Tíminn - 09.10.1991, Qupperneq 16

Tíminn - 09.10.1991, Qupperneq 16
RfKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhusinu v Tryggvagotu 2Í 28822 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 uoruvisi Diiasaia BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. MYND HJÁOKKUR SÍMI 6 -BlLLHJÁÞÉR 79225 Áskriftarsími Tímans er 686300 MHDVIKUDAGUR 9. OKT. 1991 Vinnuveitendur draga upp dökka mynd af efnahagslífinu á næsta ári: ATVINNULEYSI, TAP OG SAHDRÁTTUR FRAMUNDAN Vinnuveitendasambandiö telur að útflutningsverðmæti minnki á næsta ári um 10 milljarða, eða sem svarar 150 þúsund krón- um á hverja fjögurra manna ijölskyldu. Þetta er meiri samdrátt- ur en Þjóðhagsstofnun spáir. VSÍ telur að landsframleiðsla drag- ist saman um 4,5% og þjóðartekjur um 6%, en það er helmingi meiri samdráttur en þjóöhagsáætlun gerir ráð fyrir. Ástæðan er sú að VSÍ telur að engar framkvæmdir verði á næsta ári vegna álvers og að tekjur flutn- ingsaðila og tryggingafélaga minnki. Þessar upplýsingar komu fram á sambandsstjómarfundi VSÍ í gær. Á fúndinum kom fram, að áætlað er að viðskiptahallinn í ár verði allt að 16 milljörðum, sem er rúmlega tveimur milljörðum meira en þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir, og að hallinn á næsta ári verði nærfellt 20 milljarðar. Fram kom að greiðslubyrði af erlendum skuldum þjóðarinnar sé um þessar mundir nálega 20% af útflutn- ingstekjum, en ef hliðstæðri skuldasöfnun og hér er lýst verður haldið áfram næstu 5 ár, verði þetta hlutfall komið í um 30% að þeim tíma liðnum. í ályktun sambandsstjórnar kom fram að ljóst er að flest bendir til þess að miklir erfiðleikar séu framundan í atvinnulífi lands- manna. Hætta er á verulegum at- vinnubresti að óbreyttu og er áætlað að allt að 5.000 störf kunni að tapast. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði mikil- vægt að ríkið, opinberir sjóðir, húsnæðiskerfið og sveitarfélögin dragi úr útgjöldunum og stuðli þannig að því að vextir lækki. Hann sagði vinnuveitendur þeirr- ar skoðunar að raunvextir væru of háir í dag. Þeir standi í vegi fyrir fjárfest- ingu í atvinnulífinu. -EÓ Mikil aösókn að ostadögum U.þ.b. sex þúsund manns sóttu Ostadaga Osta- og smjörsölunnar um helgina, sem þóttu heppn- ast mjög vel. Kynntir voru ýmsar gerðir osta, en í upphafi Ostadaganna var útnefndur sérstakur ostameistari.Aöalverðlaun hlaut Elsabet Svansdóttir, Mjólkursamiaginu Búðardal, fyrir dalabrie, sem hlaut einkunnina 13.10. Elsabet er hér á miðri mynd ásamt öðrum verðlaunahöfum, fyrir- mönnum Osta- og smjörsölunnar sf. og Halidóri Blöndal landbúnaðarráðherra. Timamynd: Ámi Bjarna Saltsíldarsala til Norðurlanda á næsta ári virðist vera í höfn: Óvíst með samninga Sfldarútvegsnefnd hefur í öllum að- alatriðum lokið gerð samnings við kaupendur í Finnlandi um fyrir- framsölu á 24-25 þúsund tunnum af saltsfld. Er þetta svipað magn og í fyrra. Fastlega er búist við að samn- ingar takist við sænska og danska kaupendur í þessari viku. Þá er reiknað með að staðan í samn- ingum um sfldarsölu til Póllands skýrist í næstu viku, en óvæntur dráttur hefur orðið á þeirri samn- ingsgerð. Óvissa ríkir þó enn með stærsta markað íslendinga fyrir saltsfld, Sov- étríkin. Um skeið hefur verið unnið að sölutilraunum beint til Rússneska lýðveldisins, og hafa viðsemjendur sfldarútvegsnefndar margsinnis látið í ljós áhuga á að kaupa mikið magn af saltaðri sfld af íslendingum, svo framarlega sem hún bjóðist á sam- bærilegu verði og saltsfld frá Kanada og öðrum samkeppnisþjóðum okkar á markaði. Slíkt hefur hingað