Tíminn - 09.10.1991, Side 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 9. október 1991
Framfærslukostnaður hækkaði þrisvar sinnum meira í september-október nú en fyrir ári:
Verðbólgan mallar
ennþá á 8-9% hraða
Hjá vísitölufjölskyldunni okkar er nú svo komið að það kostar
hana eins mikið að komast á milli staða eins og fer til matar-
kaupa. Þaö hlutfall af heildarútgjöldum þessarar frægu fjöi-
skyldu, sem fer til matarkaupa, hefur á einu ári lækkað úr
19,6% niður í 18,7%, á sama tíma og rekstrarkostnaður einka-
bíla og reiðhjóla og fargjöld almenningsfarartækja hefur hækkað
úr 17,9% upp í 18,7% heildarútgjaldanna. Matarkostnaður fjöl-
skyldunnar er nú um 40.700 krónur á mánuði og hefur aðeins
hækkað um 3,1% (eða 1.300 kr.) á heilu ári. Ferðakostnaður
hennar hefur hins vegar hækkað um 12,4% (eða 4.500 kr.) síð-
ustu tólf mánuðina, upp í 40.500 krónur á mánuði núna í októ-
ber.
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,8% milli september
og október. Þetta er því fjórði mán-
uðurinn sem verðbólgan hefur
mallað á bilinu frá 7% og upp í
10% hraða. Svo virðist sem erfið-
lega gangi að lækka verðbólgu-
hraðann meira en það.
Þessi 0,8% vísitöluhækkun nú er
t.d. hátt í þreföld hækkun milli
sömu mánaða (0,3%) fyrir ári.
Umreiknað til heils árs mælir vísi-
talan nú 9,5% verðbólgu í staðinn
fyrir 3,3% í október í fyrra. Síðustu
sex mánuði hefur verðbólguhrað-
inn mælst í kringum 11%, þ.e.
tvöfalt meiri en sú 5,8% verðbólga
sem var hér á sömu sex mánuðum
í fyrra.
Þessi 0,8% hækkun vísitölunnar
milli september og október verður
heldur ekki rakin til neinna sér-
stakra hluta, heldur hafa verð-
hækkanir átt sér stað á fjölda teg-
unda, bæði vöru og þjónustu, í
flestum flokkum vísitölunnar.
Þannig hækkuðu t.d. matvörur
milli mánaða um 0,6% (fyrst og
fremst vegna verðhækkana á kjöt-
vörum). Fatnaður hækkaði um
tæp 2%, rafmagn og hiti um 2,3%,
rekstrarkostnaður einkabílsins
um 0,6%, bækur og blöð um 3,5%,
ólögbundnar tryggingar um 2,6,
veitingahúsaþjónusta 0,8%, póst-
ur og sími um 5,2% og ýmis þjón-
usta um 3,2%.
Verði yfirlýst stefna stærstu
launagreiðenda landsins að veru-
leika, um engar kauphækkanir
næsta ár eða næstu ár, virðist ljóst
að kaupmátturinn hlýtur að verða
fljótur að hrapa niður ef verðbólg-
an heldur áfram á svipuðum hraða
og núna að undanförnu.
Á s.l. tólf mánaða tímabili, þ.e. frá
október í fyrra, hafa einstakir
flokkar framfærsluvísitölunnar
hækkað sem hér segir:
Matvörur 3,1%
Drykkjarvörur/tóbak 8,8%
Fatnaður 7,9%
Húsgögn/tæki o.fl. 5,8%
Húsnæði/rafmagn/hiti 12,3%
Heilsuvernd 11,5%
Ferðir og flutningar 12,1%
Tómstundir/menntun 8,2%
Aðrar vörur og þjónusta 6,2%
Vísitalan alls 8,2%
Það er fjármagnskostnaðurinn,
orkukostnaðurinn, ferðakostnað-
urinn, ásamt læknis- og lyfja-
kostnaði, sem hækkað hefur lang-
mest á undanförnu eins árs tíma-
bili — eða um fjórfalt meira held-
ur en matarkostnaðurinn, þar sem
verðhækkanir eru aftur á móti
minnstar. - HEI
Nýir menn í
útvarpsráði
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
hefur tilnefnt menn til setu í út-
varpsráði, en sem kunnugt er sögðu
tveir aðalmenn og einn varamaður
sig úr ráðinu vegna óánægju með þá
ákvörðun Ólafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra, að ráða Heimi
Steinsson í stöðu útvarpsstjóra. Að-
almenn í ráðinu verða Halldóra
Rafnar lögfræðingur, séra Hjálmar
Jónsson og Davíð Stefánsson, for-
maður S.U.S.
