Tíminn - 10.10.1991, Qupperneq 6

Tíminn - 10.10.1991, Qupperneq 6
6 Tíminn Fimmtudagur 10. október 1991 Tíminn MALSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FELAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin f Reykjavik Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjórar: Indriöi G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrfmsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gfslason Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavfk. Sfmi: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð f lausasölu kr. 110,- og kr. 130,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 iftl GARRI Scandinavian Airlines System Stuðningur við sjónarmið nýkapítalismans vefst ekki fyrir Alþýðuflokksmönnum eins og nú kemur fram í því að formaður þingflokks krata og málgagn flokksins ganga harðast fram í því að alþjóðaauð- hringurinn Scandinavian Airlines System fái óá- reittur að beita „dumping“-kúnstum til þess að veikja innlendan flugrekstur. Eins og við mátti búast af almennum málflutningi Neytendasamtakanna upp á síðkastið styðja þau inn- rás útlendinga í íslenskt atvinnulíf með lofsöng um sýndarlækkunarstefnu Scandinavian Airlines Syst- em og kalla þjónustu við íslenskan almenning. Reyndar er ekki annað að sjá en að stefna Neytenda- samtakanna sé að verða einskonar anarkismi, sem raunar er lokastig afskiptaleysisstefnunnar laissez- faire frá 19. öld, og sýnir að öfgarnar snertast og enda að lokum í einum punkti. Samgönguráðherra gerði rétt í því að synja Scand- inavian Airlines System um leyfi til að undirbjóða Flugleiðir með þeim hætti sem til stóð. Halldór Blöndal mat stöðu sína skynsamlega, þegar hann áttaði sig á að hann á ekki að vera neinn forgöngu- maður þess að ganga gegn ríkjandi reglum um að- hald að samkeppni í millilandaflugi. íslensk fyrir- tæki munu eiga nóg með þann vanda sem við blasir á næstu árum í samkeppni í alþjóðaflugi, þótt ís- lenskir ráðherrar gerist ekki ísbrjótar fyrir alþjóðleg auðfélög á borð við Scandinavian Airlines System. Sænski tónninn Ekki þurfti að bíða lengi eftir því að hinn nýi for- sætisráðherra Svía, hægrimaðurinn og evrópski kapítalistinn Carl Bildt, gæfi tóninn um inntak nor- rænnar samvinnu. Hann telur að norræn samvinna myndi ganga í „endurnýjun lífdaganna" (samkv. frétt í Mbl.) ef sú raun yrði á, að Norðurlandaríkin öll gerðust aðilar að Evrópubandalaginu. Er eftir honum haft að nor- ræn samvinna gæti orðið „enn nánari“ ef Norður- landaríki sæktu sameiginlega um aðild að EB. í þessum orðum forsætisráðherra Svía kemur fram sama skoðun og danskir ráðherrar hafa ítrekað látið í ljós. í slíkum yfirlýsingum felst tvennt. Hér er fyrst og fremst um að ræða ódulbúna hvatningu um að íslendingar, Finnar og Norðmenn gerist aðilar að EB eins og Danir hafa lengi verið og Svíar ætla sér. í öðru lagi eru þessi ummæli vísbending um að hefð- bundin norræn samvinna á vegum Norðurlandaráðs sé á undanhaldi. Hún gæti veðrast út og gufað upp á næstu árum. Ef svo ætlar að fara munu Islendingar litlu ráða um þá þróun. Hitt hafa þeir í hendi sér að forðast áhrif hins nýtilkomna norræna kapítalisma, sem m.a. setur stefnuna á Brussel og ætlar að opna allar gáttir fyrir umsvifum alþjóðlegra auðhringa á Norðurlöndum. ALLT TIL SOLU Þá er farið að boða sölu rðösfyrir- tælqa af falium kraftí. Því er jafnvel haidiö fram, að gera eigí Kikisút- varpiö að hiutaféiagL Aður en það tekst, þyrftu þeir hjá útvarpinu að ni vopnum sínum frá Baldvini Jónssyni á Aðalstöðinni, en haim augjýsir nú Útvarp Reykjavík h.f, alþingismaður að vera með þátt Undanfarið hefar Össur verið að íeika sóló í sjónvarpsfrettum. Hann er eins og þingflokkur sér á báti. Pormennskan í þingflokki Aiþýðu- flokkins hlýtur að vera eins og hvert annað aukastarf með öðrum skyld- um