Tíminn - 09.10.1991, Side 5
Miðvikudagur 9. október 1991
Tíminn 5
Félagsmálaráðherra tilkynnir breytingar á húsbréfakerfinu sem miða að
því að draga úr útgáfu húsbréfa um 4-5 milljarða:
Hámarkslán vegna
húsbréfa lækkað
Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra, um breytingar á húsbréfakerfinu. Hámarksfjár-
hæð fasteignaveðbréfs, sem skipta má fyrir húsbréf, mun lækka úr
9,7 milljónum í 5 milljónir vegna kaupa á notaðri íbúð, í 6 milljón-
ir vegna kaupa á nýrri íbúð og í 3 milljónir vegna meiriháttar við-
bygginga, endurbóta og endumýjunar á notuðu íbúðarhúsnæðis.
Markmiðið er að draga úr útgáfu á húsbréfum um 4-5 milljarða á
næstu 15 mánuðum. Reiknað er með að gefin verði út húsbréf á
þessu tímabili fyrir 12 milljarða.
Ríkisstjómin stefnir að því að draga
úr lántökum á ábyrgðum ríkissjóðs
milli áranna 1991 og 1992 um 10
milljarða. Þær ráðstafenir, sem nú er
gripið til, em hluti af aðgerðum sem
miða að þessu markmiði. Reiknað er
með að gefin verði út húsbréf fyrir 12
milljarða á næstu 15 mánuðum, en
gefa hefði orðið út bréf fyrir 16-17
milljarða ef reglum hefði ekki verið
breytL
Jóhanna sagðist ekki telja að þessar
breytingar leiði til þess að biðröð
myndist eftir húsbréfum. Hún sagði
að þær leiðir, sem voru fyrir, hafi ver-
ið að hækka vexti í húsbréfakerfinu,
stytta lánstímann eða lækka lánshlut-
fallið. ,Allar þessar leiðir hefðu þyngt
greiðslubyrði hjá fólki. Ég taldi að
þessi leið væri miklu vænlegri til ár-
angurs og myndi skila því sem að
væri stefnL Sú leið, sem hér er farin,
kemur helst við fólk með háar tekj-
ur,“ sagði Jóhanna. Hún sagðist von-
ast til að þessar ráðstafanir stuðli að
því að aíföll á húsbréfum minnki.
Með reglunum verður sú breyting
að fasteignaveðbréf má ekki nema
hærri fjárhæð en nemur mismun á
söluverði fyrri eignar íbúðarkaup-
anda eða húsbyggjanda, að frádregn-
um áhvílandi lánum og matsverði
þeirrar íbúðar sem sótt er um skulda-
bréfaviðskipti fyrir.
Þá verður þeim, sem sótt hafa um
lán vegna meiri háttar viðbygginga,
endurbóta og endumýjunar á notuðu
íbúðarhúsnæði, veittur aðgangur að
húsbréfakerfinu, en lánsumsóknir
vegna slfkra framkvæmda hafa hlað-
ist upp í Húsnæðismálastofnun. Um-
sóknir eru nú á fjórða hundrað. Ekki
verður skipt á húsbréfum sem nema
lægri fjárhæð en 650 þúsund krón-
um, miðað við vísitölu 1. okL 1991.
Lágmarkskostnaður vegna endurbóta
þarf því að vera um 1 milljón króna.
Heimild til skuldabréfa vegna meiri-
háttar endurbóta og endumýjunar á
notuðu íbúðarhúsnæði kemur til
framkvæmda í áföngum.
Á árinu 1992 verða einungis af-
greiddar umsóknir þeirra sem eiga
lánshæfar umsóknir í lánakerfinu frá
1986. Eftir 1. febr. 1992 verða af-
greiddar umsóknir þeirra sem sóttu
um fyrir 1. janúar 1990. Eftir 1. júní
1992 verða afgreiddar umsóknir
þeirra sem sóttu um eftir 1. jan. 1990
og fram til 1. sepL 1991. Afgreiðsla
nýrra umsókna um skuldabréfaskipti
vegna endurbóta og endumýjunar á
notuðu íbúðarhúsnæði, þ.e. þeirra
sem sækja um eftir 1. sept í ár, hefst 1.
jan. 1993.
Hámarkslán vegna greiðsluerfið-
leika verða 2,5 milljónir og umsókn-
arfrestur er til 1. nóvember næst-
komandi. Afgreiðsla húsbréfa vegna
greiðsluerfiðleika lýkur um næstu
áramóL
Þeir, sem em með gilt mat á
greiðslubyrði, verða að fá nýtt mat
sem tekur mið af nýju reglunum.