til ekki verið talið koma til greina, enda ís- lensk saltsfld álitin meiri gæðavara en gengur og gerist. Þá hefur gjald- við Rússa eyrisskortur Rússa sett mark sitt á þessar þreifingar og gert mönnum erfiðara fyrir að meta stöðuna. Sfld- arútvegsnefnd vinnur nú að könnun á viðskiptamöguleikum í Eystrasalts- ríkjunum. í þessum löndum var all- mikil saltsfldameysla á árunum milli stríða, þegar þessi ríki nutu sjálf- stæðis. Hins vegar hefur ekki tekist að fá upplýsingar um neysluna þar eftir seinni heimsstyrjöldina. Þannig var saltsfldarneysla í Litháen Ld. tal- in nema á annað hundrað þúsund tunnum. Almannavarnanefnd Kópavogs á verði gegn hugsanlegri lengingu norður- suður flugbraut- ar Reykjavíkurflugvallar út í Fossvog. Flug- vallarstjóri Reykjavíkurflugvallar segir: EKKIÆTLUNIN, ENDA ER KÁRS' NESIÐ „Þetta hefur af og til veríð á dag- skrá. Við höfum fengið sendar ýms- ar hugmyndir um úrbætur við Reykjavíkurflugvöll til athugunar, svo sem um að hætt verði ferjuflugi um völlinn. Ég hef látið þær liggja efnislega milli hluta, en bent á að allar lagfæríngar stefndu í þá átt að festa Reykjavflcurflugvöll í sessi þar sem hann er,“ segir Sigurður Geir- dal, bæjarstjórí í Kópavogi, við Tímann. Á fundi almannavarnanefndar Kópavogs 30. september sl. var fjall- að um bréfaskipti formanns nefnd- arinnar og samgönguráðuneytisins um Reykjavíkurflugvöll. Bæjarverk- fræðingur Kópavogs vakti athygli á hugmyndum um lengingu norður- suður flugbrautar Reykjavíkurflug- vallar og „kvað nauðsynlegt að kanna nánar afleiðingar slíkrar framkvæmdar fyrir byggðina á Kárs- nesi", eins og segir í fundargerð nefndarinnar. Sigurður Geirdal bæjarstjóri sagði að varðandi Reykjavíkurflugvöll væri grundvallarspurningin sú hvort flugvöllurinn ætti að vera áfram á þessum stað eða ekki. Hann kveðst hafa skilið hugmyndir um lengingu norður-suður brautar Reykjavíkurflugvallar þannig að ver- ið væri að auka öryggi við flugtak og lendingu, en ekki að opna hann stærri vélum. „Við vildum því bóka um málið á fundi almannavama- nefndar og gefa þannig í skyn þann vilja okkar að fá að fylgjast með öll- um fyrirætlunum um framkvæmdir FYRIR við brautina og út af fyrir sig tæki það ekki langan tíma að lengja hana út í Fossvoginn um einhverja tugi metra,“ sagði Sigurður Geirdal. Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti í Kópavogi, er formaður almanna- varnanefndar bæjarins. Hann sagði í gær að til stæði að afla nánari og fyllri upplýsinga frá flugmálayfir- völdum um hugsanlega lengingu brautarinnar, en að öðm leyti væri ekkert um málið að segja. „í fyrsta lagi eru engar fjárveitingar til slíkra framkvæmda í augsýn. í okkar huga hefur frekar verið um það að ræða að lengja austur-vestur brautina út í Skerjafjörðinn og setja Suðurgötuna í göng undir braut- ina,“ sagði Jóhann H. Jónsson flug- vallarstjóri. Hann sagði að lenging norður-suður brautarinnar út í Fossvog gerði lítið gagn, þar sem Kársnesið og hæð þess stæði þar í vegi. „Það er eitthvað um þetta í skýrslu frá Flugmálastjórn, en ég hef ekki kynnt mér það nægilega ennþá," sagði Sigurður Björnsson, bæjar- verkfræðingur í Kópavogi. Hann sagði að ef lengja á norður-suður brautina eitthvað til suðurs þá geti það verið áhyggjuefni, vegna byggð- ar á Kársnesinu. Hins vegar væri ekkert hægt um þetta mál að segja meðan óvíst væri um fyrirætlanir flugmálayfirvalda. „Ég bara benti á að um þetta hefur verið varpað fram einhverjum hugmyndum, en engin ákvörðun hefur verið tekin,“ sagði Sigurður. —sá

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.