aukastörfum, eins og að fram- En rfkid gefar maigt selt, enda bef- ur það safaað að sér stofnunum frá þvf á faUveldistímanum. og verið á einskonar eignaiyliirn síðustu fimmtíu árin eða svo. Fyrir utan að eiga brennivmssöiu og útvarp, áttí rfldð fraega jámsmiðju. Það á prent- stykki I fjalimar. Núverandi þjóð- leikhússtjóri er kannski ekki orðinn fokheidur, enda býðst hann ekki til að veösetja eigur sínar til að fylla skyldu eftir handa Kannski vinnur gáfa. En slflcur bisness þjddr léleg- ur um þessar mundir, eða alit frá því að ofröxtur hljóp í skáJdastofa landsins. Þegar taidar eru upp stofaanir, sem rfldð viil seija, gleymist að geta um heilagar kýr í opinbera geiran- um. Miðað viö stórútsöiu á rfldsiýr- rrtækjum, zetti ekki að fella undan stofnanir eins og I^jóðJeikhúsið. Þjóðieikhúsið h.f. yrði strax mynd- ariegt fyrirtæki hvað starfslið snert- Ir. Að vísuhefurþað alltaf haft líönn kassa. Eitt sinn var meira að segja til siðs að þjóðleikhússtjóri veðsctti íbúðarhús sitt til að koma kassa- hann gæti skrifað það sjáifur. Að öðrum feostí virðist eidd önnur leið faer en að gera musteriö að hlutafé- lagL Það þarf bara að passa að Baid- vin Jónsson verði ekki fyrri til og stofai ÞjÓðkfldiúsið h.f. utan um nektarsýningar, fegurðarsamkeppn- ir og þann sjöunda himin, sem hann kýs sér að verustað, hvort sem faann dvelur á Stöð 2 eða AðaJstöð- Blaölús i Dimmu- borgum Jón Sigurðsson viðsldptaráðherra, sem nuer staddur í Washington við að afhenda Leif heppna, er taiinn vera að missa álverið á Keilisnesi á altari friðar og afvopnunar. Það er laglegur skrattí ef friðurinn, þá loksins að hann kemur, á eftír að kosta ofekur stórfé. Ber þar alit upp á sama daginn. Búið er að panta brottrekstur fa'silgúrveritsmiðjunn- arvið Mývatn, en gúrinn hefar sest illilega í vit Mývetninga, sem um þessar mundir láta höggva allan skóg í Dimmuborgum vegna blað* íúsar. Þelr eru fúsfr tfl stótiraeðanna, Mývetnlngar. Aftur á móti blómstra vötn í Kelduhverfi, svo þar dtýpur af öndá hveijum polli. Td að hamla á móti þessum töpum er eðlilegt að rítóð vilji seija eitthvað af eignum sínum. Iflðstóptaráðherra hefar maiglýst því yfir að nauðsynlegt sé að selja rfldsbankana tvo, Lands- bankann og Búnaðaihankann. En gangi hins vegar eins ilia í flughiu og spár benda til, eru allar Kkur á því að ritóð verði að kaupa Flugleið- ir að nýju á nœsta ári, eða efla stór- ferðlr kansellflsta tii funda á Norðuríöndum á fargjöidum sem Eitt er það meistarans verk í dgu ríkisins, sem aldrei heyrist nefnt að ástæða sé til að selja, og það er Seðlabankinn. Að vísu er hann tölu- vert öðnivísi banki en Landsbank- ar engum nema rfidnu. Hann hefar nefnist það bindifé. Þannig er talið að seðiabankar ráði emhverju um framvindu efnahagsmála. En Seðia- bankinn ræður auðvitað sáraHtlu. Hjá rfld, sem er skuldum vaflð, og þar sem ráðherrar Íétu sér detta í hug að gefa út húsbréf upp á fimm- tán tii sextán milljarða, er þetta ektó lengur oiðin spuming um Seðla- myndi jafnvel verða edrú um stund, stæði það frammi fyrir stofhun, sem nefndist Seðlabantónn hJ. En auðvitað verður Seðlabanldnn ektó seldur. hvorki fétögum Hannesar Hóhnsteins eða öðrum. Rfldð tímir etóri að missa þessa hjástoð sfna. Einhver veiður að táka að sér óhreina þvottínn, þegar aðrar vinnukonur hafa verið reknar úr vistínni. VITT OG BREITT A SKA OG SKJON Ekki er alltaf gott að átta sig á hvar hnífurinn stendur i kúnni þegar við erum að kvarta og kveina út af því sem miður kann að fara í þjóðlífmu. Oft er jafhvel auðveldara að opinbera leiðir til úrbóta en að komast að því hvað amar eiginlega að. Atvinnumál landsbyggðarinnar hafa löngum verið mikið áhyggju- efni og er mikið um þau skeggrætt í ræðu og riti. Það er viötekin skoð- un að ónóg atvinnutækifæri hér og þar valdi voðalegri búseturöskun