Tíminn - 19.10.1991, Page 8

Tíminn - 19.10.1991, Page 8
8 Tíminn Laugardagur 19. október 1991 ..— . Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, segir að vegna uppbyggingar fiskvinnslu í Evrópu verði ekki hjá því komist að sameina mörg frystihús hér á landi og loka öðrum: Við eigum ekkert val Byggðastofnun hefur verið í fréttum undanfamar vikur, meira en venjuiega, og er þá langt til jafnað. Margt kemur til: fjárhagsstaða stofnunarinnar til dæmis og þeirra sjóða sem nú hafa verið gerðir að deildum hennar. Um leið hafa menn tekist á um byggðastefnu og hlutverk Byggðastofnunan hvort hún eigi að hafa fjárveiting- arvald, eða aðeins vera til ráðgjafar. Forstjóri Byggðastofnunar, Guðmundur Maimquist, hefur einnig verið í fréttum. Á honum hefur mætt að svara fyrir stofnunina og það starf sem hún vinnur. Guðmundur Malmquist er í helgarviðtali Tímans. — Þarf heila stofnun til þess að viðhalda byggð á landinu? „í flestum löndum Vestur-Evrópu eru starf- ræktar stofnanir sem hafa það hlutverk að styðja við veikari byggðir í viðkomandi lönd- um. Það gera þær með ýmsu móti: fjárfest- ingarstyrkjum, flutningsstyrkjum og sjálf- sagt í einhverjum rekstrarstyrkjum. Það hefur verið lítið um styrki hér. Það hef- ur þó verið unnið að byggðamálum og vandamálum atvinnulífsins í mjög mörg ár. Það var fyrst árið 1985 sem þau voru sett undir sérstaka stofnun, Byggðastofnun. Hennar meginmarkmið er eins og segir í lögum um stofnunina....að stuðla að þjóð- hagslega hagkvæmri byggð í Iandinu.“ Menn deila um leiðir til að ná þessu marki. Upp á síðkastið hefur orðið áherslubreyting. Horft er til svokallaðra vaxtarsvæða, til að efla samgöngur innan ákveðinna svæða þannig að þau eigi möguleika á meiri sam- vinhu og geti þannig vaxið upp. Á þetta benti ég árið 1986. Auðvitað er það ósk manna að viðhalda megi byggð í öllu landinu. En það er ósk- hyggja, raunveruleikinn er annar. Ég held að í dag geri flestir sér grein fyrir því að það verður einhver breyting á byggðinni í land- inu. Hún kemur af sjálfri sér. Það þarf hins vegar að skjóta fleiri stoðum undir atvinnu- lífíð á landsbyggðinni. Það er svo einhæft víða. Víða er erfitt fyrir bæði eiginkonu og eiginmann að fá vinnu við sitt hæfi; um leið er það viðurkennt að það þarf tvo til að sjá fyrir heimili. Við erum að breyta starfi stofnunarinnar í þá átt að hún sinni undirbúningi og þróun- arverkefnum frekar en að vera stór lána- stofnun eins og hún hefur verið. Stofnunin þarf hins vegar alltaf að hafa undir höndum lánsfjármagn til að geta sinnt hlutverki sínu. Það skiptir hins vegar miklu hvaðan hún fær þetta fjármagn. Ég viðurkenni það, eins og margir aðrir, að það gengur ekki að reka stofnunina á lánsfé einu saman. Við höfum bent á það í ársskýrslum Byggðastofnunar að hún þarf verulega á því að halda að fá fjár- framlag beint frá ríkinu." — Hvernig lýst þér á stefnu núverandi rík- isstjórnar í byggðamálum, sem sumir vilja kenna viö afskiptaleysi? „Núverandi ríkisstjórn hefur tekið þá ákvörðun að ekki skuli gripið til neinna sér- tækra aðgerða í atvinnumálum, eins og gert var með atvinnutryggingarsjóðum útflutn- ingsgreina. Byggðastofnun vill að kvótasam- drætti verði mætt þannig að fundin verði leið til að gera öllum