Tíminn - 09.10.1991, Blaðsíða 10

Tíminn - 09.10.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn Miðvikudagur 9. október 1991 MINNING Guðjón Halldórsson skipstjóri, Hafnarfirði Fæddur 18. ágúst 1917 Dáinn 2. októbcr 1991 í dag kveðjum við í hinsta sinn tengdaföður minn Guðjón Halldórs- son, skipstjóra í Hafnarfirði, en hann lést á St. Jósefsspítala mið- vikudaginn 2. október sl. Það er ávallt erfitt að lýsa með orð- um þeim sáru tilfinningum sem bærast í brjósti okkar þegar við fréttum lát nákominna ættingja og ástvina. Það kom okkur líka öllum á óvart að Guðjón skyldi hverfa frá okkur svo fljótt eftir að veikindi hans urðu Ijós, og verður því áfallið sárara og tómarúmið tilfinnanlegra. Minningin um hann, gæsku hans og alúð, höfðingsskap og dugnað hjálpar okkur hins vegar að þola þessa erfiðu daga og það er eitt víst að það er í hans anda að við samein- umst þegar sorg eða alvarlegan vanda ber að höndum. Guðjón Halldórsson var fæddur á ísafirði 18. ágúst 1917, sonur sæmd- arhjónanna Halldórs Friðgeirs Sig- urðssonar skipstjóra og Svanfríðar Albertsdóttur. Eftirlifandi systkini Guðjóns eru Lilja, Sturla, Málfríður og Olafur, öll búsett á ísafirði, Sig- urður og Steindór, sem dvelja á vist- heimilinu í Kópavogi, Jón Laxdal, búsettur í Sviss og uppeldisbróðir og systursonur, Jón Hjörtur Jó- hannsson, sem býr á ísafirði. Guðjón kvæntist 1940, Maríu Re- bekku Sigfúsdóttur frá ísafirði, og átti með henni þrjú börn, Svanfríði, Gylfa og Selmu. Þau María slitu samvistir. Þegar Guðjón hóf nám í Sjómanna- skólanum flutti hann suður og 1952 giftist hann síðari konu sinni, Karl- ottu Einarsdóttur frá Hafnarfirði, og eignuðust þau saman þrjú börn, þau Guðbjörgu, Halldór og Helgu. Það varð eins og vænta mátti hlut- skipti Guðjóns að sækja sjóinn og til er í blaðagrein að vestan lýsing á því er hann fór fyrst á sjóinn með föður sínum, þá talinn yngsti sjómaður á fslandi, enda aðeins 5 ára gamall. Þessi litli hnokki átti síðan eftir að verða dugmikill og farsæll sjómaður og fengsæll skipstjóri. Hann reri með föður sínum á Vébirni og varð síðan skipstjóri á Auðbirni og síðar fleiri skipum að vestan. Á meðan heimsstyrjöldin geisaði var hann á togaranum Jóni forseta, en örlögin höguðu því þannig að hann var í landi þegar togaranum var sökkt. Hann var skipstjóri á tog- skipinu Gróttu þegar skip Björgvins Bjarnasonar frá ísafirði fóru til veiða við Grænland og Nýfundnaland og síðar skipstjóri á nokkrum öðrum skipum. Árið 1954 eignaðist Guðjón vélbát- inn Kóp og gerði hann út frá Hafn- arfirði þar til hann keypti Víking og gerði hann út frá Reykjavík. Guðjón var alla tíö fengsæll sjómaður og virtur skipstjórnarmaður. Þegar Guðjón kom í land árið 1972 fékk hann starf sem var svo nátengt sjósókninni að hann sætti sig mjög vel við orðinn hlut. Hann réðst til Tilkynningaskyldu íslenskra skipa og í 15 ár helgaði hann krafta sína öryggi sjómanna og tengingu flot- ans við land í samvinnu við ósér- hlífna hugsjónamenn um þessi mál. Það getur verið álitamál hvor aðil- inn fékk meira út úr starfi Guðjóns, hann sjálfur sem þarna fékk að vera hluti af iðandi athafnalífi íslenska flotans, þó að hann væri kominn í land, eða Tilkynningaskyldan sem varla hafði slitið barnsskónum á þeim tíma sem Guðjón réðst til hennar og átti að ýmsu leyti undir högg að sækja vegna takmarkaðs skilnings áköfiistu sjósóknarmanna og dræmra undirtekta stjórnvalda um nauðsynlegan fjárhagslegan stuðning. Það hlýtur að hafa verið fengur fyr- ir Tilkynningaskylduna að fá til liðs við sig svo reyndan og farsælan sjó- sóknara og útgerðarmann sem þekkti allar aðstæður og talaði sama mál og sjómennimir. Það var líka greinilegt að Guðjón var ánægður með þróun þessara mála þegar hann lýsti yfir í blaðaviðtali í Fiskifréttum í mars á þessu ári að hann teldi eng- an vafa leika á því að Tilkynninga- skyldan væri fyrir löngu búin að sanna gildi sitt og hefði þróast far- sællega sem sérstaklega þýðingar- mikill hlekkur í öryggismálum