Tíminn - 12.11.1991, Blaðsíða 14

Tíminn - 12.11.1991, Blaðsíða 14
14 Tíminn Þriðjudagur 12. nóvember 1991 IHHI ÍÞRÓTTIR Evrópukeppni félagsliða í handknattleik: „Ekki óeðlileg úrslit“ — sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Víkinga, eftir að liðið féll út úr keppninni með því að gera 24-24 jafntefli gegn Alzira Avidesa frá Spáni „Við áttum kost á því að ná góðri foiystu í fyrri hálfleik, vorum tveimur mörkum yfir, en vorum þá klaufar og misstum boltann hvað eftir annað. í síðari hálfleik náðum við aftur tveggja marka forskoti, en þá var eins og við ætluðum að gera tvö mörk í hverri sókn og allt klúðr- aðist. En svona er þetta stundum í íþróttum. Við þurftum toppleik til þess að slá þetta spænska lið út, þannig að með svona leik af okkar hálfu voru þetta ekki óeðlileg úrslit Við stefnum núna á að gera betur en í fyrra á íslandsmótinu og í bik- atkeppninni," sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Vikinga, eft- ir að lið hans gerði 24-24 jafntefli við spænska liðið Alzira Avidesa í Evrópukeppni félagsliða í nýja Vík- ingshúsinu á laugardaginn. Spænska liðið komst áfram á 54-50 samanlögðu skori. Uppselt var í Víkingshúsið á laugar- dag og stemmningin góð. Víkingar hófú leikinn af krafti og skoruðu fyrsta markið. Víkingar héldu frum- kvæðinu fyrstu mínúturnar 2-1 og 5- 3. í stöðunni 6-4 kom slæmur kafli hjá Víkingum og Avidesa gerði sjö mörk í röð. Á þessum kafla misnot- uðu Víkingar meðal annars þrjú víta- köst. Víkingar náðu að minnka mun- inn í tvö mörk áður en gengið var til búningsherbergja í leikhléi, 10-12. Víkingar jöfnuðu 13-13 í upphafi síðari hálfleiks og eftir það var jafnt á öllum tölum, þangað til Víkingur náði tveggja marka forskoti 21-19 og 22-20 þegar 5 mín. voru eftir. Þegar flórar mínútur voru til leiksloka fékk Bjarki Sigurösson rauða spjaldið fyr- ir gróft brot og Avidesa jaftiaði 22-22 úr vítakastinu, sem fylgdi í kjölfarið. Besti maður Avidesa í leiknum, Ju- ena Alemany, skoraði sirkusmark og kom liöi sínu yfir 24-23, en Birgir Sigurðsson átti síðasta orðið og jafn- aði 24-24 á lokasekúndunni. En það dugði ekki til og Víkingar féllu út úr keppninni. Það verður að segjast eins og er að lið Avidesa var fúllstór biti fyrir Vík- inga að kyngja. Til þess að slá þetta lið út hefðu Víkingar þurft að eiga toppleik með alla sína menn heila, en því var því miður ekki að heilsa að þessu sinni. Risinn Alemany var Vík- ingum erfiður, eins og áður segir, og gamli refurinn Vasile Stinga var betri en enginn í sókninni. Geir Sveinsson stóð sig einnig mjög vel. Markvörð- urinn Jaime Fort varði 10 skoL Bjarki Sigurðsson stóð sig einna best Víkinga, en Alexei Trufan var einnig traustur. Hann lék með í sókninni á ný eftir meiðslin og gerði 3 mörk og 4 að auki úr vítum. Björg- vin Rúnarsson, Gunnar Gunnarsson og Birgir Sigurðsson