjá millj- arða á að reikna út í upphafi að hún kosti þrjá milljarða, en ekki en ekki hálfan eða einn og hálfan. Það er í því sem fúskið og svikin liggja. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.