Tíminn - 26.09.1991, Síða 15
Fimmtudagur 26. september 1991
Tíminn 15
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
„Ásgeirs-aðferðin“ gekk upp
Islenska liðið sýndi stórleik í fyrsta
sigri íslands á Spáni
Spánvetjar urðu að láta í minni
pokann í gær þegar íslenska lands-
liðið í knattspymu vann 2-0 sigur í
Evrópukeppni landsliða á Laugar-
dalsvelli. Leikurinn markaði þátta-
skil í landsliðssöguni, þar sem nýr
þjálfari, Ásgeir Elíasson, var við
stjómvölinn, með nýja leikaðferð
og nýja leikmenn. Óhætt er að segja
að „Asgeirs-aðferðin" hafi gengið
upp í gær, íslenska liðið lék á köfl-
um mjög vel og stórleikur liðsins í
síðari hálfleik verður lengi í minn-
um hafður. Spánverjar áttu ekkert
svar við leik íslenska liðsins og leik-
menn liðsins, sem flestir koma frá
stórliðunum Real Madrid, Barcel-
ona og Atletico Madrid, náðu vart
að ógna íslenska markinu.
Mikil harka var í leiknum, þó eink-
um framan af. íslenska liðið virkaði
óöruggt og Spánverjamir náðu ekki
að sýna sinn rétta leik. Ólafur Þórð-
arson fékk besta færi fyrri hálfleiks;
fékk boltann óvaldaður við vítateig-
inn eftir sendingu Kristjáns Jóns-
sonar, en var lengi að athafna sig og
Zubizarreta varði skot hans. Besta
færi Spánverja fékk „Manolo" þegar
skot hans smaug framhjá stönginni
utanverðri. Annars var fyrri hálfleik-
ur lítið fyrir augað, en íslenska liðið
óx með hverri mínútunni.
Ein breyting var gerð á íslenska lið-
inu í leikhléinu, Andri Marteinsson
kom inná fyrir Val Valsson, sem
meiddist í fyrri hálfleik. Þessi skipt-
ing virtist hafa mjög jákvæð áhrif og
íslenska liðið lék betur saman en áð-
ur og ógnaði meira en gestimir. Á
50. mín. vann Eyjólfur Sverrisson
boltann í vítateig Spánverja, gaf fyr-
ir á Sigurð Grétarsson, en vamar-
maður náði að komast fyrir skot
Sigurðar og boltinn fór í boga rétt
yfir markslána. Stuttu síðar skallaði
Kristján Jónsson frá á marklínu, eft-
ir skot Spánverja. Eyjólfur var held-
ur seinn að átta sig á 59. mín. er
hann fékk góða sendingu frá Andra,
varnarmaður komst á milli á síðustu
stundu. Þar fór sannkallað dauða-
færi í súginn. Spánverjar svömðu
með góðri sókn á 65. mín. sem end-
aði með skoti „Manolos" rétt fram-
hjá markinu.
íslands náði forystunni á 71. mín.
Sigurður Jónsson átti góða send-
ingu inn fyrir spænsku vömina á
Þorvald örlygsson, sem renndi
tánni íboltann. Zubizarreta átti ekki
möguleika á að verja, boltinn fór í
bláhomið, 1-0. Stuttu síðar fór skot
Vizaino úr aukaspymu í íslenskan
varnarmann og framhjá. Hom-
spyma á 78. mín. gaf íslenska liðinu
annað mark. Sigurður Grétarsson
gaf aftur á Sigurð Jónsson, hann gaf
inná teiginn þar sem Eyjólfur Sverr-
isson var fyrstur í boltann og skor-
aði af stuttu færi, 2-0. Hvorki Eyjólf-
ur né Þorvaldur hafa fyrr skorað
mark í landsleik.
Það sem eftir lifði leiks reyndu
Spánverjar að sækja, en íslenska lið-
ið hélt boltanum vel sem fyrr og gaf
ekkert eftir. Hörður Magnússon
kom inná fyrir Baldur Bjamason á
74. mín. Hörður átti góðar rispur
upp völlinn með boltann og fast
langskot að marki, en nokkuð fram-
hjá.
Eins og áður segir lék íslenska lið-
ið mjög vel, þó einkum í síðari hálf-
Ieik. Erfitt er að taka einstaka leik-
menn út úr, þar sem allir stóðu sig
mjög vel. Vörnin var vanda sínum
vaxin, miðjan hélt boltanum vel og
lék vel saman og sóknarmennimir
voru mjög ógnandi. Þá var Birkir
Kristinsson mjög ömggur í mark-
inu. Baldur Bjarnason lék sinn
fyrsta landsleik og komst nokkuð vel
frá sínu, þegar hann hafði komist yf-
ir taugaspennuna. Hörður sýndi
það, þær mínútur sem hann lék, að
hann á fullt erindi í landsliðið.
Lið íslands: Birkir Kristinsson, Pét-
ur Ormslev, Kristján Jónsson, Guðni
Bergsson, Valur Valsson (Andri Mar-
Sagt eftir leikinn:
Ási Jeir Elíasson landsliðsþjálfari:
„Eg taldi fyrir leikinn að við ætt-
um jafna 50-50 möguleika á sigri,
en í dag hafði ég mikla trú á því að
við myndum sigra. Það var létt yfír
mér í dag, en ég fékk aðeins í mag-
ann fyrir leikinn."