sjó- manna. Á meðan Guðjón sótti sjóinn hafði hann að sjálfsögðu minni tíma fyrir fjölskyldu sína og ýmis áhugamáí en eftir að hann hætti sjósókn. Það gat hins vegar engum dulist hve heitt hann unni fjölskyldu sinni og ást- vinum. Hann var einstaklega alúð- legur, raungóður og sannur. Eitt var þó í fari hans sem bar af öllu öðm, en það var hve barngóður hann var og hve auðvelt hann átti með að umgangast börn og tala til þeirra. Börn hans og barnabörn munu því sakna hans mjög og þau yngstu leita hans árangurslaust á yndislegu heimili þeirra hjóna við Lækjargötu 10. Eftir að Guðjón fluttist suður eign- aðist hann sumarbústað í Dagverð- ardal við Skutulsfjörð og átti hann þar með fjölskyldu sinni margar un- aðsstundir. Þessi aðstaða varð að sjálfsögðu einnig til þess að hann átti fleiri gleðistundir á heimaslóð- um með ættingjum sínum og ást- vinum en ella hefði orðið. Vegna nýrrar byggðar í botni Skutulsfjarð- ar varð bústaðurinn að víkja og eignuðust þau Guðjón og Karlotta þá sumarbústað í Miðfellslandi í Þingvallasveit. Bústaður þeirra reyndist þeim og fjölskyldu þeirra sérstakur unaðsreitur og eftir því sem meiri tími gafst til þess að njóta tómstunda og nýrra áhugamála varð dvölin þar þýðingarmeiri þáttur í lífi þeirra hjóna. Það lýsir því hins vegar vel hve sjórinn og sjósóknin hefur sterk ítök í dugmiklum sjósóknumm að þegar Guðjóni, eftir nær tveggja áratuga fjarvem frá sjósókn, barst tækifæri til að eignast bát á ný og róa út í bugtina þá stóðst hann ekki freist- inguna og reri eina grásleppuvertíð frá Brjánslæk og sótti í tvö ár sjó, vor og haust, frá Hafnarfirði. Bát þennan, Bylgjuna, átti Guðjón þar til hann lét hann frá sér síðastliðið vor. Það er hverjum og einum mikil gæfa að fá að kynnast og eignast að vini mann eins og tengdaföður minn, Guðjón Halldórsson. Hann átti líka marga vini, stóra og smáa, og stundum fannst mér eins og ég væri að ræna honum frá hinum þeg- ar ég fékk að róa með honum út á vatn eða fást með honum við eitt- hvað annað. Hann var jafnan vin- gjarnlegur, ráðagóður og ákveðinn í því sem hann vildi vinna að. Við þökkum af alhug starfsfólki St. Jósefsspítala fyrir umönnun hans og elskulega framkomu við ástvini hans. Eiginkona hans, börn, barnabörn, tengdabörn og systkini em innilega þakklát fyrir að hafa átt hann og þakka að leiðarlokum alla þá ástúð og þann kærleika sem hann veitti okkur öllum. Blessuð sé minning hans. Reynir G. Karlsson * Ástkær eiginmaður minn Kristinn Finnbogason framkvæmdastjóri Mávanesi 25, Garðabæ verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavík föstudaginn 11. október kl. 15. Guðbjörg Jóhannsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn D* Björg Jónsdóttir frá Ingólfsfirði Réttarholti 9, Selfossi sem lést á heimili sínu þann 6. október, verður jarðsungin frá Selfoss- kirkju laugardaginn 12. októberkl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, láti það renna til Krabbameinsfé- lagsins. Guðmundur Hartmannsson Brynhildur Guðmundsdóttir Sigjón Rafn Óskarsson Róbert Guðmundsson og barnabörn 'ýý.-y.ý./x y" Tímantim ^Landsbyggðar- ÞJÓNUSTA fyrirfólk, stofnanir og fyrirtæki á landsbyggðinni. Pöntum varahluti og vömr. Samningsgerð, tilboð í flutninga. Lögfræðiþjónusta, kaup og sala bifreiða og húsnæðis. Okkur er ekkert óviðkomandi, sem getur létt fólki störfin. LANDSBYGGÐ HF Ármúla 5 -108 Reykjavík Símar 91-677585 & 91-677586 Box 8285 Fax 91-677568 • 128 Reykjavík BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNID ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I Roykjavík 4. tll 10. október er I Lauga- vegsapótekl og Holtsapóteki. Þaó apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi tll kl. 9.00 aö morgnl vlrka daga en kl. 22.00 i sunnudögum. Upplýs- Ingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefn- arf slma 18888. Neyöarvakt Tannlæknafilags fslands er starfrækt um helgar og á stórhátlöum. Sím- svari 681041. Hafnarljöröur: Hafnarfjaröar apótek og Norð- urbæjar apólek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apólek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó- tekin sklptast á slna vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. A helgidögum er opiö frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I slma 22445. Apótek Keflavlkur: Opið virka daga frá k. 9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al- mennafrldaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til ki. 18.30. Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær: Apótekiö er opiö rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga ki. 11.00-14.00. Alnæmisvandlnn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann vilja styðja smitaöa og sjúka og aöstandendur þeirra, slmi 28886. Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjamames og Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar- dögum og helgidögum allan sólarhringinn. Á Seltjamamesl er læknavakt á kvöldin Id. 20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaö á sunnudögum. Vitjanabeiönir, símaráöleggingar og tlmapantanir I sima 21230. Borgarspítalinn vakt frá Id. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eöa nær ekki til hans (slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sól- arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu eorgefnar I slm- svara 18888. Ónæmisaðgerðlrfyrirfulloröna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavfkur á þriöjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskírteini. Garðabær: Heilsugæslustööin Garöaflöt 16-18 eropin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I slma 51100. Hafnarfjörður: Heilsugæsla Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Slmi 40400. Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Slmi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sálfræðilegum efnum. Simi 687075. Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildln: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30- 20.30. Barnaspitali Hrlngsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadelld Landspítal- ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu- lagi. - Landakotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borgarspitalinn I Fossvogl: Mánu- daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðlr: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensásdcild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópavogshælió: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vifilsstaöaspitali: Heim- sóknartlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL Jósepsspitali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16 00 19-19.30. Sunnuhlfö hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim- sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraös og heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar- hringinn. Simi 14000. Keflavlk-sjúkrahúsið: Heimsóknartími virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátíöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyrl - sjúkrahúsið: Heim- sóknartfmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00- 20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusími frá kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra- ness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavfk: Neyðarslmi lögreglunnar er 11166 og 000. Seltjamames: Lögreglan simi 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Kópavogur: Lögreglan simi 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan slmi 51166, slökkvi- lið og sjúkrabifreiö slmi 51100. Keflavlk: Lögreglan sími 15500, slökkvilið og sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjan Lögreglan, simi 11666, slökkviliö simi 12222 og sjúkrahúsið simi 11955. Akureyrl: Lögreglan slmar 23222, 23223 og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 22222. Isaqörður: Lögreglan slmi 4222, slökkvilið simi 3300, brunaslmi og sjúkrabifreið slmi 3333.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.