hafa oft leikið betur, sér í lagi í sókninni, þar sem þeir virkuðu mjög óöruggir. Guð- mundur Guðmundsson á einnig að geta leikið betur. Þá lék Ámi Frið- leifsson lítið með, og eins Karl Þrá- insson. Norsku dómaramir Bjöm Högsnes og Svein Olav Öie skiluðu sínu vel. Voru alls ekki hagstæðir Víkingum. Mörkin, Víkingur: Bjarki Sigurðs- son 7, Alexei TVufan 7/4, Birgir Sig- urðsson 4, Guðmundur Guðmunds- son 2, Björgvin Rúnarsson 1, Gunnar Gunnarsson 1 og Ámi Friðleifsson 1. BL Birgir Sigurösson skorar fyrir Víkinga gegn Avidesa á laugardag. Birgir gerði fjögur mörk í leiknum. Tfmamynd PJetur Körfuknattleikur — 1. deild: BREIÐABLIK TAPADI TVISVAR ín !_Z 1--”_Jl__ — ÍR-ingar I kröppum dansi gegn Hetti Þ»ð gekk á ýmsti í 1. deildinni í kðrfu- boita um helgina, svo ekkl sé meira sagt Breiðabliksmenn töpuðu tvíveg- is, Akranes tapaði sínum fyrsta leik og ÍR-ingar unnu nauman slgur í framlengdum leik. Á fimmtudagskvðld sóttu Skaga- menn Stúdenta heim í íþróttahús Kennaraháskólans. Eftir tap fyrir Vflt- verja og Keilufélaginu, áttu ekki mergir von á því að Stúdentar yrðu hindrun fyrir Skagamcnn, sem voru taplausir fyrir leíkirm. En það fór á aðra leið. Leikurinn var mjðg sveiflukenndur, mikið um mistök á báða bóga, en Skagamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik með Bandarikjamanntnn Eric Rombach í farabroddi. Hann gerði 20 stig í hálfleiknum, en staðan íleflchléivar 33-38 ÍAÍvfl. Gestimir voru yflr fram t miðjan síð- ari hálfleik, þegar ÍS gerði 10 stlg i röð og breytti stöðunni úr 43-50 í 53- 50. ÍA svaraði með 2 stígum úr vít- um, en næstu 11 stig voru Stúðenta og staðan orðin 52-62 og rúm mínúta til leflcsloka. Leikmenn ÍA vöknuðu aðeins til lífsins í lokin og bættu við 12 stigum, en það dugði eldd tfl og ÍS vann ötruggan sigur 73-64. Páll Aroar skoraði 22 stig, Heigi Gústafsson 16, Valdimar Guðiaugs- son 13 og Jóhann Bjarnason 10 fyrir ÍS, aörir minna, en Eric Rombach gerði 28 stíg fyrir ÍA og Jón Þór Þóröarson 19 og minna. Höttur vann Breiðablik Höttur frá Egilsstöðum lék gegn Breiöabliksmönnum { Kópavogi á fóstudagskvöld. Skemmst frá að segja unnu Hattarmenn óvæntan sigur 77- 81. Breiðabliksmenn lentu f villuvand- ræðum og misstu fykflmenn út af með 5 villur. Leikmenn Hattar fengu 27 vítaskot gegn 8 hjá BreiðabUk og jðfnum lelk lauk með 77-81 sigrí Hattar. Bandaríkjamaðurinn í liðl UBK, Lloyd SargenL lék lítið með, sökum meiðsla. Stígahæstir hjá UBK voru EgiU Viðarsson með 20 stig, Hannes var með 19 og Hjörtur Haröarson með 15. Kristján Rafnsson var stiga- hæstur Egiisstaöabúa með 28 stig, en Bandaríkjamaðurinn Samuel Graham var með 22 og Hannibal Guðmunds- son 19. Höttur hársbreldd frá öðram sigri Á laugardag lék Höttur gegn IR i Seljaskóla. Hatiarmenn mætiu ákveðnir til kiks og skoruöu níu fyrstu stigln. Áfram héldu gestimir og náöu