Tíminn - 19.10.1991, Síða 6
6 Tíminn
Laugardagur 19. október 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin I Reykjavlk
Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Glslason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrlmsson
Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason
Skrtfstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavfk. Síml: 686300.
Auglýslngasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi h.f.
Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- og kr. 130,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Ósanngjörn ályktun
Samband ungra jafnaðarmanna hélt fund í vikunni
og ályktaði um stefnu sína og viðhorf í ýmsum mál-
um.
Þar á meðal samþykktu þessi samtök ungkrata enn
eina ályktun sína um landbúnaðarmál, þar sem öfgar
flokksforystu þeirra í þeim efnum koma skýrt fram.
Er greinilegt að ungir jafnaðarmenn gefa foryst-
unni ekkert eftir í ósanngjarnri og ómálefnalegri af-
stöðu til landbúnaðar og þess fjölþætta vanda, sem
bændastéttin og verkafólk í búvöruiðnaði á við að
stríða.
Sem stjórnmálaflokkur sker Alþýðuflokkurinn sig
algerlega úr um þessa nýju tegund „bændahaturs",
enda naumast vottur af andófí innan flokksins gegn
hatursáróðri af þessu tagi. Þar syngur flokkskórinn
einum rómi.
í ályktun Sambands ungra jafnaðarmanna er að
fínna áskorun á þingflokk Alþýðuflokksins að halda
til streitu stefnu sinni um að nýjum búvörusamn-
ingi ríkisins við samtök bænda verði hnekkt.
Það sýnir ósvífnina hjá þessum ungliðum Jóns
Baldvins og Jóns Sigurðssonar að þeir tala um bú-
vörusamninginn sem siðleysisgerning og lýsa efni
hans svo að verið sé að skuldbinda „almenning mörg
ár fram í tímann“.
Hver maður með heilbrigða dómgreind áttar sig á
hversu óréttmæt sú ásökun er að búvörusamning-
urinn sé óeðlileg fyrirgreiðsla við bændastéttina og
að honum sé hægt að breyta að pólitískri vild. Sú
fullyrðing að verið sé að „skuldbinda almenning
mörg ár fram í tímann" er augljóst skrum gagnvart
kjósendum, sem raunar er vafamál að fái mikinn
hljómgrunn.
Flestir íslendingar þekkja hver aðdragandi búvöru-
samningsins var og hvert markmið hans er. Búvöru-
samningurinn er liður í þeirri víðtæku áætlun, sem
þingfylgi er fyrir og bændur styðja að fullu, að draga
úr umframframleiðslu landbúnaðarvara, aðlaga
hana þörfum innlends markaðar.
Þessi stefna var mörkuð með búvörulögum frá
1985. Þar var gert ráð fyrir aðlögunartíma að því er
varðar framkvæmd laganna. Fyrir því var pólitískur
meirihlutavilji að bændastéttin og íandbúnaðarkerf-
ið í heild fengi réttlátan tíma til aðlögunar, enda hef-
ur það ætíð komið skýrt fram gagnvart Alþingi og
stjórnvöldum að bændasamtök hafa sýnt í því frum-
kvæði, sem ber að meta og taka tillit til.
Ef litið er til þess árangurs, sem þegar hefur náðst
í samdrætti í búvöruframleiðslu, er ljóst að hann er
verulegur. Bændur hafa undirgengist samdráttinn
með skipulegum hætti, svo að ekki er með neinni
sanngirni hægt að fínna að þeirri framkvæmd. Þessa
sá fljótlega stað í mjólkurframleiðslu og fullur vilji
að hafa hana í jafnvægi. Skerðing sauðfjárhalds,
fækkun sauðfjár í landinu, hefur einnig gengið eðli-
lega. Bændur biðja ekki um annað en að fjárhags-
legri og félagslegri röskun uppstokkunar í landbún-
aði sé mætt með siðmannlegum, samningsbundn-
um hætti.
^BeNJAMÍN H.J. Eiríksson
hefur sent frá sér bókina Hér og
nú, þar sem birtar eru blaða-
greinar hans frá síðustu árum.
Bók þessi er ekki síður forvitni-
leg fýrir margra hluta sakir en
bók Benjamíns, Ég er, sem kom
út 1983. Nýja bókin er þó þýð-
ingarmeiri en sú fyrri, vegna
þess að í henni segir höfundur
frá veru sinni í Sovétríkjunum.
Hann fór þangað til að læra hag-
fræði 1935 fyrir meðmæli Brynj-
ólfs Bjamasonar og þrátt fyrir
mótmæli Einars Olgeirssonar,
sem vildi senda Hauk Björnsson.