og er alltaf verið að finna leiðir til að koma í veg fyrir þær hrellingar. Svo koma allt í einu fréttir um að það sé ekki atvinnu sem skortir á mörgum þeim stöðum þar sem fækkunin er hvað mesL heldur vinnuafl. Kvótinn er oft blóraböggull fólks- flóttans á síðari árum, en svo bregður allt í einu svo við að for- maður Samtaka fiskvinnslustöðva lýsir því yfir í blaðaviðtali, að á smærri stöðum væri meiri kvóti en svo að íbúunum tækist að ráða við að nýta hann. Sami maður staðhæfir að ekki sé viðlit að fá fólk til að aka í svo sem tíu mínútur á vinnustað á milli út- gerðarstaða til að vinna fisk. íþyngjandi fram- leiðsla Ljóst má vera að hér er eitthvað meira en lítið að. Á því hefur verið tæpt í þessu horni, að laun fisk- vinnslufólks væru svo lág að það taki því ekki að vera að ómaka sig á vinnustað fyrir þá hungurlús. Ef þessi getgáta á við rök að styðj- ast, þá er auðvitað engin glóra í því að vera að landa fiski og verka. Ef vinnslan stendur ekki undir laun- um á borð við önnur störf á vinnu- markaði, á hún engan rétt á sér. Þá geta líka allir farið að vinna fyr- ir góðu laununum í þjónustugeir- anum sem ávallt vegur þyngra og þyngra í þjóðartekjunum og hag- vextinum. En þar sem enn er eitthvað verið að fást við fiskvinnslu eru einfald- lega ráðnir útlendingar til starfans og er t.d. greinilega góður bisniss að útvega Pólverjum störf á íslandi. Þeir borga vel í alvörudollurum fyrir þá fyrirgreiðslu. Sem sagt: til þess að viðhalda jafn- vægi í byggð landsins og nýta þá bjargræðisvegi, sem til falla á ströndum fjarri Þjóðleikhúsi og Periu, verður að fylla upp í íbúatöl- una með útlendu fólki. Haft er fyrir satt að meðal fisk- vinnslufólksins, sem m.a. kemur hingað frá grónum menningar- samfélögum Evrópu, séu spren- glærðir verkfræðingar, málvísinda- menn, tölvusnillingar miklir og jafnvel hagfræðingar. Fiskvinnsla í íslenskum sjávarp- lássum er vænlegra Iifibrauð fyrir pólska menntamenn en marglofuð þjónustustörf, sem einhver skortur virðist á í heimalandi þeirra, ef marka má þau störf og kjör sem þeir sækjast eftir allt norður undir Dumbshaf. Valdníðsla eða samlyndi Þegar einhvers konar röskun verður á svokölluðu byggðajafn- vægi eru einhverrarstefnumenn ávallt boðnir og búnir að útskýra að allt sé að fara fjandans til og vita ofurvel hvers vegna. En þrátt fyrir mikla og stöðuga umfjöllun er eins og aldrei fáist skiljanlegar skýringar á „fólks- flótta" og „byggðaröskun" og vond- um afleiðingum breytinganna. í fyrrakvöld ræddi málglaður sjónvarpsmaður við alla íbúa á Fjöllum. Ástæðan var að búið er að leggja af sauðfjárbúskap til að freista þess að verja gróurlendi. Auk þess talaði sá málglaði við nokkra embættismenn sem er mál- ið skylt. Embættismennimir sögðu allir með tölu að búháttabreytingamar séu gerðar í sátt og samlyndi við Hólsfjallamenn, og allir séu þeim samþykkir og fullur skilningur ríki um nauðsyn þess að verja landið ágangi sauðljár. íbúarnir, allir með tölu, voru á gagnstæðu máli. Valdníðsla að sunnan, sögðu þeir, sauðfé ekki of margt, gróðurinn í uppgangi og gróðureyðing lygi að sunnan. Allir vom þeir voðalega sárir yfir því að eini atvinnuvegurinn, sem hægt er að stunda á Fjöllum, er bannaður, og ekkert annað að gera en að flytja á brott. Engin tilraun var gerð til að út- skýra þessar þversagnir, eða jafnvel að spyrja nánar um þær. Menn tala út og suður um byggða- stefnur og atvinnutækifæri og em þvers og kmss í málflutningi sín- um. Em Fjallamenn beittir valdníðslu og eyðir sauðkindin eða bætir gróðurlendi? Er of mikil vinna í sjávarplássunum eða atvinnuleysi? Er kvótinn íþyngjandi eða er hann of lítill til að halda uppi eðlilegu at- vinnulífi? Og er útlent vinnuafl for- senda íslenskrar byggðastefnu? Spyr sá sem ekki veit. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.