Tíminn - 09.10.1991, Qupperneq 7
Miðvikudagur 9. október 1991
Tíminn 7
SIMILAUN-MAÐURINN
Vísindamenn virða fyrir sér nýfundið lík Similaun-mannsins, áður en það var flutt til háskólans í
Innsbruck.
Forfaðir frá brons-
öld finnst vel
varðveittur í
Alpafjöllum
Létt snjókoma safnaðist fyrir í
grunnri gröf hans, 10 dögum eftir
að hann fannst. Vindblásinn staður-
inn hátt í Suður-Tíról, sem hafði
gefið af sér best varðveitta eintakið
af forsögulegum manni sem hingað
til hefur fundist, var aftur farinn að
hylja leyndarmál sín.
Landamæralögregla hélt ferða-
mönnum og vísindamönnum, sem
ekki höfðu nauðsynleg leyfi, í burtu
frá „söðlinum", lægsta yfirferðar-
staðnum á fjallahrygg { Ötztaler-
Ölpunum, á landamærum Ítalíu og
Austurríkis, þar sem tveir þýskir
göngumenn fundu 4000 ára gamalt
lík upp úr miðjum september. Síðar
fundu vísindamenn örvamæli og
örvar og fleiri hlutir hafa sést, djúpt
grafnir í ísinn.
Dó meira en 2000
árum f.Kr.
í innan við 30 mflna Ijarlægð, við
háskólann í Innsbruck hafa vísinda-
menn hvarvetna að úr Evrópu
þyrpst umhverfis stálbekk þar sem
líkaminn var lagður, einn af merk-
ustu fomminjafundum heimsins.
Þeir kalla hann „Similaun-mann-
inn“, eftir fjallahrygg í grennd við
staðinn þar sem hann fannsL
Vaxkenndur og hálfklæddur líkam-
inn virtist líklegur til að leysast í
sundur undir heitum sjónvarpsljós-
unum. Hann vegur 54 kfló og er
u.þ.b. 160 sm hár, grannvaxinn, og
hendur og llitsdrættir fíngerðir.
Vöxtur, bei ygging og tanngerð
(merkilega :,.austlega útlítandi röð
af skjannahvítum tönnum) gefa til
kynna að maðurinn hafi verið um
20 ára gamall, vel á sig kominn og
hraustur. Daginn sem hann dó,
meira en 2000 árum áður en Krist-
ur fæddisL var hann á ferð yfir Tí-
rólfjöllin á leið sem nútímamaður-
inn hefur farið öldum saman til að
Hann vegur 54 kíló og er
u.þ.b. 160 sm hár, grann-
vaxinn, og hendur og and-
lítsdrættir fíngerðir. Vöxt-
ur, beinabygging og tann-
gerð (merkilega hraust-
iega útiítandi röð af
skjannahvitum tönnum)
gefa tii kynna að maðurinn
hafi verið um 20 ára gam-
aii, vel á sig kominn og
_________hraustur.
reka kindur frá einum dalnum til
annars.
Það er óskýrð gáta hvemig Simi-
laun-maðurinn lét líf sitL Líkami
hans er fastur í sömu stellingu og
þegar dauðastirðnunin átti sér stað.
Vinstri handleggur hans er teygður
til hliðar og skýlir höfði hans og
augum, eins og hann hafi verið að
verjast snjóbyl. Það kann að koma í
ljós við rannsóknir að hann hafi
orðið úti.
Siðaðra og hærra
menningarstig en
áður var haldið
Austurrískir vísindamenn hafa
þegar raðað saman mynd af tímabili
þar sem mannleg þróun var orðin
miklu siðaðri og á hærra menning-
arstigi en áður var haldið. Similaun-
maðurinn er klæddur vel gerðum
stakki og legghlífum, gerðum úr
sútuðu leðri eða skinnum, sem
haldið er saman með grönnum leð-
urreimum og fóðruðum með heyi
til einangrunar. Á fótum hans eru
grófgerð leðurstígvél fyllt stráum og
beykispónum, líka bundin leður-
þvengjum. Mjúkt geitarskinn og
íoðskinn, sem lá skammt frá, er álit-
ið hafa verið höfuðbúnaður.
Frekari vísbendingar um lifnaðar-
hætti hans eru viðarbakgrind,
bronsöxi, bogi og örvar, og við mitti
hans leðurpoki með tinnusteini og
tundri til að kveikja eld. „Hann
kann að hafa verið á veiðum, eða að
leita að málmum — bronsi og kop-
ar. Það var mikilvægur hluti af lífs-
háttum þessa fólks,“ segir Konrad
Spindler, prófessor við Innsbruck-
háskóla, til skýringar.
