Tíminn - 09.11.1991, Side 4

Tíminn - 09.11.1991, Side 4
4 Tíminn Laugardagur 9. nóvember 1991 UTLOND Bandarísk þingnefnd yfirheyrir háttsettan Víetnama: ENGIR BANDARISKIR STRÍÐSFANGAR Á LÍFI Háttsettur Víetnami, sem flúði foðurlandið, sagði þingnefnd Bandaríkja- þings í gær að það væru engir bandarískir stríðsfangar á lífl í Víetnam. ,í)g get alveg fúllyrt að það eru engir hermenn sem týnst hafa í bardaga, eða stríðsfangar, á lífi í Víetnam í dag,“ sagði Bui Tin, sem kynnti sig sem fyir- um talsmann norður-víetnamska hersins við yfirheyrslur hjá þingnefnd öldungadeildarinnar. f Washington er listi yfir 2.273 banda- ríska hermenn sem ennþá er saknað eftir Víetnamstríðið. Bandaríkjamenn segja að viðskiptaþvingunum verði ekki aflétt eða eðlilegt stjómmálasam- band tekið upp við Víetnama, fyrr en örlög þessara manna eru kunn. Tín, sem er fyrmm ofursti í víet- namska hemum og ritstjóri kommún- istablaðsins í Víetnam, en býr nú í Par- ís, sagði þingnefndinni að Sovétmenn hefðu yfirheyrt bandaríska hermenn, sem teknir voru til fanga. Framburð- ur Víetnamans hefur aukið líkumar á að jafhvel sé að finna upplýsingar í Sovétríkjunum eða á Kúbu um her- menn, sem týndust í Víetnamstríðinu, einsogíVíetnam. John Kerry, öldungadeildarþingmað- ur og formaður nefhdarinnar, sagði að framburður Tin væri mjög mikilvæg- ur, því hann staðfesti orö tveggja fyrr- um KGB- manna um að sovéskir emb- ættismenn hefðu yfirheyrt bandaríska fanga. Víetnömsk dagblöð sögðu frá því í gær að rannsóknarmenn, bæði frá Bandaríkjunum og Víetnam, hefðu ekkert fundið sem sýndi fram á að í Ví- etnam væm ennþá bandarískir her- menn á lífi. Nefnd með báðum aðilum er á ferð um Víetnam, um héröðin Ha Tay og Ha Tinh, til að kanna hvort einhvers- staðar leynist týndir hermenn á lífi. Reuter-SIS Bandaríkjamenn vilja ekki taka upp eölilegt stjómmálasamband viö Víetnama, fyrr en Ijóst er hvað varð um hermenn, sem týndust í bardaga, eöa stríösfanga. FRETTAYFIRLIT TOCLOBAN, Filíppseyjum . Aö minnsta kosti 5.000 manns hafa farlst í flóöunum miklu, sem gengið hafa yfir Filippseyjar undanfarið. Opinberar tölur segja að fjöldi látinna sé 3.400 manns, en talsmaður almanna- vama sagði að meira en 2.000 manns væri ennþá saknað og verði að telja það fólk af. MOSKVA - Sovésk flugvél fórst f Kákasusfjöllum I gær. Um borö I vélinni voru 34 manns og fórust allir. Tass-fféttastofan sagði að flak flugvélarinnar, sem var af gerðínni Yak-40, hefði fundist 20 km frá borginni Da- gestan i Makhachkala. BEIRÚT - Sprengingar urðu f Ameríska háskólanum I Beirút í gær, en skólinn átti 125 ára af- mæli. Á háskólalóðinni meiddust 8 manns, en sá staður hefur löngum veríð múslímskum hryðjuverkamönnum hugleikinn. KAÍRÓ - Egypskir stjórnmála- sérfræðingar telja að ísraelar og Arabar hefji friðarviðræður í Washington innan tveggja vikna. LAS PALMAS, Kanaríeyjar - Lík breska fjölmiðlajöfursins Ro- berts Maxwell, sem fannst látinn f sjónum við Kanaríeyjar, var flutt til Jerúsalem I gær, en þar verður hann