Tíminn - 12.11.1991, Page 9

Tíminn - 12.11.1991, Page 9
Þriðjudagur 12. nóvember 1991 Tíminn 9 Er nýtt blóð nauðsynlegt í íslenska svínastofninn? íslensk svín hraust og frjósöm, en vaxa hægt og éta mikið: íslenskt svínakjöt er bragöbetra en erlent „Ég er að mörgu leyti ánægður með íslenska svínastofninn, hann hefur ýmsa kosti. Hann er fremur frjósamur og tiltölulega hraust- ur, þrátt fyrir skyldleikaræktun. Við íslenskir svínabændur viljum meina að bragðgæði kjötsins séu mikil,“ segir Guðbrandur Brynj- úlfsson, svínabóndi á Brúarlandi í Mýrasýslu, í samtali við Tímann. Nú er verið að rækta upp nýja hænsnastofna á íslandi, bæði nýjan kjötstofn og nýjan varpstofn, en er nauðsynlegt að koma með nýtt blóð inn í svínastofninn? Guð- brandur taldi svo vera í grein í bún- aðarblaðinu Frey í október síðast- liðinn. Okkar svínastofn stæðist mjög illa samanburð við erlenda hvað varðar vaxtarhraða og fóður- nýtingu, sem væri mun lakari í okkar stofni og fitusöfnun meiri. „Fitan er nú einu sinni það sem neytandinn vill ekki í dag, þannig að þegar maður lítur sérstaklega á þessi atriði, þá finnst mér nauðsyn- legt að fá inn nýtt blóð. Pétur Sig- tryggsson svínaræktarráðunautur heldur því fram að við getum bætt okkar stofn með ræktun. Vissulega er það hægt, en ég held að það bara taki svo langan tíma. Við megum ekki vera að því að bíða eftir því. Þess vegna verðum við að fá inn nýtt blóð, til þess að ná fyrr þessum eiginleikum sem við erum að sækj- ast eftir, þ.e. auknum vaxtarhraða, betri fóðurnýtingu og minni fitu“, segir Guðbrandur. „Ég vil hins vegar fara afskaplega varlega í þetta. Ef það verður farið að flytja inn nýtt erfðaefni, má náttúrlega ekki demba því út á bú- in í einni svipan. Það yrði að gera mjög nákvæmar rannsóknir á því hvernig þetta kemur út í blöndun við okkar stofn og hvaða áhrif það hefur t.d. á bragðgæði kjötsins. Kynbæturnar hjá okkur eru algjör- lega skipulagslausar. Bændur eru eitthvað að reyna að kynbæta og þá hver fyrir sig,“ bætir Guðbrandur við. Pétur Sigtryggsson syínaræktar- ráðunautur hélt erindi á Ráðu- nautafundi 1991 um svínarækt. Hluti þess erindis birtist í búnaðar- blaðinu Frey fyrir skömmu. Þar kemur fram að íslensk svín eru af- komendur ýmissa erlendra kynja, sem flutt voru til landsins á fimmta áratugnum og hafa verið ræktuð í landinu síðan. Pétur segir að fram að árinu 1980 hafi litlar eða engar upplýsingar verið til, t.d. um frjósemi gyltna, vaxtarhraða og fæðingarþunga grísa, kjötgæði o.fl. Byrjað var á víðtækum rannsóknum á íslenska svínastofninum á árunum 1980- 1983, ásamt skipulegu skýrsluhaldi í svínabúi Kristins Sveinssonar að Hamri í Mosfellssveit. Þegar niðurstöður lágu fyrir, var fyrst hægt að leggja mat á það hvernig íslenski svínastofninn var á þessum árum miðað við svína- stofna í nágrannalöndunum. Sá samanburður sýndi að svínarækt á íslandi stóð svínarækt á Norður- löndum langt að baki. Vöxtur grísa var hægur, mun lengri tíma tók að koma grísum upp í sláturstærð á íslandi og fitusöfnun íslensku grís- anna var mun meiri. Þar með opn- uðust augu svínaræktenda fýrir því að umbóta var þörf í íslenskri svínarækt til þess að koma til móts við kröfur neytenda um fituminna