,Auðvitað réði Brynjólfur,“ segir
í bókinni. Þótt Hér og nú sé að
miklum hluta áður birt efni, eru
í upphafi hennar áður óbirtir
kaflar, sem upplýsa svo sem
verða má ástæður fyrir þrauta-
göngu Benjamíns á vegum
kommúnista.
Flokksbroddar f fæði
Höfundur var hraustur maður
og heilsugóður og varð ekki var
neinna kvilla, nema hvað hann
fékk taugaveikibróður í Moskvu,
og var ár að ná sér eftir þau veik-
indi. Þótt Benjamín væri hraust-
ur og bæri það með sér, vom
fulltrúar Sovétmanna alltaf að
spyrja hann hvernig heilsan væri
áður en hann fór austur. Það var
eins og aðeins afrenndum
mönnum væri ætlað að stunda
nám í Moskvu á þessum tíma.
Benjamín áttaði sig á því þegar
komið var austur 1935, að viður-
væri fólks var harla bágborið,
enda einni hungursneyðinni ný-
lega lokið. Þar sem hann bjó var
vinnukona úr sveit með mjög
framsettan maga. Kommúnistar
kunnu skýringu á því, og sögðu
að stúlkan hefði fengið sinn
framsetta maga af því að vinna á
ökmm. Benjamín gat sér þess
hins vegar til, að hungur hefði
farið svona með hana. Hann
gætti þess hins vegar að gera
enga athugsemd við hina flokks-
legu skýringu. Brynjólfur og
Einar komu til Moskvu á þing
Komintern á meðan Benjamín
var þar. „Ég sá að þeir fengu
öðmvísi mat en almenningur í
Moskvu," skrifar hann um hina
íslensku flokksbrodda.
Kvaðst á brautarstöð
Við lestur áður óbirtra kafla í
bók Benjamíns kemur í hugann
hvað völtum fæti öll sagnfræði
kommúnista stendur. Þó er ekki
enn kominn tími til að skil-
greina lygar og afflutning þeirra
til hlítar. En það er byrjað að
rofa til. Langan tíma tekur að
breyta Tansaníu-kerfmu í skóla-
málum okkar, svo dæmi sé tekið,
eða skera burtu allar þá leyndu
eða ljósu innrætingu sem þar er
beitt. Lungann úr þessari öld
hefur sagnfræði kommúnista
verið allsráðandi. Meðhalds-
menn þeirra hafa verið mælskir
og eftir þá liggur sandur af rit-
smíðum, sem standa í dag eins
og fáránlegir loftkastalar utan
um getgátur. í stuttu máli skýrir
Benjamín frá margháttuðum
uppákomum í samskiptum við
kommúnista á meðan hann var
sjálfur kommúnisti og vildi trúa
á andlega og veraldlega forsjá al-
ræðisríkisins. Hann fann þó
fljótt að kommúnistum var ekki
gefin nein sérstök vitsmunavit-
und í hagfræði og dvaldi því ekki
í Moskvu nema í rúmt ár. í byrj-
un desember 1936 var hann
ferðbúinn. Tvö fylgdu honum á
jámbrautarstöðina, Eymundur
Magnússon og Vera Hertzsch.
Þau Benjamín og hún höfðu
kynnst í Moskvu. Hún hafði áður
búið í Pétursborg með Rosen-
blum flokksfélaga. Hann kom
við sögu í hreinsunum 1937.
Hvorugt þeirra Veru og Benjam-
íns kusu að tala um framtíðina.
„Vera yrði ágætis lífsfömnautur
ef allt yrði með felldu,“ skrifar
Benjamín um hugsanir sínar á
brautarstöðinni. Þau skrifuðust
á eftir að hann fór og Benjamín
gerir hvorki að játa eða neita að
hún hafí alið honum dóttur.
Að svelta í góðri trú
Eins og öll sagnfræði kommún-
ista er ónýtt verk, ónýttust líka
öll eðlileg og mannleg sambönd
í hafróti gerræðislegra athafna
sovéskra stjómvalda fyrir stríð,
þegar mest lá við að reka áróður-
inn um dýrðarríkið í Rússlandi.
Menn, sem ætluðu þangað, voru
spurðir að því hvort þeir hefðu
heilsu. Pappírsbúkum flokks-
brodda erlendra ríkja var hlíft
við harðræðinu, sem þjóðin
mátti þola, með því að gefa þeim
annan og betri mat, væm þeir
gestkomandi. Þessir sömu aðilar
voru ekki fyrr komnir heim frá
hungurmörkum gistivináttunn-
ar en þeir hófu upp sönginn um
meðferð auðvaldsins á fátæk-
lingum. Sá söngur er kunnur ís-
lendingum, þótt þeir hafi aldrei
haft nema spurnir af auðvaldi.