jafn hátt undir höfði. Ríkisstjórnin ætlast til þess að heimild í lög- um frá í vor um eftirgjafir lána hjá atvinnu- tryggingardeild Byggðastofnunar verði ekki notuð til þess að rétta af fjárhag einstakra fyrirtækja. í staðinn er talað um að fresta af- borgunum af Iánum deildarinnar á næsta ári, vegna þess hve kvótaskerðingin er mik- il. Það er auðvitað skylda stjórnvalda að skapa almennan og góðan grunn undir atvinnulíf- ið. Það sem þarf er góður rekstrargrundvöll- ur. Ég hef hins vegar verulegar áhyggjur af því að sjávarútvegsfyrirtækin í landinu lendi í erfiðleikum vegna gengismála, kvótaskerð- ingar og eins eru blikur á lofti um að fisk- verð muni senn lækka. Og ef svo fer, þá held ég að tekjur margra íyrirtækjanna hrökkvi illa íyrir skuldum. Kvótaskerðingin hefur leitt til þess að for- ráðamenn fyrirtækja víða um land hugleiða nú alvarlega sameiningu og hagræðingu. Ég get nefnt sem dæmi að Útgerðarfélag Dal- víkinga gerði tilboð í hlutafé Hlutafjársjóðs í Meitlinum í Þorlákshöfn út frá því sjónar- miði eingöngu að hægt væri að hagræða verulega með því að flytja kvótann norður. Vegna byggðarsjónarmiða féllst stjórn Byggðastofnunar ekki á þetta. Ég get einnig nefnt frystihúsin á Árborgar- svæðinu. Byggðastofnun hefur ákveðið að stefna að sameiningu Hraðfrystihúss Stokkseyrar og Glettings í Þorlákshöfn. Kvótinn hefur dregist svo mikið saman á síðustu árum að á mörgum stöðum mætti leggja heilu togurunum án þess það bitnaði á aflanum. Það eru nóg skip til að veiða þann kvóta sem má. Það eru margir að skoða þetta. Nýjasta dæmið er tilboð Norðurtang- ans og Frosta í Freyjuna á Suðureyri. Þar mun ætlunin að leggja togaranum Elínu Þorbjarnardóttur. Það, sem ég er að segja, er að menn bregðast við þeim vanda, sem við blasir, með því að skoða aðstæður og mögu- leika heima fyrir og í næsta nágrenni." — Hvemig tókust stórfelldar björgunar- aðgerðir síðustu ríkisstjómar? „Ég hefi nú starfað við þessi mál ansi lengi. Fyrst sem lögfræðingur Framkvæmdastofn- unar sem Byggðasjóður heyrði undir, og síð- an sem forstjóri Byggðastofnunar. Ég hefi mörgum sinnum tekið þátt í því að endur- skipuleggja fjárhag margra fyrirtækja. Það verður að segjast að síðasta lota með At- vinnutryggingarsjóði útflutningsgreina og Hlutafjársjóði Byggðastofnunar er stærsta og mesta verkefni af þessu tagi sem ráðist hefur verið í. Einhver þessara fyrirtækja standa undir skuldum sínum. Sum þeirra gera það ekki. í mörgum tilvikum tókst að endurskipuleggja fjárhag þeirra, sem var af hinu góða. Það þýðir hins vegar ekki að halda áfram endalaust að endurfjármagna fyrirtækin með frekari lánveitingum; það þýðir ekki að fara aftur af stað með slíkar björgunartil- raunir. Stjórnendur góðu fyrirtækjanna, þeirra fyrirtækja sem hafa gengið á þeim rekstrar- grundvelli sem verið hefur, sætta sig ekki við að hið opinbera sé alltaf að bjarga ein- stökum fyrirtækjum. Það er ætlast til þess að ráðist sé að uppruna vandans, sem stund- um liggur hjá stjórnendum fyrirtækjanna." — Hver er staða byggðamála í dag? Þú hefur sagt að Vestfirðir standi illa? „Vestfirðir hafa, held ég, farið verst út úr kvótaskerðingu undanfarinna ára. Líklega vegna þess að kvóti þeirra er meira samsett- ur af þorski en annars