Tíminn - 10.10.1991, Síða 4

Tíminn - 10.10.1991, Síða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 10. október 1991 ■81 ÚTLÖND Vopnahléð í Króatíu heldur ennþá: HAFNBANNI AFLÉTT í HÖFNUM KRÓATÍU Embættismenn í Króatíu og yfirmenn í júgóslavneska hemum sam- þykktu í gær að aflétta hafnbanni við Adríahafsströndina þegar í stað. Þeir samþykktu einnig að umsátri við aðalstöðvar júgóslav- neska hersins í Zagreb, höfuðborg Króatíu, yrði aflétt. Þá var sam- þykkt að umsjónarmaður Evrópubandalagsins með nýjasta vopna- hlénu myndi slást í for með hjálparstarfssveitum, sem halda af stað til hernuminna bæja í austurhluta Króatíu. Tilkynnt var strax seinnipartinn í gær að hafnbanni hefði verið aflétt í Zadar. Útvarpið í Króatíu greindi frá því að fljótlega eftir að hafnbanninu þar var aflétt, hefði umferð skipa og báta hafist á ný. Ekki höfðu borist neinar staðfestar fréttir frá öðrum höfnum. Að frátöldum skothvellum á stöku stað í norðurhluta Króatíu í gær var nokkuð rólegt í Króatíu. Júgóslavneski herinn setti hafn- bann á í sjö borgum í Króatíu, þar á meðal í hinni sögufrægu borg Du- brovnik, en Króatar hafa aftur á móti setið um aðalstöðvar hersins í Zagreb. Simon Smiths, talsmaður vopna- hlésnefndar Evrópubandalagins, segir að ákveðið hafi verið að aflétta hafnbanninu klukkan 15:00 í gær, og það væri liður í allsherjar vopna- hléi, sem komið hefur verið á í Króatíu. Smiths var bjartsýnn á að vopna- hléð muni halda í þetta sinn. „Ég held að vopnahléð eigi eftir að halda í þetta sinn,“ sagði hann í gær. Vopnahléð tók gildi á þriðjudag eft- ir að Andrija Raseta yfirmaður hers- ins, Imra Agotic ofursti og Stepjan Adamic aðstoðarmaður varnarmála- ráðherra Króatíu áttu með sér fund. Bardagar hættu að mestu, fljótlega eftir að tilkynning barst um að vopnahlé hefði verið samþykkt. Þó bárust fréttir af átökum í norður- hluta Króatíu, en þangað fara nú hjálparstarfssveitir. Útvarpið í Króa- tíu tilkynnti um skothvelli á stöku stað í gæmótt í Osijek. Sjónvarpið greindi frá árásum nálægt Vinkovci. Eftir að Króatía lýsti yfir sjálfstæði snemma í sumar, hafa rúmlega 1.000 manns látið lífið í átökum milli Króata og Serba. Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í gær að Júgóslav- ía væri ekki lengur til í þeirri mynd sem hún var áður. „Við verðum að hjálpa júgóslavnesku þjóðinni, sem óskar eftir lýðræði og fullveldi," sagði Dumas í gær. reuter-sis Rúmlega 1.000 manns hafa týnt lífi í átökunum í Júgóslavíu og fjöldi manns er særöur. Norðmenn ætla að vísa 8 sovéskum diplómötum úr landi: Eru grunaóir um njósnir Norðmenn ætla að vísa úr Iandi allt að 8 sovéskum diplómötum vegna njósna. Þetta kemur fram í frétt norska dagblaðsins Aften- posten í gær. Aftenposten vitnar í ónafngreinda heimildarmenn, sem segja að Norðmenn vilji diplómatana úr landi vegna upplýsinga sem þeir hafa fengið frá meintum KGB-full- trúa, sem fór frá Noregi til að sækja um pólitískt hæli á Vestur- löndum í maí sl. Aftenposten segir að Mikhaíl Butkov, 33 ára, hafi sagt norsku leyniþjónustunni að nokkrir sov- éskir diplómatar, sem starfa við sendiráðið í Ósló, misnoti sér að- stöðu sína. Norska utanríkisráðuneytið vill hvorki játa né neita þessari frétt Aftenposten. Bjorn Blokhus, tals- maður