jarðaður. Betty, eig- inkona hans, sagði á flugveliin- um í Gando við brottför, að hún væri ekki ánægð með skýring- una á dauða hans. HONG KONG - Vietnamskir karlmenn böröust um og konur grétu þegar fangaverðir fluttu fólkið nauðugt um borð i ferju, sem á að flytja það aftur heim til Vietnam. Þetta er fyrsta fólk- iö sem flutt er heim, eftir tveggja ára veru í Hong Kong, en bátafólkið svokallaða flúði frá heimalandinu í von um eitt- hvað betra. Bretar og Vfetna- mar hafa gert meö sér sam- komulag um að fólkið verði sent aftur heim. í þessari ferð fóru 57 manns. TÓKÍÓ - Nýi forsætisráðherr- ann þeirra Japana, Kiichi Miyazawa, hefur lofaö að hægt verði að fá sendar friðarsveitir frá Japan, ef þörf verður á því einhvern tímann. Hann ætlar sér að taka til í stjórnmálum í Japan. PEKING - Kínversk hæna, sem er þeim óvenjulegu hæfi- lelkum búin að vera með tvö æxlunarkerfi og fjóra fætur, getur verpt 50 eggjum á mán- uði. Hænan, sem ekki er ýkja gömul, aðeins fædd fyrr á þessu ári, byrjaði á þessu ofur- varpi í september. Óvenjuleg hæna hér á ferð. Brjóstasílikon ekki krabbameinsvaldur í víðtækri rannsókn, sem gerð var í Kanada, kom í ljós að líkumar á að fá brjóstkrabbamein aukast ekki þó að kona hafí látið stækka brjóst sín með sílikon. Alls tóku 11.991 konur þátt í rann- sókninni. Þær voru á aldrinum 20- 65 og höfðu farið í brjóstastækkun á árunum 1974-1986. í ljós kom að aðeins 35 konur af þessum 11.991 höfðu fengið brjóstkrabbamein eftir aðgerðina. „Þetta er eiginlega minna en búist var við, svo að það er ekki meiri hætta fyrir þessar konur en aðrar á að fá brjóstkrabbamein," segir Hans Berkel, stjórnandi faraldursdeildar- innar í krabbameinsstofnuninni í Al- berta í Kanada. Berkel sagði að þessi rannsókn væri sú mesta hingað til. Hún væri mun víðtækari en rannsókn sem gerð var í Kaliforníu árið 1986 á sama efni, en í þeirri könnun var úrtakið aðeins fjórðungur þess sem það var í kanad- ísku könnuninni. Könnunin náði aðeins til þeirra kvenna, sem hafa látið setja sflikon í brjóst sín, en ekki þeirra sem hafa látið svokallað Memeefni í brjóstin. Það er mjög umdeild aðferð við að stækka brjóstin, en Memeefni er bú- ið til úr gerviefninu pólíúretan. Far- ið var að nota Meme árið 1984, en það var tekið af markaði í Kanada, vegna ótta við að það yki hættuna á brjóstkrabbameini. Læknasamtökin í Kanada segja að ekki hafi neinar vísindalegar niður- stöður bent á að Meme yki líkurnar á brjóstkrabbameini. Reuter-SIS Samtök áhugafólks um málefni Sophiu Hansen og dætra hennar í Tyrklandi gangast fyrir undirskriftasöfnun: W BORNIN HEIM FYRIR Um þessar mundir gangast Samtök áhugafólks um málefni Sophiu Han- sen og dætra hennar í TVrklandi fyr- ir undirskriftasöfnun meðal al- mennings á íslandi, þar sem yflr- skríftin er „Bömin heim fyrir jól“. Þar er jafnframt skorað á íslensk stjómvöld að beita sér af alefli í þessu máli. Undirskriftalistum verður dreift um land allt, en nú þegar liggja frammi listar á öllum Olísbensínstöðvunum, auk þess