Tíminn - 19.10.1991, Síða 2
2 Tíminn
Laugardagur 19. október 1991
DRYKKJARKER
íyrir kýr, hesta og sauðfé
NYTT!
Flotholtsventlar fyrir vatnsker og tanka
MUðsOiðfý
HÖFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
Norrænu blikkverðlaunin fýrir ráðhúsþakið:
Margrét Harðardóttir og Steve Christer fá blikkverðlaunin afhent.
Studio
Grandi
verð-
launaður
Norrænu blikkverðlaunin voru afhent
í vikunni, en þau voru að þessu sinni
veitt tveimur aðilum, annars vegar
hönnuðum Vasa-safnsins í Stokk-
hólmi og hins vegar aridtektum Ráð-
hússins í Reykjavík. Það eru Nor-
nenu blikksmiðjueigendasamtökin
sem standa að þessum verðlaunum,
og eru þau veitt áriega þeim aridtekt-
um, sem hannað hafa byggingar þar
sem blikk eða aðrir málmar, sem
blikksmiðir fara höndum um, koma
við sögu.
Það var Studio Grandi, með Margréti
Harðardóttur og Steve Christer í far-
arbroddi, sem hlutu verðlaunin fyrir
Ráðhúsið. Dómnefndin varð sammála
um að hönnun og útfærsla á þaki
hússins væri sérstaklega lofsverð og
sýndi bæði hugarflug og djörfung.
Með þessari útfærslu telur dómnefnd-
in að stigið sé nýtt og athyglisvert
skref í byggingarlist og notkun efnis-
ins Alucobond, sem er unnið úr áli.
Þetta hafi verið sérlega vel heppnað,
bæði frá fagurfræðilegu sjónarmiði og
hagnýtu.
150 f lóttamönnum
vísað frá á 4 árum
Frá árinu 1987 hefur 150 útlend-
ingum verið vísað úr landi í flug-
höfninni í Keflavík og höfnum
landsins, þar af 40 á síðasta ári og
15 það sem af er þessa árs. Frá ár-
inu 1976 hefur 83 pólitfskum
flóttamönnum frá Suðaustur-Asíu
verið veitt hæli hér á landi.
Auk þess hefúr 33 verið veitt hér
pólitískt hæli, sem ekki falla með
skýrum hætti undir skilgreiningu
Sameinuðu þjóðanna á pólitískum
flóttamönnum, en hefur af mannúð-
arástæðum verið veitt hér landvist.
Þetta kom fram í svari dómsmála-
ráðherra við fýrirspum frá Kristínu
Ástgeirsdóttur, alþingismanni
Kvennalistans.
Dómsmálaráðherra sagði að á ár-
unum 1986-1990 hefðu verið veittar
10.115 vegabréfsáritanir til lands-
ins. Árlega væri nokkrum tugum
synjað um áritun. Ástæðumar geta
verið ófullnægjandi skilríki, gmnur
um að viðkomandi sé að koma til
landsins í atvinnuleit eða að við-
komandi hafi áður fengið brottvísun
frá öðmm Norðurlöndum. Ráðherra
sagði að nýlega hafi allmörgum frá
Túnis, Alsír og Marokkó verið vísað
frá landinu, þar sem gmnur hafi
leikið á að um skipulagðan innflutn-
ing væri að ræða. Þá hafi fólki frá
ríkjum fyrir botni Miðjarðarhafs
verið synjað um landvist á tíma
Persaflóastríðsins, vegna ótta við
hryðjuverk.
Kristín Ástgeirsdóttir og Guðrún
Helgadóttir sögðu löngu tímabært
að endurskoða lög um flóttamenn,
og hvöttu ráðherra til að beita sér
fyrir endurskoðun þeirra. Kristín
lagði áherslu á að hér væri á ferðinni
mál sem væri orðið mjög stórt
vandamál í Evrópu, og fslendingar
þyrftu að gera sér grein fyrir hvern-
ig ætti að bregðast við því áður en
það yrði aðkallandi hér á landi. -EÓ
Áhalda-
húsið á
Patró
brann
Um klukkan tfu síðastliðið
fóstudagskvöld kom upp eldur
í Áhaldahúsi Patreksfjarðar-
hrepps. Siökkvistarfinu lauk
rúmum þremur klukkutfmum
síðar. Þar brann allt sem
bmnnið gat.
Samkvæmt upplýslngum Iög-
reglunnar á Patreksflrði er tal-
ið líklegt að kviknað hafi í út
Englrgáglar M|||||Í
tjaraMÍ
sli
Gífurlegum fjármunum er árlega
varið í endurbætur og viðgerðir,
því skulum við nýta okkur ónegldu
hjólbarðana og haga akstri eftir
aðstæðum.
GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK
frá olíukyndingu.
-j*
7