Vopn hans og leðurskart benda
til að hann hafi ekki bara verið
óbreyttur bronsaldarmaður.
„Hann var efnaður. Hann hafði
vissa þjóðfélagsstöðu. Það báru
ekki allir boga og örvar,“ segir dr.
Gerhard Tomedi, annar vísinda-
maður sem kannar Similaun-
manninn.
Þegar vísindamennirnir losuðu
klæðnaðinn af líkamanum, fundu
þeir djúp ör sem fyrst var álitið að
væru merki um svipuhögg eða
bruna. En nú heldur Spindler að
þetta sé húðflúr eða ættbálka-
merki. Á hnjám mannsins innan-
verðum eru raðir af tveggja og
hálfs sentimetra stórum krossum,
og á baki hans er band láréttra
ráka.
Nú vitum við að bronsaldarmað-
urinn rakaði af sér skeggið. Vottur
af grófum skeggbroddum á andlit-
inu gefur til kynna að skeggið hafi
verið fjarlægt, sennilega með
beittum tinnusteini. Neglurnar á
fingrunum eru skornar fremur en
rifnar og eyddar — og skurðtæki,
sem fundust nærri líkamanum,
kunna að hafa verið notuð til
þessara og líkra athafna.
Hvemig tekst að varð-
veita Similaun-mann-
inn?
Nú liggur aðalvandinn í því hvem-
ig megi varðveita þetta dýrmæti.
1 Evrópskir andlitsdrættir, blá augu, tennur fastar í kjálkum.
Skegghár rakað. 2 Örvar geymdar í viðarbakgrind, sem bundin
er saman með leðurreimum. 3 Langur bogi fannst brotinn í
tvennt. 4 Öxi með viðarskafti, steinblaði með bronsi á egg
(2000 f.Kr.). 5 Snjóstígvél úr loðskinni og leðri, fóðruð með
heyi og beykispónum. 6 Leðurfatnaður stoppaður með heyi. T
Leðurbelti með áfestum pung með tínnu til að kveikja eld. 8
Skartgripir: Ijósleitur steinn í leðurumgerð — tákn um stöðu,
borinn um háls eða á bringu.
Dr. Markus Egg, sem kann Þjóð-
verja mest um varðveislu fomra
minja, lýsti undmn sinni á að lík-
aminn skyldi ekki hafa orðið flug-
um, dýrum og andrúmsloftinu að
bráð í heil 4000 ár. „Hann virðist
hafa loftþomað í mikilli hæð yfir
sjávarmáli, í geysilegum kulda, og
síðan grafist í skriðjökli þar til mjög
nýlega,“ segir hann. í geymslu í há-
skólanum er velvarðveittur líkam-
inn þakinn íspokum, kældur niður
í 6 gráður á Celsius, sem er hitastig
skriðjökulsins, og haldið þurmm til
að hindra eyðingu af völdum
sveppa.
Þar sem svo mikill fræðilegur orð-
stír er í húfi vegna þessa fundar, er
þegar hafin hin óhjákvæmilega
keppni um hver eigi tilkall til hans.
Líkið fannst Austurríkismegin við
landamærin, en finnendumir,
Helmut og Erika Simon frá
Nurnberg í Þýskalandi, tilkynntu
hann til ítalskra „carabinieri".
Og hvar á að geyma
hann?
í Innsbmck, höfuðborg Tíról, sem
á tilvem sína undir ferðamanna-
þjónustu, er fyrirséð að Similaun-
maðurinn dregur að sér flesta
ferðamenn síðan vetrarólympíu-
leikamir vom haldnir þar 1964.
Þegar er farið að undirbúa safhið á
staðnum fyrir aðsóknina. En Ernst
Schöpf, bæjarstjóri Sölden, Alpa-
þorpsins sem næst stendur fundar-
staðnum, ætlar ekki að sætta sig við
það. Hann heldur því fram að líkið
sé eign litla bæjarfélagsins hans.
Á meðan það deilumál er óútkljáð
em vísindamenn, í búningum sem
ekki em svo gífurlega frábmgðnir
þeim sem hinn 4000 ára gamli for-
faðir þeirra klæddist, að grand-
skoða snæviþakta staðinn í Alpa-
fjöllunum áður en veturinn inn-
siglir það sem eftir kann að leynast
í ís í a.m.k. ár til viðbótar.