svínakjöt á viðráðanlegu verði. Einnig var augljós þörf á víðtæku skýrsluhaldi til að hægt væri að bæta íslenska svínastofninn, annað hvort með ströngu úrvali undan- eldisdýra eða með innflutningi á kynbótadýrum. „Óskir um innflutning hafa oft heyrst eftir að ofannefndar niður- stöður komu fram, og síðustu mánuðina hefur verið unnið skipu- lega að því að kanna hvernig standa eigi að slíkum innflutningi, án þess að glata verðmætum eiginleikum íslenska svínastofnsins, ef ákveðið verður að flytja inn erfðaefni. Rétt er að vekja athygli á að þeir svína- bændur, sem komið hafa á ná- kvæmu skýrsluhaldi og nota niður- stöður þess til að bæta framleiðsl- una og þá um leið rekstur svínabú- anna, hafa náð miklum árangri. Óhætt er að fullyrða að óvíða hafa orðið jafn miklar framfarir í nokk- urri búgrein og í svínaræktinni síð- ustu 4-5 árin. Viðbrögð neytenda bera þess glöggt vitni,“ segir í grein Péturs. Þá bendir Pétur á að allt frá árinu 1984 hefur verið lögð mikil áhersla á að koma til móts við kröfúr neyt- enda um fituminna og bragðgott svínakjöt. fslenskir svínabændur gætu auðveldlega minnkað fitu- magnið í svínakjöti meira en nú hefur verið gert, en fara þarf var- lega í þessum efnum. Varast ber að íslensk svínarækt lendi í sama vanda og svínarækt í nágranna- löndunum, en þar er æ algengara að neytendur og matreiðslumenn kvarti yfir að bragðgæðum svína- kjöts í þessum löndum hafi hrakað mikið á síðari árum, vegna þess að sláturgrísir séu orðnir of horaðir við slátrun. Aðallega er kvartað undan því að svínakjöt í nágranna- löndum okkar sé þurrara, seigara og bragðminna en áður. „íslenski svínastofninn er frjó- samur og lítið að sækja í innflutn- ing til að bæta frjósemi," er m.a. niðurstaða Péturs. Hann telur að koma ætti upp góðri kynbótastöð fyrir svín á íslandi. -js Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi eystra: Oábyrg ríkisstjórn fari frá völdum Kjördæmisþing framsóknar- manna á Norðurlandi eystra fór fram á Raufarhöfn í byijun mán- aðarins. Fjölmargar ályktanir og greinargerðlr voru samþykktar á þinginu og verða glefsur úr þeim birtar hér á eftir. Stjómmálaálykt- un, sem samþykkt var á þinginu, verður birt í heild sinni síðar. í stjómmálaályktuninni er m.a. bent á nauðsyn þess að koma þeirri óábyrgu ríiásstjóm, sem tapað hefur trúnaði fólksins í landínu, fri völdum. Astæður þess eru m.a. sagðar stórorðar yfiriýs- ingar ráðherra, sem oft á tíðum gangi þvert hver á aðra. Einnig er fjallað um EES-samninginn, og sagt að hann þarfnist ítaríegrar kynningar og skuti borinn undir þjóðaratkvæði áður en Alþingi tek- ur endanlega afstöðu til hans. Þá eru fordæmdar ýmsar þær tekju- leiðir, sem ríksstjórnin hefur boð- að, og bent á leiðir til úrbóta. Bent er á að lækka þurfi vexti, og end- urskoða skattalöggjöfina, m.a. að afnema aðstöðugjald, koma á hærra skattþrepi á hátekjur og skattleggja fjármagnstekjur. í kiördæmisályktun þingsins segh- m.a. að sú byggðastefna, sem rekin hefur verið undanfama tvo áratugi undir forystu fram- sóknarmanna, hafi sldlað árangri, þó svo að nokkuð vanti á að allt hafi tekist sem stefnt var að. Bent er á að á þessum tíma hafi tekist að byggja upp gott samgöngukerfi, og