Matið verður þessu fóltó endurgjalds-
lausL -EÓ
Selja Skóg-
ræktarbókina
Helgina 12. til 13. október taka
Ungmennafélag íslands og Skóg-
ræktarfélag íslands höndum sam-
an, ganga í hús og selja Skógrækt-
arbókina.
Tilgangurinn er að styrkja starf
ungmennafélaganna, kveikja og
örva áhuga landsmanna á skógrækt
og sjá til þess að þeir læri til þeirra
verka.
Skógræktarbókin er að sögn vand-.
að riL Litprentuð, 247 bls., jpiýdd
fjölda mynda og hentar jafnt byrj-
endum sem Iengra komnum. Hún
var gefin út sl. vetur á 60 ára afmæli
Skógræktarfélagsins og í minningu
Hákonar Bjamasonar. -aá.
Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélagslns, Pálmi Gíslason forseti UMFl, og Siguró-
ur Þorsteinsson framkvæmdastjóri UMFÍ. Timamynd: Ámi Bjama
fttSfuseosíiiSj
Fyrirspurnir á Alþingi
um herskipakomur og
flóttamenn:
Spurt um
erlenda
sjómenn
á íslandi
Guðmundur HaHvarðsson al-
þingismaður hefur lagt friun
fyrirspum á Alþingi þar sem
hann spyr samgönguráftherra
með hvaða hætti hann hyggist
spoma vlð því, að eriendir sjó-
menn séu ráðnlr til starfa á
skipum í þjónustu ísienskrar
kaupskipaútgcröar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
hefur lagt fram fyrirspum til
utanríUsráðherra þar sem
spurt er hvaða herskip írá þeim
ríkjum á norðurhveU sem eiga
kjamorkuvopn, þ.e. Bandaríkj-
unum, Sovétríkjunum, Frakk-
landi og Bretlandi, hafa komið
til íslenskra hafna eða siglt um
íslenska lögsögu á sl. 30 áram.
Ingibjörg Sólrún spyr einnig
hvort ríkjssfjómin hafl uppi
áform um að banna umferð
kjamorkuknúinna herskipa um
íslenska iögsögu.
Þá hefur Kristín Ástgeirsdótt-
ir lagt fram fyrirspum til utan-
ríkisráðhcrra um flóttamenn á
ísiandi. Hún spyr m.a. um hve
margir pólitískir flóttamenn
hafl óskað efthr hæli á fsiandi
sl. flmm ár. Hve marghr hafl
fengið hér hæii og hve mörgum
hafí verið vísað úr landl á landa-
mærunum, þ,e. í fríhöfninni í
Keflavík og höfnum Íandsins.
Þi spyr Kristín í annarri fyrir-
spuro um þær skyldur, sem ís-
lensk stjómvöld hafa gagnvart
pólitískum flóttamönnum sam-
kvæmt samþykktum Sameln-
uðu þjóðanna, og um stefnu
núverandi ríkisstjómar til mál-
efna flóttamanna sem hhtgað
leita.
-EÓ
Enn ein deild Samstöðu um óháð ísland stofnuð:
Samstaða nú á N-eystra
Um helgina var haldinn á Akureyri
stofnfundur deildar fyrír Norðuriand
eystra innan fclagsins „Samstaða um
óháð ísland", sem stofnað var fyrir
skömmu. Að sögn Hlöðvers HÍöð-
verssonar stjómarmanns er tilgang-
ur félagsins tvíþættur, annars vegar
að berjast gegn því að gerður verði
samningur um evrópskt efnahags-
svæði í því fari sem þær umræður
hafa verið. Verði hins vegar af því að
samningurinn verði undirritaður, þá
verði hann borinn undir þjóðarat-
kvæðagreiðslu. í öðra lagi vÚl Sam-
staða berjast fyrir því að ísland geti
haft frjáls og óháð samskipti við allar
þjóðir, en ekki einskorða samskiptin
við Evrópu.
Á fundinum á Akureyri fluttu fram-
söguerindi Kristín Einarsdóttir, for-
maður Samstöðu, og Jóhannes
Snorrason fiugstjóri. Að framsöguer-
indum loknum voru frjálsar umræð-
ur, og sagði Hlöðver að umræður
hefðu verið málefnalegar og líflegar. í
máli fundarmanna kom m.a. fram að
viðræðumar væru enn í fúllkominni
óvissu, og nánast ekki nema helming-
slíkur á að ísland verði þátttakandi. Þá
lýstu fundarmenn furðu sinni á því að
hægt væri að undirrita samninga sem
skertu fullveldi íslands, með sam-
þykki helmings þingmanna. Ekki síst
í ljósi þess að Norðmenn gera kröfúr
um samþykki í þjóðaratkvæða-
greiðslu, eða a.m.k. samþykki 3/4
meirihluta stórþingsins.