staðar. En það er líka eins og vinnslan á sumum stöðum á Vest- fjörðum skili ekki eins miklu og annars staðar. Hvernig á því stendur vitum við ekki. Þetta veldur miklum erfiðleikum á þessu svæði. Það er líka erfitt að eiga við þetta, vegna þess að þarna eru samgöngur slæmar og erfiðara að koma á samvinnu milli svæða en víða annars staðar. En málið er miklu stærra. Mynstrið togari- frystihús gekk vel hér fyrr á árum, þegar afli var nægur allan ársins hring. Svo er ekki lengur. Víða úti um land liggja togarar við bryggju í lengri eða skemmri tíma og frysti- húsin standa ónotuð heilu og hálfu dagana.“ — Stöndum við frammi fyrir því að þurfa að ákveða hvort hér eigi að viðhalda byggð með óhagkvæmri fiskvinnslu, eða reka hag- kvæma fiskvinnslu þó það komi ýmsum byggðarlögum illa? „Við getum ekki sætt okkur við að reka óhagkvæma fiskvinnslu. Evrópubandalagið er að byggja upp fiskvinnslu af fullum krafti með styrkjum. Ef allt verður gefið hér frjálst, verður aðstaða skuldsettra íslenskra frystihúsa í samkeppni við ný og styrkt evr- ópsk frystihús sem auk alls eru nærri mark- aðnum, mjög slæm. Það verður mjög erfitt fyrir íslenska fiskvinnslu að keppa við evr- ópska; önnur er mjög skuldsett, hin styrkt. Á þetta hefur Byggðastofnun bent. Hér verður að hagræða eins og hægt er. Þau eru mörg frystihúsin hringinn í kringum land- ið, sem eru með litla sem enga framleiðslu, standa auð heilu og hálfu dagana. Frystihúsin eiga undir högg að sækja. Sjáðu vinnsluna á sjó, frystitogarana. Þar gilda ekki sömu reglur og frystihúsin verða að hlýða. Vinnutíminn miklu lengri. Af- raksturinn, tekjurnar, er auðvitað meiri. Og ég hef það á tilfinningunni að nú stefni í nýja bylgju af frystitogurum. Þeir eru marg- ir sem eru að skoða þann kost.“ — Það er ekkert val? „Nei. Frystihúsin verða að sameinast. Um annað er ekki að ræða. Við megum heldur ekki láta eins og það sé alslæmt. Þegar það gerist má oft skipta liði og verkum. Sérhæfa vinnsluna í hverju húsi. Ég held að nú gangi mjög vel í frystihúsinu á Hofsósi. Það skipt- ir verkum við Fiskiðjuna á Sauðárkróki. Ef af sameiningu verður á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík, verður gripið til sama ráðs þar.“ — Forsætisráðherra hefur sagt að taka beri fiárveitingarvaldið af Byggðastofnun og færa það til Alþingis. Hvernig vilt þú að Byggðastofnun sé uppbyggð? „Ég hefi nú sem bttur fer ekki neitt alræð- isvald. En ég er alveg sammála því að færa eigi Byggðastofnun meira í átt til þess að vera undirbúnings- og þróunarstofnun. Hún leiti nýrra atvinnutækifæra. En eins og ég sagði áðan, þá verður stofn- unin lítils megnug ef hún hefur ekki líka möguleika á því að stunda lánastarfsemi. Auðvitað er hóf best í öllu, eins og sést af fjárhag Byggðastofnunar. Það hefur verið lagt á hana að taka erlend lán til endurút- lána. Henni hafa ekki verið tryggðir þeir fjármunir, sem hún þarfnast, á fjárlögum. í vor var eiginfjárstaða hennar bætt um 1.200 milljónir, sem stofnunin varð að setja allar á afskriftareikning. Þau voru endalok baráttu okkar fyrir bættum fjárhag, sem staðið hafði í eitt ár. Ég held að það sé best að saman fari undir- búnings- og þróunarstarf og lánveitingar. En það þarf að efla fyrrnefnda þáttinn. Eins og málum