mikil uppbygging hafi átt sér stað í heilsugæslu og skólamálum um altt land. Hins vegar hafi það ekki dugað til, sér f lagi sakir þess að um árabil hafi fólki fjölgað á höfuðborgarsvæðinu á kostnað landsbyggðarinnar. Þar komi ehtk- um tvennt til: Ekld hefur tekist að skapa framleiðsluatvinnuvegun- um, sem að mestum hluta eru starfræktir á landsbyggðinni, tryggan efnahagsgrunn, þegar til lengri tíma er litið. Það hefur leitt til þess að fjármagn hefur fiust frá þeim til þjónustugeirans, sem er að mestu á höfuðborgarsvæðinu. Á hinn bóginn vantar mikið á að störfum á landsbyggðinni hafi fjölgaö í samræmi við fbúahlutfall á síðustu tíu árum. Opinberi geir- inn og þjónustustarfsemi hafa tekið um 85% allra nýrra starfa, og nánast öll þessi aukning hefur átt sér stað á höfuðborgarsvæð- inu. Þingið hvetur íhúa kjördæmisins tíl framsóknar og bjartsýni og að missa ekki trú á möguleikum lands og þjóðar, þrátt fyrir bölsýn- isáróður núverandi rfldsstjómar. Frumkvæði heimamanna, byggt á framtaki einstaklingsins og mætti samvinnu og félagshyggju, er nauðsynlegt til þess að áfram verði gott að búa á ísiandi. Þá var á þinginu skipaður fimm manna vinnuhópur til að gera tfi- lögur um stefnumótun og aðgerð- ir í byggðamálum. Hópnum er gert að skila tillögum sínum til stjórnar KFNE í lok febrúar 1992, og mun sfjóra kjördæmissam- bandsins í framhaldi af því boða til ráðstefnu um byggðamál voríð 1992. hiá-akureyri. Stjómmálaályktun Kjördæmisþing Framsóknarflokksins á Norðurlandi eystra, haldiö á Raufarhöfn 1.-2. nóv. 1991, mótmæfir harðlega stefmi núverandi rikisstjómar eins og hún birtíst afmenningi, meðal annars í velferðarmálum og afstöðu tíl atvinnu- mála. 1. Með álagningu þjónustugjalda og yf- irlýsingum ýmissa stuöningsmanna og hugmyndaftæðinga ríkisstjómarinnar um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu er verið að hverfa frá þeim grunni, sem byggir á samhjáip og félagslegu öryggi þeguanna og jafnræði á þessum sviðum án tíllits tíl efnahags eða búsetu. Spamaði og jafnvægi í ríkisbúskapnum verður að ná með stórauknu aðhaldi í rekstri og með því að leggja gjöldin & þá, sem best geta staðiö undlr þeim. Sú rik- isstjúm, sem nú silur, viröist hafa gefist upp við að spara í ríkUrekstrinum, sem sést best á því fjárlagafmmvarpi sem lagt hefur verið fram. Útgjöld þess era hærra hlutfall af landsframleiðslu en var á síðasta ári og þeini hækkun er mætt með aukinni skattheimtu á þá sem minnst mega sín. 2. Framsóknarmenn í Norðurlandi eystra minna á hina mMvægu þjóðar- sátt um kjaramál, sem náðist í ársbyrjun 1990 með öflugum stuðningi rííás- stjómar Steingrims Hermannssonar. Leggja ber höíuðáherslu á áframhald- andi stöðugieika i efnahagsmáium með endurnýjaðri þjóðarsátL Vandinn, sem atvínnuiífið stóð ftammi fyrir á árinu 1988, var það mikill að stjóravöld verða áfram að koma til að- stoðar við endurskipulagningu. Styrkja verður undirstöður ftamleiðsluatvinnu- veganna og ijúka því starfl, sem hófst með Atvinnubyggingarsjóði og Hiuta- fjársjóði. Þessu starfi er á engan hitt lokið, þó svo að núverandi rikisstjóm kjósi að horfa fram hjá því og ætli að láta gjaldþrotin hreinsa ti! í atvinnulífinu. 