mest 15 stiga forystu um miðjan fyrri hálfleik 15-30. Þá vakn- aði Jóhannes Sveinsson tii lífsins og skoraði grimmt fyrir ÍR fram að hlé, en hann haföi ekld gert stig á fyrstu 7 mín. leflcsins. í leikhléi hafði Hötiur yfir 38-45. ÍR-ingar komust í fyrsta sinn yfir í ieiknum eftir 7 min. leflc í síðarí hálf- leik 56-55. Höttur náði aftur forskoti 58-65, en ÍR jaínaði 66-66. Þegar tæpar 3 mín. voru til leiksloka hafði Höttur yflr 68-74 og fyrsta tap ÍR virtist óumflýjankgt. Þeir Jóhannes Sveinsson og Björn L. gerðu þá 76 stig í röð og komu ÍR yfir 75-74. Á iokasekúndum leiksins fékk Kristján Rafnsson færi á að vinna lefldnn, er hann fékk vítaskot, en honum brást skotflmin í síðara skotinu og staðan var því jöfn 75-75. ÍR-ingar gerðu út um kflrinn með þvf að skora 8 fyrstu stig framkng- ingarinnar og þrátt fyrir góðan enda- sprett tókst Hetti ekki að vinna þann mun upp. ÍR vann því heppnissigur 85-82. Jóhannes Sveinsson tók lefldnn í sfnar hendnr fyrir ÍR, enda ekki van- þörf á. Auk hans áttu góða spretti Art- hur Babcock, Gunnar örn Þorsteins- son, Björo Leósson og Ragnar Torfa- son. Bjöm Steffensen lék ekki með vegna meiðsla. Sam Graham, Kristján Rafnsson og Hannibal Cuðmundsson báru lið Hattar uppi. Stigahæstir voru, ÍR: Jóhannes 35, Ragnar 16, Björo L 12 og Babcock 10. Höttnn Sam Graham 31, Kristján 29 og Hannibal 15. Aftur tap hjá Blikum Á sunnudaginn fengu Reynismenn í Sandgerði Blika úr Kópavogi í heim- sókn. Brelðabliksmönnum tókst ekki að fylgja góðri byijun (9-19) eftir og liðið tapaði sfnum fjórða ieik í röð, 105-102. „Það er erfltt að kika í Sandgerði þegar ritari leiksins gefur heimalið- inu stig og sleppir því við villur,“ sagði Sigurður Hjörieifsson, þjálfari Breiðahlflcs, í spjalli við Tímann í gær. Sigurður var afar óhress með störf ritarans og vildi meina að hann hefðl ranglega skráð stig á Reyni og fært viliur Reynlsmanna yfir i kikmenn Blflca. Larry Hotaling var Blikum erfiður, en hann innsiglaði sigur Reynis- manna úr vítaskotum f lokin. Larry gerði alls 54 stig í kflcnum. Fyrir Blflca gerðu Hannes og Hjörtur 22 stig hvor og Uoyd Sargent 21. Breiðabliksmenn lentu í miklum villuvandræðum í leflcnum og snemma f siðari hálfleik fóru leik- menn liðsins að tínast út af með 5 villur. Staðan í 1. defld karla f körfaknattleUc fR 5 5 0 427-349 10 Akranes 5 4 1 390-363 8 Höttur 6 3 3 454-450 6 Breiðablik 6 2 4 529-461 4 Reynir 5 2 3 446-410 4 ÍS 5 2 3 315-332 4 Vflcverji 4 1 3 247-325 2 Keflufélag R. 4 1 3 224-342 2 ÍBKíbasli I 1. deild kvenna lenti ÍBK f basli með UMFG, en vann 66-54 eftir að hafa verið undir í hálfkik 30- 32. Staðan í 1. deild kvenna f körfaknattleilc Keflavflc 5 5 0 346-236 10 Haukar 42 2196-177 4 ÍS 4 2 2 194-204 4 ÍR 312 127-135 2 KR 31 2 136-202 2 Grindavfk 5 14225-270 2 BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.