Eftir að Inga Jóna Þórðardóttir og
Magnús Erlendsson sögðu sig úr út-
varpsráði tóku Hjálmar og Halldóra
þar sæti, en þau voru varamenn í
ráðinu. Þriðji varamaðurinn, Friðrik
Friðriksson, sagði einnig af sér. Vara-
menn í ráðinu verða Guðmundur H.
Garðarsson, Dögg Pálsdóttir og Pét-
ur Rafnsson.
Alþingi kýs í útvarpsráð og er búist
við að á næstu dögum verði tillaga
sjálfstæðismanna lögð fyrir þingið.
Menntamálaráðherra skipar for-
mann ráðsins. Eftir að Inga Jóna
Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs,
sagði sig úr ráðinu tók Guðni Guð-
mundsson, fulltrúi Alþýðuflokksins í
ráðinu, við formennsku. Ljóst er að
menntamálaráðherra mun skipa for-
mann ráðsins úr röðum sjálfstæðis-
manna og er helst búist við að næsti
formaður útvarpsráðs verði Halldóra
Rafnar. -EÓ
Heimsmeistaramótið í bridge:
ISLENDING-
AR í ÚRSLIT
Þessi fiutningabíll hafði fokið þversum á þjóðveginum í Kollafirði í fyrradag.
Norðaustanrok á vestanverðu landinu:
BÍLAR FUKU AF VEGUM
íslenska landsliðið leikur til úr-
slita við Pólveija um heims-
meistaratitilinn í bridge. Það
vann Svía með 11 stigum í und-
anúrslitum í fyrrinótt.
Leikurinn sá var æsispennandi.
Svíar höfðu betur til að byrja með,
íslendingar komust svo yfir og
höfðu nokkurra stiga forskot þegar
2,6 milljarðar í Verðjöfnunar-
sjóði sjávarútvegsins:
Bankar sjái
um sveiflu-
jöfnun
Átta þingmenn Framsóknarflokks-
ins hafa lagt fram frumvarp á Al-
þingi um að fyrirtækjum, sem
greifta í Verðjöfnunarsjóð, verði gert
heimilt að inna greiðslu af hendi til
síns viðskiptabanka eða innláns-
stofnunar þar sem fjármagnið verði
ávaxtað. Fyrsti flutningsmaöur
frumvarpsins er Stefán Cuðmunds-
son alþingismaður.
Lög um Verðjöfnunarsjóð sjávarút-
vegsins tóku gildi 1. júní 1990. Hlut-
verk sjóðsins er að draga úr verð-
sveiflum á sjávarafurðum á þjóðar-
búskapinn. Greiðslur í sjóðinn eru
geymdar á verðjöfnunarreikningi á
nafni viðkomandi framleiðenda.
Flutningsmenn telja rétt að gefa
framleiðendum tækifæri til að
ávaxta hluta af afrakstri atvinnu-
starfsemi sinnar í viðskiptabönkum
fyrirtækjanna sjálfra, enda sé full-
nægt almennum reglum sem sjóð-
stjóm setur m.a. um ávöxtun fjárins.
I Verðjöfnunarsjóði eru nú um 2,6
milljarðar króna. Greitt er í sjóðinn
þegar markaðsverð í hverri deild er
að meðaltali 3-5% hærra en staðvirt
meðalverð (grundvallarverð) síðustu
5 ára og skal innborgunin vera 50%
af því sem umfram er. -EÓ
tvö spil voru eftir. Þá spiluðu Islend-
ingarnir tvö hjörtu á spili sem í voru
fjórir spaðar. Hefðu sænsku spilar-
arnir komist á snoðir um leikaðferð-
ina, hefði það svo gott sem tryggt
þeim sigur. Þeir teygðu sig hins veg-
ar heldur lengra, alla leið í sex spaða
sem aldrei gátu staðist, og þar með
var sigur íslenska liðsins í höfn.
Ekki þarf að taka fram að árangur
íslenska liðsins er frábær. íslensku
spilaramir em áhugamenn að
syndga upp á náð vinnuveitenda
sinna til að geta keppt við menn sem
gera ekki annað en að spila bridge.
Tíminn tekur sér það bessaleyfi að
spá því, þrátt fyrir allan sparnað, að
spilararnir verði settir á laun hjá rík-
inu, líkt og stórmeistarar í skák
njóta nú.
-aá.
Norðaustan hvassviðri gekk yflr
landið vestanvert í fyrrakvöld með
særoki víða og hálku, svo bflar fuku
af vegum. Ekki urðu slys á fóiki.