ráðuneytisins, sagði aðeins: „Við höfum ekkert um málið að segja." Aftenposten segir að norska leyni- þjónustan hafi lagt til að þessum átta stjórnarerindrekum skyldi vís- að úr landi, en utanríkisráðuneytið óttast að Sovétmenn grípi til sömu ráða og reki norska stjórnarerind- reka úr Iandi. í Noregi eru 32 stjórnarerindrek- ar frá Moskvu. Árið 1987 vísuðu Norðmenn fjórum stjórnarerind- rekum úr landi fyrir njósnir. Alls hefur 39 sovéskum diplómötum verið vísað frá Noregi síðan heims- styrjöldinni síðari lauk. Sjö norsk- ir diplómatar starfa í Moskvu. reuter-sis FRÉTTAYFIRLIT WASHINQTON - Samtök Am- eríkjuríkja segja að nýja ríkisstjóm- in é Haftí $é ólögleg og skora á meðlimi samtakanna að frysta innistæður Haítl og hætta öllum vlðskiptum við eyríkið I Karibahaf- inu. Samtök Amerfkurlkja tilkynntu þetta klukkutíma eftir að þingið á Haítf setti Joseph Neretta f emþ- ætö forseta. Samtökin vilja að Ar- istide, iyrrum forseti landsins, verði settur I embætti aftur. JÓHANNESARBORG - Þrett- án manns í viöbót létust I pólitlsk- um hræringum f Suður-Afirfku í gær. Þar með hafa 31 manns týnt Iffi undanfama þgá daga, en óetrð- imarbyrjuðu I kjölfarjarðarfararfé- laga f Afríska þjóðarráðinu. Afrfska þjóðarráðið hefur sakaö logregl- una um morð, en lögreglan vfsar þvf harðleqa á bug. WASHINGTON - Öldungadeild Bandarfkjaþings hefur ákveðið að fresta um eina viku atkvæða- greiðslu um staðfestingu á skipun Clarence Thomas í embætti hæstaréttardómara, vegna stað- hæfinga um að hann hafi gerst sekur um kynferðislega áreitni við fyrrum samstarfskonu sína. NÝJA DELHÍ - Rúmenska sendiherranum I Nýju Delhf var rænt f gær. Hann heitir Liviu Rado. Honum var rænt nokkrum mfnút- um eftir að hann för frá heimili sfnu í gærmorgun. Lögreglan telur að sveitir Shika, sem berjast fyrir sjálf- stæði Punjabhéraðs, standi að baki ráninu. BANGLADESH - Skæð farsótt, sem geisar I Bangladesh hefúr, Ungur maður handtekinn í Tælandi fyrir heróínsmygl: Meö 4,3 kg af heróíni Lögreglan í Bangkok í Tælandi hefur sakað ungan mann frá Hong Kong um að hafa reynt að smygla 4,3 kg af heróíni frá Tælandi. Bamrung Kh'ew-urait, yfirmaður fíkniefnalögreglunnar í Bangkok, segir að Ho Man Kit Ray sé 14. maðurinn frá bresku nýlendunni sem er handtekinn fyrir heróín- smygl í Tælandi það sem af er ár- inu. Ho er ekki nema tvítugur að aldri. Bamrung sagði ennfremur að lögreglan hefði miklar áhyggjur af vaxandi fíkniefnasmygli frá Hong Kong. Ho var handtekinn á þriðjudags- nótt. Hann er 74. Hong Kongbúinn sem er handtekinn í Tælandi fyrir fíkniefnasmygl. Og í fangelsum í Tælandi eru Hong Kongbúar næst- flestir útlendinga. Aðeins Nígeríu- menn eru fleiri, eða 154. Lögreglan handtók Ho á flugvell- inum í Bangkok þar sem hann var á leið til Amsterdam með viðkomu í Kaupmannahöfn. Lögreglan fann 10 poka af heróíni undir fölskum botni í ferðatösku hans. Bangkok er aðal flutningamiðstöð heróíns frá Gullna þríhyrningnum, þar sem það er flutt til Burma og Laos. reuter-sis Nokkuð óvenjulegt höfuð til sýnis á listsýningu í Lundúnum: Skúlptúrhöfuð úr blóði Breskir listunnendur með magann í Iagi geta í þessari viku farið á alló- venjulega listasýningu þar sem höf- uð úr frosnu blóði er til sýnis. Listamaðurinn March Quinn hellti blóðinu í