sem undirskriftum verður safnað í Kringlunni og Kolaportinu um helgina. Þá er í athugun að boða til opins borgarafundar um þetta mál þar sem almenningi, sem áhuga hef- ur á málinu, gefst kostur á að tjá sig um málið eða sýna að öðru leyti stuðning sinn í verki. Sophia Hansen er ung íslensk móð- ir, sem hefur barist fyrir því að ungar dætur hennar komi aftur heim til ís- lands frá Tyrklandi. Sophia og fyrr- um eiginmaður hennar, sem er tyrk- neskur, eru skilin að borði og sæng. Henni hefur verið dæmt forræði bamanna þar til lögskilnaður tekur gildi. I júní á síðasta ári fóru systurn- ar í heimsókn til föður síns, en að heimsókn lokinni neitaði faðirinn að láta þær af hendi. Þrátt fyrir úrskurð dómsmálaráðuneytisins um skýs- laust forræði Sophiu yfir bömunum, hefur faðirinn neitað öllu samstarfi og virðir að vettugi óskir hennar og dætra þeirra um að litlu stúlkurnar hverfi aftur heim til íslands. Auk þess hefur hann neitað þeim mæðgum að hittast. Sophia hefur ekki séð dætur sínar í 17 mánuði og hefur litlar sem engar fregnir fengið af líðan þeirra, þar sem föðurfjölskylda barnanna neitar einnig að eiga nokkur sam- skipti við hana. Forgangskrafa Sophiu er sú að hún fái nú þegar, eða sem allra fyrst, lög- skilnað, þannig að hægt verði að dæma henni fullnaðarforræði bam- anna, sem er forsenda þess að lög- menn hennar í Tyrklandi geti rekið þetta mál fyrir tyrkneskum dómstól- um. Þá fyrst getur hún eygt von um Sönglagakeppnin Landslagið verður haldin í nóvember undir yf- irskriftinni Landslagið 1991. Að þessu sinni er það Ríkissjónvarpið sem mun senda keppnina út, en það hefur veríð í höndum Stöðvar 2 hingað til. Alls munu 10 lög keppa til úrslita, en fyrr í haust voru þau valin af dómnefnd úr miklum fjölda laga sem bárust fyrir tilskilinn tíma. Þátttaka hefur aldrei verið meiri í þessari sönglagakeppni, sem nú er að fá dætur sínar heim til íslands. Samtökin, sem stofnuð hafa verið, em þverpólitísk samtök fólks úr öll- um stéttum þjóðlífsins. Eftirtaldir aðilar veita fúslega frekari upplýsing- haldin í þriðja sinn. Sem fyrr er það Stúdíó Stöðin sem stendur fyrir keppninni og sér um framkvæmd hennar. P.S. Músfk sér um útgáfu tónlistarinnar sem í keppninni er. Ennfremur hefur verið samið við Ríkisútvarpið um kynningu á lögunum 10. Sú kynn- ing fer fram dagana 11.-29. nóvem- ber í þáttunum 9-fjögur og Landið og miðin á Rás 2. Urslitakeppnin verður síðan hald- in á Hótel íslandi, föstudagskvöldið JOL“ ar: Inger Anna Aikman s: 687279, Guðmundur Helgi s: 601000, Skorri Aikman s: 37777, Brynja Tomer s: 29. nóvember, og verður hún eins og fyrr segir í beinni útsendingu Sjónvarpsins og Rásar 2. Skipuð hefur verið 8 manna dóm- nefnd, sem mun velja landslagið í ár, en atkvæði hlustenda Rásar 2 munu gilda 20% á móti atkvæðum dómnefndar og atkvæðum gesta á lokakvöldinu. Atkvæðaseðlar verða birtir í dagblöðum laugardaginn 16. nóvember. SIS 620616 vs: 691162. SIS Landslagið að fara af stað

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.