er nú háttað, er oft búið að byggja fyrirtækið upp áður en í ljós kemur hvort það gengur. Þetta er landlægt. Þau eru mörg málin sem þannig koma inn á borð Byggða- stofnunar. Það er búið að ráðast í þau, búið að skrifa undir samninga, búið að skuld- binda svo er komið til okkar og beðið um hjálp, þegar allt er komið í vandræði. Þessu þarf að breyta og það má gera með því að efla undirbúnings- og þróunarstarf Byggða- stofnunar." — Hvemig líst þér á þann ásetning ríkis- sfióraarinnar að fiytja Byggðastofnun út á land? „Við fórum í gegnum þessa umræðu árið 1985 og 1986 og það er mitt mat að það sé mjög erfitt, ef stofnunin á að sinna því hlut- verki sínu að vera undirbúnings- og þróun- arstofnun fyrir ríkisvaldið í heild. Slíkur flutningur væri líka mjög erfiður. Stofnunin er mjög tengd miðstjórnarvaldinu í Reykja- vík. Það er hluti af eðli hennar að vera það. Auk þess verðum við að hafa í huga að stofn- un er starfsfólkið. Það er til lítils að flytja stofnun út á land ef starfsfólkið fylgir ekki með. Það yrði þá ný stofnun. Við höfum markað okkur þá stefnu að öll aukning í starfi Byggðastofnunar verði úti á landi. En ég held að Byggðastofnun væri lít- ils megnug, ef hvort tveggja yrði gert: hún flutt út á land og tekið af henni fjárveiting- arvald.“ — Að Iokum: Fjárveitingar ykkar til tveggja fiskeldisfyrirtækja nú í vikunni vöktu mikla athygli, í Ijósi þess að ríkis- sfiórain hefur lýst því yfir að ekki verði veitt meiru í þá starfsemi. Vinnið þið gegn stefnu ríkisstjómarinnar? „Byggðastofnun var að gæta hagsmuna sinna, þegar ákveðið var að veita Miklalaxi og Silfurstjörnunni styrki. Það var ekki ann- að að gera við Miklalax en veita honum styrk — ekki þýðir að veita lán. Gjaldþrot hefði komið í sama stað. Bústjóri hefði komið til Byggðastofnunar og sagt: Hvað vill stofnun- in gera? Og stofnunin hefði orðið að taka við þrotabúinu. Stofnunin á fyrirtækið. Niðurstaðan varð sú að gera þetta frekar og með heimamönnum, reka stöðina áfram og gera úrslitatilraun til að bjarga Miklalaxi. Silfurstjarnan var byggð mjög seint á þess- um fiskeldisuppbyggingartímum. Hún er tæknilega fullkomnari en flestar aðrar stöðvar. Ef eitthver þeirra gengur, þá gengur hún. Rétt þótti að veita styrk til þess að end- urbyggja fóðurkerfið. Því fylgir sparnaður upp á eina milljón á mánuði og helminginn af því ætlar Silfurstjarnan að nota til að greiða niður skuldir sínar við Byggðastofn- un. Staðan þarna er allt önnur en hún var hér fyrir sunnan. Þar voru margir hluthafar, bankar og sjóðir, sem allir hlupu undan þeg- ar illa gekk. Byggðastofnun er ein í þessum fyrirtækjum. Byggðastofnun er að vernda hagsmuni sína með þessu og forsætisráð- herra hefur fullan skilning á því og þeirri erfiðu stöðu sem stofnunin er í. Og það er ekki nóg með það. Sjáðu stöðuna í Fljótunum, þar sem landbúnaður hefur dregist heilmikið saman. Það er ekkert gam- anmál að loka Miklalaxi. Þú segir ekki fólk- inu þarna að fara að gera eitthvað annað; það hefur ekkert annað að gera. Og lái Byggðastofnun hver sem vill fyrir að leggja 50 milljónir nú í úrslitatilraun til að bjarga Miklalaxi eftir öll þau ósköp sem þegar hafa farið í hann.“ Araar Áraason

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.