Tveir bflar lentu harkalega saman í
Kollafirði eftir að þeir runnu til á
hálku sem myndaðist vegna særoks.
Aðrir tveir fuku út af í Hvalfirði og á
Kjalarnesi. Illfært var um sunnan-
vert Snæfellsnes. Þar fauk jeppabif-
reið út af veginum og henni fylgdi
síðan flutningabifreið. Rafmagns-
laust var á öllu Snæfellsnesi.
Hvassviðrinu fylgdi mikið mold-
viðri af hálendinu niður Suður-
landsundirlendi og á haf út, allt til
Vestmannaeyja.
Vindurinn var víðast 8 til 9 stig, en
náði mestum hraða 10 stig í hvið-
um. -aá.
Almenningsvagnar bs.:
Sjö bjóðast
til að sjá um
strætó
Almenningsvagnar bs. fengu 14 til-
boð frá sjö aðilum í strætisvagna-
akstur á höfuðborgarsvæðinu utan
Reykjavíkur. Boðnir vom út fimm
aðskildir pakkar, hver og einn
áhugasamra gat boðið í einn eða
fleiri. Að sögn Amar Karlssonar,
framkvæmdastjóra Almennings-
vagna bs., em tilboðin misjöfn að
innihaldi vegna þessa, og nokkuð
starf óunnið við að flétta þau saman.
Þau em bindandi til 21. október.
Stjórn Almenningsvagna bs. tekur
ákvörðun fyrir þann tíma.
Þeir, sem buðu í strætóferðir, em
starfsmenn Strætisvagna Kópavogs,
Guðmundur Guðnason í Mosfellsbæ,
Allrahanda hf. í Kópavogi, Jónatan
Þórisson, Teitur Jónasson, Norður-
leiðir/Landleiðir og Hagvirki/Klettur
Örn vildi ekki segja hverjir væm lík-
legastir til að hljóta hnossið. Alþýðu-
blaðið segir þó frá því í gær að það sé
Hagvirki/Klettur. -aá.
Stjóm og formaður Landssambands verslunarmanna fá kald-
ar kveðjur frá verslunarmönnum á Austurlandi:
Megn óánægja meö
forystuna í LÍV
Verslunarmannafélögin á Austurlandi héldu fund tneð sér á
Reyðarfirði um helgina þar sem fram kom mikil óánægja með
störf Landssambands verslunarmanna. Óánægjan tengist því
sem austfirskir verslunarraenn kalla „linkind í launabaráttu
þessa láglaunahóps í þjóðfélaginu“.
Á þessum fundi kom fram mjög hátt, sem einkennt hafa stöif
ákveðin samstaða um að ekkert
annað en verulegar kjarabætur
kæmu tíl greina f komandi kjara-
samningum til handa verslunar-
og skrifstofúfóDd. Því var sam-
þykkt gerð um það að fundurinn
skoraði á allt verslunarfólk að
setja kröfur sínar á mannsæm-
and) iaun.
í ályktun fundarins segir nu. að
hann lýsi „megnrí óánægju með
störf stjórnar og formanns L.Í.V.
og þann seinagang og þegjanda-
L.Í.V. varðandi komandi kjara-
samttinga. Einnig telur fundur-
hm að slaklega hafi verið staðlð
að kynningu á stöðu verslunar-
fólks, sem fær greitt samkvæmt
töxtum. Fundurinn hvetur til al-
gerrar einingar allra aðildarfélaga
L.Í.V. um kröfur í komandi kjara-
samningum. Fundurinn lýsir yflr
stuðningi við þær tíDðgur, sem
undírbúnar hafa verið sem krijfu-
gerð af háifu L.Í.V. f komandi
kjarasamningum."
Á fundinum á Reyðarfirði var
saman komin stjóm Verslunar-
mannafclags Austuriands, ásamt
trúnaðarmönnum úr ölium þétt-
býliskjömum af svæðinu aHt frá
Vopnafirði tíl Djúpavogs.
Á fundinum var jafnframt sam-
þykkt áiyktun þar sem elndregið
er lagst gegn fyrirætlunum rflds-
valdsins um að leggja nlður
Skipaútgerð rfldsms. I ályktun-
inni segir m.a.: , Augljóslega
mundi það hafa áhrif á vöruverð
og þjónustu á hinum ýmsu stöð-
um á l&ndsbyggðinni, auka enn á
misræmið milli þéttbýlisins á
suðvesturhorainu og landsbyggð-
arinnar, sem þá mundi lelða tíl
enn frekari byggðaröskunar.“