gúmmímót, sem hann hafði gert af höfði sjálfs sín, og setti það síðan í frost. Listamaðurinn segir að blóðhöfuðið eigi að sína hversu tilviljunarkennt jafnvægið er á milli lífs og dauða. Höfuðið er haft í sérstökum frysti- skáp til að það þiðni ekki. Quinn gaf átta hálfpotta af sínu eigin blóði í nokkra mánuði til að hafa nægilegt efni í þennan skúlptúr, sem hann hefur nefnt „Sjálf'. „Listaverkið er hér, en ef það væri ófrosið væri það bara blóðpollur. Eins er það þegar einhver er á lífi þá er hann hér, en þegar hann deyr þá er hann ekki hér lengur og þá getur þú ekki sagt hvert hann hefur farið," segir Quinn. Verkið er í eigu Saatchi- listasafns- ins í Lundúnum, en á föstudaginn verður opnuð almenningssýning þar sem frosna höfúðið verður m.a. til sýnis. reuter-sis leitt tii dauða að minnsta kosti 1300 manns. í gær vartBkynnt um dauða rúmlega 200 manns af völdum sjúkdómsins, sem lýsirsér helst með áköfum niðurgangi. SEÚL - Suður-Kórea vBI hefia við- raeður við Norður-Kóreu um fækk- un i herjum og um friðaráætlun tii að binda enda á Ijandskap ríkj- anna. Þetta er haft eftir forseta Suður- Kóreu. „Fundur forsætis- ráðherra ríkjanna siðar i þessum mánuði eetti að geta lagt gnjndvöll að betra sambandi,” sagði Chung Wong-shik i ræðu í þinginu i gær. KUALA LUMPUR - Mahathir Mohamad, forsætisráðherra Mal- asiu, setti fund fjármálaráðherra bresku samveldisrikjanna í gær. Hann varaði veitendur fiárhagsað- stoðar við að tengja ekki hjálp við framleiðslu saman við mannrétt- indamál og umhverfismái. MOSKVA - Borís Pankin, utan- rikisráðherra Sovétrfkjanna, sagði í gær að hann ráðgerði ferð tii Mið- austurlanda lyrir 23. október til aö ræða fýrirhugaða friðarTáðstelhu. Pankin sagði að hann færi tfl ísra- els, Jórdaníu og Sýrlands. Hann sagðist vonast tii að ráðstefnan yrði sett fyrir lok október. DAMASKUS - Sýrtendingar saka Israela um að spilla fyrirfýrir- hugaðri ffiðarráðstefnu um málefni Miðausfurtanda og segja ísraela undirbúa sig fyrir stríð. Dagblað hins opinbera (Sýriandi, Daily Syr- ia Times, hvafti Bandaríkin ffl að nóa ísraefa og þvinga þá tfl þátt- töku. BEIRÚT - Örfög ísraelsks her- manns, sem týndist I Libanon, er aðaldeiluefhi þeirra sem vlnna að lausn gíslamáisins I Miðaustur- löndum. Múslimskir bókstafstrúar- menn segjast ekki hafa neina hug- mynd um hvað varð um haim. MANILA - Corazon Aquino FB- ippseyjaforseti hefur ieyft að fyrr- um forseti landsins, Ferdinand Marcos, verði jarðsettur á Filipps- eyjum. Hún segir að það eigi að fijúga með lík hans beint tii heima- borgar hans og jaröa það þar. BUENOS AIRES - Embættis- menn við heflbrigðisráðuneytið i Argentfnu hafa gefið út skipun þess efnis að eyðnismitaðir fangar í fangelsum landsins verði hfekkj- aðir við njm sía Þetta var birt í dagbtaðinu Clarfa í gær, sem birti myndir af föngum hlekkjuðum viö rúm sín. Yfirvöld á sjúkrahúsi einu þar I landi segja þetta nauðsyn- iegt, þar sem þessir fangar væru hættulegir umhverfi sínu og þetta vasri gerttil öryggis öðai föiki. f við- tali við útvarpsstöð f Argentínu segir kona ein að örlög sonar síns séu dapurieg. Hann er kókaínsjúk- lingur sem bíður dóms fyrir ráa Hann er smitaður af eyðni og htekkjaður við rúmið sitt

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.