Nú, mörgum mannslíkum síðar,
kemur Alþýðubandalagið á mið-
stjórnarfund og samþykkir í
drögum að stefnuskrá: „Innan
ramma róttækrar jafnaðarstefnu
ber að nýta kosti markaðsbú-
skapar á margvíslegum sviðum,
en þó ætíð með það að leiðar-
ljósi, að markaðurinn á að vera
þjónn en ekki herra, tæki en
ekki trúarbrögð." Það sem
kommúnisminn mátti, þ.e. að
vera herra og trúarbrögð, má
markaðsbúskapurinn ekki vera.
Þetta er einskonar kínverskur
afturbati. Það þarf svo ekki að
taka fram, að engum dettur í
hug að markaðsbúskapur eigi að
vera herra og trúarbrögð í senn.
En sagnfræðingar kommúnista
og hugsjónasmiðir hans hafa
logið svo lengi til um markað og
sjálfsbjargarviðleitni, að þeim er
ómögulegt að ræða um mark-
aðsbúskap nema með endalaus-
um fyrirvörum. Sveltum þjóð-
um Sovétríkjanna voru ekki
gefnir neinir fýrirvarar í áratugi.
Þeir sultu í góðri trú.
Nemandi á
vítamínsprautum
Um það bil sem þeir Einar og
Brynjólfur voru að éta steikur
hjá Komintem í Moskvu, bjó
námsmaðurinn Benjamín í Zja-
vomiki, úthverfi Moskvu. Hann
lýsir staðnum þannig: „Eldað var
í sameiginlegu eldhúsi á litlum
olíuvélum, eins og þeim sem hér
stóðu í öllum eldhúsum sein-
ustu árin áður en rafmagnið
kom. Ekki man ég hvort við
höfðum rennandi vatn, en kam-
ar var í horni á garðinum, svo að
þarna höfðu að sumu leyti orðið
meiri framfarir en á Vatnsleysu-
ströndinni og í Holtunum þegar
ég var bam. Ég svaf á bedda á
miðju gólfi.“ Benjamín lýsir út-
hverfinu þannig, að húsin hafi
mest verið bjálkahús með görð-
um og limgerðum meðfram
götustæðum, sem vom þýfð.
Gangstéttir voru plankar með-
fram limgerðunum og víða
stóðu opnir skurðir, þar sem
grafið hafði verið fýrir lögnum.
En Benjamín sá fleira en óhrjá-
legt umhverfi sitt. Hann fann
matarskortinn, sem allur al-
menningur bjó við, og hann
komst að raun um að orðið
kommúnisti hafði nokkuð aðra
merkingu en fýrir vestan. Það
merkti ekki endilega mann með
ákveðnar skoðanir og hugsjónir,
heldur flokksmeðlim, sem hafði
forgang að stöðum og embætt-
um, „mann undir aga, trúnaðar-
mann“. Eftir að Benjamín kom í
skólann borðaði hann í sameig-
inlegum matsal nemenda. Fæð-
ið var brauð, kálsúpa, smjör eins
og ofan á eina brauðsneið og
smávegis af kjöti. Eftir á sá hann
að hann hefði átt að nýta sér
brauðið betur. Síðla vetrar var
honum bættur upp naumur
kostur með vítamínsprautum.
Vinstri menn í fornöld
Á sama tíma geisaði lofdýrða-
róðurinn um framtíðarríkið á
bökkum Volgu á Vesturlöndum.
Þá var ekki enn kominn tími til
að kenna föðurlandsstríðinu um
eymdina. Á íslandi stjórnuðu
þeir Brynjólfur og Einar Komm-
únistaflokki íslands. Þar komst
engin gagnrýni að um sovét-
skipulagið og aldrei síðan fýrr en
nú, að ljóst er orðið að sovét-
skipulagið er sniðið fýrir eitt-
hvað annað en fólk. íslenskir
blekbullarar af ýmsu tagi skrif-
uðu langar rollur um þá endur-
lausn, sem kommúnisminn fæli
í sér fyrir alþýðu manna. Jafn-
framt sá flokkurinn um að dreifa
áróðri um þessa blekbullara,
sem átti að sýna að þar færu
snilldarmenn. Þessi aðferð hefur
verið viðhöfð fram á síðustu
daga. Enn er verið að skrifa bæk-
ur og gera lærðar athuganir til
að undirstrika hvað kommún-
isminn er gamall í fólki. Ný ís-
landssaga hefur séð dagsins ljós,
þar sem margvísleg rök eru færð
fýrir því að vinstra fólk, allt frá í
fomöld, hafi verið góða fólkið
með réttlætið reitt í þverpokum.
Ekki hefur fundist svo eitt og eitt
þrælsgerði á liðnum árum, að
því hafi ekki fýlgt lærðar greinar
um hópflutninga vinstri manna
hingað í fornöld, sem hefðu tek-