Að umræðum loknum var kosin
stjóm og hennar fyrstu verkefni verða
að skipuleggja og gangast fyrir söfnun
undirskrifta er mótmæla þátttöku ís-
lands í evrópska efnahagssvæðinu.
Reyndar er undirskriftasöfnunin þeg-
ar hafinn og nefndi Hlöðver að í 7
sveitarfélögum í Suður-Þingeyjar-
sýslu hefðu yfir 70% þeirra, sem voru
á kjörskrá í síðustu alþingiskosning-
um, skrifað undir mótmælin. Yfir-
skrift undirskriftalistanna er: „Við
undirrituð skomm á ríkisstjóm ís-
lands að hverfa nú þegar frá viðræð-
um um aðild íslands að evrópsku
efnahagssvæði. Verði viðræðunum
samt haldið áfram og samkomulag
undirritað, munum við krefjast þess
að samningurinn verði borinn undir
þjóðaratkvæði áður en hann verður
tekinn til endanlegrar afgreiðslu."
Hlöðver sagðist vonast til þess að um
þetta mál næðist jafn víðtæk sam-
staða og í landhelgisdeilunni, enda
um skylt málefni að ræða er varðaði
sjálfsfaeði íslands.
Stjóm Norðurlandsdeildar Sam-
stöðu skipa: Pétur Helgason Hrana-
stöðum, Valgerður Guðjónsdóttir Ak-
ureyri, Hlöðver Hlöðversson Björg-
um og Atli Vigfússon Laxamýri. Auk
þess eiga tveir fulltrúar Norður-Þing-
eyinga eftir að koma inn í stjómina
eftir stofnfund á Raufarhöfn um
næstu helgi. hiá-akureyri.
Leikfélag Selfoss sýnir leikverk í tilefni aldarafmælis Ölfusárbrúar:
■ ■ W W W
OLFUSARBRU, BRU
TIL BETRITÍÐAR
„Brú til betri tíðar" heitir nýtt
leikrit sem Leikfélag Selfoss
frumsýndi sl. laugardagskvöld.
Leikritið er eftir Jón Hjartarson
og hann er jafnframt leikstjóri.
Það Qallar um gömlu ölfusár-
brúna og ýmis atvik henni tengd.
Sýningin er meðal hátíðabrigða í
tilefni af 100 ára afmælis brúar
yflr ölfusá, sem minnst hefur
verið með veglegum hætti á þessu
ári.
Með fyrstu atriðunum í leikritinu
er svipmynd frá sýslufundi í Rang-
árvallasýslu árið 1872, en þar var
hugmyndinni um brú yfir Ölfúsá
fyrst hreyft. Síðan rekur sagan sig
áfram og leikritið endar þegar
gömlu ölfusárbrúnni hvolfdi.
,Ástir og örlög einstakra persóna
urðu ... ekki aðalatriði þessa verks,
heldur situr brúin sjálf í forgrunn-
inum og það breytilega ferðalag,
sem um hana fór allt til þess er
strengir hennar slitnuðu eina
stjömubjarta septembemótt árið
1944,“ segir Ieikstjórinn og höf-
undurinn Jón Hjartarson meðal
annars í stuttri grein í leikskrá.
Úr sýningu Leikfélags Selfoss. Geröur Sigurðardóttir, Helena
Káradóttir og Halldór Hafsteinsson, en hann leikur Þorfinn sem
lengi rak greiðasölu í Tryggvaskála á Selfossl.
Nafn leikritsins, „Brú til betri tíð-
ar“, er sótt í brúardrápu Hannesar
Hafstein, sem hann orti í tilefni af
vígslu brúarinnar árið 1891. Þessi
hending voru orð að sönnu, því
brúin varð til betri tíða og varð
lyftistöng fyrir Suðurland allt á
margvíslegum vettvangi.
Með helstu hlutverk fara Bene-
dikt Þór Axelsson, Elín Arnolds-
dóttir, Sigurgeir Hilmar Friðþjófs-
son, Vigfús Hjartarson og Davíð
Kristjánsson. Þá eru aðeins fáeinir
nefndir, því alls taka um 30 leik-
endur þátt í sýningunni.
—SBS, Selfossi