„Þrátt fyrir sigurinn hefði ýmis-
legt mátt betur fara, undirbún-
ingstíminn var stuttur og við vor-
um í vandræðum í byrjun leiksins.
Miðjan var þá of framarlega, en það
lagaðist í síðari hálfleik. Mér hefur
alltaf fundist lítið vanta uppá að við
næðum góðum úrslitum gegn
sterkum þjóðum hér á heimavelli."
„Ég hafði ekki áhyggjur af þeirri
gagnrýni sem fram kom á valinu á
liðinu, það heyrast alltaf óánægju-
raddir þegar landslið er valið. Leik-
aðferðin, hvort sem hún er kennd
við Fram eða ekki, er góð leikað-
ferð, það sýndi sig í dag.“
Krístján Jónsson:
„Þetta er góð byrjun fyrir Ásgeir,
leikaðferðin gekk upp. Léttleikandi
spil og boltanum haldið, minni
kraftafótbolti. Þetta var erfiður
leikur, þó ekki sá erfiðasti sem ég
hef leikið, leikurinn gegn Barcel-
ona úti í fyrra var erfiðari."
Þorvaldur Öríygsson:
„Fyrsta landsliðsmarkið kom á
besta tíma, það var stórkostlegt að
sjá á eftir boltanum í netið. Við
vorum þolinmóðir og héldum
boltanum meira en áður og spiluð-
um okkur út úr pressunni. Ný leik-
aðferð, sem hentar okkur vel, og
ferskir menn höfðu sitt að segja og
nú nýttum við dauðafærin."
Baldur Bjamason:
„Það var gaman að leika sinn
fyrsta landsleik gegn Spáni og
sigra. Það er ekki að ráðast á garð-
inn þar sem hann er lægstur. Þetta
er Fram-takturinn, hann hentar
betur en gamla leikaðferð lands-
liðsins. Ég var stressaður í byrjun,
en strákarnir Iéku vel og þetta var
góður leikur.“
Eyjólfur Sverrisson:
„Það var gaman að skora fyrsta A-
landsliðsmarkið í sigurleik. Við
sýndum að við getum haldið bolt-
anum og það gerir allt auðvald-
ara.“
Pétur Ormslev:
„Ég er mjög ánægður með leikinn
og það var gaman, en erfitt, að
koma inní liðið eftir það sem á
undan er gengið. Við sýndum núna
að þetta er hægt Breytingin, sem
gerð hefur verið, hefur gert liðinu
gott. Við þekkjum leikaðferðina
vel, þeir Framarar sem eru í liðinu,
og hinum Ieist einnig vel á þetta.
Ásgeir lagði hart að mér að ég gæfi
kost á mér í liðið, ég lét undan og
ætla að halda áfram."
BL
Andri Marteinsson lék vel í síðari hálfleik í landsleiknum í gær, en hann kom inná sem varamaður í
leikhléi. Á myndinni hér að ofan á hann i höggi við Juan Goicoehcea. Timamynd Ámi Bjama
teinsson á 46. mín.), Baldur Bjarna-
son (Hörður Magnússon á 74. mín.),
Sigurður Jónsson, Ólafur Þórðar-
son, Þorvaldur Örlygsson, Sigurður
Grétarsson, Eyjólfur Sverrisson.
BL
KNATTSPYRNA
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIl) ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Landsbvgeðar-
ÞJÓNUSTA
fyrirfólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinni.
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur létt fólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5 -108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Færeyingar
steinlágu
Færeyingar töpuðu stórt fyrir
stóra bróður Dönum í 4. riðli und-
ankeppni EM í gærkvöld. Þeir töp-
uðu 0-4 í Landskrona í Svíþjóð.
Kim Christofte skoraði úr víta-
spymu á 2. mín. Bent Christian-
sen bætti öðm marki við á 7. mín.
Frank Pingel skoraði þriðja mark-
ið á 69. mín. og Kim Vilfort átti
síðasta orðið á 76. mín.
Jafnt í Moskvu
Sovétmenn og Ungverjar gerðu
2-2 jafntefli í 3. riðli í Moskvu í
gærkvöld. Staðan var jöfn í leik-
hléi 1-1.
ítalir töpuðu
ítalir töpuðu fyrir Búlgömm 1-2 í
Sofíu í vináttulandsleik í gær-
kvöld.
Gianluca Vialli og einum Búlgara
var vikið af leikvelli á lokamínútu
leiksins fyrir slagsmál, en áður
hafði einn Búlgari fengið að líta
rauða spjaldið.
Stórsigur Stuttgart
Stuttgart vann 6-1 sigur á útivelli
gegn Freiburg í þýsku bikarkeppn-
inni í gærkvöld.
Af öðmm úrslitum má nefna að
Kaiserslautem vann 0-1 sigur á
Bamberg og Karlsmhe vann Ham-
borg með sama mun. BL
Elskulegur eiginmaður minn
Ölvir Karlsson
Þjórsártúni
lést 24. september.
Kristbjörg Hrólfsdóttir
Póstur og sími óskar
að ráða
starfsmann með þekkingu og einhverja reynslu
í tölvumálum.
Upplýsingar hjá starfsmannadeild,
Landsímahúsinu v/Austurvöll.
PÓSTUR OG SÍMI