3. Fnllyrða má að ekkert sé eins áhrife- mikió varðandi tekjuskiptingu í þjóðfé- laginu við núverandi aðstæður og vaxta- sligið. Á þaö jafnt við um fyrirtaeki og heimili. Síðastliðið sumar gekk ríkis- stjómin á undan með vaxtahækkun á ríkisvtxlum og skuldabréfum, sem síðan spennti upp aðra vexti. Ráðast þarf með öllum tUtækum ráðum gegn þessum háu vöxtum, enda svo komið að raunvextir á óverðtryggðu inniendu lánsfé eru orðnir alft að 16%. 4. Endurskoða ber skattalöggjöfina. Af- nema ber aðstöðugjaldið, sem er órök- réttur skattur og hefur í gegnum tíðina fiutt ómælt fjármagn frá landsbyggðinni tU höfuðborgarinnar. Þingið styður hug- myndir um hærra skattþrep á hátekjur og skatt á fjármagnstekjur. Það er óþol- andi að meðan almennar launatekjur eru skattiagðar skuii fjármagnstekjur stór- eignamanna vera skattfijálsar. 5. Stefna ber áfram að opnn hagkerfi þar sem markaðslausnlr móti megin- stefnuna í viðskipta- og atvinnnmálum. Þinglð telur að leita beri fyrirmynda til þeirra þjóða, sem hafe byggt sitt hagkerfi á félagslegri markaöshyggju. En hún byggir á því að öflug samhiáip leggi grunninn að félagslegu og efnalegu ör- yggi þegnanna og f atvinnuiífinu sé auð- legð vinnuaflsins metín tfl jafns við íjár- magnið. Þingið varar alvarlega við því að hin harða penlngahyggja sé látín riða ferðinni eins og rikisstjórn Davíös Odds- sonar hefur kosið sér. 6. Framsóknarmenn á Norðuriandi eystra benda á að umhverfis- og náttúm- vemdarmál muni sífellt veröa mfldlvæg- ari málafiokkur. Árangur næst aldrei á því sviði með miðstýrðum aðgerðum í forml boða og banna. Leggja verður áherslu á ríka ábyrgð þeirra, sem nytja og umgangast iandið, og að sem flestír fái tækifæri tfl að njóta náttúm þess. Á þann bátt tekst best að aia með þjóðinni þá virðingu fyrir landinu sem nauðsyn- leg er tfl þess að við getum Iifað I sátt með því um leið og við nytjum það á sjálfbæran hátt 7. Mikttvægasta málið í stjómmálaum- ræðunni á næstu mánuðum verður samningurinn um EES. Framsóknar- menn á Norðurlandi cystra benda á aö samningurmn liggur ekki enn (yrir í endanlegri gerð. en af fréttum má ráða að í viðsldptasviðínu hafi náðst venfleg- ur árangur og tyrirvari um fjárfcstinga- bann útíendinga í útgerð og fiskvinnslu sé tryggður. Vert er þó á hinn bóginn að bcnda á að veigamfldlr fyrirvarar, sem fyrri rilds- sijóm setti, era fallnir út og í staðinn er kominn einn aflshetjar fyrirvari, sem menn grcinir n»jög á um hversu mikið hald sé L Þá verður að ganga rækilega úr skugga um hve mlkfl takmörkun sjálfsfonæðis, beln eða óbein, sé í samniiignum og tryggja að þjóðin verði upplýst um það og samningurinn síöan borinn undir þjóðaiatkvæði, áð- ur en Alþingi tekur endanlega afstöðu tilhans. 8. Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi eystra bendir á að nú- verandi rfldsstjóm hefur með vcrkum sínuin og stómm yfirlýsingum ein- stakra ráðherra í veigamlklum mála- flokkum, sem oft & tíðum ganga þvert hver á aðra, tapað trúnaði fúlksins í landinu. Þá bendir ekkert til þess að hún tnuni taka í þcim málum sem hér hafa verið nefnd. Beita verður öllum ráöum tíl þess að koma rfldsstjóra, sera svo er ástatt um, frá völdum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.